Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 43

Morgunblaðið - 25.03.1980, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980 23 Sigurvegarinn í Landsflokkaglimunni, Pétur Yngvason, HSÞ, fyrir miðju, bróðir hans, Ingi Þór Yngvason (t.v.), varð í öðru sæti og Guðmundur Ólafsson, Ármanni, varð í þriðja sæti. Ljósm. Guðjón. Bræðurnir börðust um sigurinn í Landsflokkaglímunni LANDSFLOKKAGLÍMAN 1980 fór fram í íþróttahúsi Kennara- háskólans síðastliðinn sunnudag. Keppt var í þremur þyngdar- flokkum fuliorðinna og ungl- inga- og drengjafiokki. í yfir- þyngdarflokki stóð keppnin á milli þeirra bræðra Inga Þórs Yngvasonar, HSÞ, og Péturs Yngvasonar, sama félagi. Þurfti úrslitaglímu til þess að skera úr um það hvor hlyti sigurinn þar sem báðir höfðu 2xk vinning er glímt hafði verið í flokknum. Pétur sigraði bróður sinn eftir nokkuð tvísýna viðureign. Keppni var einna skemmtileg- ust í ungiingaflokki og voru þar margar snarpar glímur. Úrslitin í Landsflokkaglimunni urðu sem hér segir: Yfirþyngd: 1. Pétur Yngvason, HSÞ 3‘/2 v. 2. Ingi Þór Yngvason, HSÞ 2'/2 v. 3. Guðmundur Ólafsson, Á 1 v. 4. Hjálmur Sigurðsson UV 0 v. Millivikt: Eyþór Pétursson HSÞ 3 v. Kristján Yngvason HSÞ 2‘/2 v. Hjörleifur Sigurðsson 2 v. Árni Þór Bjarnason KR 2 v. Árni Unnsteinsson UV V2 v. Unglingaflokkur: Ólafur Haukur Ólafsson KR 7 v. Helgi Kristjánsson UV 6 v. Ragnar Þórisson UV 4 v. Drengjaflokkur: Bryngeir Stefánsson UÍA 5 v. Einar Stefánsson UÍA 4 v. Hjörtur Þórarinsson HSÞ 3 v. - þr Islenzka liðið I jarri sínu bezta á Selfossi ARMENAR sigruðu landsliðið austur á Selfossi á sunnudag með þriggja stiga mun í landsleik þjóðanna, 67—64. íslenska liðið olli miklum vonbrigðum austur á Selfossi. Náði sér engan veginn á strik, aðeins að þeir Pétur Guð- mundsson og Símon Ólafsson næðu að sýna sínar réttu hliðar. Þeir Jón Sigurðsson og Kristinn Jörundsson áttu báðir fremur dapran dag. Það sést bezt á því, að hvorugur skoraði stig í fyrri hálfleik og Jón skoraði aðeins 2 stig allan leikinn. íslendingar gátu aldrei nýtt sér að þeir höfðu hávaxnari leik- mönnum á að skipa, þeim Pétri, Flosa og Símoni, sem allir eru tveir metrar eða meira. Það var fyrst og fremst vegna þess, að bakverðirnir náðu ekki að spila þá upp sem skyldi. Pétur skoraði að vísu 22 stig, eða þriðjunginn af öllum stigum íslenzka liðsins en þrátt fyrir það fékk hann ekki þann stuðning er hann hefði þurft. Armenar náðu undirtökunum þegar á fyrstu mínútum leiksins og eftir 8 mínútna leik skildu átta stig, 20—12, og á 13. mínútu skildu níu stig, 28—19. Skömmu síðar höfðu Armenar náð 10 stiga for- ustu og mest varð forusta þeirra 12 stig, 37-25 á 17. mínútu. Islendingarnir skoruðu lítið, hittu illa og náðu aldrei saman sem ísland — Armenía 64:67 liðsheild, — þó einstaka leikmenn ættu góða spretti. í leikhléi skildu níu stig, 41—32. íslendingar hófu síðari hálfleik af miklum krafti, pressuðu Armen- saxa á forskotið. Á 6. mínútu höfðu Islendingar minnkað mun- inn í þrjú stig, 47—44, og virtust vera að taka leikinn í sínar hendur. Spil Armena varð vand- ræðalegt, þeir áttu í erfiðleikum með að skila knettinum til sam- herja og langskot þeirra geiguðu