Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
TÓMAS MÖLLER
BERLINARBREF
Önnur hræðileg
nýjung, sem reyndar
hefur aðeins verið sett
upp á hinum 836
mílna löngu landa-
mærum við V-Þýzka-
land eru sjálfskota-
byssur sem skjóta á
flóttamann úr báð-
um áttum í fóta-,
hjarta- og höfuðhæð.
Alls hafa verið settar
upp 30.000 byssur
af þessari gerð og til
að kóróna hrottaskap-
inn þá skjóta þær
fínmöluðu brota-
járni sem tætir
mannslíkamann gjör-
samlega í sundur.
66
Flótti yfir Múrinn
Aöfaranótt 17. febrúar sl.
bættust tveir Austur-Þjóðverjar
í hóp þeirra sem hafa lagt líf sitt
að veði með því að flýja yfir
múrinn sem skilur á milli Vest-
ur- og Austur-Berlínar.
Fréttir af flótta austur-þýskra
borgara yfir Berlínarmúrinn
verða æ sjaldgæfari. Það sem
áður fyrr var nær vikulegur
viðburður er í dag fréttablöðum
V-Berlínar tilefni til stórfréttar
á forsíðu. Þannig var það einnig
um miðjan febrúar þegar tveir
ungir Austur-Þjóðverjar söguðu
járnrimla úr húsi einu sem
stendur við hina frægu landa-
mærastöð „Checkpoint Charlie",
biðu eftir að vaktaskipti færu
fram í næsta varðturni og hlupu
sem fætur toguðu yfir 20 metra
langt „einskismannsland" áður
en þeim tókst að klifra yfir 3,5
metra háan múrinn. Atta öðrum
Austur-Þjóðverjum tókst að
flýja land sitt á þenna ævintýra-
lega hátt í febrúarmánuði, en
220 samborgarar þeirra flýðu
með öðrum hætti í sama mánuði.
Samkvæmt austur-þýskum lög-
um flokkast þessir „ólöglegu
búferlaflutningar" undir glæp
sem nefnist lýðveldisflótti
(Republikflucht) og liggja þung-
ar refsingar við honum ef tekst
að handsama flóttamann.
í húsi einu sem stendur við
áðurnefndan Checkpoint Charlie
er safn nokkurt sem geymir
áhöld og tæki sem notuð hafa
verið við flótta frá A-Þýska-
landi. Einnig eru þar sýndar
myndir af flóttafólki og flótta-
leiðum. Þar er m.a. að sjá
heimatilbúna kafbáta, loftbelg
nokkurn heimasaumaðan úr
rúmlökum, en í honum flýðu 2
fjölskyldur í september síðast-
liðnum, og bifreið sem breytt
hafði verið þannig að manneskja
komst fyrir í bensíntanknum og
svo mætti lengi telja. Svo virðist
sem allar hugsanlegar flóttaað-
ferðir hafi verið notaðar frá því
að landamærum A-Þýskalands
var lokað, en ætíð hefur landa-
mæralögreglan gripið til mótað-
gerða til að hindra frekari
flóttatilraunir. Flóttaaðferð sú
sem notuð var við Checkpoint
Charlie nýlega verður ekki notuð
aftur; þegar er búið að þekja
flóttaleiðina með hárfínum
naglamottum. Naglamottur
íslendingar
við landamæri
V- og A-Þýzkalands
þessar eru þó ekki eina nýjungin
sem hinum austur-þýsku landa-
mæraverkfræðingum hefur dott-
ið í hug til að stöðva flótta
samborgara sinna yfir til Vest-
urlanda. Hin 114,6 kílómetra
löngu landamæri við V-Berlín
eru ein samfelld dauðagildra
sem gera hverja flóttatilraun að
leik við dauðann. Nýlega hefur
verið bætt við miklum fjölda
blóðhunda sem ganga frjálsir
milli þriggja metra hárra járn-
girðinga við hliðina á múrnum
sjálfum. Jafnvel landamæra-
verðirnir þora ekki nálægt hund-
um þessum, en stöðugt gelt
þeirra hefur valdið mikilli rösk-
un á næturfriði í nærliggjandi
íbúðahverfum.
Önnur hræðileg nýjung, sem
reyndar hefur aðeins verið sett
upp á hinum 836 mílna löngu
landamærum við V-Þýskaland,
eru sjálfskotabyssur sem skjóta
á flóttamann úr báðum áttum í
fóta-, hjarta- og höfuðhæð. Alls
hafa verið settar upp 30.000
byssur af þessari gerð og til að
kóróna hrottaskapinn þá skjóta
þær fínmöluðu brotajárni sem
tætir mannslíkamann gjörsam-
lega í sundur. Alls eru á landa-
mærum þessum 576 vaktturnar
og þau eru vöktuð af gífurlegum
fjölda hermanna sem allir hafa
skipun frá æðstu stöðum um að
skjóta á hvern þann samborgara
sinn sem reynir að yfirgefa land
sitt á ólöglegan hátt.
