Morgunblaðið - 25.03.1980, Qupperneq 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
• Bjarm Bessason lyftir sér upp fyrir framan vörn Vals. Bjarni átti ágætan leik með
liði sínu ÍR. Lengst til hægri sýnir Steindór lögreglutakta í vörninni.
^ Ljósm. Mbl. RAX.
IR-ingar köstuðu frá
sér sigrinum á móti Val
— Við erum búnir að æfa
óvenju stíft síðustu viku. líklega
einar 25 klukkustundir og það
situr i strákunum, þeir eru
þreyttir, sagði Hilmar Björnsson,
þjálfari Vals, eftir leik liðsins við
IR í 1. deiidinni á sunnudags-
kvöld i Laugardalshöljinni. Það
var sárgrætilegt fyrir ÍR-inga að
tapa leiknum, þar sem þeir höfðu
einu marki yfir, 20—19, þegar 55
sek. voru til leiksloka og voru
með holtann. en þeir léku ákaf-
lega óvarlega síðustu mínútuna
og Bjarni Guðmundsson jafnaði
leikinn með glæsilegu marki úr
hraðupphlaupi þegar 34 sek.
voru eftir. ÍR missti svo boltann í
hendur Valsmanna þegar 12 sek.
voru eftir af ieiknum og það var
ekki að sökum að spyrja, Bjarni
Guðmundsson fór eins og eldi-
brandur fram völlinn og fékk
gullfaliega sendingu frá Stefáni
Gunnarssyni fyrirliða og skoraði
sigurmarkið 7 sek. fyrir leikslok.
21—20 sigur fyrir Val, tæpara
gat það ekki verið og varla
verðskuldaður sigur.
Lið ÍR virðist alltaf leika vel
gegn Val, hvað sem því veldur. Og
að þessu sinni lék liðið einn af
sínum betri leikjum í deildinni í
vetur. það var líka mikið í húfi,
liðið hefði getað þokað sér af
fallhættusvæðinu með sigri í
leiknum. Allur fyrri hálfleikur var
mjög jafn og lengst af skildi ekki
-» 21:20
nema eitt mark liðin. í lok fyrri
hálfleiksins tóku Valsmenn fjör-
kipp og náðu þriggja marka for-
skoti og staðan í hálfleik var
14—11 þeim í vil.
í síðari hálfleiknum gekk Val
mjög illa í sókninni og skoraði
liðið ekki nema þrjú mörk fyrstu
20 mínútur síðari hálfleiksins og
þegar 10 mínútur voru til Ieiks-
loka var staðan í leiknum jöfn
17—17. Síðustu 10 mínúturnar var
hart barist og virtust ÍR-ingar
ætla að hafa betur í þeirri baráttu
en á lokamínútunni kom í ljós
hvort liðið hafði meiri yfirvegun
og um leið heilladísirnar með sér
og sigurinn varð Vals.
Lið Vals lék ekki sérlega vel,
leikmennirnir voru greinilega
þreyttir og urðu á óvenju mörg
mistök. Liðið var að þreifa sig
áfram með ýmis tilbrigði í varn-
arleik sem nota á í úrslitaleiknum
úti í Þýzkalandi og var vörnin ekki
eins sterk og oft áður. Brynjar
Kvaran markvörður meiddist á
hendi í leiknum og lék ekkert með
í síðari hálfleiknum en Jón
Breiðfjörð kom í hans stað og stóð
sig með prýði. Ólafur Benedikts-
son er tognaður á læri og gat ekki
leikið með. Bestu menn Vals voru
Bjarni Guðmundsson og Þorbjörn
Guðmundson sem þó hefur oft
leikið betur.
Lið IR-inga átti sigur skilið í
þessum leik. Liðið barðist af
miklum krafti allan leikinn og lék
sóknarleik með besta móti. Bjarni
Bessason var mjög atkvæðamikill
í leiknum svo og Guðmundur
Þorbjörnsson og Bjarni Hákonar-
son. Sigurður Svavarsson var
traustur í vörninni. Þá varði
Asgrímur Friðriksson mark IR
með stakri prýði.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. Laugardalshöll 23. mars,
Valur - ÍR: 21-20 (14-11).
Mörk Vals: Þorbjörn Guð-
mundsson 6 (2v), Bjarni Guð-
mundsson 5, Stefán Gunnarsson,
Steindór Gunnarsson, Þorbjörn
Jensson, Jón H. Karlsson, allir tvö
mörk hver, Brynjar Harðarson,
Gunnar Lúðvíksson 1 mark.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 7,
Bjarni Hákonarson 4 (2v), Pétur
Valdimarsson 3, Sigurður Svav-
arsson, Ársæll Hafsteinsson og
Guðmundur Þórðarson 2 mörk
hver.
