Morgunblaðið - 02.07.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
til að eignast farþegaskip í blað-
inu í gær. Ég vil taka undir þetta
með honum — flugið er að verða
alltof dýrt og ég trúi ekki öðru en
að ferðast mætti mun ódýrar með
skipi. Það er furðulegt að við
íslendingar, sem erum siglinga-
þjóð frá fornu fari, höfum ekki átt
farþegaskip í förum milli landa
um langt skeið. Fólk hefur bein-
línis verið neytt til þess að fljúga
— en þeir eru margir sem líta á
það sem óskemmtilega reynslu.
Sjálfur er ég ekki flughræddur en
vildi þó miklu heldur fara með
skipi.
Ég fór nokkrar ferðir til
útlanda með Gullfossi á sínum
tíma og hefði ekki viljað missa af
þeim — gaman væri nú að kasta
ellibelgnum og bregða sér í utan-
landsferð með nýju íslensku far-
þegaskipi."
Eldri borgari.
Eldri maður í Hafnarfirði sendi
þessa vísu:
Ef ungur væri og frár á fæti,
feimulaus með reisn og glans,
óskað myndi að orðið gæti
eiginmaður forsetans. J.H.
Að gefnu tiiefni vill Velvakandi
taka fram að vísur þær sem
birtust í þættinum 28. júní eru
ekki eftir Björgu Bjarnadóttur,
Látraströnd 2, Seltjarnarnesi.
• Virðaekki
umferðarlög
Ökumaður hringdi og vill
gera athugasemd við bréf sem
birtist í Velvakanda í gær. Kvað
hann fráleitt að ökumenn kynnu
ekki umferðarlögin velflestir —
hitt væri sannara að þeir virtu
þau ekki eða þættust ekki þurfa að
fara eftir þeim. í framhaldi af
þessu sagði hann: „Hversu oft sér
maður ekki kappakstur hér á
götum borgarinnar? Um hverja
einustu helgi eru nokkrir öku-
menn teknir kófdrukknir undir
stýri. Þetta fólk veit vel að það er
að brjóta lög en gerir það samt.
Sjálfsagt væri að svipta þá sem
staðnir eru að slíkum lögbrotum
ökuleyfi, — þeir myndu þá ekki
gerast brotlegir við umferðarlögin
aftur og það yrði öðrum til
viðvörunar."
• Tillitsleysi
við gangbrautir
Vesturbæingur hringdi og
kvartaði undan því að ökumenn
sýndu vegfarendum mikið tillits-
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á hollenska meistaramótinu í
ár kom þessi staða upp í skák
þeirra Carlier, sem hafði hvítt og
átti leik, og Jan Timman.
Carlier, sem er lítt þekktur
meistari, missti nú af framhald-
inu 28. Bd5+!, sem hefði tryggt
honum unnið endatafl eftir 28. ...
Ke5, 29. Dg7+ - Df6, 30. Dxf6+,
því svartur getur hvorki leikið 28.
... Kxd5 29. Hb5+ né 28. ... Dxd5
29. Dxgfr+. Carlier lék 28. h3? og
varð að gefast upp eftir 28.... e2!
29. Dd2 - De5, 30. Kf2 - h4! 31.
gxh4 — Dffr+.
Timman varð skákmeistari
Hollands, hlaut 9 vinninga af 13
mögulegum, en vesalings Carlier
varð langneðstur með aðeins lVfe
vinning.
leysi við gangbrautir hér í borg-
inni. „Það er hrein undantekning
að bíll nemi staðar við gangbraut
þó ökumaðurinn sjái mann standa
á vegbrúninni — flestir gefa í og
hugsa sjálfsagt sem svo að maður
hafi ekki annað að gera en bíða.
Mér skilst að samkvæmt lögum
eigi ökumenn tafarlaust að nema
staðar við gangbrautir ef þeir sjá
að fólk er að leggja af stað yfir.
Hvers vegna eru þessi lög svo
sjaldan virt? Hvernig á gangandi
maður að ná rétti sínum í þessu
tilfelli? Hefur nokkurn tíma kom-
ið til þess að ökumaður væri
sektaður fyrir að svína yfir á
gangbraut? Ég legg til að þessi
mál verði tekin til athugunar."
Vegfarandi.
HÖGNI HREKKVÍSI
s\GeA v/ogá í \nvtwu
Heimavist Reykholtsskóla í Borgarfirði þar sem Edduhótcl er nú
rekið.
