Morgunblaðið - 02.07.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1980
31
Jón jafnaði
metió í 1500
Hafa, enn ekkert heyrt
um Ólympíuundirbúning
— þótt aðeins hálfur mánuður sé í leikana
„Ég haíði vonast eftir betri árangri, en þar sem þetta var
eiginlega sólóhlaup verð ég að sætta mig við þetta,“ sagði Jón
Diðriksson UMSB i spjalli við Mbi. i gær, en um helgina jafnaði
hann íslandsmet sitt í 1500 metra hlaupi á frjálsiþróttamóti i
bænum Troisdorf í Vestur-Þýzkalandi. hljóp á 3:42,7 minútum.
Jón varð jafnframt héraðsmeistari Nord-Rhein héraðs.
„Ég ætlaði mér að ná
Ólympíulágmarkinu á þessu
móti, tel mig vera í æfingu til
að hlaupa undir 2:40 mínút-
um. Þetta leit allt vel út er til
mín kom hlaupari rétt fyrir
hljóp og bauðst til að draga
mig áfram fyrri hlutann á
hæfilegum hraða. Hérinn
hlaup þó allt of hratt af stað,
þannig að fyrstu 400 voru á
56 sekúndum. Fram hjá 800
metra markinu fór ég á 1:57
og fram hjá 1200 á 2:57.
Síðustu 80 metrana var mað-
ur svo orðinn þrælstífur,
sagði Jón.
Jón sigraði með yfirburð-
um á mótinu, næstur varð
Ingo Falck, á 3:47, en hann
hljóp 3:41 í fyrra. Þriðji var
félagi Jóns úr Jágermeister
Bonn/Troisdorf, Valdur
Koha, á 3:50. Sagðist Jón
vonast til þess að komast í
góð hlaup í vikunni og um
helgina, þar sem hann teldi
sig ennþá eiga talsvert inni í
1500 metra hlaupi.
Ragnheiður fjórða
Ragnheiður Ólafsdóttir FH
keppti á mótinu fyrir félag
sitt ASV Köln og hafnaði í
fjórða sæti í 800 metra hlaupi
á 2:09,8 mínútum. Sigurveg-
arinn hljóp á 2:06 og tvær
stúlkur hlupu á 2:07. Ragn-
heiður hljóp nýlega sólóhlaup
á 2:09,1, sem er hennar bezti
árangur í 800 m hlaupi.
— ágás.
Gísll Halldórsson fyrrverandi forseti Í.S.Í.
Ljosmyndari RAX.
íþróttaþing Í.S.Í.
„fór í alla staði vel fram“
A 56. íþróttaþingi Í.S.Í. sem að
haldið var i Reykjavík samhliða
íþróttahátíðinni hittum við að
máli fráfarandi forseta Í.S.Í.
Gísla Halldórsson, en nýkjörinn
forseti er Sveinn Björnsson.
Blaðamaður spurði Gísla hvern-
ig mótið og jafnframt þingið hefði
tekist það sem af er, og sagði Gísli
að það hefði heppnast afbragðsvel,
og þingið farið í alla staði vel
fram. Hann sagði að allar tillögur
væru ræddar vel og nefndir
myndu starfa af fullum krafti. Við
spurðum hvort mikill hiti hefði
verið í mönnum, en hann sagði að
málin væru rædd rólega af einurð
og málefnalega. Aftur á móti
sagði hann að e.t.v. hlypi hiti í
málin á morgun þegar nefndirnar
hefðu tekið málin til umræðu. Við
inntum Gísla eftir því hvort hann
teldi að það hefði slæm áhrif að
sami formaður sæti svo lengi við
völd eins og hann hefði gert og
hvort ekki væri hætta á stöðnun.
Hann tjáði okkur að þó nokkur ár
þyrfti til að geta mótað heildar-
starfið í svo umfangsmikilli hreyf-
ingu, og hvort sín 18 væru of mörg
væri hann alls ekki fær um að
dæma um, Aðspurður hvort að
rétt væri að hann ætlaði á
Ólympíuleikana í Moskvu og rétt
væri að tíu fararstjórar færu en
aðeins átta keppendur sagði hann
að það væri alrangt að níu til tíu
fararstjórar færu, því aðeins tveir
fararstjórar yrðu í förinni, þrír
flokksstjórar og einn fulltrúi. Og
að hann ætlaði sér til Moskvu
væri algjör fjarstæða.
Að lokum sagði Gísli að hann
vildi þakka íþróttahreyfingunni
og samstarfsmönnum fyrir sam-
veruna og umburðarlyndið öll árin
sem hann hefði setið að störfum.
„Ég hef ekki neina vissu fyrir
þvi að íslendingar ætli að taka
þátt i ólympíuleikunum í
Moskvu, utan það að ég, las í
vetur í svissnesku blaði að íslend-
ingar yrðu að öllum líkindum
meðal þátttökuþjóða. En ég hef
þó ekki heyrt bofs varðandi þetta
mál í allan vetur eða vor, hvorki
frá Frjálsíþróttasambandinu eða
Ólýmpíunefnd. Hélt þó þegar i
fyrra að ég væri í hópi þeirra sem
líklegastir yrðu til að ná lág-
mörkum til þátttöku, er í góðu
formi og á vonandi eftir að
sigrast á lágmarkinu," sagði Jón
Diðriksson frjálsiþróttamaður i
spjalli við Mbl. varðandi fyrir-
hugaða þátttöku i ólympíuleik-
um, en Jón er i dag einn okkar
sterkasti frjálsiþróttamaður og
liklegur til að fylla eitt fjögurra
sæta frjálsiþróttamanna á
ólympíuleikunum í Moskvu.
Jón sagði að af hálfu FRÍ eða
Ól. nefndar hefði ekki verið um
neinn undirbúning að ræða varð-
andi þátttöku í Ólympíuleikum,
hvað hann snerti a.m.k., og Mbl.
hefur fregnað, að þrátt fyrir að
þeir Hreinn Halldórsson KR,
Óskar Jakobsspn ÍR og Erlendur
Valdimarsson ÍR hefðu allir náð
alþjóðlegum lágmörkum fyrir
þátttöku þegar í fyrrasumar, hefði
hvorki FRÍ né Ólympíunefnd haft
samband við þá í allan vetur eða
vor varðandi undirbúning og
þátttöku í Ólympíuleikunum í
Moskvu. Að sögn frjálsíþrótta-
manna hefur ekki verið um neinn
undirbúning að ræða af hálfu
Ólympíunefndarinnar eða FRI,
frá þeirra sjónarhóli séð. Engum
frjálsíþróttamönnum hefðu verið
veittir æfinga- eða ferðastyrkir
vegna undirbúningsins fyrir þátt-
töku í leikunum, eins og var t.d.
fyrir Ólympíuleikana í Montreal
1976.
Leikarnir voru haldnir á sama
árstíma 1976 og nú, og þá var búið
að velja þátttakendur um 20. júní,
en enn hefur t.d. frjálsíþróttahóp-
urinn ekki verið valinn, og aðeins
hluti lyftingamannanna, sem
verða fjórir. Það mun hins vegar
fyrir löngu að fararstjóraflokkur-
inn var valinn, en með íþrótta-
mönnunum fer næstum jafnstór
hópur aðstoðarmanna. — ágás.