Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 1

Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 1
44 SÍÐUR 158. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Neistar fljúga á kveimaráðstefnu Kaupmannahofn. 16. júlí. AP. SNARPAR umrœður urðu á kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna i Kaupmannahöfn i dag, er einn fulltrúi Bandaríkj- anna, Sarah WeddinKton. Kagn- rýndi fulltrúa Sýrlands ok Kúbu fyrir að veitast að Bandarikjun- um, ísrael og Eygptalandi á ráðstefnu sem ætlað væri að fjalla um réttarstöðu kvenna. „TilKanKur þessarar ráðstefnu“ sagði hún, „er mikilvæKari en svo að henni meKÍ stofna i hættu með pólitisku skæklatoKÍ um óskyld mál". Einnig sakaði einn ráðstefnu- fulltrúa Sovétríkjanna, Valentina Tereshkova, fyrrverandi geimfari, samtök heimsvaldasinna um að ■þyogja jafnréttisbaráttunni með þvi að ala á spennu og vopnakapp- hlaupi á alþjóðavettvangi. Kom þar að konur frá tuttugu löndum birtu yfirlýsingu þar sem hvatt var tii að ráðstefnugestir reyndu að forðast pólitísk deiluefni í málflutningi sínum. Samsærismenn bíða dauðadóms 16. júli. AP. ÍRANSKA byltingarráðið skip- aði að landamærum landsins skyldi lokað i 48 klukkustundir. Börn höfð til blóra í Texas 16. júlf - AP. HITABYLGJAN í suður- og mið- vesturrikjum Bandarikjanna hefur þegar kostað 689 manns lífið að sögn bandariskra emb- ættismanna. í dag leit hins vegar sú skoðun dagsins Ijós að hitahylgjunni mætti einnig um kenna að likamsmeiðingar á börnum hafa stórum aukizt á stöðum eins og Dallas i Texas. Forstöðukona barnaverndar- deildar heilbrigðisráðuneytisins í Dallas, Carole Bowdry, sagði að líkamsmeiðingum á börnum hefði fjölgað jafnt og þétt frá 23. júní, en þá lagðist hitabylgjan yfir borgina. Hitinn varð til þess að ríkis- stjóri Alabama, Fob James, lýsti yfir neyðarástandi á þriðjudag. Neyðarástandi hafði þegar verið lýst í Missouri. Mestur mun hitinn þó hafa orðið í Kansas á þriðjudag, 44 stig á Celsíus- kvarða. miðvikudag og fimmtudag, til að varna því, að samsærismenn gegn ríkisstjórn Ayatoilah Khomeinis kæmust undan. Sam- kvæmt frásögn útvarpsins i Te- heran hafði þcgar tekizt að hafa hendur i hári 500 manns þegar síðast fréttist. Forseti hæstaréttar landsins, Ayatollah Behesti, sagði, að rétt- arhöldin myndu fara fram fyrir opnum tjöldum og yrði þeim sjónvarpað. Hann sagði einnig, að þeir sem sekir yrðu fundnir, ættu yfir höfði sér dauðadóm. Það var undir lok síðustu viku að stjórnvöld í íran tilkynntu, að þeim hefði tekizt að ráða niðurlög- um samsæris gegn stjórn Kho- meinis. Var jafnframt greint frá því að sökudólgarnir hefðu haft í ráðum að varpa sprengjum úr herflugvélum á heimili erkiklerks- ins svo og á önnur mannvirki í Teheran og öðrum borgum. Forseti Irans, Bani-Sadr, skýrði frá því, að réttarhöld yfir samsær- ismönnum myndu hefjast í dag eða á morgun. í öðrum fréttum frá Teheran segir, að kaþólskum skóla í borg- inní hafi verið lokað í dag og prestar, er þar kenna, sakaðir um njósnir í þágu Ísraelsríkis. HARKALEGUR AREKSTUR Ifjálparsveitir að störfum á slysstað eftir að hraðlest rakst á kyrrstæða vöruflutningalest sextíu kílómetra suðaustur af bænum Soria á Spáni. Að minnsta kosti fimmtán manns létu lífið i árekstrinum og þrjátiu og fimm særðust. Embættismenn segja að stormviðri og rigning hafi gert viðvörunarútbúnað óvirkan um það leyti sem óhappið varð. simamynd AP. Samriingar langt undan viö Rússa Brusscl. Washington. 16. júli. AP. BANDARÍSK stjórnvöld stefna að því að ákvarða viðræðuKrundvöll sinn i samningum við Sovétmenn um takmörkun kjarnorkueldfiauga i Evrópu fyrir miðjan september að þvi er belgískir embættismenn sögðu í dag. Áætlun þessi var gerð heyrinkunn eftir fund Charles-Ferdinand Nothomb, utanríkisráðherra Belgíu, og Warren Christopher, aðstoðarutanrikisráðherra Bandarikjanna, en Christ- opher er nú á ferð um helztu aðildarriki Atlantshafsbandaiagsins. Einnig herma fréttir frá Wash- ington að stjórn Jimmy Carters hafi sent Soveímönnum orðsend- ingu um að þeir skýrgreini frekar afstöðu sína í væntanlegum við- ræðum. „Við eigum langt í land áður en við getum jafnvel hafið Gestir þrúgaðir á Moskvuleikum „AÐEINS sólarhringur er liðinn siðan við komum til Sovétríkj- anna og við höfum þegar orðið að tæma úr vösunum níu sinnum" skrifar fréttaritari AP á Moskvuleikunum, Will Grimsley. „Þegar vasarnir hafa verið tæmdir, taka þeir næst af okkur úrið, rafeindaskeiðklukkuna og skjóta grunsemdarauga að beltisspenn- unni.