Morgunblaðið - 02.07.1980, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
I
• í tilefni sumariþróttahátíAar fSÍ fór fram landshlutakeppni í knattspyrnu. Nánar veróur skýrt frá
úrslitum hennar í hlaóinu á morjíun. Ilér er hins ve>?ar mynd af si(?urve}?urunum í 3. flokki. liði
Reykjavíkur, sem lagði alla keppinauta sína með glæsibrag.
Ljósm.
Blikarnir unnu
Leikið í bikarnum
MARGIR leikir verða á dagskrá i Vcstmannaeyjum, FH og ÍA á
bikarkeppni KSÍ í kvöld. Ber þar Kaplakrikavelli, Gróttu og Kefla-
hæst leik Vals og Fram á Laugar- vikur, og Víkings og Þróttar frá
dalsvellinum og hefst sú viður- Neskaupstað. Leikirnir hefjast
eign klukkan 20.00. Aðrir leikir klukkan 20.00 nema leikur FH og
eru viðureignir ÍBV og KR í íA, hann hefst klukkan 19.30.
Pétur Guðmundsson
gerir samning
við River Plate
PÉTUR Guðmundsson körfuknattleiksmaður, sem nú dvelur í
Argentínu, hefur undirritað atvinnumannasamning í körfu-
knattleik við liðið River Plate. Pétur mun leika með liðinu til
loka keppnistimabilsins, sem er í desembermánuði. Er þá ekki
loku fyrir það skotið, að hann komi heim til íslands og lciki með
Val. Myndi það styrkja lið Vals mikið að fá Pétur til liðs við sig.
Þó alvcg sérstaklega, ef liðinu tekst að komast eitthvað áfram í
Evrópukeppninni næsta keppnistimabil.
Pétur mun vera fyrsti íslenski körfuknattleiksmaðurinn, sem
undirritar atvinnumannasamning. Það mun hafa verið bandar-
íski blökkumaðurinn, Stew Johnson. sem lék hér á landi með
Ármanni, sem kom Pétri á framfæri í Argentinu, en hann
leikur einnig með River Plate-liðinu. — þr
Þjálfar Jóhann
ekki áfram?
UBK TRYGGÐI sér sæti í 8-liða
úrslitum bikarkeppni KSÍ á
ævintýralegan hátt á Laugardals-
vellinum i gærkvöldi. Liðið sigr-
aði þá Þrótt 2—1 í sóðalegum og
grófum leik. Oft var harkan slik,
að liðin þurftu varla að hafa
knött inni á vellinum. þar sem
leikmenn beggja liða beindu at-
hygli sinni að þvi einu að sparka
VÍKINGAR fóru nokkuð létti-
lega i 8-liða úrslit bikarkeppni
KSÍ i gærkvöldi. er liðið sigraði
KA á Ákureyrarvelli með þremur
Opiö öldungamót
GOLFKLÚBBUR Ness heldur
sitt árlega öldungamót „Hornið"
fimmtudaginn 3. júli 1980, kl. 17.
Keppt er með forgjöf. 16 bestu
halda áfram i holukeppni. í
forkeppninni eru verðlaun fyrir
1., 2. og 3. sæti.
Aukaverðlaun verða þrenn.
Fyrir að vera næst holu á 3. og 6.
braut, svo og fyrir fæst putt.
í andstæðingana. Bæði liðin voru
sökudólgar og dómarinn Arnþór
óskarsson hafði takmörkuð völd
á leiknum. Var hann allt of spar
á spjöldin, einkum er leið á
leikinn.
Sigurður Grétarsson skoraði
bæði mörk UBK, það fyrra 7
mínútum fyrir leikslok, eftir góða
mörkum gegn engu. Ekkert
mark var skorað i fyrri hálfleik,
en þá voru heimamenn nokkuð
sterkari aðilinn á vellinum.
Víkingarnir hafa vafalaust
fengið að hlýða á rússneskan
reiðilestur í hálfleik, því í síðari
hálfleik mættu þeir mun sprækari
til leiks. Lárus Guðmundsson
braut þá ísinn á 51. mínútu með
góðu skoti og á 75. mínútu bætti
Ómar Torfason öðru marki við.
