Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1980
Ekki var úthúnadurinn burdugur sem þessi var að veiða með. En hann haíði nægan tima og fór sér hægt og gerði sér greinilega von um að
fá eitthvað á færið.
ísl. og jafnan er þétt setinn
bekkurinn. Að sitja í veit-
ingahúsi efst á Victoria-fjallinu
og horfa yfir borgina hvort sem er
að nóttu eða degi er ólýsanlegt.
Að takast á hendur ferð um
sveitahéruðin og fara inn að
landamærum Rauða-Kína og síð-
ast en ekki síst að heimsækja
stærsta bátaþorpið, Aber-
deen, þar sem um 35 þúsund
•manns búa á um 4000 bátum. Til
að komast í sem nánasta snert-
ingu við bátafólkið er best að
semja við innfædda um leigu á
junka og láta hann sigla með sig
um svæðið og jafnframt sýna
sér allt það markverðasta.
Það tók nokkurn tíma að finna
bát og enn lengri tíma að finna út
rétta verðið. Allír vilja fá sení
mest fyrir sinn snúð.
Allt tókst þetta og það var
eldri kona sem tók að sér það
verkefni að sigla með mig um
svæðið. Satt að segja leist mér
nú ekki of vel á hlutina svona
til að byrja með, því að híbýlin
eru ekki álitleg og lyktin ekki sem
best. En þetta vandist fljótt og
það var ekki annað að sjá en
að hreint og þrifalegt væri
innan þilja í bátunum sem fólkið
býr í. Húsbúnaður er svo til
enginn en í setusalnum má
víðast hvar þó sjá sjónvarps-
tæki. Víða um borð er unnið að
alls konar heimilisiðnaði.
Stærstur hluti junkanna fer
aldrei úr höfn en hins vegar
sækja sjómenn á miðin á stórum
junkum með allt að 50 manna
áhöfn.
Veiðiferðirnar geta staðið í
3 til 4 daga. Innan hafnar í
bátunum vinna svo börn og konur,
það var ekki annað að sjá en að
þetta væri iðjusamt fólk.
Þetta er afar sérkennilegt
samfélag, það virðist aðeins
hlíta eigin lögmálum og aldagam-
alli hefð. Viðskipti eru mikil
Viðast hvar þættu þetta ekki góð híbýli, en bátafólkið virðist una hag sinum vel. Börnin vinna aflann að einhverju leyti með móður sinni.
A myndinni má sjá hvar verið er að plokka rækju.
V
: " It
manna á meðal og oftast er
um vöruskipti að ræða. Hver
fjölskylda er út af fyrir sig á
sínum bát og margir stíga
sjaldan á land.
Ekki er hægt að slá botn-
inn í þessa stuttu frásögn frá
Hong Kong án þess að minnast á
hinn ljúffenga mat sem þar er
alls staðar framreiddur. Ef
spurt er hvað það sé sem
Kínverjum líkar mest og best er
ekki spurning um að það er
matur. Flest fólk borðar til
þess að lifa, en þeir lifa til að
borða. Kínversk matargerð er
listgrein og vísindi út af fyrir
sig og það er ekki hægt að
finna meira gósenland fyrir
sælkera en Hong Kong. Nýir og
spennandi réttir bíða manns á
hverjum veitingastað sem
maður rekur nefið inn á. Fullyrt
er að hægt væri að fara út að
borða í Hong Kong á hverju
kvöldi í heil tvö ár og aldrei á
sama veitingastaðinn og án
þess að þurfa að panta sama
réttinn.
Sannleikurinn um Hong
Kong er sá, að engin heimsókn
er nógu löng til þess að hægt sé að
upplifa nema brot af því sem
þar er á boðstólum. Þess
vegna koma svo margir aftur og
aftur Ekki er hægt að segja annað en að hún sé þrifleg þessi heiðurs
— þr. kona. Hún var rétt í þann veginn að Ijúka við kvöidverðinn.
Borg
andstæöna
og iðandi
mannlífs
A
■■
Olíuveldi
norðursins
sparar olíu
Orkusparnaðarherferð, sem
farin var í Noregi fyrir hálfu ári,
virðist hafa borið rikulegan
ávöxt, ef marka má samdrátt
þann sem varð á sölu olíu i
landinu á tveimur fyrstu mánuð-
um þessa árs miðað við sama
tíma í fyrra.
Samdrátturinn nemur um 7,5%,
og gætir sparnaðarins á flestum
sviðum. T.d. hafa Norðmenn farið
að sýna betri einangrun húsa
mikinn áhuga, þeir nota almenn-
ingsvagna í auknum mæli og
spara bíla sína, auk þess sem
víðtækar sparnaðarráðstafanir
hafa verið gerðar í sambandi við
kyndingu (AP).
75 milljónir
dala í
skaðabætur
SKAÐABÓTAMÁLUM vegna
mesta flugslyss sögunnar, sem
varð á Tenerife-flugvelli þegar
þotur frá KLM og Pan American
rákust á fyrir þremur árum, er
lokið með sáttum í öllum tilvikum
nema málum, sem fara fyrir
dómstóla. Heildarupphæð skaða-
bótanna verður 75 milljónir
bandaríkjadala, en í flugslysinu
fórust 547 manns og 57 særðust.
Lögfræðingar, sem hafa annazt
málið, eru á einu máli um að
miklu betur hafi tekizt að útkljá
það en ætla mátti í upphafi og
einnig þykir merkilegt að unnt
hafi verið að ná sættum á svo
skömmum tíma. Þessar málalykt-
ir eru þakkaðar því að þeir, sem
kröfur voru gerðar á, flugfélögin
tvö, Boeing og spánska stjórnin,
komu sér saman um það er málið
var á frumstigi hvernig þeir
skyldu skipta með sér ábyrgðinni
og komu síðan fram sameiginlega
gagnvart kröfuhöfum.
KLM mun greiða 40% bótanna,
Pan American 30%, spánska
stjórnin 20% og Boeing-verk-
smiðjurnar, þar sem báðar þot-
urnar voru smíðaðar, greiða 10%.
Saumavélin
BANDARÍKJAMAÐURINN Elias
Howe fann upp fyrstu nothæfu
saumavélina árið 1846.
Af 1800 var
200 nauðgað
ENN streymir bátafólkið frá
Indókína og enn er það myrt og
rænt í stórum stíl, auk þess sem
mikið er um að flóttakonum sé
nauðgað. Um þessar mundir er
flóttamannastraumurinn ekki
eins mikill og þegar hann var í
hámarki á sama tíma í fyrra, en í
siðasta mánuði er talið að tæp
þrjú þúsund manns hafi komið
frá Laos og Kambódíu, þar af
kom um helmingurinn til Malaj-
siu.
Læknar í flóttamannabúðum á
Bidong-eyju í Malajsíu segja að af
þeim 1800 konum, sem síðast
komu í búðirnar, hafi um 200 orðið
fyrir því að verða nauðgað á
flóttanum. Af 190 flóttamönnum
sem höfðu samflot á þremur
bátum myrtu sjóræningjar 79, að
því er áreiðanlegar heimildir eru
um, en um slíka atburði eru
óteljandi dæmi.