Brottrekstur: Sigurður Svav-
arsson, ÍR út af í 2 mínútur.
Misheppnuð vítaköst: Brynjar
Kvaran, Val, ver hjá Bjarna Há-
konarsyni á 9. mínútu og Ásgrím-
ur Friðriksson, ÍR, ver hjá Stefáni
Halldórssyni, Val, á 32. mínútu.
— ÞR:
Lið FH:
Sverrir Kristinsson 1
Haraldur Sigurðsson 1
Magnús Teitsson 3
Pétur Ingólfsson 2
Ilafsteinn Pétursson 1
Hans Guðmundsson 1
Theodór Sigurðsson 1
Sveinn Bragason 2
Guðmundur Magnússon 2
Sæmundur Stefánsson 2
Eyjólfur Bragason 2
Lið Fram:
Sigurður Þórarinsson 2
Snæbjörn Arngrímsson 2
Erlendur Davíðsson 4
Egill Jóhannesson 3
Björn Eiríksson 2
Atli Hilmarsson 3
Jóhann Kristinsson 2
Jón Árni Rúnarsson 2
Birgir Jóhannsson 2
Sigurbergur Sigsteinsson 2
Andrés Bridde 2
Dómarar Hjálmur Sigurðsson og
Magnús Arnarson 3
Lið HK:
Einar Þorvarðarson 3
Hilmar Sigurgíslason 2
Ragnar Ólafsson 2
Kristinn Ólafsson 2
Jón Einarsson 1
Kristján Þór Gunnarsson 1
Karl Jóhannsson 2
Bergsveinn Þórarinsson 3
Magnús Guðfinnsson 1
Elnkunnagjðfln
Lið Víkings:
Jens Einarsson 1
Kristján Sigmundsson 3
Árni Indriðason 3
Ólafur Jónsson 3
Sigurður Gunnarsson 2
Þorbergur Aðalsteinsson 2
Steinar Birgisson 2
Erlendur Hermannsson 2
Páll Björgvinsson 2
Guðmundur Guðmundsson 1
Heimir Karlsson 2
Gunnar Gunnarsson 1
Dómarar Árni Tómasson og Jón
Friðsteinsson 2
Lið ÍR:
Ásgrímur Friðriksson 3
Sigurður Svavarsson 2
Bjarni Bessason 4
Guðmundur Þórðarson 3
Bjarni Hákonarson 2
Ársæll Hafsteinsson 2
Pétur Valdimarsson 3
Lið Vals:
Brynjar Kvaran 2
Ólafur Benediktsson 2
Þorbjörn Jensson 2
Þorbjörn Guðmundsson 3
Bjarni Guðmundsson 3
Steindór Gunnarsson 2
Brynjar Harðarson 1
Stefán Gunnars. 2
Stefán Halldórsson 2
Jón H. Karlsson 2
Gunnar Lúðvíksson 1
Björn Björnsson 1
Dómarar Björn Kristjánsson og
óli Olsen 2
Lið Vals:
Brynjar Kvaran 2
Ólafur Benediktsson 2
Bjarni Guðmundsson 3
Þorbjörn Jensson 2
Þorbjörn Guðmundsson 3
Stefán Gunnarsson 2
Jón H. Karlsson 2
Björn Björnsson 2
Steindór Gunnarsson 2
Stefán Halldórsson 2
Gunnar Lúðvíksson 1
Brynjar Harðarson 1
Lið KR:
Pétur Hjálmarsson 2
Gisli F. Bjarnason 3
Jóhannes Stefánsson 3
Konráð Jónsson 3
Haukur Ottesen 3
Friðrik Þorbjörnsson 2
ólafur Lárusson 2
Björn Pétursson 2
Haukur Geirmundsson 2
Simon Unndórsson 2
Sigurður Páll 1
UJJJJJJJJJJJJJJJUMJJJJJJJ
Víkingar slakii
Víkingur innbyrti tvö stig í
íslandsmótinu í handknattleik.
er liðið lagði HK að velli að
Varmá um helgina. Var hér um
slakan leik að ræða frá hendi
meistaranna, en HK lék betur í
fyrri hálfleik en það hefur gert í
vetur. En það dugði ekki, Víking-
ur sigraði með 19 mörkum gegn
13, eftir að staðan í leikhléi hafði
verið jöfn, 8—8. Með þessu tapi
fellur HK niður í 2. deild, úr
botnsætinu kemst liðið ekki úr
þessu.
Gangur leiksins
I stuttu máli komst HK aldrei
yfir í leiknum, nema þegar Berg-
sveinn Þórarinsson skaust inn úr
horninu á fyrstu mínútu leiksins
og skoraði fyrsta markið. Eftir
það var Víkingur ávallt í forystu,
nema í fáein skipti þegar HK
tókst með seiglu að jafna, t.d.
