Morgunblaðið - 25.03.1980, Page 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
Fólk og fréttir úr ýmsum áttum
• Danska knattspyrnustjarnan Sten Ziegler opnaði nýlega ljósafyrirtæki mikið og má á myndinni sjá bæði
kappann og ljósabekkinn góða sem á eftir að færa honum miklar tekjur. Myndin er þó fyrst og fremst birt
stúlkunnar vegna. enda er hún miklu ásjálegri en Ziegler og ljósabekkurinn til samans...
• Eric Heiden, bandariski skautahlauparinn snjalli. sem vann til
fimm gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Lake Placid á dögunum,
hefur nú lagt hlaupaskautana á hilluna.
Hann er farinn að stunda nám við norskan íþróttaháskóia, en til
þess að halda sér í likamlegri þjálfun, mun hann leika isknattleik með
norska 1. dcildar liðinu Manglerud Star. Einnig ætlar hann að keppa
í hjólreiðum fyrir eitt sterkasta hjólreiðafélag Noregs, Grenland.
Fyrir þetta fær hann ekki grænan eyri, en fátítt mun vera, að
stórstjörnur eins og Heiden heimti ekki stórar peningaupphæðir fyrir
það eitt að sýna sig. Meira að segja tiu sinnum minni spámenn en
Heiden væru vísir til sliks.
Mótherjar Vals í meistara-
keppni Evrópu eru komnir í 4 liða
úrslit keppninnar í ár. Telja marg-
ir að Keagan og félagar hans
hreppi hinn eftirsótta titil. Nú er
Hamburger S.V. búið að ganga frá
endurráðningu þjálfarans Branko
Zebec fyrir næsta keppnistímabil
og Netzer hefur verið endurráðinn
sem framkvæmdastjóri fyrir fé-
lagið næstu tvö ár.
O O O O
Wolfgang Weber, knattspyrnu-
þjálfari Werder Bremen, hefur trú
á því að tennisleikur skemmi mjög
fyrir knattspyrnumönnum og
sektar hann leikmenn Bremen um
70.000 ísl. kr. ef hann kemst að því
að þeir hafi leikið tennis á
kanttspyrnutímabilinu.
O O O O
Litli og stóri. Joey Shackleford,
minnsti dómari í ensku knatt-
spyrnunni, veitir hér einum leik-
manni tiltal og bókar hann um
leið. Knattspyrnumaðurinn lítur
greinilega niður á dómarann.
Jimmy Greenhoff, sóknar-
maðurinn frægi hjá Manchester
Utd., reyndi „come back“ fyrir
skömmu. Hann meiddist illa í
nára á síðasta keppnistímabili og
var frá í níu mánuði. Þrír sérfræð-
ingar höfðu ráðlagt honum að
leggja skóna á hilluna, hann yrði
aldrei jafngóður af meiðslunum.
Hann kom inn á sem varamaður
hjá United í deildarleik gegn
Everton fyrir skömmu og stóð þá
vel fyrir sínu. Það dugði United þó
ekki, liðið hefur verið í öldudal og
gefið eftir i baráttunni um Eng-
landstitilinn.
O O O O
Fjármálajöfrar bandaríska
kanttspyrnufélagsins New York
Cosmos hafa lýst því yfir að þeir
séu tilbúnir að greiða hvaða pen-
ingaupphæð sem er til þess að
laða til sín Rudiger Abramzcik frá
vestur-þýska liðinu Schalke 04.
O O O O
Einhver frægasti markaskorari
allra tíma, Dixie Dean, lést fyrir
skömmu a Goodison Park-leik-
vanginum í Liverpool. Hné hann
niður er hann horfði á leik Ever-
Öldungurinn á myndinni heitir Paul Sibert og er frá A-Þýskalandi.
Hann er orðinn níræður en stundar samt fimleika á hverjum degi og
heldur þvi fram, að það hafi hjálpað til að halda likamanum jafn
spengilegum og myndin ber vitni um.