Um allan heim meðal annars á
íslandi, reyna hópar manna að
sannfæra samborgara sína um
ágæti sósíalísks þjóðfélag.
Greinarhöfundur hvetur þessa
menn að koma til Berlínar og
líta á hina sönnu hlið sósíalism-
ans. Það eitt má segja Austur-
Þjóðverjum til hróss, þeir reyna
ekki að fela þessa ömurlegu hlið.
>DR
Eifrige Tremntler
Anders afs Poíen und Ungnrn ioístote
díe DOR den Sowjets nach dom Eín-
mar#ch in Alghanistan von Anfsng an
pubiíustUehe Hiffe. «
Gaby und Raíner Aflhau*, Rcporlcr-
paar aus Ost-Beriin, bcnchtigten
díc I.íigen ihrcr KoHegen aut dem ka-
piialistischcn Ausiand. Keiiícswcgs
seicn in Kabul. wie von \Ves;-Journafi-
ttrn bchauptet, ailenthafhcn sowjetí-
scfce Einfceiten aufmarschiert. Die an-
gefcfich vott st'hw'erfcewafírtetcr- P.otar-
mkim bicckíeríe StraBe vor dcnt Haus
des Vofkc*. $o kabeitcn die bciden
DDR-Jourf^listen nach Hause. „pav
sicrcn wir>|reí“, gcntcínaant mit Hánd-
Jcm, dic ..wie eh und jc“ ihre Lastcsei
vor síeh triebcn —- Stimmungsbífd aus
der afghitnistfien Hauptsíadt, nachzu-
iescn irn ..Neucn DcuischJ&tid" vom
vjertett Januar.
AucJh Femschkorreíipttndcnt GUnter
Neriich sah nichls, was der Aufrcgung
wcrt gewesen ware, Den ÍTusdtaucm
daheím zeigtc er keinett cinzígen Pa;t-
zer oder Sowjetsofdaten.
..Das Lcben hat sich normalíssert”.
berichtete der Mstarheiter der DDR-
Nachrichienscndung „Aktueife Kamc-
ra11 bereits am 31. Dezember aus Ka-
bul, víer Tage ttach der scwjctischen
lotervention.
f <«»•.(♦%* Wjí.' '
DDK fest an tfmr Seíte Afghanistans
untmnt V»»«» MivMbn ihn S«t"toiitff mH tkfi HtithmxétOk K-ðtUn
tíik **?*•*** I tw. pv. voís*( iqwm! | tSí |
FortsthriHtkröfte feit on der MoBnahmen der USA
Seite des ofghomsehen Vofkes gefohrden Bexiehungen
W^S m-tt e*j*ri iitttiK-Hitt* trtoéMém rjtii*
xwiuheii 0*t und Wetl
Cixtfit 5tuA <t*t kfiittn >«
Mtmk Ksfmethwts tmfllffMpltnskst sstmúfkm frsmt tbr
Das Volk Afghanistans tritt in eine
neue Etappe der Aprilrevolution ein
SouverönHar, UrMbhön^ghnii twrftortotetmearftötiMdwohrnDnmohrorln.iehnm |
Schtagaetfen »m ,N«uen D«uf*chfand“; NírMt, wrat» der Auftogung ..
Jtr’Km I
rL£»wtt«an wlr« ODR-Fern*»hr*port«r Nmriich aa« Knbvt
AFG ANISTANM ALIÐ
Innrás Sovétmanna í Afganistan hefur valdið talsverðu
umróti á stjórnmálasviðinu í V-Þýskalandi. Slökunarstefnan
hefur lengi verið ein rósin í hnappagati sósíaldemókrata,
enda er Willy Brandt einn þeirra sem ruddu brautina með
sinni frægu „Ostpolitik". Þó hafa sósíaldemókratar lengi
verið sakaðir um að sýna Rússum of mikið traust og einn
þingmaður þeirra hélt því fram sl. haust að Rússar hefðu
aðeins vopn til varnar. Snögg breyting varð á afstöðu þessari
eftir að Sovétmenn yfirtóku Afganistan, og eru menn nú með
mjög skiptar skoðanir um slökunarstefnuna. F.J. Strauss
hélt því fram í sjónvarpsviðtali nýlega að þýska stjórnin
hefði blekkt þjóðina í öll þau 10 ár sem slökunarviðræður
hafa staðið yfir, og að stjórnin hefði litið þessar viðræður of
rómantískum og draumkenndum augum, í stað þess að kanna
betur útþensluáætlanir og raunveruleg heimsvaldamarkmið
Rússa í viðræðum þessum.