Edduhótel tekið til
starfa í Reykholti
MÁNUDAGINN 16. júní tók Eddu-
hótelið i Reykholti í Borgarfirði til
starfa. Verður það rekið áfram
sleitulaust af 11 manna starfsliði
mestan hluta ágústmánaðar. Sjá
þessi ellefu um, að gestum og
gangandi liði sem allra best i
hvívetna.
Unnt er að fá 2ja manna herbergi
með uppábúnu rúmi og mundlaug
fyrir kr. 15.500 og eins manns
herbergi á 9.500 kr. Gjörlegt er að
setja dýnu í herbergið án sérstaks
endurgjalds. Svefnpokapláss eru í
herbergjunum, þar sem eru 2 rúm,
og geta menn fengið aukadýnur inn
til sín allt eftir þörfum. Fyrir þetta
greiða menn aðeins 8.000 kr. Þannig
að ef 4 sofa í svefnpokaplássi, þá
kostar nóttin 2 þúsund krónur fyrir
hvern. Og ekki ætti það að setja
neinn á hausinn.
Morgunmatur er á 2.200 krónur.
Þar er hlaðborð, og ættu menn að
geta fyllt á sér kviðinn, þannig að
dugi fram á daginn. Hádegismatur
er tvíréttaður og kaffi á eftir fyrir
3.800 kr. að meðaltali. Um kvöldið
geta menn líka valið úr tveimur
réttum. Fylgir þar með eftirréttur
og kaffi. Er meðalverðið 5.800 kr.
Biblíur tii sölu
Hótelstjórar eru Rúnar Vil-
hjálmsson og Sigurður Jónsson.
Þegar komið var inn í móttökuna,
blasti við að vanda kortastandur af
sögufrægum stöðum og fallegum
landslagsmyndum. Fyrir utan þessi
póstkort voru veifur og litskyggnur
af fósturjörðinni. En á áberandi
stað voru í hillu Biblíur til sölu. Það
er nú ekki venjulegt að sjá Ritning-
una til sölu nema þá einna helzt í
hefðbundnum bókaverzlunum. Því
voru þeir spurðir, hverju þetta
sætti.
Sigurður varð fyrir svörum og
sagði, að það hefði tíðkazt að hafa
Biblíur í hótelum, sem væru rekin
allan ársins hring. En ekki á
Edduhótelunum. Og hefði hann
fært það í tal við Rúnar að bjóða
upp á Guðsorð í hverju herbergi. En
síðan varð það úr eftir nokkrar
vangaveltur, að við myndum bjóða
þær til sölu og jafnframt láta þær
liggja frammi í setustofu.
Um ástæðuna fyrir því að hafa
Guðsorð til sölu frekar en rauðu
bækurnar og Rapport, eða önnur
þau rit, er tilheyra sorpritum,
sögðu þeir, að þeir vildu með þessu
l.jásm. Carstrn Kristinsson.
Sigurður Jónsson (t.v.) og Einar Vilhjálmsson við Bibliuhilluna.
Hótelstjórar eru Rúnar Vilhjálmsson og Sigurður Jónsson.
Þetta er meðalverð fyrir hádegis-
og kvöldmat, en getur munað í verði
eftir tegundum. Þá er veittur hóp-
afsláttur.
Ágætis aðstaða er í Reykholti,
t.a.m. sundlaug og gufubað, ásamt
góðri útivistaraðstöðu til að fara í
boltaleiki og fleira í þá veru.
Kirkjan er öllum opin, þeim sem
hana vilja skoða. Stutt er í hesta-
leigu í grenndinni. Ekki er langt í
Húsafell með viðkomu hjá Hraun-
fossum og Barnafossi. Deildar-
tunguhver fer nú að syngja sitt
síðasta vegna hitaveitufram-
kvæmda, þannig að nú fer hver að
verða síðastur til að sjá hann í
upprunalegu ástandi.
vega upp á móti flaumi þeirra yfir
landslýð, og ekki síður sem viðleitni
til ræktarsemi kristni á íslandi.
Bæði Rúnar og Sigurður voru
starfandi í Kristilegu stúdentafé-
lagi í vetur. Töldu þeir, að það hefði
ekki virkað letjandi á sig. Og með
þessu vildu þeir vera salt í um-
hverfi sínu, og koma þannig fagnað-
arerindinu sem víðast á framfæri.
— Þetta er eina Edduhótelið, þar
sem Biblían er til sölu, sögðu
Sigurður og Rúnar. — Þykir okkur
ekki lakara að vera orðaðir við það.
Auk þess sem við hvetjum sem
flesta til að ljúka upp augum
ferðamanna fyrir þörf þeirra sem
annarra á fagnaðarerindinu.
Fréttaritari