Carsten Nielsen, danski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu og
leikmaður með þýska sforliðinu
Borussia Mönchengladbach, átti
viðræður við vestur-þýska félagið
Borussia Dortmund mjög nýlega.
Dortmund er að sjálfsögðu sama
félagið og átti ítarlegar viðræður
við Atla Eðvaldsson um síðustu
helgi.
ton og Liverpool. Dean var 73 ára.
Ferill hans var afar glæsilegur og
mál manna að hann hafi verið
næstum óviðjafnanlegur þegar
hann var upp á sitt besta. Hann
skoraði 379 mörk í deildarleikjum,
þar á meðal 60 í 39 leikjum fyrir
Everton keppnistímabilið 1937—
38. Það er enn met hjá Everton,
met sem varla verður slegið í bráð.
• Þegar enski mótorhjólakappakstursmaðurinn Phil Read var
sæmdur MBE-orðunni af Elisabetu drottningu fyrir frábæran
árangur á mótorhjólinu, þótti kappanum tilhlýðilegt að mæta á þvi
þegar hann veitti orðunni móttöku. Read hefur átta sinnum orðið
heimsmeistari i mótorhjólaakstri. Á myndinni sést kappinn uppá-
klæddur fyrir utan Buckingham-höll.
Luis Pereira, Brasilíumaðurinn
hjá Atletico Madrid, var rauður í
framan af reiði og krossbölvandi
þegar Real Madrid hafði lagt lið
hans að velli. „Það voru tveir
svartir í liði Real,“ sagði Pereira,
„Laurie Cunningham og dómar-
inn.“
O O O O
málaði hann yfir rendurnar á
Adidas-skónum sínum og þannig
mætti lengi telja. En margur
breytist með aldrinum, fyrir
skömmu undirritaði Breitner 3
ára auglýsingasamning við Adi-
das, samning sem á eftir að gefa
honum væna summu í aðra hönd-
ina.
Einn af virtari kappaksturs-
hetjum Breta, Martin Raymond
lést á voveiflegan hátt á keppnis-
braut í Brands Hatch í Englandi í
síðustu viku. Var slysið furðulegt.
Bifreið Raymonds bilaði skyndi-
lega og ók hann þegar í stað í
viðgerðarútskot, þar sem hann
hófst handa við viðgerðir ásamt
nokkrum vélvirkjum. Eftir
skamma hríð færði Raymond sig
aðeins frá vagninum og fylgdist
um stund með bifreiðunum sem
æddu fram hjá. Þá rákust skyndi-
lega tveir bílar saman og kastaðist
annar þeirra á Raymond og þeytti
honum upp í tré. Var Raymond
látinn þegar hann náðist niður og
var talið að hann hefði látist
samstundis. Ökumenn bílanna
tveggja sluppu með skrámur.
Fyrir stuttu sigraði vestur-
þýska landsliðið í knattspyrnu
landslið Möltu 8—0 í Bremen.
Síðast fór þar fram landsleikur,
árið 1939. Þá áttust við Þýskaland
og írland. Jafntefli varð, 1—1, og
mark þýska liðsins skoraði Helm-
ut nokkur Schön, sá sami og varð
síðar þjálfari liðsins með frábær-
um árangri.
O O O O
Paul Breitner, knattspyrnusnill-
ingurinn hjá Bayern, þótti mikill
og róttækur kommúnisti í eina tíð.
Meðal þess, sem hann setti á
oddinn á sínum tíma, var að neita
alls kyns auglýsingum. Þannig
• Það getur oft gengið mikið á i ísknattleik, a.m.k. ef marka má þessa
mynd sem tekin var i Lake Placid á ólympiuleikunum á dögunum. í
þessu tilviki var skorað sigurmark. Sá sem neðstur liggur i hrúgunni
skoraði og skyldi þvi enginn segja, að menn fórni sér ekki fyrir
iþróttirnar.