“ „Allt er þetta að sjálfsögðu löglegt", heldur Grimsley áfram. „En gamanið fer hins vegar að kárna þegar endurtekinn er sami leikurinn æ ofan í æ hvort heldur menn halda til hótels eða reyna að komast inn í blaða- mannastúku." Frásögn Óslóarblaðsins „Af- tenposten" ber að sama brunni: „Ólympíusvæðinu hefur verið breytt í víggirðingu. Þátttakend- ur búa við eftirlit af því tagi sem vart hefur áður sézt. Gamal- grónir íþróttafréttaritarar hafa aldrei komizt í tæri við annað eins. Ritvélatöskur og ljós- myndatæki er farið með líkt og væru þau úttroðin af sprengi- efni. Það er erfitt að finna aðra útskýringu en þá að skipuleggj- endurnir hræðist eitthvað sér- stakt.“ „Sovézk dagblöð", heldur Aftenposten áfram, „hafa sagt lesendum sínum að þeir verði að vera á varðbergi gagnvart háskalegum aðilum, sem komi til Moskvu undir því yfirskyni að fylgjast með Ólympíuleikunum, en komi þar raunar í vafasömum erindagerðum... Velviljuð lög- regluyfirvöld hafa einnig verið óspör á ráðleggingar. Foreldrum er sagt að vara börn sín við að þyggja tyggigúm af útlending- um. Það kunni að vera eitrað. Hvað er eiginlega orðið af anda Ólympíuleikanna?“ spyr Aften- posten. Þrátt fyrir traust eftirlit, seg- ir í fréttaskeyti AP, hafa stjórn- völd í Moskvu búið sig vel undir leikana og gera þau sér far um að gera gestum sínum til hæfis. „I flestum tilvikum", segir fréttastofan, „hefur sú viðleitni borið góðan árangur". undirbúningsviðræður," var haft eftir einum starfsmanni stjórnar- innar í Washington. Helzti ásteytingarsteinn við- ræðnanna mun vera sú krafa Moskvuyfirvalda að samið verði um orrustu- og sprengjuflugvélar NATO svo og skammdrægar eld- flaugar, en aðildarríki bandalags- ins eru hins vegar ekki samnings- fús um vopn þessi. Líta bandarísk stjórnvöld svo á að aðeins skuli samið um jarðeldflaugar og Back- fire-sprengjuflugvél Rússa, sem Vesturveldin telja í flokki meðal- drægra vopna. Samkvæmt þessu mun Atlantshafsbandalagið reiðu- búið til að ræða gagnkvæma fækkun á annars vegar sovézkum eldflaugum, sem miðað er á Vestur-Evrópu, og hins vegar Verðlag á olíu lækkar FRÉTTASTOFA Reuters hefur skýrt frá því að stórfelld verðlækk- un eigi sér nú stað á oliumarkaði i Rotterdam sökum offramboðs á olíu nýlega. Segir fréttastofan verð- iækkun þessa eiga fyrst og fremst rætur að rekja til samdráttar í oliuneyzlu og orkusparnaðar á Vesturlöndum og bendir meðal ann- ars á að oliubirgðastöðvar i Banda- rikjunum séu drekkfullar um þess- ar mundir. þeim 572 bandarísku eldflaugum, sem evrópskar bandalagsþjóðir hyggjast koma upp frá og með árinu 1983, en eldflaugum þessum verður miðað á Sovétríkin. Starfsmaður bandarísku stjórn- arinnar sagði að Sovétmenn hefðu ekki skýrt kröfur sínar varðandi hreyfanlegan vopnaafla NATO og væri t.d. óvíst hvort þeir ættu við Pershing-eldflaugarnar, F-4 þot- ur, Polaris-kafbáta eða F-lll sprengjuflugvélar, sem staðsettar eru í Bretlandi. Þjófar slá hljómsveit út af laginu FoKKia. Ilalíu. 16. júll. AP. TÓNLEIKAFERÐ kunnustu sinfóníuhljómsveitar Rúmena hlaut skjótan endi á miðviku- dag, er ræningjar stálu flutn- ingabifreið með öllum hljóðfær- um. nótnabókum og viðhafn- arklæðnaði hljómsveitarinnar. Þrír eða fjórir þjófar brutust að sögn lögreglu inn í bifreiðina að nóttu, notuðu kveikjuvír til að koma henni í gang og óku á brott. Bifreiðinni hafði verið lagt fyrir framan hótel á Suður-Ítalíu þar sem níutíu og sjö hljóðfæraleik- arar George Enescu hljómsveit- arinnar frá Búkarest sváfu. And- virði ránsfengsins, 107 hljóð- færa, er sagt nema meira en sextíu milljónum íslenskra króna. