Morgunblaðið - 24.04.1980, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
„Grái fiðringurmn :
þeirra oft aö starfi föðurins,
einkum ef þeirri fyrirmynd
hefur farnazt vel í starfi og
yfirboröiö er slétt og fellt.
Markmið flestra ungra manna
er aö komast í „gott starf",
þ.e. löngun þeirra beinist að
því aö veröa „vel heppnaöir"
einstaklingar. Menn búa sér til
áætlun, sem þeir reyna síöan
aö fylgja. Þeir hugsa sem svo:
Nú geng ég í þjónustu þessa
fyrirtækis og ef ég stend mig
vel þá verö ég orðinn skrif-
stofustjóri (eöa einhvers kon-
ar stjóri) um 35 ára aldur. Ef
ég held vel á spöðunum verö
ég meðeigandi og þá ætti ég
aö geta verið oröinn forstjóri
áður en ég verö fimmtugur,
og þar meö er mér borgið.
En svo einfalt er málið nú
ekki. Rannsóknir benda ein-
dregiö til þess aö um 35 ára
aldur sé hugsunarhátturinn
farinn aö breytast, þannig aö
menn meti meira hvaö þeir
beri úr býtum en stööuhækk-
unina sem slíka. Efnahagslegt
öryggi er farið aö skipta þá
meira máli en áöur var.
En hvað gerist svo um 45
skapaður
til
þess
eins
að vinna
breytingum og nýjum starfs-
háttum, verða óþjálir í sam-
starfi og afla sér óvinsælda á
vinnustað. Hér er aö sjálfs-
ögðu verið aö bregöa upp
dökkri mynd, sem er engan
veginn algild, en sýnir þó
mjög algenga tilhneigingu.
Til hvaða ráða grípa menn í
þessari aöstööu? Margir flýja
á náðir áfengisins, aðrir láta
hörmungarnar bitna á sínum
nánustu, enn aðrir reyna aö
gleyma þeim í örmum ást-
Margir menn, sem eru van-
sælir í starfi sínu og eru farnir
að gera sér grein fyrir því aö
þeir eru staönaöir á frama-
brautinni, koma heim úr vinn-
unni þreyttir og leiöir og þeir
finna sárt til vanmáttar síns.
Þeir hafa vísast ekki haft í sér
uppburöi til aö standa uppi í
hárinu á ósanngjörnum yfir-
manni, og afleiðingin veröur
sú, að þegar dagur er að
kvöldi kominn sýöur í þeim
óánægjan og fýlan, og þeir
verða aö fá útrás. Einfaldasta
lausnin, eöa a.m.k. sú nær-
tækasta, er aö hella úr skálum
reði sinnar yfir fjölskylduna.
Til eru ýmsar skynsamlegar
lausnir á vandamálum manna,
sem eiga bágt meö aö horfast
í augu við að sá tími er
kominn aö þeir geta ekki
lengur búizt við því aö hækka
í tign á starfssviði sínu. Engin
þörf er á því aö vera sjálfum
sér og öörum til skapraunar
þar til eftirlaunaaldrinum er
náð, og líkindi eru til þess að
biðtíminn veröi meö öllu óþol-
andi, ef ekkert er aö gert.
Fyrsta skrefið er aö horfast
í augu við staöreyndir og gera
sér jafnframt grein fyrir því að
lífið hefur upp á ýmislegt aö
bjóða, þótt gamlar fram-
tíöarvonir hafi brugöizt.
Miklu varðar að maöur í
þessari aöstööu temji sér að
hætta að leggja þessa gífur-
legu áherzlu á starf sitt og
tengja þaö persónu sinni meö
þeim hætti, sem hann hefur
gert. Maðurinn er ekki
skapaður til þess eins að
vinna. Hann getur átt sér
fjölmörg áhugamál, sem veita
honum ánægju, ef hann venur
sig af því að vera meö vinn-
una á heilanum og hættir aö
ímynda sér þá firru, aö hann
sé ómissandi á vinnustað.
