Morgunblaðið - 24.04.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 3 1
Svipmyndir frá
Islandsþingi
NÝR skákskýrandi hefur með þessum skákþætti störf við
Morgunblaðið. Jóhannes Gísli Jónsson. Ilann er 17 ára nemandi við
Menntaskólann í Reykjavík. Jóhannes er meðal okkar efnilegustu
skákmanna og varð m.a. í 3.-4. sæti á nýafstöðnu Skákþingi
íslands, ásamt Ingvari Ásmundssyni, íslandsmeistara 1979.
Á nýafstöðnu skákþingi
íslands var að vanda mikið um
„dýrðir“. Afleikir voru ófáir, en
einnig brugðu keppendur oft
fyrir sig betri fætinum og
fléttuðu af mikilli list.
Hér á eftir fara nokkrar
glefsur úr viðureignum í lands-
liðsflokki, lesendum til gagns
og gamans.
Skák Ásgeirs Þ. Árnasonar og
Elvars Guðmundssonar í 8. um-
ferð var mjög sviptingasöm.
Hvítur vann peð snemma í
Skák
eftir JÓHANNES
GÍSLA JÓNSSON
byrjuninni og fékk mun betra
tafl. En framhaldið tefldi hann
af meira kappi en forsjá og
skyndilega stóð svartur með
pálmann í höndunum, sælu peði
yfir. En þá var komið að svört-
um að tefla veikt og hvítum
tókst með útsjónarsemi að ná
fram eftirfarandi stöðu.
Svartur átti leik og lék biðleik.
Hvítur er 2 peðum undir eins
og sjá má, en hefur mjög sterkt
gagnfæri, hótar t.d. 53. Dd8+
mát. Svartur á í raun ekki nema
um 2 leiki að velja; annað hvort
að leika hinn varfærnislega leik
52. Kg8 eða fara út í ævintýri
með 52. Dc7!?. í fyrra tilvikinu
má hvítur una hag sínum vel
eftir t.d. 53. Dxf4. í seinna
tilvikinu á hvítur óhægar um
vik. Besta framhald hvíts virðist
þá vera 53. Dh8+ — Ke7, 54.
Dg7+ — Kd6 (eini leikurinn) 55.
Df8+ (55. De5+ - Kd7!, 56. g7 -
Dcl+ 57. Kf2 - De3+, 58. Dxe3 -
fxe3+, 59. Kxe3 - e5) 55. Kc6, 56.
g7 — Kb7! og óvíst er hvort
hvítur getur unnið.
En Elvar var hvergi smeykur
og innsigldi 52. Dxd4?? og Ás-
geir var ekki seinn á sér að grípa
tækifærið: 53. Dd8+ — Kg7, 54.
De7+ - Kh6, 55. Dh4+ og
svartur gafst upp því að eftir 55.
- Kg7, 56. Dh7+ - Kf6, 57. Dh8+
fellur drottning hans óbætt.
Þessi staða kom upp í skák
Braga Halldórssonar og Elvars
Guðmundssonar í 6. umferð.
Hvítur átti leik og gat nú leikið
21. Rxg7! eftir 21. — Hxg7 (aðrir
leikir eru greinilega ófullnægj-
andi) 22. Hxd8 — Hxd8! (22. —
Hxg3, 23. Hxf8+ - Kxf8, 24.
Hxg3, er alveg vonlaust) 23. Dh4
stendur hvítur betur. í stað þess
lék hvítur 21. Hxd7? — Dxd7,
22. RÍ6+?? (betra var að sjálf-
sögðu 22. Hdl) 22. - Hxf6 23.
ex£6 — Dd2+ og hvítur gafst upp
enda mát í næsta leik. I 23. leik
var vissulega betra að leika Hdl
þó að eftir 23. — Db5 hafi
svartur unnið tafl.
í síðustu umferð var það helst
skák Helga Ólafssonar og Björns
Þorsteinssonar sem gladdi
hjörtu áhorfenda. Eftir 42 leikja
harða baráttu kom upp eftirfar-
andi staða og átti svartur leik.
Hvítur stendur greinilega bet-
ur, en skákin hefði eflaust verið
lengri ef svarti hefði ekki orðið
nú illilega á í messunnL Hann
lék hinn eðlilega leik 42. Rxb4??
en eftir hinn ægisterka og jafn-
framt bráðdrepandi leik 43.