Lokaorðið átti síðan Heimir
Karlsson þegar hann skoraði
þriðja mark Víkings á síðustu
mínútu leiksins.
sor/gg
sendingu frá Hákoni Gunnarssyni.
Það síðara skoraði hann eftir
aukaspyrnu, þegar komið var fjór-
um mínútum fram yfir venjulegan
leiktíma, þrumuskot í markhorn-
ið. Þróttur hafði náð forystunni á
síðustu mínútu fyrri hálfleiks, þá
brunaði Harry Hill upp hægri
kantinn af miklu harðfylgi og
sendi á stöngina nær. Þar var
Sigurkarl Aðalsteinsson fyrir og
skallaði hann með tilþrifum í
netið.
Blikarnir fóru fyrst að ná veru-
legum tökum á leiknum, er Ágúst
Hauksson fékk að líta rauða
sjijaldið seint í síðari hálfleik.
Ágúst sló Helga Bentsson og var
því réttilega vikið af leikvelli.
Hins vegar sparkaði Helgi á móti
og hefði átt að fá vegabréf út af
alveg eins og Ágúst. Helgi hafði
skömmu áður rekið olnbogann í
magann á Sverri Einarssyni, en
Þróttarar svöruðu von bráðar í
sömu mynt. Þannig var þessi
leikur, það gekk allt út á að hefna
og kvitta fyrir. í lok leiksins varð
þjálfari Þróttar, Ron Lewin, sjálf-
um sér til skammar, er hann hljóp
að tjaldi UBK með þeim orðum, að
hann væri til í að slást við hvern
sem væri. Síðan fór hann að
munnhöggvast við fréttamenn og
hótaði þeim málsókn, ef þeir hefðu
eitthvað eftir sér!!
- gg qr.
AÐ SÖGN Júlíusar Hafstein.
formanns IISÍ, er óvist að Jóhann
Ingi Gunnarsson landsliðsþjálf-
ari verði áfram með landsliðið i
handknattleik. Ekki hefur náðst
samkomulag milli hans og stjórn-
ar HSÍ um launakröfur. Það mun
skýrast eftir að landsliðið, sem
nú er að leggja upp i keppnisferð,
kemur heim. Yrði vissulega sjón-
arsviptir að Jóhanni Inga, léti
hann af störfum, þar sem hann
hefur náð ágætis árangri með
landsliðin i ýmsum flokkum, og
unnið mikið og gott starf fyrir
HSÍ. _ þr
Önnur kona
yfir 7 m
Bandariska frjálsiþróttakonan
Jody Anderson setti um helgina
nýtt Bandarikjamet i langstökki
er hún stökk 7,00 metra á móti i
Eugene í Oregonfylki. Anderson
átti sjálf eldra metið er hljóðaði
upp á 6,90 metra. Hún er önnur
konan til að stökkva sjö metra i
langstökki, heimsmetið hljóðar
upp á 7,09 metra og er i eigu
sovézku stúlkunnar Vilmu Bard-
auskien.
Á sama móti var sett nýtt
Bandarikjamet í hindrunar-
hlaupi, er Henry Marsh hljóp á
8:15,68 sekúndum. Marsh hljóp i
úrslitum hindrunarhlaupsins á
ólympíuleikunum i Montreal.
Sveinn og
Steinunn
sigruðu
Unglingameistaramót íslands í
golfi fór fram um siðustu helgi á
Hvaleyrarholtsvellinum. Þátttak-
endur voru 64. Steinunn Sæ-
mundsdóttir sigraði i stúlkna-
flokki og Sveinn Sigurbergsson i
unglingaflokki. Úrslit i mótinu
urðu sem hér segir:
Telpnaflokki
Þórdís Geirsdóttir GK,
lék á 354 höggum.
Stúlkur
Steinunn Sæmundsdóttir GR,
á 351 höggi.
Ásgerður Sverrisdóttir NK
á 354 höggum.
Drengir 15 ára og yngri
Héðinn Sigurðsson GJ,
305 högg.
Kristján ö. Hjálmarsson GH,
314 högg.
Ásgeir Þórðarson NK,
319 högg.
Unglingar
Sveinn Sigurbergsson GK,
303 (74-78-75-76).
Hilmar Björgvinsson GS,
317 (88-82-73-74).
Jón Þór Gunnarsson GA,
317 (81-77-77-82).
Víkingur áfram