Morgunblaðið - 24.04.1980, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980
Karlakóriim Stefnir:
40 ára afmælistónleikar
KARLAKÓRINN Steínir í Mos-
fellssveit er 40 ára um þessar
mundir og mun hann nú um
mánaðamótin halda árlega vor-
tónleika sína. Tónleikar verða á
þremur stöðum: i Féiagsgarði í
Kjós, Fólkvangi á Kjalarnesi og
tvennir í Hlégarði i Mosfellssveit.
Fyrstu tónleikarnir verða í Fé-
lagsgarði þriðjudaginn 29. april og
hefjast klukkan 21. Þá verða
tónleikar í Fólkvangi fimmtudag-
inn 1. maí klukkan 21, föstudaginn
2. maí klukkan 21 í Hlégarði og
sunnudaginn 4. maí klukkan 15 á
sama stað. Á þessum síðustu
tónleikum verður minnst 40 ára
afmælis kórsins, sem stofnaður
var 14. janúar 1940.
Á efnisskrá, sem er samkvæmt
fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu barst í gær, vönduð og
fjölbreytt, má nefna fjögur lög
eftir Gunnar Thoroddsen, en tvö
þeirra hafa ekki verið sungin
opinberlega fyrr. Þá er einnig
frumflutt lagið Mosfellssveit eftir
Sigurð Óskarsson. Meðal viða-
meiri verka má nefna Pílagríma-
kórinn úr Tannháuser eftir Wagn-
er og tónleikunum lýkur með
Landkjending eftir Edward Grieg.
Einsöngvarar með kórnum eru
Friðbjörn G. Jónsson og Halldór
Vilhelmsson, en þeir hafa einnig
annazt raddþjálfun kórfélaga.
Fimmtán blásarar úr skóla-
hljómsveit Mosfellssveitar leika
með kórnum í tveimur síðustu
lögunum á efnisskránni. Stjórn-
andi kórsins er Lárus Sveinsson,
en þetta er fimmta árið, sem hann
stjórnar kórnum.
Sumarfagnaður stuðn-
ingsmanna Péturs
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
stuðningsmönnum Péturs
Thorsteinssonar.
Stuðningsmenn Péturs J.
Thorsteinssonar efna til sumar-
fagnaðar í dag, sumardaginn
fyrsta, í Sigtúni kl. 3—6.
Á boðstólum verða kaffiveit-
ingar og ýmislegt verður til
skemmtunar. M.a. mun Selma
Kaldalóns leika á píanó og Árni
Johnsen spjalla við gesti og raula
nokkur lög.
Oddný og Pétur Thorsteinsson
verða meðal gesta og gefst fólki
þarna tækifæri til að ræða við
þau. Með þessu móti vilja stuðn-
ingsmenn Péturs gefa fólki kost á
að kynnast þeim hjónum. Þarna
verður einnig séð fyrir þörfum
yngstu kynslóðarinnar á barna-
daginn.
(Fréttatilkynning)
Áttræðisafmæli
Áttræð er í dag, sumardaginn
fyrsta, Þórunn Þorvaldsdóttir.
fyrrum saumakona. Hún er fædd
að Rauðsstöðum í Arnarfirði. Þór-
unn nam kjólasaum í Kaup-
mannahöfn og stundaði sauma-
skap í Reykjavík og á Siglufirði
um árabil. Hún er nú til heimilis
að Kumbarvogi við Stokkseyri.
í tilefni dagsins er Þórunn stödd
á heimili systurdóttur sinnar í
Reykjavík.
Fyrirlestur
um alþjóða-
stjórnmál
PRÓFESSOR, dr. phil. C. Karup
Pedersen flytur fyrirlestur á veg-
um féiagsvisindadeildar Háskól-
ans fösudaginn 25. apríl kl 17.15
i stofu 102 í Lögbergi.
Fjallar fyrirlesturinn um utan-
ríkisstefnu Dana — frá hlutleysi
til NATO (Dansk udenrigspolitik
— fra neutralitet til NATO?)
Dr. Karup Pedersen er prófess-
or í alþjóðastjórnmálafræði við
Kaupmannahafnarháskóla og
""Tiokunnur fræðimaður á sínu*
sviði. Hann er hér meðal gesta í
boði Háskóla íslands í tilefni af
500 ára afmæli Kaupmannahafn-
arháskóla.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Aukasýningar á
„Kirsublómum“
VEGNA mikillar aðsóknar hefur
verið ákveðið að hafa tvær aukasýn-
ingar á „Kirsublóm á Norðurfjalli",
tveimur japönskum einþáttungum.
Verða sýningarnar þriðjudaginn 29.
og miðvikudaginn 30. apríl og hefj-
ast klukkan 20.30 á Litla sviðinu í
Þjóðleikhúsinu.
Eigendur Listhússins á Akureyri, Jón G. Sólnes og Óli G. Jóhannsson.
(Ljósm. Sv. P.)
Listhúsið
starfa á
Akureyrl 23. apríl.
NÝTT fyrirtæki hefur tekið til
starfa í Verzlanamiðstöðinni
Kaupangi og heitir Listhúsið sf.
Eigendur eru Jón G. Sólnes og
Óli G. Jóhannsson og er ætlun
þeirra að efna til iistsýninga af
ýmsu tagi, annast sölu listaverka
og listmuna og gangast fyrir
listmunauppboðum. Húsnæðið er
tveir salir, um 120 fermetrar að
flatarmáli, og er allt hið vistleg-
asta.
