Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.04.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1980 41 félk í fréttum + Lengi hefur það verið talinn einn helzti árlegi viðburðurinn í kvikmyndaheiminum er sú verðlauna- veiting fer fram vestur í Bandaríkjunum, að veitt eru Oscarsverðlaunin þeim einstaklingum, sem þykja hafa skarað fram úr á sviði kvikmyndaframleiðsl- unnar. — Ber þá hæst þau Oscars-verðlaun, sem veitt eru kvikmyndaleikurum fyrir beztan leik í hinum ýmsu hlutverkum, — aðalhlutverkum og einnig aukahlut- verkum. Hér stendur bezti leikarinn í karlhlut- verki, Dustin Hoffman, brósandi út að eyrum með Oscars-gullstyttuna. — Hann leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni „Kramer vs. Kramer". Efniviðurinn er sóttur í hjónaskilnaðarmál, en hjónin deila um umráðaréttinn yfir ungum syni. Fimm aðrir ein- staklingar sem komu við sögu við gerð þessarar framúrskarandi kvikmyndar hlutu Oscars-verð- launa-styttur. — Kvikmyndaleikkonan Sally Field hlaut Oscarsverðlaunin fyrir beztan leik í aðalhlut- verki konu. — Hún leikur Normu Rae í samnefndri kvikmynd. — Myndin segir frá verkalýðsbaráttu hennar í spunaverkmsiðju einni í Suðurríkjunum. Og er hin mikla Oscars-hátíð stóð sem hæst og hver kampavínsflaskan var tæmd á eftir annarri, barst blaðamönnum sem voru á hátíðinni fréttin um það að blöðin Boston Globe og Courier-Journal hefðu hlotið Pulitzer verðlaunin fyrir árið 1980. + Borgin New Orleans í Bandaríkj- unum, hefir nýlega heiðrað minn- inguna um frægasta son sinn, jazz- kónginn Louis (Satchmo) Arm- strong. — I aðalskemmtigarði borgarinnar hefur verið reist 12 feta há stytta af snillingnum mikla með lúðurinn sinn í vinstri hendi — þriggja feta langan, en í hægri hendinni með krumpaðan klútinn til að þurrka svitann af enninu! — Einmitt þannig muna hann flestir þar í bænum. Það var ekkja Armstrongs, Lucille, sem afhjúpaði myndastyttuna. — Þá voru hundruð bæjarbúa viðstaddir athöfnina. Meðal viðstaddra höfðu verið gaml- ir jazzmenn svo sem Count Basie, Lionel Hamton, A1 Hirt, Dave Bru- beck og fleiri, og nánir vinir Armstronghjónanna. Lucille sagði daginn eftirminnilegan fyrir sig — já allt að því eins eftirminnilegan og hamingjusamasta dag lífs míns, er ég giftist Satchmo. — í Orleans verður einnig komið upp jazzminja- safni. Lionel Hamton sagði að lok- inni athöfninni að allt hljómleika- hald í skemmtigarðinum væri vissulega hin lifandi minning um Armstrong. Myndin er tekin er Lucille, (til hægri), við fótstall styttunnar, hafði afhjúpað styttuna. Þess má geta að 5 ár eru liðin frá því hugmyndin um styttu af Satchmo kom fyrst fram í Orleans. Ein perluröð fyr- ir hver tíu ár + Leikandi á als oddi á morgni 40 ára afmælis síns, veifar Margrét Danadrottning út um gluggann á Amalíenborgarhöll til mikils mannfjölda, sem hafði safnast saman á hallartorginu, löngu áður en fyrstu gestirnir komu til hallarinnar um morguninn til að óska þjóðhöfðingjanum fertuga til hamingju. Þegar flest var á torginu höfðu verið þar samtímis um 30.000 manns, sögðu dönsk blöð. Hin fagra perlufesti, sem drottningin ber um hálsinn, var fyrsta afmælisgjöfin sem hún fékk, — frá Henrik bónda sínum. Perlufestin er fjórföld, ein perluröð fyrir hver tíu ár. Frá Nemendasambandi M.A. Arlegur vorfagnaður NEMA verður haldinn á Hótel Sögu 14. maí nk. og hefst með boröhaldi kl. 19.30. Gestur og ræöumaður kvöldsins Gísli Jónsson, kennari. Allir fyrrverandi nemendur M.A. eru hvattir til að mæta og fagna 100 ára afmæli skólans. Sala aögöngumiða hefst 12. maí. Sfyórn NEMA Félag íslenzkra símamanna, Thorvaldsensstræti 4 Sumarbústaðir Umsóknir um dvöl í sumarbústööum F.Í.S. sumarið 1980 þurfa aö hafa borist skrifstofu félagsins Thorvaldsensstræti 4 Reykjavík fyrir 5. maí n.k. Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu F.Í.S. Orlofsheimilanefndin LITAVER — LITAVER LITAVER — LITAVER — málningarvörur Afslattur Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram 30—50 þús. 50 þús. veitum við 10% veitum við 15% afslátt. afslátt. aö byggja, breyta eöa bæta. , sem eru Lfttu viö í Litaveri, því það hefur ávallt borgaö etg- LITAVER - LITAVER — LITAVER — LITAVER — ÞAO ER PHILIPS AS570 ÚTVARPSKLUKKAN Dagurlnn ræðst ott af því hvernig þú vaknar á morgnana. Morgunhan- inn frá Philips vekur þig með lágværri hringingu, léttri músik og morgun- spjalli. Síöan annarri hringlngu ef þú skyldir hafa sofnaö aftur. A kvöldin getur þú sofnaö út frá tónlist, útvarpsklukkan slekkur sjálf- virkt á sér á þeim tíma, sem stillt hefur veriö á. Tíminn er sýndur með stórum skýrum Ijósastöfum. 3 bylgjur LM, MW, FM. Verð kr. 40.990,- heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Morgunhaninn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.