Menn geta veriö góöir starfs-
kraftar og ein af máttarstoð-
unum á vinnustað en engin
stofnun og ekkert fyrirtæki
grundvallast á einum manni.
Þeir sem eiga bágt með aö
trúa þessu ættu aö taka sér
tveggja eða þriggja mánaöa
leyfi frá störfum. Er þeir koma
aftur til vinnu blasir þaö undur
viö, aö rekstur fyrirtækisins
hefur ekki stöövazt. Allt hefur
Fjóröa grein í
flokki Edmond C.
Hallberg um breyt-
ingaskeiö karlmanna
fjallar um vanda-
mál, sem blasa viö
þegar starfsorkan fer
aö minnka og menn
komast aö raun um
þaö, aö líklega eigi
þeir sér ekki frekari
framavon í starfi.
Margir fyllast von-
leysi og beizkju,
veröa geöstiröir og
einstrengislegir í
skoöunum, og ekki
bætir úr skák hin
tilfinningalega ein-
angrun, sem er svo
aígeng hjá mönnum
á þessum aldri. Hér
er bent á ýmsar leiöir
út úr ógöngunum:
Mjög margir fullorönir
karlmenn lifa til þess að vinna
í stað þess aö vinna til aö lifa,
og talið er aö allt aö 80% leggi
starfið til grundvallar viö
sjálfsmat. Þ.e. Jón Jónsson,
sem hefur lífsviðurværi sitt af
því aö gera við tennur í fólki,
lítur ekki á sjálfan sig fyrst og
fremst sem manneskju meö
þessu nafni, heldur tannlækn-
inn Jón Jónsson.
Til aö sannfærast um aö
þetta er rétt getur lesandinn
gert nokkrar tilraunir: Geföu
þig á tal viö ókunnugan mann
og forðastu aö segja hvað þú
starfar. Fljótlega kemur
tvennt í Ijós: Viömælandinn
veröur ekki í rónni fyrr en
hann kemst að því hvaö þú
gerir, og sjálfur muntu eiga
mjög erfitt meö aö halda uppi
samtali án þess aö gefa til
kynna hvert starf þitt er.
Rifjaöu því næst upp sam-
tal, sem þú hefur nýlega átt á
mannamóti. Hver var fyrsta
spurningin, sem lögö var fyrir
þig? Áreiðanlega þessi: „Hvaö
gerirðu?" Þessi spurning hef-
ur síðan leitt af sér fjölmargar
aörar og svörin viö þeim hafa
veitt viömælandanum grein-
argóðar upplýsingar um þig.
Hann hefur komizt aö því
hvaöa menntun þú hefur hlot-
iö, gerir sér einhverja grein
fyrir því hvernig efnahagur
þinn er, hvernig þú býrð og
hver er staða þín í þjóöfélag-
inu. En hann veit sáralítiö um
þaö hvers konar maður þú
ert, hver er lífsskoðun þín og
hvernig þú ert innrættur.
Sú yfirdrifna og óverö-
skuldaða athygli, sem menn
beina að starfi sínu, á sér
aðdraganda alit frá því í
bernsku. Litlir drengir eru
varla farnir að tala þegar þeir
eru farnir aö viöra hugmyndir
sínar um þaö hvað þeir ætli
að veröa þegar þeir eru orðnir
stórir. Þeir yngstu ætla aö
veröa strætisvagnastjórar,
lögreglumenn eöa flugmenn,
svo dæmi séu nefnd, en þegar
þeir stálpast beinist athygli
ára aldurinn? Þá fara menn
aö veröa þess varir aö starfs-
orka þeirra og áhugi á starfinu
er farinn aö dvína. En þá er
algengt aö þeir átti sig á því
að þeir eru flæktir í kerfiö —
og komast hvorki aftur né
fram. Þeir hafa ekki orðið þeir
afburöamenn, sem þeir höföu
búizt viö aö verða. Þeir hafa
ekki komizt í námunda viö
efstu tröppuna í metorðastig-
anum. Þeir finna, aö þeir
megna ekki lengur að leggja á
sig nær ótakmarkaða yfir-
vinnu. Þeir fylgjast ekki nógu
vel með, stöðugt er krafizt
meiri og meiri sérhæfni á
flestum sviöum. Miðaldra
menn eiga erfitt með að
fylgjast meö í þesum darrað-
ardansi. Þeim er ógnaö. Þeir
veröa aö viðurkenna fyrir
sjálfum sér og öðrum aö þeir
eru ekki ómissandi. Þeir fyll-
ast öryggisleysi þegar yngri
menn þjóta fram úr þeim.