mörg. En íslenzka liðið náði ekki að fylgja þessu eftir, Jón Sigurðsson, sem byrjaði síðari leikinn af miklum krafti, fékk fljótlega sína fjórðu villu og Pétur skömmu síðar, — þeir voru teknir út af og með þeim broddurinn úr sóknar- leik Islendinga. Armenar náðu á ný að auka muninn og á 10. mínútu skildu 11 stig, 55—44. Þeir virtust hafa leikinn í hendi sér en Þeir söxuðu á forskot Armena lokamínútur leiksins með því að pressa þá stíft út á völlinn og þegar rétt rúm mínúta var eftir skildi aðeins eitt stig — 65—64. íslendingum gafst kostur á að komast yfir þegar þeir náðu knett- inum og rétt mínúta var eftir en þeir misstu hann heldur slysalega. Armenar fengu knöttinn og þeim tókst að skora — með langskoti. Enn gafst Islendingum færi á að minnka muninn. Þegar 45 sekúnd- ur voru til leiksloka fékk Jón Sigurðsson 2 víti en hann hitti úr hvorugu — það sýndi bezt hve þessi annars snjalli leikmaður var fjarri sínu bezta. Armenar náðu frákastinu og lögðu alla áherzlu á að halda knettinum. Þeim tókst það — og sigurinn féll þeim í skaut. Fremur sviplitlum leik lauk því með sigri armenska liðsins en undir eðlilegum kringumstæðum á íslenzka landsliðið að vinna þetta armenska lið, sem eT fjarri því að vera sérstakt — skorti flest sem prýða má sterk körfuknattleikslið. Stig íslands skoruðu: Pétur Guðmundsson 22, Símon Ólafsson 9, Kristinn Jörundsson og Gunnar Þorvarðarson 7, Torfi Magnússon 6, Kristján Ágústsson 3, Ríkharð- ur Hrafnkelsson, Jón Sigurðsson, Jónas Jóhannesson, Flosi Sigurðs- son og Guðsteinn Sigurðsson skor- uðu tvö stig hver. Zastukov skoraði mest fyrir Armena, 22, þar af 20 í fyrri hálfleik. H Halls. Metaregn hjá sundfólkinu 100 metra skriðsund kvenna mín. Katrín Sveinsd., Ægi 1:04,2 Þóranna Héðinsd., Ægi 1:04,8 Magnea Vilhjálmsd., Ægi 1:05,8 ÞAÐ VAR sannkallað metaregn á meistaramóti íslands í sundi sem fram fór í Sundhöll Reykja- víkur um helgina. Sex ný ísiandsmet iitu dagsins ljós. Piltamet var sett, drengjamet, stúlkna- og telpnamet auk þriggja metjafnana. Er þetta meiri og glæsilegri árangur en náðst hefur á sundmóti hér á landi í háa herrans tíð og bendir til þess, að þrotlausar æfingar margra sundmanna séu að bera ávöxt. Vonandi er enn frekari árangurs að vænta á næstunni. Það voru margir í sviðsljósinu, en að öðrum ólöstuðum, þá bar mest á þeim Inga Þór Jónssyni og Ingólfi Gissurarsyni frá IA auk Sonju Hreiðarsdóttur. Ingi Þór setti nýtt íslandsmet í baksundi, 30,3 sekúndur. Auk þess jafnaði Ingi tvö önnur íslandsmet, 100 metra baksund, 1:03,8 og 100 metra skriðsund, 54,8 sekúndur. Ingólfur Gissurarson setti glæsilegt íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi, synti 4:50,8. Sonja Hreiðarsdóttir byrjaði af- rekasafn sitt á mótinu á því að jafna íslandsmetið í 50 metra bringusundi, synti á 37,3 sekúnd- um. Enn betur gerði hún í 100 og 200 metra bringusundi, setti ný íslandsmet í báðum greinum. í 100 metra sundinu fékk hún tímann 1:18,2 og í 200 metrunum 2:46,2 mínútur. Kvennasveit Ægis setti og tvö íslandsmet. Sveitin fékk tímann 4:21,7 mínútur í 4x100 metra skriðsundi. Og í 4x100 metra fjórsundi synti sveitin á tímanum 4:54,4. Ekki er allt upptalið enn, Katrín Sveinsdóttir úr Ægi setti nýtt íslenskt telpna- og stúlkumet í 400 metra skriðsundi, synti á 4:45,5. Loks setti Eðvarð Eðvarðsson frá Keflavík drengjamet í 100 metra baksundi, synti á 1:09,5 mínútum. 