Listhúsið sf. hóf starf sitt með
tekur til
Akureyri
sýningu feðginanna Sigrúnar
Steinþórsdóttur Eggen og Stein-
þórs Marinós Gunnarssonar. Sig-
rún sýnir 11 ofnar myndir, en
Steinþór faðir hennar 37 vatns-
litamyndir.
Sýningin verður opin til sunnu-
dagskvölds 27. apríl.
Ákveðið er, að Listhúsið sf. efni
til listmunauppboðs á Hótel KEA
laugardaginn 10. maí og verður
það fyrsta listaverkauppboðið
norðan fjalia.
- Sv. P.
Bréf refsifangans er í
athugun hjá ráðuneytinu
JÓN THORS i dómsmálaráðuneyt- kvörtun um innilokun og ilia
inu sagði aðspurður að hluti bréfs
refsifangans á Litla-Hrauni, sem
sent var ráðuneytinu í sl. viku, mcð
meðferð 1 einangrunarklefa, auk
slælegs aðbúnaðar. hefði verið af-
greiddur þ.e. hvað varðar innilok-
unina. Hún hefur verið stðfest af
ráðuneytinu.
Hvað varðar hina hluta bréfsins
sagði Jón að þeir yrðu skoðaðir á
næstunni og hefði forstjóra fangels-
isins í því sambandi verið sent bréf
þar sem farið væri fram á nánari
upplýsingar. Jón sagði að það lægi
þó alveg fyrir að gera yrði einhverja
bragarbót á salernisaðstöðunni í
einangrunarklefunum, en þar eru
nú kamrar af eldri gerðinni. Vanda-
málið í því sambandi væri að álman
væri undir sjávarmáli og því ógjörn-
ingur að koma þar fyrir vatnssal-
erni.
Stuðningsmenn Vig-
dísar i Arnessýslu
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
stuðningsmönnum Vigdísar
Finnbogadótturi Árnessýslu:
Stuðningsmem Vigdísar Finn-
bogadóttur til forsetakjörs héldu
með sér fjölmennan fund í Hvera-
gerði 16. apríl sl. Var þar kjörin
framkvæmdanefnd til að hafa
yfirumsjón með undirbúningi
kosninganna í héraðinu, en hana
skipa:
Grímur Bjarndal, skólastjóri,
Reykholti, Biskupstungum, Her-
mann Guðmundsson bóndi Blesa-
stöðum, Skeiðahreppi, Jón Ólafs-
son bóndi Eystra-Geldingaholti,
Gnúpverjahreppi, Sigurhanna
Gunnarsdóttir húsfreyja, formað-
ur Sambands sunnlenskra kvenna,
Læk Ölfushreppi, Steinunn Haf-
stað hótelstjóri, Þóristúni 1, Sel-
fossi, Valgeir Ástráðsson prestur,
Neistatúni, Eyrarbakka, Valgerð-
ur Tryggvadóttir húsfreyja, fyrrv.
skrifstofustjóri Þjóðleikhússins.
Auk þessara aðila verða starf-
andi nefndir umboðsmanna í
hverjum hreppi í Árnessýslu.
Skrifstofa stuðningsmanna
Vigdísar verður opnuð innan fárra
daga að Þóristúni 1, Selfossi.
(Fréttatilkynning.)
Skólakór Árbæj-
arskóla til Eyja
SKÓLAKÓR Árbæjarskóla heldur
tónleika f Félagsheimilinu i Vest-
mannaeyjum laugardaginn 26.
april nk. kl. 5 e.h.
I kórnum eru 42 börn. Kórinn æfir
reglulega 3 sinnum í viku. í Árbæj-
arskóla eru 2 kórar, yngri og eldri
deild. í yngri kórnum byrja börnin í
8 ára bekk og geta síðan látið prófa
sig í eldri kórinn eftir eitt ár,
yfirleitt byrja þau eldri ekki fyrr
10 ára. I skólakórnum eru nú:
yngstu börnin 9 ára en þau elstu
ára. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Á efniskránni eru 20 lög bæ
skandinavísk þjóðlög og syrpa
lögum m.a. eftir Sigfús Halldórssi
og Oddgeir Kristjánsson.
Hluti af Árbæjarskólakórnum ásamt Jóni Stefánssyni stjórnanda.
Drunurnar f rá
varnarliðsþotum?
FLUGVÉLAR frá Varnarlið-
inu voru á lofti síðdegis á
þriðjudag um það leyti, sem
Fáskrúðsfirðingar urðu varir
við miklar drunur og spreng-
ingar.
Sumarfagnaður
í Skjólbrekku
Bjork. 23. aprll.
Á MORGUN, fyrsta sumardag,
verður hin árlega samkoma
Barna- og unglingaskólans haldin
í Skjólbrekku. Að venju verðúr
margt til skemmtunar, en ágóðinn
rennur í ferðasjóð nemenda.
— Kristján
Mik Magnússon blaðafulltrúi
Varnarliðsins sagði í gær, að
flugvélarnar hefðu verið send-
ar til móts við óþekktar flug-
vélar austur af landinu. Síðar
hefði komið í ljós, að vélarnar
hefðu verið sovézkar, svókall-
aðir Birnir.
Mik sagði að vélarnar hefðu
flogið í 34 þúsund feta hæð og
farið í gegnum hljóðmúrinn í
þeirri hæð yfir hafi. Hugsan-
legt væri að hljóðið hefði náð
til lands og Fáskrúðsfirðingar
heyrt hávaða við það að vélarn-
ar rufu hljóðmúrinn.