Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
Þaö er auöséð aö þaö a aö kinna þennan þorskhaus
einnig.
Og svo bera menn saman bækurnar þótt ekki séu
þaö hinar hetöbundnu skólabækur nútímans, en þaó
verður aó velja vel úr kösinni til þess aó fá góöar
gellur í hverri ristu.
Upp í klof í hausakösinni í Gúanóinu meö sveöjuna ó
lofti og haus á stingnum. Þaö er starf gellupeyjans.
Vígalegt liö gellupeyja sem var á staönum þegar vió komum í heim*
sókn.
Gellupeyjarnir í Eyjum:
Slorugir upp
fyrir haus
Ein tegund útgeröar í Eyjum hefur lítiö breytzt á þessari
öld, en þó hefur þessi útgerö ávallt átt vinsaeldum aö fagna
og útgerðarmennirnir áræðnir, duglegir og útsjónarsamir.
Þetta er gelluvagnaútgerðin þar sem peyjarnir standa
slorugir upp fyrir haus í þrónum í Gúanóinu og nýta betur
hráefnið. Er þar oft margt um manninn og mikiö um aö vera.
Fjölmargir dugmiklir strákar í Eyjum á aldrinum 10—16
ára búa sér gelluvagna. Þeir eru smíöaöir úr kössum eöa
kassafjölum og hjólin eru af ýmsum geröum, allt frá hjólum af
leikfangabílum og upp í vegleg hjól undan barnavögnum.
Vænar spýtur eöa sköft eru síðan notuð sem handföng, en
aðaltækiö um borð er stingur sem vísar oddinum til himins
og auðvitaö lipur og beittur hnífur til þess að vinna með.
Gelluvagnarnir eru af ýmsum stæröum og fer það oft eftir
aldri útgerðarmannanna því venjulega kann tíu ára peyi sér
meira hóf en 16 ára þótt oft muni ekki miklu í kappinu.
Aö undanförnu hefur verið algjör törn hjá gellupeyjunum
og þénustan eftir því, en duglegir strákar geta haft yfir 10
þús. kr. á tímann ef aðstaöan er góö og þeir gella ekki aðeins,
heldur eru þeir margir snjallir aö kinna og drýgja þannig
tekjurnar. Strákarnir fá að gella og kinna eins og þeim
sýnist í hráefni Fiskimjölsverksmiðjunnar og hefur þessi
þáttur í vertíðinni alltaf sett skemmtilegan svip á bæjarlífið,
því ýmist selja strákarnir beint til fisksala eöa ganga í hús
með gelluvagnana og bjóða lostætið. Það er einnig
skemmtilegt aö sjá þessa ungu menn taka þátt í atvinnulífinu
að eigin frumkvæði og upp á eigin kostnað og margt gott
mannsefnið hefur sýnt sig gelluliöinu, því þar láta þeir hvorki
rok né rigningu aftra sér. Þeir böðlast innan um
þorskhausana og halda sínu striki.
á.j.
G«ttup«yjiniir í Eyjum aru «jálf«tæöir útgeröarmenn meö eigin vagna og mikinn dugnaö (kjölfeatu, enda
geta þeir haft rífandi tekjur, á annan tug þúsunda króna á tfmann þegar vel gengur. Aö loknum skólatíma
bregöa peyjarnir sér ( vertíöargallann og reyndar hefur nú boriö viö aö hagsmunir hins unga
athafnamanns og skólastráks hafa rekist á, aöallega á kostnaö skólans. Verklega némiö hefur hins vegar
löngum þótt borga sig vel sföar. Ljóemynd MM. Sigurgeir.
é . \