Morgunblaðið - 03.04.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
67
„Faðir, í þínar hendur
fel ég anda minn.“
44. Passíusálmur
44. sálmur, 1. og 22. vers:
Hrópaði Jesús hátt í stað,
holdsmegn og kraftur dvínar:
Ég fel minn anda, frelsarinn kvað,
faðir, í hendur þínar.
Minn Jesú, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta eg geymi.
Sé það og líka síðast mitt,
þá sofna eg burt úr heimi.
„Krossfestið hann“,
20. Passíusálmurinn.
20. sálmur, 1. og 2. vers:
Pílatus hafði prófað nú
píslarsök Jesú gefna.
Klén virtist honum kóngstign sú,
þá Kristur sannleik réð nefna,
heims sannleik heiðra lézt,
hæddi guðs sannleik mest.
Sannindin elska ber.
Orð drottins láttu þér
kærast þó allra efna.
Jafnótt þá ganga jarlinn réð
til Júða út að bragði.
Enga sök þessum manni með
má ég finna, hann sagði.
Gyðingar heldur hart
herrann klöguðu um margt,
með æði, ógn og dramb.
En rétt sem meinlaust lamb
lausnarinn ljúfur þagði.
Hreifst af Passíusálm-
unum og myndskreytti
þá alla
Listakonan Barbara heitin Árnason
teiknaði myndir við alla Passíusálma
Hallgríms Péturssonar fyrir u.þ.b. 30
árum. Frumteikningarnar eru geymdar á
Listasafni Islands að ósk listakonunnar
sjálfrar, en hafa aldrei verið sýndar
almenningi. Hins vegar hefur Menning-
arsjóður í tvígang gefið út sálmana með
teikningum Barböru.
Fyrirmynd listakonunnar að Jesú,
Júdasi, Pétri og Pílatusi var eigin-
maður hennar, Magnús Á. Árnason.
„Hún varð hrifin af Passíusálm-
unum og tók það upp hjá sjálfri sér
að teikna við þá myndir," sagði
Magnús í samtali við Mbl. „Hún
dáðist að skáldskapnum og ein-
lægni höfuridarins og hún var
ekki sérlega trúuð.
Hún reyndi að fara að miklu
leyti eftir efni hvers sálms og
setti oft tilvitnanir í sálmana
inn í teikningarnar.“
Það tók Barböru 7 ár að
vinna þetta verk og fékk hún
aldrei styrk til þess. Hins
vegar bauð hún Menning-
arsjóði að nota teikn-
ingarnar og voru þær, eins
og áður segir, gefnar út á
vegum sjóðsins.
„Fótspor
meistarans“,
teiknuð við
8. Passíusálminn.
8. sálmur, 11, vers:
„Eins og upphaf og ending með
allrar hörmungar minnar,
faðir himneski, er fyrir séð
í forsjón miskunnar þinnar."
\o^
Styx - Cornerstone
Kenny Rogers — Kenni
Linda Ronstadt — Mad Love
McGuinn Clark og Hillmann — City
Anne Murrey — I will always love you
Anne Murrey — Country Collection
Last Dance
El Disco de Oro
Rush — Permanet Waves
Bobe Seeger — Against the wind
svo eitthvaö sé nefnt.
Sveiflan er einnig á fullu
Peterson, Henning og Pass, Miles Davis,
Charles Mingus, Chuck Manioni aö ógleymo-
um Arna Egils og fleirum og fleirum.
Fyrir hina þjóðlegu
Sannar Dægurvísur méð Brimkló, Spilverk
þjóöanna, Glámur og Skrámur, Álfar og yfir
höfuö allar íslensku plöturnar og síöast en
ekki síst.
Ampex kasettur
sem vio norum umboð fyrir hér á
í póstkröfu Laugavegi 33.
Strandgötu Hafnarfiröi.