Afleiöingar vanmáttarkenndar
verða minni afköst og minni
áhugi á starfinu. Þetta er
vítahringur sem flestir eiga
bágt með aö komast út úr, og
venjuleg viöbrögö miðaldra
manna, sem komnir eru í slíka
aðstööu, eru ósveigjanleiki,
þröngsýni og íhaldssemi í
skoðunum. Þeir eiga stööugt
erfiðara meö aö semja sig aö
kvenna og loks má nefna þá,
sem „lokast inni“ — draga sig
inn í skel, verða niöurdregnir
og daprir og líta aldrei glaöan
dag. Slíkar leiðir út úr sjálfs-
myndarkreppunni eru vitan-
lega ógöngur.
Margar eiginkonur miö-
aldra manna, sem svo er
komið fyrir, kvarta undan
skapvonzku þeirra. Þær segj-
ast jafnvel bíöa hálfan daginn
í taugaspennu eftir því að þeir
komi úr vinnunni og hafa þá
sögu að segja aö marka megi
af því hvernig þeir skelli
bílskúrshurðinni hvaö kvöldið
beri í skauti sér. „Krakkarnir
flýja inn í herbergin sín —
hundurinn hverfur undir sóf-
ann, eins langt og hann
kemst.“
Ein lýsti reynslu sinni svo:
„Þegar sá tími nálgast aö
hann kemur úr vinnunni fæ ég
sting í magann af einskærri
taugaspennu. Þannig var þaö
ekki hér áöur fyrr. Þá gat ég
varla beðið eftir því að hann
kæmi, — ég hlakkaði svo til
aö sjá hann. Nú skipta skaps-
munir hans öllu máli um það
hvort líft er á heimilinu um
kvöldið. Tónninn þegar hann
heilsar eöa skellurinn þegar
hann lætur frá stresstöskuna
gefa vísbendingu um ástand-
ið“.
gengiö sinn vanagang.
Ef þú, lesandi góöur, ert
þaö sem stundum er nefnt
„vinnualki" — þ.e.a.s. ert meö
starf þitt á heilanum — skaltu
byrja á aö gera þér grein fyrir
því aö þú ert í hættu. Þú þarft
aö gera áætlun um aö venja
þig af þessari ofneyzlu. Þetta
er eins og eiturlyf. Þú skalt
fara aö hyggja að áhuga-
málum þínum — bæöi þeim
sem þú hefur áöur haft en
ekki talið þig hafa tíma til aö
sinna, en ekki síöur ættiröu
aö hyggja aö nýjum viðfangs-
efnum. Menn læknast ekki af
vinnusýki á einni nóttu, heldur
smátt og smátt. Stresstaskan
hefur hjá mörgum komiö í
staö gæludýra bernskunnar
— hún er bangsi hins vinnu-
sjúka miöaldra manns. Byrj-
aöu á því aö færa til í
töskunni. Skildu eftir eitt autt
hólf og settu síöan í þaö
upplýsingar eöa annaö sem
tengist áhugamálum þínum.
Sá sem ferðast meö almenn-
ingsvögnum getur haft þar
skemmtilega bók til aö grípa
til á leiðinni eöa í matartíman-
um, í stað þess að grúfa sig
yfir plögg, tengd vinnunni.
Komdu því svo fyrir á
vinnustaö aö þú getir aukiö
sjálfstæöi þitt og stjórnaö
tíma þínum sjálfur í meiri mæli
en áöur. Vertu óhræddur við
aö taka að þér verkefni, sem
þú átt auðvelt með aö leysa
enda þótt þau þyki e.t.v. ekki
jafn merkileg og þau, sem þú
hefur áöur unniö aö. Vertu
ófeiminn viö að fara nýjar
leiðir og fást við mál, sem þú
hefur ekki áður komið nálægt.
