Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 9
57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAI1980
Gæti meiriháttar jardskjálfti í einhverri mis-
gengissprungnanna... valdið kjarnorkuslysi?
(SJÁ: Sjálfskaparvíti)
LÆKNISRAÐ
Er ger
þá allur
galdurinn?
ísraelskir vísindamenn
hafa fundiö út, aö sár gróa
miklu fyrr ef á þau er boriö
efni, sem unniö er úr geri.
Ekki er mönnum enn Ijóst
hvers vegna þetta efni, sem
er sykursamband og kallast
glucan, hefur þessi merki-
legu áhrif. Þaö er í sjálfu sér
ekki mótefni og ekki sótt-
hreinsandi og önnur skyld
sykursambönd hafa ýmist
engin áhrif eöa gera illt
verra. Glucan eitt hefur
þessi „furöulegu" áhrif, eins
og einn vísindamannanna
komst aö orði, á tilrauna-
dýrin, mýs og rottur.
Eins og fyrr segir gróa
sárin fyrr, á fimm dögum í
staö sjö, og miklu betur aö
auki. Glucan hefur enn ekki
verið reynt á mönnum en
þaö gæti komið aö góöum
notum þegar fólk hefur
slasast eöa til aö flýta fyrir
bata eftir miklar skuröaö-
geröir.
Vísindamennirnir, sem
uppgötvuðu áhrif glucans-
ins, heita David Danon og
Joseph Leibovich og starfa
viö Weizmann-stofnunina í
ísrael, þar sem þeir hafa
veriö aö rannsaka hvernig
líkamsstarfseminni hrakar
meö aldrinum. Þegar húöin
skerst eöa skemmist á ann-
an hátt berast sérhæföar
frumur meö blóöinu til sárs-
ins og þar er þaö hlutverk
þeirra aö fjarlægja dauöar
frumur og aö gefa frá sér
efni eöa hvata, sem örvar
nýja vefmyndun.
Leibovich haföi sýnt fram
á, aö í gömlum músum væri
þessi starfsemi miklu sein-
virkari og sár greru seinna
— nokkuö sem einnig á sér
staö í mönnum. Hugsanleg
skýring á þessu er sú, aö í
gömlum músum — gömlu
fólki — taki það þessar
sérhæföu frumur lengri
tíma aö komast á „slys-
staö".
Til aö láta á þessa skýr-
ingu reyna ákváöu Danon
og Leibovich aö reyna aö
örva eöa ýta undir starf-
semi frumnanna. Um 80 ára
skeið höföu menn vitaö, aö
ef geri væri sprautað inn
undir hörundiö söfnuðust
frumurnar saman mjög
fljótt og nú vildu þeir vita
hver áhrifin yröu af glucan-
inu.
Danon vonast til aö geta
gert tilraunir meö glucan á
mönnum og þá trúlega á
sjúklingum sem gengist
hafa undir skuröaögerö. „Ef
viö getum stytt þann tíma,
sem fólk er rúmfast eftir
aðgerö, um tvo daga, munu
gífurlegar fjárhæöir sparast
árlega," segir hann.
— NIGEL HAWKES
TRYLLITÆKI
Ekki gefið aö
eiga gæðinga
af því taginu
í Beverly Hills í Kaliforníu
eru glæsikerrurnar á hverju
strái, bílar á borö viö Ferrari,
Lamborghini og Bentley eru
þar jafn algeng sjón og
pálmatrén meöfram stræt-
unum. Þegar auöugan end-
urskoöanda þar í borg lang-
aöi aö breyta til og vera nú
dálítiö öðruvísi en aörir þá
ákvaö hann aö slá sér á einn
Evolution I — bíl sem er
sérstaklega hannaöur af
tískufrömuöinum Jean Gar-
din og kostar litlar 25 millj-
ónir.
Endurskoöandinn er í hópi
þeirra fáu, en fjáöu, sem
halda á floti lúxusbílafram-
leiöslunni á þeim tímum þeg-
ar bílasala í Bandaríkjunum
hefur hrapaö niöur úr öllu
valdi.
„Okkur vegnar betur en á
síöasta ári hvaö hlutdeild í
markaönum snertir. Kaup-
endunum hefur aö vísu
fækkaö nokkuð en hlutur
lúxusbílanna í sölunni hefur
vaxiö," segir talsmaður
Cadillac í Detroit. Sömu
sögu hafa aörir bílaframleiö-
endur að segja. Lúxusbíla-
salan hefur minnkaö aöeins
en hlutur hennar í heildarsöl-
unni hefur aukist, trúlega
vegna þess, aö þá, sem
áhuga hafa á lúxuskerrunum,
skipta peningar oftast litlu
máli. Sumir borga jafnvel allt
bílveröiö á boröið, sem getur
veriö 67 milljónir fyrir einn
Rolls Royce!
Því haföi veriö spáö aö
bílasala í Bandaríkjunum yrði
um 10,8 milljónir bíla fyrir 14.
mars sl. en í apríl var hún
ekki komin nema í 8,3 millj-
ónir, og er aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar í vaxtamálum
einkum kennt um. Hins veg-
ar er talið aö 1000 Rolls
Royce-bílar muni seljast á
þessu ári, sem er aðeins 100
færri en á síöasta ári. Ódýr-
asti Rollsinn, ef svo má aö
oröi komast, er Silver Shad-
ow II, sem kostar sem svarar
37 milljónum króna í Banda-
ríkjunum en sá dýrasti kostar
148.400 dollara.