7—7, 8—8 og síðan 9—9 snemma í
síðari hálfleik. Síðan sigu
Víkingarnir fram úr á nýjan leik
og sigurinn var í höfn töluvert
áður en að lokaflautan gall.
Áhugalausir meistarar
Víkingarnir gengu til þessa
leiks eins og þeir teldu hann
unninn fyrirfram. Þeir gerðu sig
seka um mikil mistök og sýndu
yfirleitt ekki þá festu og þann
góða leik sem fært hefur liðinu
þann glæsilega árangur sem náðst
hefur í vetur. Sóknarleikur liðsins
gekk sjaldan upp þegar stillt var
upp í kerfin, öllu heldur þegar
menn reyndu einstaklingsfram-
tak. Vör'nin var hins vegar sterk
með Árna Indriðason í farar-
broddi og markvarsla Kristjáns
Sigmundssonar var mjög góð. Þeir
félagarnir voru sterkastir í liði
Víkings. Flestir hinna gerðu lag-
• Alfreð Gislason KA átti tvo
góða leiki með liði sinu um
helgina. Hann er ein styrkasta
stoð KA.
Staðan í
1. deild
karla
Víkingurl3 13 0 0 297-232 26
Valur 14 8 1 5 308-278 17
FH 13 7 3 3 295-281 17
KR 13 5 1 7 272-269 11
Fram 13 3 4 6 267-276 10
ÍR 13 4 1 8 267-285 9
Haukar 12 2 4 6 242-268 8
HK 13 2 2 9 212-263 6
Staðan í
1. deild
kvenna
STAÐAN í 1. deild kvenna eftir
leiki helgarinnar:
Þór Ak. — Valur 14—16
FH — Grindavík 30—7
Fram — Haukar 18—13
Vikingur - KR 12- 9
Fram 12 11 1 0 225-129 23
Valur 12 9 1 2 200-180 19
KR 13 7 0 6 189-157 14
Haukar 13 7 0 6 193-195 14
Viking. 12 6 0 6 212-168 12
ÞórAk. 9 3 0 6 152-144 6
FH 12 4 0 8 195-202 6
UMFG 13 0 0 13 143-331 0
Sigurður
morki
LIÐ Þróttar á enn góðan mögu-
leika á að ná öðru sæti i 2.
deildinni í handknattleik. Lið
Þróttar sigraði Þór frá Akureyri
með 27 mörkum gegn 22 í Laug-
ardalshöllinni á laugardag. Sig-
urinn var fullstór eftir gangi
leiksins. Þór hafði forystuna í
leiknum allan fyrri hálfleikinn
og hafði eitt mark yfir, 12—11, í
hálfleik. Sigurður Sveinsson hélt
Þrótti á floti með stórleik og
skoraði hann 9 af 11 mörkum
Þróttar í fyrri hálfleiknum. Sig-
urður skoraði 18 mörk og má
mikið vera ef það er ekki nýtt
íslandsmet í deildarleik hér á
landi.
Um miðjan síðari hálfleik tókst
Þrótti að jafna leikinn og ná
frumkvæðinu. Var hreint með
ólíkindum hve allur leikur Þórs
riðlaðist á skömmum tíma. Á
síðustu mínútunum bættu Þrótt-
arar svo hverju markinu við af
öðru og fimm marka sigur var í
höfn.
KA-menn þokuðu sér skrefi nær
langþráðri 1. deildinni í hand-
knattleik á laugardaginn þegar
þeir báru sigurorð af Týrurum í
Eyjum, 18—17, í miklum baráttu-
leik. KA var komið á tæpasta vað
með að glopra unnum leik niður
og mátti í lokin hrósa happi yfir
að ekki fór illa. KA-menn voru
allan leikin sterkari og héldu
öruggu forskoti á Týrara allt
fram í miðjan s.h. þegar Eyja-
menn fóru í gang og söxuðu jafnt
og þétt á forskot þeirra norðan-
manna.
í fyrri hálfleik léku KA-menn
eins og þeir sem valdið hafa en
leikur Týrara var mjög slakur
bæði í vörn og sókn. KA leiddi með
tveimur til fjórum mörkum og
hafði yfir í hálfleik, 12—8. KA
hélt svo áfram sem frá var horfið
í hálfleiknum og innan skamms
var staðan orðin 14—8 fyrir KA og
stefndi í stórsigur. Þá loks náðu
Týrarar upp baráttu, vörnin þétt-
ist, markvarslan batnaði og nú fór
munurinn að minnka verulega.
Þegar 3 mín. vóru eftir til leiks-
loka náðu Týrarar að jafna metin
17—17. KA skorar fljótlega sitt 18.
mark og þær mín. sem eftir lifðu
KA nt
1. deil
m