Morgunblaðið - 25.03.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 25. MARZ 1980
37
hafa verið um kosti séropnanlegra
topploka segja, að í undantekn-
ingartilvikum nægi að taka aðeins
lok af einum strokk.
Það er svo alltaf matsatriði,
hvað menn vilja greiða fyrir
séropnanlega topploka.
IV. Bygging vélar,
hreinsibúnaður
Ögmundur og Jan: „Hreinsibú-
naður á loft- og olíukerfi er mjög
mikilvægt atriði varðandi end-
ingartíma vélarinnar og yrði að
endurbæta að fenginni reynslu
fyrri reynslu hjá SVR“.
Þetta er umdeilt atriði meðal
tæknimanna; margir tæknimenn
halda því fram, að olíubaðskerfi
hreinsi ryk betur, en pappasíur
nái betur raka úr loftinu. Mjög
auðvelt er að breyta úr olíubað-
hreinsara yfir í pappasíukerfi og
erum við reiðubúnir, ef vill, að
koma þessari breytingu fram fyrir
kostnað, sem nemur 129.000 kr. á
hvern vagn.
V. Reimdrifnar dælur
Ögmundur og Jan: „Fram hef-
ur komið að loftþjappa, stýris-
dæla, kælispaði, vatnsdæla og
rafall eru reimdrifin með alls 7
stk. reimum. Staðsetning er fram-
an á vélinni og safnar að sjálf-
sögðu óhreinindum og bleytu.
Þessi atriði stytta endingartíma
reimanna auk þess sem þannig
drifin stýrisdæla getur dregið úr
afli stýrisvélar. Upplýst var í
Búdapest að reimum væri skipt
reglulega eftir 25 þús. km; alltaf
væri skipt um allar reimar ef
eitthvað hinna reimdrifnu tækja
þyrftu lagfæringar við“.
Hér er um algenga útfærslu að
ræða. Eins ber að hafa hugfast að
ör þróun hefur orðið í gerð reima
af þessu tagi, þannig að þær
endast tugþúsundir km. Af þess-
um sökum hefur færst í vöxt, að
reimar séu notaðar í stað stál-
keðja í drifum og margskonar
vélbúnaði.
Ranglega er fullyrt að skipta
þurfi um allar reimar er eitthvert
hinna reimdrifnu tækja þarf lag-
færingar við. Hið rétta er að skipt
er um reim á því tæki sem bilar,
þó hún sé ekki búin að vera í
notkun 25.000 km.
Við spurðumst fyrir hjafStræt-
isvögnum Kópavogs um þetta at-
riði, en þeir hafa reynslu af
reimdrifnum dælum i Volvo
bílum. í umsögn forstöðumanns
SVK dags. 17. mars 1980 segir svo:
„Fyrir 1968 áttu SVK þrjá Volvo
bíla B.655., sem voru með reim-
drifinni stýrisdælu, loftpressu,
rafal og vatnsdælu. Til að verja
reimar þessara tækja fyrir vatns-
gangi voru setta upp aurhlífar
framan við reimarnar. Bílar þess-
ir sem voru í notkun hjá SVK í
u.þ.b. tíu ár, voru lausir við öll
vandamál vegna vatnsgangs á
reimar.
Ég geri ráð fyrir að koma fyrir
svipuðum varnarbúnaði á Ikarus
vögnunum ef þeir verða keyptir til
SVK“.
VI. Stýri
Ögmundur og Jan: „Stýris-
stöng er bein og ekki fáanleg
brotin, stýrihljól er slétt og séð frá
sjónarmiði ökumanna er þetta
fyrirkomulag óheppilegt. Þessu
atriði breytir framleiðandi ekki“.
Stýri af gerðinni ZF er boðið, en
án hjöruliðs, en með 15 gráðu
halla á stýrishjóli, sem er mjög
áþekkt og i Mercedes-Benz. IKAR-
US verksmiðjan hefur svarað að
þeir geti ekki boðið stýri með lið.