— DOLORES BARCLAY
HARÐSTJORNl
Ofsóknirnar
magnast
Eftir aö heimsathygli
beindist aö ofríki og kúgun
stjórnar Pinochet í Chile áriö
1978, virtist ástandiö þar
skána nokkuö, en undan-"
farnar vikur hefur brugöiö
svo viö aö haröstjórn þar
hefur magnazt og er nú oröin
meiri en veriö hefur um
áraraðir.
Fyrir skömmu ásakaöi
mannréttindanefndin í Chile
stjórnvöld opinberlega fyrir
valdníöslu, þar á meöal
pyndingar og nauöungar-
flutninga á fólki.
Verkalýössamtök líta hina
nýju vinnulöggjöf ríkisstjórn-
arinnar mjög óhýru auga og
mótmæla kröftuglega end-
urteknum árásum ríkisstjórn-
arinnar á verkalýöshreyfingu
landsins, sem eitt sinn var
mjög öflug.
Fyrsta maí hófst „verka-
lýösvika“ í Chile meö því aö
myrtur var lögreglumaöur,
sem stóö vörö viö hinn eilífa
frelsiseld herforingjastjórnar-
innar skammt frá aöalbæki-
stöövum stjórnarinnar. Fyrir
bragöið voru 5 hundruö
manns handteknir og margir
ákæröir fyrir aöild aö ólög-
legum samtökum, t.d.
Kommúnistaflokknum.
„Þaö eru 10 sinnum fleiri
lögreglumenn úti á götunum
núna en á síöasta ári,“ —
segir maöur á Paseo Ahum-
ada, helzta verzlunarhverfinu
í miðborg Santiago.
1. maí var borgin yfirfull af
öryggisvöröum ýmist ein-
kennisklæddum eða í borg-
aralegum búningum, og her-
menn létu hendur standa
fram úr ermum. Ýmsum
óleyfilegum samkomum var
hleypt upp.
Nokkrum dögum síðar
náöi hópur manna ásamt
börnum á sitt vald kirkju í
San Miguel og heimtaöi aö
þeir sem handteknir voru 1.
maí, yröu látnir lausir. Enn-
fremur kraföist fólkiö þess,
aö leynilögreglan yröi leyst
upp.
Vinnulöggjöf Pinochet tók
gildi 1. júlí sl. Samkvæmt
henni má gera verkföll og
tvíhliöa kjarasamninga aö
nýju en þó meö takmörkun-
um, sem margir verkalýös-
leiðtogar eiga erfitt meö aö
sætta sig viö.
— JOHN ENDERS.
Pyndingar og nauöungarfiutn
ingar — og svo sitthvaö fleira.
FISKARNIR
Hin
hljóðu
kvalaóp
Fiskar finna til sársauka á
sama hátt og önnur hryggdýr,
þó aö þeir hafi ekki hátt um
þaö, segir í skýrslu um rann-
sóknir, sem Konunglega
breska dýraverndunarfélagiö
gekkst fyrir.
Rannsóknanefndina skip-
uöu fjórir menn: Fulltrúi frá
skotveiðimönnum og annar frá
stangveiðimönnum, fulltrúi
dýraverndunarmanna og dýra-
fræöingurinn Cranbrook lá-
varöur, sem var forseti nefnd-
arinnar. Nefndarmenn uröu
ásáttir um, aö „grimmileg
meöferð" á skepnum væri það
þegar þær yröu fyrir „ónauö-
synlegum þjáningum“ af
mannavöldum. Þaö var þó ekki
talið til grimmdar aö drepa villt
dýr ef þau dræpust samstund-
is eöa svo gott sem og í þeim
efnum komu skotveiðimenn
mjög vel út úr könnuninni.
Þaö, sem kom mest á óvart
í niöurstööum nefndarinnar,
var dómurinn sem felldur var
yfir stangveiðimönnum. Þeir
hafa löngum sloppið viö alla
gagnrýni enda ekki skemmti-
legt, eöa pólitískt skynsamlegt,
aö ráöast á þetta tómstunda-
gaman almúgamannsins en í
Bretlandi eru þeir taldir vera
um 3,6 milljónir talsins. Nefnd-
armenn komust sem sagt aö
þeirri niðurstöðu, að munnur
og varir fiskanna væru mjög
tilfinninganæm líffæri þar sem
margir taugaendar kæmu
saman.
Rannsóknanefndin taldi það
forkastanlegt aö nota lifandi
fisk sem beitu og fordæmdi þá
eftirlætisiöju stangveiöimann-
anna aö „þreyta“ fiskinn þar til
hann örmagnaðist og gæti
enga björg sér veitt. Til aö
koma í veg fyrir þaö töldu
nefndarmenn þest aö línan
væri sterkari svo engin hætta
væri á aö fiskurinn sliti sig af.
Nefndin haföi litlar mætur á
netgiröingum sem notaðar eru
til aö geyma fisk sem hefur
veriö dreginn á færi en fyrir-
hugaö er að sleppa aftur, og
leggur aö síöustu til aö fram-
vegis veröi önglarnir hafðir
agnhaldslausir.