Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
hví
í Jóhannesarguðspjalli
20. kafla, versi 11 — 18,
stendur:
n María stóð hjá
gröfinni úti fyrir
grátandi. Er hún
var aö gráta,
gægðist hún inn í
gröfina og sér
tvo engla í hvítum klseðum
sitja þar, annan til höfða, hinn
til fóta, þar sem líkami Jesú
hafði legið. Og þeir segja við
hana: Kona, hví grætur þú?
Hún segir við þá: Af því að
búið er að taka burt Drottin
minn, og ég veit eigi hvar hann
hefur verið lagður. Þegar hún
hafði þetta mælt. sneri hún sér
við og sér Jesúm standa þar, en
hún vissi ekki, að það var
Jesús. Jesús segir við hana:
‘ Kona, hví grætur þú? Að
hverjum leitar þú? Hún hugði
að þetta væri grasagarðs-
vörðurinn og segir við hann:
Herra, hafir þú borið hann
burt, þá segðu mér, hvar þú
hefir lagt hann, og mun ég
taka hann. Jesús segir við
hana: María! Hún sneri sér við
og segir við hann á hebresku:
Rabbúní! sem þýðir: meistari.
Jesús segir við hana: Snertu
mig ekki, því að ennþá er ég
ekki uppstiginn til föður míns,
en far þú tii bræðra minna og
seg þeim: Ég stíg upp til föður
míns og föður yðar, til Guðs
míns og Guðs yðar. María
Magdalena fer og boðar læri-
sveinunum: Ég hef séð Drott-
inn! og að hann hafi sagt henni
þetta."
„Kona
grætur þú?“
Eggert í vinnustofu sinni viö Hátún í Reykjavík.
Málverk Eggerts Guömundssonar hangir í kór Fossvogs-
kirkju.
í kór Fossvogskirkju er mál-
verkið „Kona, hví grætur þú?“
eftir Eggert Guðmundsson
listmálara. Eggert málaði
verkið fyrir u.þ.b. 20 árum inn
í ramma sem þegar var fyrir í
kirkjunni.
„Upphaflega átti Jón Stef-
ánsson að mála myndina en
vegna hrakandi heilsu treysti
hann sér ekki til þess. Því var
ég fenginn til verksins," sagði
Eggert í samtali við Mbl.
„Myndefnið sjálft var ósk
frá kirkjuverðinum. Þetta er
dálítið huggandi mótív. Þegar
menn eru að kveðja sína nán-
ustu getur myndin ef til vill
veitt einhverjum hugarfró.
Að öðru leyti er myndin
algjörlega mín hugarsmíð. Ég
reyndi að ná út huggunarsvip
á andliti Jesú en úr andliti
Maríu skín, aftur á móti,
undrunin en hún var vantrúuð
á líf eftir dauðann.
Það er eitt atriði í myndinni
sem er eftirtektarvert. Nagla-
förin eru ekki í lófum Krists
heldur í úlnliðunum. Séra
Friðrik Friðriksson og séra
Bjarni Jónsson komu mikið
hingað til mín meðan ég vann
við myndina og við ræddum
þetta atriði lengi og ýtarlega.
Loks komumst við að þeirri
niðurstöðu að enginn líkami
hefði getað hangið á lófunum,
frekar á úlnliðunum. Ég veit
ekki til þess að slíkt komi fyrir
á öðrum málverkum af
Kristi."
— Hafði það einhver áhrif
á trúarlíf þitt að mála þessa
mynd?
„Ég hef alltaf verið trúaður.
Ég held það trúaður að ég
hræðist t.d. ekki dauðann eða
neitt slíkt. Manni er áskapað
þetta líf,“ sagði Eggert að
lokum.
Ungir og aldnir njóta þess að borða
köldu Royal búðingana.
Bragðtegundir: —
Súkkulaði, karamellu, vanillu,
jarðarberja og sítrónu.
Rauðamölin -
lykillinn að betri
Við framleiðum útveggjasteininn, milli-
veggjaplöturnar og burðarveggjaplöturn-
ar allar úr gömlu góðu rauðamölinni. f
henni liggja yfirburðirnir. Margra ára-
tuga reynsla okkar er traustur grunnur
að byggja á, - og möguleikarnir í hleðslu
eru ótal margir.
1/3 iit og eftirstöðvar á 6 mánuðum
Byggingavörudeild
JH
▲ A A
Jón Loftsson hf.
32
i niJjJl
JU' IU3J i ! ;.j
luuon
Hringbraut 121 Simi 10600
Is
Krutmann Guömundsaon
Efnn af viölesnustu höfundum
landsirta. Nokkrar af bókum
hans hafa veriö þýddar aö
mlnnsta kosti á 36 tungumál.
Skaldverk
Kristmanns Guðmundssonar
X
Brúöarkyrtillinn
Morgunn lífsins
Arfur kynslóöanna
Ármann og Vildfs
Ströndin blá
Fjalliö helga
Góugróöur
Nátttrölliö glottir
Gyöjan og nautiö
Þokan rauöa
Safn smásagna
Almenna Bókafétagiö,
Austurstrnti 18, Skemmuvegur 36,
•fmi 19707 tfmi 73055
jm,