Þú munt komast aö því aö
nýju störfin eru ekki síður
mikilvæg — aöalatriöiö er aö
þú finnir að þú valdir þeim, og
sannleikurinn er sá aö öll þau
störf, sem alúð er lögð viö eru
skemmtileg, einfaldlega
vegna þess aö ánægja er
fólgin í því einu aö vinna vel
og vilja vinna vel. Þessi störf,
sem hafa í för meö sér minni
ábyrgð, hafa þann kost að þú
ert ekki lengur í stööugri
samkeppni viö sjálfan þig og
umhverfiö. Þú slakar á, veröur
þjálli í umgengni og vinsælli á
vinnustað, — og heima hjá
þér.
Gerðu tilraun til aö nálgast
unga fólkiö á vinnustaðnum
og miðlaðu því af reynslu
þinni. Lýstu þig fúsan til aö
taka þátt í þjálfun nýliða,
leitaðu að nýjum verkefnum,
vertu ófeiminn viö aö láta í
Ijós skoðanir þínar á því
hvernig betra væri að haga
störfum hjá fyrirtækinu. Ráö-
legt er líka að bjóðast til aö
taka aö sér eitthvað af verk-
efnum yfirmannsins. Hann
verður sennilega feginn aö
losna við eitthvað af þeim
störfum sem á hann hafa
hlaðizt og fá þau í hendur
manni, sem hann þarf ekki aö
óttast samkeppni viö.
íhugaðu hvort þú ættir ekki
aö skipta um starf. Menn,
sem lengi hafa starfað hjá
sömu stofnun eöa fyrirtæki og
hafa mikla starfsreynslu eru
oft eftirsóttur vinnukraftur hjá
litlum fyrirtækjum. Þá má
nefna aö margt miðaldra fólk
sezt á skólabekk. Tilgangur-
inn er oft einungis sá að fá
tímann til aö líða, en menn
geta ekki síður aflaö sér
menntunar, sem kemur þeim
aö gagni í starfi. í fyrstu
muntu líklega óttast aö þú
sért orðinn tornæmur og að
einkunnirnar veröi lélegar, en
víðtækar rannsóknir hafa leitt
í Ijós, aö námsárangur miö-
aldra námsfólks er jafngóður
og betri en fólks, sem er á
venjulegum skólaaldri.
Loks ættiröu aö leiða hug-
ann aö því aö taka þér ársleyfi
frá störfum í náinni framtíð.
„Sabbatsár" á miöjum aldri
veröa æ algengari og njóta
mikilla vinsælda. Geröu þér
grein fyrir því hvaö þig langar
til aö gera. Áreiöanlega hefur
sú hugsun oft hvarflað að þér
á liðnum árum hversu stór-
kostlegt þaö væri aö hafa
heilt ár til frjálsrar ráöstöfun-
ar. Slíkt er engan veginn
óframkvæmanlegt, en krefst
undirbúnings og íhugunar.
Kannski hefur þig dreymt um
þaö að fara í bakpokaferöalag
um Evrópu, fá þér trillu og
fara á skak, setjast á skóla-
bekk til aö afla þér einhverrar
gráöu, eöa gera eitthvaö
„sem heilvita mönnum á
þínum aldri“ kæmi varla til
hugar aö láta verða af. En
hvaö er óeðlilegt viö aö rífa
sig úr viðjum vanans og gera
uppreisn gegn þeim þrýstingi
sem umhverfi meöalmennsk-
unnar beitir einstaklinginn —
eða öllu heldur gera uppreisn
gegn þeim hömlum sem þú
hefur sett á þig sjálfur?
(Síðasta grein í þessum flokki fjallar
um það hvernig menn á miðjum
aldri geta öðlazt nýja trú í sjálfa sig
og komið auga á jákvsaðu hliðarnar í
lífinu).