De4!! varð hann að sætta sig við
tapað endatafl eftir 43. — Bxe4,
44. Fxe4 — Dxe4, 45. a8D —
Dxa8, 46. Hxa8. Hvítur átti ekki
í neinum erfiðleikum • með að
nýta liðsyfirburði sína og vann í
61. leik.
Að lokum er hér staða úr 7.
umferð en þar áttust við Haukur
Angantýsson og Jóhann Hjart-
arson.
Svartur lék nú 17. — Hc7?
Betra var einfaldlega 17. — Bf8
með u.þ.b. jöfnu tafli. 18. Rd6 —
Hxcl, 19. Hxcl - Bf8, 20. Rxb7
- Hb8, 21. Rc5 - Hb2+, 22. Kdl
- Rf6, 23. Hc2 - Hbl+, 24. Ke2.
Hvítur er nú sælu peði yfir og
svartur reynir að bæta sér það
upp með þeim afleiðingum að
hvíta C-peðið verður óstöðvandi.
24. — Bxc5?!, 25. Dxc5 — Rxe4,
26. Bd4! Valdar mikilvæga reiti
og undirbýr með því framrás
c-peðsins. Svartur á nú vægast
sagt örðugt um vik, 26. f5, 27. f3
- Rg5, 28. Be5 - Rf7, 29. c6!
Hér gafst svartur upp enda
verður frípeðið ekki stöðvað.
Þess sakar ekki að geta að
þetta var fyrsta og eina tapskák
Jóhanns í mótinu. Á hinn bóginn
var þetta fyrsta vinningsskák
Hauks í mótinu!
Brimkló — mun leika á fimmtudögum í Þórscafé í sumar og þá
verður reynt að ná upp „gömlu fimmtudagsstemmningunni“.
Brimkló í Þórscafé á
fimmtudögum í sumar
„VIÐ viljum ganga úr skugga
um, hvort lifandi tónlist getur
átt sér uppdráttar í danshús-
um Reykjavíkur á tímum þeg-
ar diskómúsík tröllríður
danshúsum. Markmið okkar
er að vekja upp gömlu
fimmtudagsstemmninguna
sem blómstraði fyrir nokkr-
um árum,“ sagði Magnús
Kjartansson, einn af forvígis-
mönnum hljómsveitarinnar
Brimklóar, sem mun spila á
fimmtudögum í sumar í
Þórscafé og byrjar nú á
sumardaginn fyrsta.
„Við höfum leitað víða til að
finna hentugan stað til að
koma fram og fundum hann í
Þórscafé. Þar er hljómburður-
inn beztur svo og aðstaða öll.
Yfirleitt er búið að breyta
danshúsum hér í Reykjavík
þannig, að diskómúsikin með
glymskröttum ræður ríkjum,“
sagði Magnús ennfremur. Ald-
urstakmark í Þórscafé verður
við 18 ára aldur en sem
kunnugt er hefur Þórscafé
verið mjög strangt á að hleypa
ekki fólki inn í húsið, sem er
innan við 20 ára aldur. Þeir
félagar í Brimkló sögðu, að
þeir myndu hefja upp hljóð-
færi á slaginu níu og yrði
kappkostað að reyna að ná upp
stemmningu meðal fólks, þeg-
ar frá upphafi.
Seltjarnarnes:
Fjölmennasti borgarafund-
ur sem haldinn hefur verið
F.U.S. Baldur og Sjálfstæðis-
félag Seltirninga héldu opinn
fund um bæjarmálin á Sel-
tjarnarnesi mánudaginn 14.
þ.m. Fundinn sóttu um 130
manns og er þetta því senni-
lega einn sá fjölmennasti
fundur, sem haldinn hefur
verið þar um árabil.
Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri flutti framsögu og bæj-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins sátu fyrir svörum. Mikið
var rætt um opnun áfengisút-
sölu í bænum en miðbæjar-
kjarninn og væntanleg sund-
laug voru einnig til umræðu.
F.U.S. Baldur gengst fyrir
fundi n.k. mánudagskvöld í
samráði við Samband ungra
sjálfstæðismanna undir heit-
inu „Hvað nú?“
Fundurinn á Seltjarnarnesi var sá f jölmennasti sem haldinn hefur verið og hvert sæti skipað, eins og
sjá má á myndinni. Lifam. Mbi. Emiiia.