Morgunblaðið - 13.04.1980, Qupperneq 30
Slöngur
í heiminum eru til um 2000
tegundir af slöngum. Lengsta
slanga, sem fundist hefur var
kyrkislanga, sem var rúmir 11
metrar á lengd og vóg hvorki
meira né minna en 180 kg!
Tusku
listaverk
Gaman væri að reyna eftir-
farandi við tækifæri:
Fáið ykkur fötu með vatni í
og leggið hvers kyns tuskur í
bleyti, sem þið fáið hjá for-
eldrum ykkar. Þegar þær eru
orðnar renn-blautar takið þær
upp úr og „límið“ á vegg eða
plötu og búið til alls kyns
listaverk, dýr, fólk, tré o.fl.
Tuskurnar hanga á veggn-
um eins lengi og þær eru
blautar, en þá detta þær auð-
vitað. Og þið getið rétt ímynd-
að ykkur, hvort hægt er að
framkvæma slíka hluti inni í
stofu! En einhvers staðar er
það örugglega hægt.
Ferming
Margir unglingar velta
fyrir sér tilgangi ferming-
unnar. Margir unglingar
á þessum aldri eru gagn-
rýnir í hugsun og vilja fá
tœkifœri til aö rökræöa
málin og taka sjálfstœöar
ákvaröanir. Viö birtum
tvö bréf í framhaldi af
þættinum um síöustu
helgi.
til hvers?
Gunnar skrifar:
Lengi hef ég verið í vafa, um
hvort ég ætti að láta ferma mig.
Ég hugsa að ég slái til. Ekki af
því að ég hafi nógu mikla trú,
heldur af því að mér finnst eins
og nú á dögum geti maður
túlkað fermingu hvernig sem
maður vill — eða er það ekki?
Mér finnst það miklu auðveld-
ara — það er ekki eins krefj-
andi.
Presturinn svarar:
Kæri Gunnar.
Mér finnst þú skynja svolítið
af tilgangi fermingarundirbún-
ingsins, og það gleður mig sann-
arlega. Það er ekki ætlunin, að
fermingarbörnin eigi „full-
komna trú“ — heldur að þau
hafi möguleika til að vera með
að svo miklu leyti sem þau hafa
þroska til.
Þegar ég bið fyrir þér á
fermingardaginn, hvetjum við
þig til að biðja með í hljóði.
Enginn sér það. Enginn veit það.
Og þó. Einn sér það — en til
hans megum við leita og koma
alveg eins og við erum.
Ég á eina bæn þér til handa,
sem ég vona, að fylgi þér alla
ævi og þú getir einnig notað:
Jesús, leið mig og styð mig!
Elín segir í sinu bréfi:
Ég ætla ekki að láta ferma
mig. Þér finnst það kannski
undarlegt þar sem ég hef gengið
til altaris meðan á fermingar-
undirbúningnum hefur staðið.
Ég var ekki að hræsna. Mig
langar til að fylgja Jesú! Mér
finnst fermingin vera léleg eft-
irfylgd. Mér finnst svo margir
hræsna þegar þeir heita því í
votta viðurvist, að þeir vilji
fylgja Jesú — og meina svo
hreint ekkert með því. Þessu
mótmæli ég harðlega.
Svar prestsins:
Sjaldan mætir prestur ungl-
ingi, sem í raun og veru langar
til að fylgja Jesú áður en hann
fermist. En þannig er það með
þig og ég hef glaðst í hvert
skipti sem þú hefur mætt eða
gengið til altaris. Þess vegna
kom það mér mjög á óvart,
þegar ég las, að þú værir hætt
við að láta ferma þig.
Þú segir, að aðrir hræsni, en
ég held að þú hafir ekki rétt
fyrir þér. Það er varla hægt að
setja alla aðra í sama bás hvað
þetta snertir.
Þér finnst einnig eins og það
sé léleg eftirfylgd í fermingunni
— þú mátt ekki gleyma bæninni,
sem við bæði þurfum að biðja.
Það er ekki lélegt að fylgja Jesú
eftir með bæn. Ef þú sleppir
fermingunni, missir þú einnig af
bæninni og blessuninni.
Ég vona, að ég fái að sjá þig á
fermingardaginn.
Jesús dó á krossi. Teikning: InicibjörK Thors. 7 ára. Reykjavik.
En hann reis aftur upp frá dauðum.