Svar þeirra stafar af því, að þeir
hafa ekki útbúið vagna með lið-
stýri. Samafl hefur hins vegar
borið þetta atriði undir tækni-
menn hérlendis og telja þeir
auðvelt að koma fyrir liðstýri. Á
grundvelli þessara upplýsinga
höfum við tekið þetta mál upp
aftur við IKARUS og er það nú í
athugun.
VII. Bremsukerfi
Ögmundur og Jan: „Hreinsi-
búnaður og frostvarnarkerfi er
óviðunandi eins og það er boðið, en
fram hefur komið að annar val-
kostur er mögulegur gegn viðbót-
arverði".
Það er rétt, að annar valkostur í
þessum efnum, hefur verið boðinn
af IKARUS, þótt hann sé ekki inn
í tilboðsverðinu. IKARUS getur
haft Westinghouse búnað og er sá
kostnaður kr. 173.500 á hvern
vagn.
VIII. Einangrun
ögmundur og Jan: „Sú ein-
angrun sem boðin er, er alls
ófullnægjandi bæði með tilliti til
hita og hljóðs. Upphitun er lítil,
sbr. samanburðarskrá".
í tilboði IKARUSAR er ekki
gert ráð fyrr einangrun eins og í
standard vagni þeirra, heldur er
miðað við sömu gæði og i vögnum
afgreiddum til Skandinavíu. Þeir
töldu, að það væri í samræmi við
útboðsauglýsingu SVR er þeir
studdust við, er þeir gengu frá
tilboði í vagnana.
Þegar tæknimenn SVR tala um
ófullnægjandi einangrun eiga þeir
við einangrun í standard vagnin-
um. Þennan grundvallar misskiln-
ing verður að leiðrétta og því
höfum við enn fengið staðfestingu
á þessu í skeyti frá IKARUS dags.
13. mars 1980, sem hér fylgir með,
en þar er einangruninni lýst svo:
„Gert er ráð fyrir 6—8 mm
Terophone einangrun til viðbótar
við 1 — 2 mm Terophone einangr-
unar sem er í standard vagnin-
um“.
Jafnframt er boðin viðbótarein-
angrun í gólf utan tilboðsverðs.
Annað mál er, að hér er því
haldið ranglega fram af Ögmundi
og Jan, að upphitun sé lítil í
IKARUS vagninum, því að hún er
eins og almennt gerist í strætis-
vögnum. Nefna má sem dæmi, að
kílókaloríur per rúmmetra eru
nákvæmlega þær sömu i IKARUS
vögnum og Leyland vögnum
Strætisvagna Kópavogs. Sam-
kvæmt upplýsingum frá forstöðu-
manni SVK hafa engar kvartanir
verið uppi um ónóga upphitun í
þeim vögnum.
IX. Fram- og afturendi
Ögmundur og Jan: „Fram- og
afturendi eru heilstansaðir. Við-
gerðir á þessum hlutum hljóta því
að vera erfiðari og tímafrekari en
þekkt er í dag. Fram hefur komið
að vagn hjá SVR lenti í tjónum að
meðaltali annan hvern dag og
rúmlega helmingur þeirra tjóna er
á fram- og afturenda.
Við viljum vekja athygli á því
að framendi bílsins samanstendur
af mörgum sjálfstæðum, umskipt-
anlegum einingum, s.s. loki til að
komast að þurrkumótorum og fl.,
grilli, höggvörum og „svuntu". Er
þá einungis eftir ramminn utan
um framenda bílsins sem er fast-
ur, þannig að við viðgerðir á
honum er skemmdin söguð úr og
skeytt saman á listum. Þetta er
viðurkennd aðferð meðal bílavið-
gerðarmanna. Sömu viðgerðar-
tækni má beita við afturenda
bílsins.
X. Dráttarbúnaður
ögmundur og Jan: „Ljóst er að
framleiðandi getur ekki komið
fyrir dráttarbúnaði aftan á
bílnum, getur þetta valdið erfið-
leikum í mörgum tilfellum".
