Morgunblaðið - 25.03.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1980
45
Hún nefnir einnig sauðkindina
og hrossin, sem ekki er talið
sjálfsagt að aflífa, þó svo þessar
skepnur séu oft til ama í þéttbýli.
E.t.v. er ástæðan sú, að þetta eru
skepnur, sem við leggjum okkur til
munns, sem tíðkast ekki með
hundinn.
Tilefni þessara skrifa er það, að
mér datt í hug, hvort ástæðan
fyrir andstöðunni gegn hunda-
haldi í gegnum árin sé sú, að fólk
gerir sér ekki grein fyrir því gagni
sem hægt er að hafa af hundum.
Hundar eru um allan heim viður-
kenndir sem varðhundar og taldir
betri en nokkur þjófabjalla —
einmitt af því að þeir gelta. Þeir
eru einstæðingum, fólki með sál-
fræðileg vandamál og börnum
betri félagar en auðvelt er að
finna í röðum mannfólksins, sök-
um tryggðar og lundarfars. Hund-
ar hafa verið taldir ómissandi í
erlendum björgunarsveitum sem
þefhundar og leitarhundar, t.d. af
týndu fólki í snjóskriðum. Hægt
væri að telja upp fjölmargt annað,
en ég læt þetta nægja, að viðbættu
því, sem íslendingar ættu að
þekkja, og það er hæfileiki þeirra
til smölunar og rekstrar búfjár.
Auðvitað fylgja hundum í þétt-
býli vandamál, en mér finnst að
jákvæðu eiginleikar hundsins séu
látnir víkja fyrir vandamálum í
allri hundahaldsumræðunni, því
er þetta ritað.
Hundavinur
• Þurrkið
saltið betur
1143—6331 hringdi:
Ég er ein þeirra sem notað hafa
íslenzka Reykjanessaltið og kann
að öllu leyti nema einu vel við það.
Það eina sem mér mislíkar er
hversu saltið er rennblautt og þar
af leiðandi þungt og stendur fast í
götunum á saltboxinu. Er ekki
hægt að þurrka saltið betur?
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Lokað
í dag þriöjudaginn 25. marz vegna jaröarfarar
Björns G. Gíslasonar, forstjóra.
Vélsmiöjan Þrymur h.f.
Borgartúni 27.