Dæmigert fyrir hin snöggu umskipti sem áttu sér stað í
máli þessu er aðdragandinn að áramótaræðu Helmuths
Schmiths. Hann hafði þegar samið ræðuna og lokið var við
upptöku áður en Rússar réðust inn í Afganistan. I ræðu
þessari lofaði Schmith áframhaldandi slökunarviðræðum við
Rússa og kvaðst fullviss um friðarvilja þeirra. Hinn 30.
desember, eftir innrásina, flaug upptökuhópur frá sjónvarp-
inu til Spánar þar sem Schmith var í fríi, og var þar tekin
upp ný og endurskrifuð áramótaræða, þar sem hvergi var
minnst á friðarvilja Rússa. Stjórnin í Bonn hefur gagnrýnt
Sovétmenn fyrir yfirgang þeirra, en samtímis hefur
stjórnarandstaðan gagnrýnt stjórnina fyrir að taka málið
vettlingatökum, að hafa gagnrýnt Sovétmenn með hálfum
huga, og viljað umfram allt halda dauðataki í áframhaldandi
tilgangslausar slökunarviðræður. Stjórnin hefur einnig sætt
harðri gagnrýni fyrir það að hafa ekki sýnt Bandaríkja-
mönnum nægilegan stuðning í aðgerðum þeirra gegn
Rússum.
Þjóðverjar hafa verið tregir til að taka þátt í stöðvun
vörusendinga til Sovétríkjanna, og auk þess hefur ákvörðun
um fjarveru frá Ólympíuleikunum verið frestað fram á vor.
Ferð Helmuth Schmiths í byrjun mars sl. og ferð F.J. Strauss
til Washington stuttu síðar stóð í beinu sambandi við deilur
þær sem risið hafa út af máli þessu, en afstaða stjórnarinnar
í Bonn hefur valdið bæði vonbrigðum og gremju í
Washington. Sem afsökun hefur verið bent á landfræðilega
legu V-Þýskalands, m.a. benti Schmith á þá staðreynd í ferð
sinni að rússneskar hersveitir væru í aðeins 50 km fjarlægð
frá heimili hans í Hamborg. í framhaldi af þessu ber að geta
þess að Þjóðverjar eru með mikil viðskipti við Sovétmenn:
10% af orkuinnflutningi þeirra kemur frá Sovétríkjunum í
formi jarðgass, olíu og kola, 40% af úrannotkuninni og stór
hluti af ýmsum sjaldgæfum málmum sem Þjóðverjar nota
eins og t.d. króm, platin og palladium koma frá Rússum.
Þegar allt er með talið, þá er Þýskaland stærsta útflutnings-
land Sovétríkjanna á Vesturlöndum, og einnig stærsti
útflytjandinn á vörum til Sovétríkjanna frá Vesturlöndum.
Sem fyrr sagði þá hefur Afganistanmálið vakið mikið
umtal, athygli og reiði í Vestur-Þýskalandi. Hér í Berlin
gefst tækifæri til að bera saman hina gjörólíku túlkun
fjölmiðla austan járntjalds og vestan á máli þessu. í
austur-þýskum fjölmiðlum hefur málið svo til daglega verið
tekið til umfjöllunar, en af túlkun þeirra á málinu mætti
ætla að engin íhlutun Rússa hefði átt sér stað. Fréttir í
vestur-þýska sjónvarpinu um mótmælagöngur í Kabúl, hafa
verið túlkaðar í a-þýska sjónvarpinu sem stuðningssamkom-
ur vegna „aðstoðar" Rússa, uppreisnarmenn hafa verið
kallaðir glæpamenn, og fréttamynd af straumi manna inn í
fangelsið í Kabúl sem voru að leita að föngum sem höfðu
verið teknir af lífi var túlkuð í austur-þýska sjónvarpinu sem
straumur af föngum er höfðu fengið frelsi út úr fangelsinu.
Svona mætti lengi upp telja, en hin mismunandi túlkun á
máli þessu sýnir berlega mikilvægi sjónvarpsins sem
áróðurstækis í höndum stjórnvalda. Einnig ber að geta þess
að í fréttum a-þýska sjónvarpsins hefur stöðugt verið talað
um innrásina sem „hugulsama og bróðurlega aðstoð við
vinaþjóð sem bað um hjálparhönd". í fréttum þessum hefur
varla verið minnst á mótmæli þau sem höfð hafa verið uppi
um allan heim, en hins vegar verið talað um „áróðursherferð
kapitaliskra afla gegn slökunarstefnunni", og flest allar
fréttir frá Afganistan hafa lýst mjög friðsömu landi,
hermenn sjást varla á ferð og engir bardagar hafa sést. Af
fréttum þessum er einnig að sjá sem almenningur í
Austur-Þýskalandi styðji aðgerðir Rússa en síðustu fregnir
herma að slagorð gegn Rússum hafi verið máluð á veggi
meðal annars í Rostock, og í Leipzig var dreift andsovéskum
fréttablöðum. I báðum borgunum voru tugir manna teknir til
yfirheyrslu enda eru slíkar skoðanir ekki æskilegar í þýska
„lýðræðislýðveldinu".