Það er mikill misskilningur að
framleiðandi geti ekki komið fyrir
öðrum dráttarbúnaði aftan á
bílnum. Hann er fús að setja
umræddan dráttarbúnað á bílinn
fyrir kr. 190.000 á vagn.
XI. Rafbúnaður
Ögmundur og Jan: „Frágangur
á rafleiðslum gegnum prófíla
verður að bæta“.
Við skoðun í Búdapest sáu
fulltrúar Samafls sem báðir eru
raftæknimenn ekkert óeðlilegt við
frágang raflagna í IKARUS vögn-
unum. I skýrslu Karls Árnasonar
er raflögnum lýst sem góðum og
snyrtilega frágengnum. Samafl
leggur til að ef af kaupunum
verður, verði settar nákvæmar
kröfur um þetta í smíðalýsingu
vagnanna.
XII. Ryðvörn
Þótt það kom.i ekki fram í
títtnefndri skýrslu Ögmundar og
Jans, sem hér er að mestu til
umfjöllunar, eru ummæli í fyrri
skýrslu (10. mars 1980) varðandi
þennan þýðingarmikla þátt með
þeim hætti að þau vérður að
leiðrétta, en þar segir:
Ögmundur og Jan: „í tilboði
IKARUS eru vagnar kvoðuvarðir
að neðan, en lokaðir prófílar í
grind og hliðum ekki fylltir. Að-
spurðir skýrðu IKARUS menn frá
því, að þeir væru reiðubúnir til að
ryðverja bílana eftir óskum kaup-
enda og bentu á SL í Stokkhólmi
sem dæmi. Ekki verður séð annað
en ryðvarnartæki IKARUS séu
sambærileg við það sem hér þekk-
ist“.
Hér er bæði um missögn og
misskilning að ræða. Við staðfest-
um, að í boði IKARUS er sérstök
ryðvarnarmeðferð; m.a er spraut-
að ryðvarnarefni inn í alla prófíla
í vagninum og síðan er þeim lokað,
sbr. meðfylgjandi lýsingu vagns-
ins. Hér er um að ræða sömu
ryðvarnartækni og notuð er við þá
vagna, sem hafa verið afhentir til
Skandinavíu og er hún af hæsta
gæðaflokki. Sem dæmi mafnefna
zinhúðun innanverðra hliða í ytra
byrði yfirbyggingar og rafhúðun
hjólskála auk kvoðunar.
Þetta er mun betri frágangur en
t.d. ryðvörn M-Benz vagna sem
eru í eigu SVR í dag.
Reykjavík, 19. mars 1980.
Virðingarfyllst,
f.h. Samafls s.v.f.
Sigurður Magnússon
stjórnarformaður
Tilkynning
Meö tilvísum til 10. gr. laga nr. 49 frá 16. maí 1974,
sbr. lög nr. 49 frá 16. marz 1951, er hér meö skorað
á þá, sem eiga ógreidd iðgjöld til Lífeyrissjóös
sjórhanna, að gera nú þegar skil á þeim til sjóösins.
Hafi ekki verið gerö skil á öllum vangoldnum
iögjöldum innan 30 daga frá birtingu þessarar
tilkynningar, mun veröa óskaö uppboössölu á
viðkomandi skipi (lögveöi) til fullnustu skuldarinnar.
Reykjavík, 12. mars 1980.
F.h. Lifeyrissjóðs sjómanna,
Tryggingastofnun ríkisins
Kópavogskaupstaíur H
Áskorun til greiöenda
fasteignagjalda í Kópavogi
Hér meö er skorað á alla þá sem eigi hafa lokið
greiöslu fyrri hluta fasteignagjalds fyrir áriö 1980 aö
gera skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar
þessarar. Hinn 25. apríl n.k. veröur krafist nauöung-
aruppboðs samkv. lögum nr. 49 frá 1951 á
fasteignum þeirra er þá hafa eigi gert full skil.
Kópavogskaupstaður.
Gas 09 grillvörur
Suóuriandsbraut 4
sími 38125