100 metra bringusund karla mín. Ingólfur Gissurars. Akran. 1:10,8 Magni Ragnarsson, Akranesil:ll,4 Tryggvi Helgason, Selfossi 1:13,8 200 metra bringusund kvenna mín. Sonja Hreiðarsdóttir, Ægi 2:46,2 Elín Unnarsdóttir, Ægi 2:55,0 Guðrún Ágústsdóttir, Ægi 2:58,5 200 metra flugsund karla mín. Þorsteinn Gunnarsson, Ægi 2:42,6 Guðmundur Gunnars. Ægi 2:47,4 Ólafur Einarsson, Ægi 2:50,0 100 metra flugsund kvenna mín. Anna Gunnarsdóttir, Ægi 1:12,4 Magnea Vilhjálmsd. Ægi 1:13,7 Anna Jónsdóttir, Ægi 1:13,9 200 metra baksund karla mín. Hugi Harðarson, Selfossi 2:17,0 Þröstur Ingvarsson, Selfossi 2:32,7 Svanur Ingvarsson, Selfossi 2:34,2 100 metra baksund kvenna mín. Sonja Hreiðarsdóttir, Ægi 1:14,3 Þóranna Héðinsdóttir, Ægi 1:15,2 Lilja Vilhjálmsdóttir, Ægi 1:17,5 4x100 metra fjórsund karla mín. Sveit ÍA 4:21,0 Sveit Selfoss 4:23,0 A-sveit Ægis 4:30,6 4x100 metra fjórsund kvenna mín. A-sveit Ægis 4:54,4 B-sveit Ægis 5:10,7 Sveit Selfoss 5:21,5 400 metra fjórsund karla mín. Ingólfur Gissurars. Akran, 4:50,8 Hugi Harðarson, Selfossi 4:59,1 Guðmundur Gunnars. Ægi 5:39,4 71 Ingólfur Gissurarson A á fleygiferð í baksundi. Hann kom mikið við sögu á sundmeistaramótinu um helgina, var í metasmíð- um. Ljósm. Mbl. — gg. Annars urðu úrslit og tími helstu keppenda í mótinu sem hér segir: 400 metra fjórsund kvenna mín. Ólöf Sigurðard., Self. 5:35,8 Anna Jónsdóttir, Ægi 5:43,1 Jóna B. Jónsdóttir, Ægi 6:11,7 400 metra skriðsund karla mín. Ingi Þór Jónsson, Akranesi 4:17,4 Hugi Harðarson, Selfossi 4:18,0 Hafliði Halldórsson, Ægi 4:18,8 400 metra skriðsund kvenna mín. Katrín Sveinsdóttir, Ægi 4:45,5 Ólöf Sigurðardóttir, Selfossi 4:46,9 Þóranna Héðinsdóttir, Ægi 4:49,8 • Sonja Hreiðarsdóttir sýnilega úrvinda eftir að hafa j sett nýtt íslandsmet í 100 metra skriðsundi. Ljósm. Mbl. — gg. ^ 200 metra baksund kvenna mín. Sonja Hreiðarsdóttir, Ægi 2:39,0 Þóranna Héðinsdóttir, Ægi 2:43,5 Lilja Vilhjálmsdóttir, Ægi 2:46,2 200 metra flugsund kvenna mín. Anna Gunnarsdóttir, Ægi 2:39,2 100 metra skriðsund karla sek. Ingi Þór Jónsson, Akranesi 54,8 Hafliði Halldórsson, Ægi 55,8 Halldór Kristensen, Ægi 56,2 Magnea Vilhjálmsd. Ægi 2:45,7 Anna Jónsdóttir, Ægi 2:52,0 100 metra flugsund karla mín. Ingi Þór Jónsson, Akranesi 1:01,8 Halldór Kristensen, Ægi 1:03,1 Hafliði Halldórsson, Ægi 1:05,9 100 metra baksund karla mín. Hugi Harðarson, Selfossi 1:04,2 Ingólfur Gissurars. Akran. 1:08,6 Eðvarð Eðvarðsson, Keflavíkl:09,9 4x100 metra skriðs. kvenna mín. A-sveit Ægisb.4:21,7 B-sveit Ægis 4:34,3 Sveit Selfoss 4:37,0 4x200 metra skiðsund karla mín. A-sveit Ægis 8:21,9 Sveit Selfoss 8:39,9 Sveit ÍA 9:04,5 100 metra bringusund kvenna mín. Sonja Hreiðarsdóttir, Ægi 1:18,2 Elín Unnarsdóttir, Ægi 1:21,6 Guðrún Ágústsdóttir, Ægi 1:22,6 200 metra bringusund karla mín. Ingólfur Gissurars. Akran. 2:32,1 Magni Ragnarsson, Akranesi2:37,4 Tryggvi Helgason, Selfossi 2:39,1 Sunfl V.......-..-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.