Morgunblaðið - 02.07.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
11
Þarf aö vera
fertugur til aö kom
ast í félagiö
Dálítiö kalt, en lagast þegar
komiö er í rúmiö á kvöldin
Blm. tók tali eina af norsku konunum, sem voru gestir á íþróttahátíö Í.S.Í. Hún
kvaöst heita Ásfrid Johansen. Hún hefur æft leikfimi í 30 ár, en til aö byrja í þessum
flokki sem kom hér til landsins veröur maöur að vera fertugur. Þær hafa áöur komið fram
erlendis þ.á m. í Vestur-Þýskalandi, Danmörku, Spáni og í Austurríki. Ásfrid fannst
landiö frábært, svolítið kalt, en þaö lagaöist þegar komiö var í hlý rúmin á kvöldin.
Hún sagöi aö þær væru allar glaöar yfir að hafa fengið aö koma og þeim fannst þetta
öllum sérstök upplifun, sagöi hún aö lokum.
Ljósm. Kristján
í ÍÞRÓTTAHÚSI K.H.Í. var á
laugardaginn háöur landsleikur í
borðtennis, ísland — Finnland.
Þrír finnskir keppendur voru
mættir til leiks ásamt þjálfur-
um. Einn finnsku keppendanna
var Matti Kurvinen, 18 ára, frá
Helsingfors. Matti sagöist hafa
leikiö borötennis í átta ár. Hann
hefur ekki komiö til íslands áöur
en sagöist gjarnan vilja koma
hingaö aftur og sjá meira af
landinu. Þeim Finnunum gafst
þó tími til aö skreppa út fyrir
borgarmörkin meöan á dvöl þeirra
hér stóö. Matti sagöist hafa fariö
aö Gullfossi og Geysi og var
sérstaklega hrifinn af Geysi.
Æfa golf þrjá til
fjóra tíma á dag
Skúli Skúlason, Karl Ómar Karlsson og Kristján Hjálmarsson voru á
18. braut aö spila golf í Golfskála Reykjavi'kur, Grafarholti. Blaöam.
spuröi þá af hverju þeir spiluöu golf í staö þess aö vera í fótbolta eöa
handbolta eins og margir jafnaldrar þeirra, og þeir svöruöu aö
annaöhvort bræöur eöa pabbar væru í golfi og þess vegna heföu þeir
byrjaö. Þeir æfa þrjá til fjóra tíma á dag og eru alveg ákveönir aö halda
áfram. í fyrra fóru Skúli og Kristján til Alaborgar til aö spila golf, en Karl
ætlar til Danmerkur í sumar, og þá aöallega til aö æfa sig í golfi.
Ljúsm. RAX.
ÞEIR voru hressir strákarnir í
siglingaklúbbnum Kópanesi, en
þeir voru aö leggja í keppni á
laugardagskvöldiö er blm. bar
aö. Þeir kváöust allir vera
búnir aö vera meö siglingadell-
una árum saman, sumir síöan þeir
myndu fyrst eftir sér. Þeir sögð-
ust helst fara út á hverjum
degi og væri þaö rokiö og
hraðinn sem heillaöi mest. Blaöa-
maöur varö margs vísari um
siglingalag, „pulsu“, „þríhyrn-
ing“ og „beitu", en þaö eru
krókaleiöir sem siglt er eftir í
siglingakeppnum, þá stuttu
stund sem hann staldraöi viö í
Fossvoginum. Strákarnir voru
líka sjóaöir í blaöaviötölum, og
haföi þeim tekist aö fá síöasta
blaðamann sem viö þá talaöi
meö sér á sjó. Haföi sá ekki
reynst sjóhraustur og vildu þeir
endilega gefa blm. Mbl. tækifæri
til aö bjarga heiöri stéttarinn-
ar. Þaö varö nú aö btöa betri
tíma og blm. horföi löngunaraug-
um á eftir hvítum duggunum
svífa út Fossvoginn.
Hafa æft tvisv-
ar í viku í vetur
STEINGRÍMUR Friöfinnsson og
Ólafur Guömundsson keppa fyrir
hönd þroskaheftra á hátíö ÍSÍ. Þeir
voru í þann veginn aö fara aö
keppa þegar okkur bar að
garöi, en viö náöum þó að spyrja
þá hvort þetta væri í fyrsta sinn
sem þeir kepptu, og hvort þeir
æfðu oft í viku. Þeir hafa æft
tvisvar í viku í vetur, en annar
þeirra hefur keppt áöur. Þeim
fannst gaman aö fá aö keppa og
langskemmtilegast þótti Ólafi
aö hlaupa, en Friöfinni fannst
þetta allt jafn skemmtilegt.
Á LAUGARDAGSMORGUNINN hittum viö á Laugardalsvellinum þá
Bjarna Karlsson og Ástvald Jónsson. Þeir voru aö keppa í
„fluguköstum" og sögöu aö listin væri aö kasta sem lengst. Félagiö þeirra
var stofnaö 1952. Síöan hefur starfsemin sífellt eflst. Nú eru í félaginu
50—60 manns, en engin kona. Æfingar eru innanhúss á veturna en
færast út á vorin, og þeir æfa tvisvar til þrisvar í viku á sumrin, en á
sunnudögum á veturna. Ástvaldur sagöist að lokum ætla í Noröurá eftir
helgina beint í laxinn.