Morgunblaðið - 13.04.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.04.1980, Blaðsíða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1980 „Skömmu fyrir sólar- upprás birtust skyndilega hundruð sovézkra skriðdreka um- hverfis þorp- ið og hófu skothríð á það. Orrustu- flugvélar flugu yfir og vörpuðu sprengjum og þegar þorpið hafði að mestu verið lagt í rúst vörpuðu þeir fallhlífaher- mönnum nið- ur og þyrlur komu með hermenn.“ LIDICE Ógnarstjórn Heydrich hafði verið yfirmaður öryggisþjónustunnar SD og þar með Gestapo og var sérstakur skjólstæðingur Heinrich Himml- ers, yfirmanns SS. Hann var einn voldugasti maður þýzka nazista- ríkisins og bar aðalábyrgðina á „endanlegri lausn Gyðingamáls- ins“ (en hann þagði rækilega yfir því, að önnur amma hans virðist hafa verið Gyðingur). Hann var greinilega lækkaður í tign þegar hann var sendur til að taka við starfi sínu í Prag síðla árs 1941, en hvað sem því leið innleiddi hann hræðilega ógnarstjórn og hófst Þýzkir hermenn leggja þorpiö Lidice í rúst til að hefna dauða Heydrichs. tákn níðingsverka Þannig lýsti bóndinn Abdel Wa- hid frá Chigall aðförum Rússa í Afganistan þegar hann komst til Pakistans á dögunum ásamt hundruðum flóttamanna frá Kun- arhéraði eftir erfiða ferð yfir fjöllin. „Uppreisnarmenn voru að- þrengdir, en þeim tókst að fella marga Rússa. Þá kölluðu Rússar á orrustuþotur og þær vörpuðu sprengjum og napalmi. Sumir þeirra brunnu til bana. Þegar ég leit síðast til baka brann allt sem brunnið gat og enginn var á lífi til að grafa líkin," sagði Wahid. Þessar aðfarir í ónefndu þorpi í Afganistan leiða hugann að aðför- um Þjóðverja í heimsstyrjöldinni í þorpinu Lidice í Tékkóslóvakíu í kjölfar morðsins á Reinhard Hey- dirch, sem var titlaður „verndari Bæheims og Mæris". handa um útrýmingu Gyðinga í landinu. Tékkneskir útlagar í London skipulögðu tilræðið við Heydrich frá því skömmu eftir að hann var sendur til Prag með aðstoð brezku leyniþjónustunnar. Tilgangur til- ræðisins var að vekja athygli heimsins á ástandinu í landinu og stappa stálinu í tékknesku and- spyrnuna. Sveit manna undir for- ystu Jozef Gabcik og Jan Kubis var varpað niður í fallhlífum um jólin og fleiri fylgdu á eftir. Andspyrnuhreyfingin frétti ekki um tilgang þeirra fyrr en fimm mánuðum síðar og lagðist gegn tilræðinu þar sem hún óttaðist að hefndarráðstafanir, sem mundu af því leiða, mundu leiða ósegjan- legar hörmungar yfir þjóðina. Þrátt fyrir það réðust Gabcik og Kubis á bifreið Heydrichs með Reinhard Heydrich sem var skipaður æðstráðandi í Tékkó- slóvakíu 17. september 1941 og árás var gerð á réttum átta mánuðum síðar. Tilræðismennirnir Josef Gabcik (t.v.) og Jan Kubis, sem drápu Heydrich. Myndirn- ar voru teknar eftir dauða þeirra í grafhvelfingu í Prag. vélbyssu og sprengjum 17. maí 1942 þegar Heydrich var á leið heim frá vinnu skömmu áður en hann ætlaði til Berlínar. Heydrich slasaðist, en gat þó hlaupið á eftir tilræðismönnunum, sem komust undan og og skotið á eftir þeim. Heydrich lézt óvænt viku síðar af blóðeitrun. Hefndaraðgerðir Tæpum þremur klukkustundum eftir árásina á bíl Heydrichs hringdi Hitler í Karl Hermann Frank, helzta aðstoðarmann Hey- drichs í Prag, og krafðist þess að 10.000 óbreyttir borgarar yrðu handteknir og líflátnir. Frank hafði hins vegar hafizt handa um hefndaraðgerðir áður en Hitler hringdi því að hann var viss um að hann mundi samþykkja þær. Her- lögum var lýst yfir, miklum verð- launum var heitið fyrir upplýs- ingar, sem gætu leitt til handtöku tilræðismannanna, skyndidóm- stólar tóku til óspilltra málanna og margar fjölskyldur voru teknar af lífi fyrir að „samþykkja" til- ræðið og fleiri sakir. Skömmu fyrir kl. 11.30 um kvöldið umkringdu SS-hermenn Lidice, 500 ára gamalt tékkneskt þorp rúmlega 30 km norðvestur af Prag. Þorpið var einangrað frá sveitinni í kring. Þorpsbúar voru dregnir út úr rúmum sínum og heimilum og þeim var sagt að safnast saman á torginu með alla peninga sína og önnur verðmæti. Enginn vissi hvað var á seyði. Börnin grétu, konurnar voru hræddar og óttaslegnar ... Einhvern tíma um nóttina var körlunum og konunum stíað í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.