Morgunblaðið - 13.04.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRIL 1980
59
Bandalag
kvenna:
Vangefin
börn ekki
sérhópur
BANDALAG kvenna í Reykjavík
hefur starfandi barnagæslu-
nefnd. Á aðalfundi samtakanna
nýlega voru samþykktar eftirfar-
andi tiliögur barnagæslunefndar
um börn með sérþarfir:
1. Aðalfundurinn skorar á Félags-
málaráð Reykjavíkurborgar að
auka aðstoð við fjölskyldur
barna með sérþarfir.
2. Aðalfundurinn skorar á
Menntamálaráðuneytið að
hlutast til um það að heyrn-
arskert börn fái notið sjón-
varpsefnis með íslensku tali.
Skal stefnt að því að settir
verði textar við íslenskt efni.
Má þar nefna efni fyrir börn
eins og „Stundina okkar" o.fl.
Þetta myndi stuðla að því að
minnka þann aðstöðumun, sem
nú er með heyrnarlausum og
heyrandi börnum.
3. Aðalfundurinn vill hvetja
stjórnvöld til umhugsunar um
tilverurétt barna með sérþarfir
og hvetur því forráðamenn fjöl-
miðla að endursýna þáttinn
„Svona erum við“, sem sýndur
var 30. október 1979.
4. a) Vangefin börn: Eru í fyrsta
lagi börn, sem hafa sömu
þarfir, sama rétt og heilbrigð
börn.
b) Vangefin börn: Eru ekki
sérhópur, sem ber að með-
höndla á frábrugðinn hátt,
sem þýðir venjulega lakari
meðferð.
Við skorum á fjárveitingayfir-
völd að veita allt það fjármagn,
sem þarf til uppbyggingar þjón-
ustu fyrir vangefin börn. Við
skorum á fjárveitingayfirvöld að
veita fé, svo unnt sé að framfylgja
lögum um aðstoð við þroskahefta,
sem tóku gildi 1. janúar sl.
Sýnir í Nýja
galleríinu
MAGNÚS Þórarinsson sýnir nú
olíumálverk í Nýja galleríinu að,
Laugavegi 12 og stendur sú sýning
til laugardagsins 19. apríl en þá
opnar Árni Garðar sýningu á
vatnslita- og pastelmyndum.
Bíllinn fundinn
BÍLLINN, sem stolið var á verk-
stæðinu að Suðurlandsbraut 12
aðfararnótt sl. fimmtudags,
fannst að kvöldi sama dags bak
við húsið Síðumúli 2. Þjófarnir eru
hins vegar ófundnir, en þeir not-
uðu sem kunnugt er aðra bifreið
til þess að brjóta verkstæðishurð-
ina.
MYNDL/STA-
OG HANDÍÐASKÓL/
ÍSLANDS
Námskeið í
veggmyndatækni
fyrir starfandi myndlistarmenn verður haldið 11. apríl til 5.
maí mánudaga og föstudaga kl. 18—22.
Kennari verður Jörgen Bruun-Hansen frá Konunglegu
akademíunni í Kaupmannahöfn.
Tilkynnið þátttöku á skrifstofu skólans, Skipholti 1.
Skólastjóri
Reykjavík. Skipholt 1. Sími 19821
Franska sendiráöiö
tilkynnir öllum námsmönnum, sem hyggja á nám viö
franska háskóla, skólaáriö 1980—1981 í öllum
öörum greinum en frönsku fyrir útlendinga, aö síöara
próf í frönsku fer fram fimmtudaginn 17. apríl.
Viökomandi eru beönir aö snúa sér hiö allra fyrsta
varðandi upplýsingar eöa innritun til:
Franska sendiráðsins, Túngötu 22.
EFÞAÐERFRÉTT- Ighf9) NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU
SKEMMTILEG
SUMARHÚS
Eitt mun örufiísflesfa henta vður
Nú getum við boðið úrval glæsilegra sumarhúsa í öllum stærðum, sem þér getið fengið á ýmsum byggingarstigum.
En vinsælust eru frágengin hús, því þá er allt innifalið og ekkert annað eftir en að flytja inn. Kynnið ykkur verð og
gæði húsanna, því að hér er um einstakt tækifæri að ræða.
LAND UNDIR SUMARHÚS
Félög og fyrirtæki ættu að athuga að við getum boðið stórt land undir sumarhús á fallegum stað við Laugarvatn.
Sumarhúsasmfði Jóns
Smiöjuvegur 42, sími 71810 Sölumaður: Kristján Ásdal, sími 81476