Morgunblaðið - 24.04.1980, Side 15

Morgunblaðið - 24.04.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 15 orðabók Menningarsjóðs er merking orðsins andúð sögð vera: Óbeit, viðbjóður, ímugustur, vond- ur þokki. Er nú víst að Pálmi formaður sé maður til að standa undir slíkum áburði? Það getur svo verið fróðlegt fyrir menn að bera áður tilvitnuð orð í grein formannsins saman við önnur, sem þar standa og sjá samræmið. Hann segir: „Efling Sjálfstæðisflokksins byggist á því að hann beri gæfu til að laða til sín frjálslynt fólk, sem þá verður að finna samhljóm í stefnu okkar og framkvæmd hennar.“ Já, hvernig skyldi ganga að laða „frjálslynt fólk“ að flokki, sem legði rækt við vinnubrögð þeirra Pálmanna, eins og formaðurinn hefur sjálfur lýst þeim? Hætt er við að mörgum þætti samhljómur- inn falskur. Um æsing minn á aðalfundinum læt ég öðrum eftir að dæma. Ég hélt geðró minni þar og mun gera það framvegis. Hins vegar er það háttur minn að láta skoðanir mínar í ljós umbúðalaust. Ég hef aldrei getað fetað í fótspor þeirra, sem læðast með veggjum og þykj- ast hvergi koma nærri. Ég dreg enga dul á það, að ég er orðinn leiður á þeim mönnum innan Sjálfstæðisflokksins, sem sjálfir setja á sig gæðastimpilinn „drengskaparmenn", tala í tíma og ótíma um víðsýni sitt og nauðsyn þess að laða „frjálslynt fólk“ að flokknum, rétt eins og það fyrir- finnist þar ekki lengur. Stuðning- ur minn við Sjálfstæðisflokkinn er ekki háður einstökum mönnum. Ég fylgi honum vegna grundvall- arstefnu og markmiða. Ég mun aldrei fá glýju í auguri þótt einhver kunningi slysist til að setjast í ráðherrastól. Áframhaldandi stuðningur minn við stjórnmálamann veldur á því hvort viðkomandi starfar í anda þeirrar stefnu, sem ég kaus hann til að framkvæma. Ég mun svo ekki taka þátt í frekari blaðaskrifum um aðalfund Sjálfstæðisfélags Sauðárkróks og eftirköst hans. Slík skrif geta varla verið lesendum ýkja áhuga- verð til lengdar, þótt í þeim komi fram nokkur þau atriði, sem ég vona að sjálfstæðisfólk hafi veitt athygli og eru umhugsunar virði. Þessi mál hljóta öll að verða gerð upp heima fyrir Sauðárkróki, 19. apríl 1980. ætla að fara að kynnast. Upp kemur afbrýði og metingur um tilfinningar barnsins. Ög auk þess geta þau ekki hvort án annars verið þegar allt kemur til alls. Þau eru komin í vítahring- inn aftur og líklegt að þau verði þar. Eins og fram kemur í niðurlagssetningunum: — Og þó eigum við eftir erfiðasta hjallann ... ef þú verður kyrr. — Ég verð kyrr. Þangað til á morgun. Svo sjáum við til. Jóhanna Kristjónsdóttir. Áke Leijonhufvud Ferðaleikhúsið sýnir barnaleikrit í London Ferðaleikhúsið frumsýndi 22. apríl í London, barnaleik- ritið The Storyland (Söguland- ið) eftir Kristínu Magnús, sem einnig leikstýrir verkinu og leikur í því. Leikritið er sýnt í elsta og þekktasta barnaleikhúsi Lund- únaborgar, Arts Theatre, sem er 380 manna leikhús. Leikritið Sögulandið er byggt á ísl. þjóð- sögum og þjóðtrú. Leikarar eru fimm, sem fara með tólf hlut- verk, einnig koma fram tvær leikbrúður gerðar af Jóni E. Guðmundssyni. Leikmyndir gerði Friðrika Geirsdóttir, Atli Heimir Sveinsson samdi tón- listina, sem flutt er af Manúelu Wiesler á flautu og Moniku Abendroth á hörpu. Leikhljóð gerði Sigfús Guðmundsson og Dórothea Sigurfinnsdóttir gerði leikbúningana. Sýningar á The Storyland verða alls sex, og er síðasta sýning á sunnudaginn kemur. Uppselt er á fyrstu fjórar sýningarnar. Hjónin Halldór Snorrason og Kristín G. Magnús leikkona eru forráðamenn Ferðaleikhússins sem fyrr. Myndin er tekin á æfingu. fyrir utan leikhúsið. á björtum sólardegi. Talið frá vinstri eru: Jo Staples leiksviðsstjóri. Tania Ann Bennett. Christopher Hurles, Steven Bennett aðstoðarmaður á leiksviði. Björg Árnadóttir. feðgarnir Magnús Snorri. sem gerði auglýsinga- og útstillingarmyndir o.fl. og Uaildór Snorrasson leikhússtjórinn. Krístín G. Magnús. sem samdi leikritið. leikstýrir því og leikur þrjú hlutverk. og Michael Cule. I dag sumardaginn fyrsta er útgáfudagur fyrstu íslenzku plötunnar sem gefin er út í upphafi nýs áratugar. „Áhöfnin á Halastjörnunni“ óskar landsmönnum öllum til sjós og lands gleöilegs sumars og býöur öllum unnendum góörar dægurtónlistar uppá „Meira Salt“ sumarplötunnar í ár. „Meira Salt “ er hress og létt sumarplata sem allir geta skemmt sér viö aö hlusta á því hún kemur sjómannsblóöi til aö ólga í æöum og öllum landsmönnum til aö vagga sér í takt viö dillandi hljóöfalliö. FÁÐU ÞÉR „MEIRA SALT“ Útgefandi Geimsteinn Dreifing stoinof hf Stmi 85742.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.