Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
62
Poppe-loftþjöppur
Utvegum þessar heimsþekktu toftþjöþpur í
öllum stæröum og styrkleikum, meö eöa án
raf-, bensín- eöa diesel-mótors.
SÖMlteMgKUlII’ J)(§)(ni©©®in) reykjavik, icmlano
Vesturgötu 16,101 Reykjavík.
Símar 91-13280/14680.
LINGUAPHONE
lærdómur er leikur einn
Hefur þú kynnt þér hina frábæru uppbyggingu
Linguaphone tungumálanámskeiðanna? Þau
eru byggð á 60 ára reynslu yfír fjöggura milljón
nemenda og nú eru 35 mismunandi tungumál
kennd á Linguaphone námskeiðunum.
Hið þrautreynda námskerfí Linguaphone gerir
námið ekki einungis auðvelt og skemmtilegt,
heldur einnig ótrúlega árangursríkt. Þú vinnur
sjálfstætt að heimanámi þínu, hagar námstima
eftir aðstæðum hverju sinni en árangurinn
kemur í ljós strax að loknum fyrsta kafía.
Linguaphone námið þjálfar talmál og ritmál
samtímis. Helstu hjálpargögn eru hljóðritanir
og bækur, en námsaðferðin er í raun sú sama og
hjá barni sem lærir móðurmálið af eðlisávísun,
þ.e. „fyrst hlustarðu - síðan skilurðu - loks
talarðu“!
Linguaphone - auðvelt og ánægjulegt
tungumálanám í heimahúsum
Hljóðfærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96 - Sími 13656
Vængirnir utanverðir á altaristöflunni í Stóra-Klofa.
Altaristafian úr kirkjunni í Stóra-Klofa:
Hinn
barnslegi einfaldleiki
in af tiltölulega fáum altar-
istöflum sem til eru eftir
íslenska listamenn frá fyrri
■ tímum er altaristaflan úr
kirkjunni í Stóra-Klofa á
Landi sem Ófeigur Jónsson
málaði árið 1830. Ófeigur var oftast kennd-
ur við Hlíðarbæ í Þingvallasveit. Á töflunni
er mynd af krossfestingu Jesú en á
vængjunum innan verðum eru myndir af
guðspjallamönnunum fjórum, Matteusi,
Markúsi, Lúkasi og Jóhannesi. Neðst á
vængjunum innanverðum er þessi ritning-
arstaður: „Þessir eru þeir sem .vitnisburð-
inn bera af mér.“ Á töflunni sjálfri er
tilvitnun í 1. Pétursbréf 2. kafla og 24.
versið. Þar stendur: „. . .hann bar sjálfur
syndir vorar á líkama sínum upp á tréð, til
þess að vér skyldum, dánir frá syndunum,
lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér
læknaðir."
Á vængjunum utanverðum er blómaskraut
mjög haglega gert. Að sögn Þórs Magnús-
sonar þjóðminjavarðar var Ófeigur ólærður
málari en mjög listfengur og hagur. Flokk-
ast verk hans undir naivisma og hefur
taflan á sér yfirbragð hins barnslega
einfaldleika. Hann notar hreina grunnliti
en raðar þeim saman á mjög skemmtilegan
hátt. Ófeigur mun hafa gert fleiri altaris-
töflur og er m.a. önnur tafla eftir hann á
Þjóðminjasafninu. Hann mun hafa verið
nefndur listamaður á sínum tíma.
Fyrirmyndin að altaristöflunum hefur
Ófeigur sótt í danskar töflur.
Sama ár og taflan var máluð gefur Jón
Jónsson hana kirkjunni í Stóra-Klofa. Nafn
Jóns er ritað á ytri hlið vængjanna. Jón
hefur líklega verið bóndi á Stóra-
Klofa. Þegar kirkjan þar er lögð niður fara
gripir úr henni líklegast í Skarðskirkju í
Landsveit, alla vega kom taflan þaðan í
Þjóðminjasafnið en ekki er með vissu vitað
hvenær það var.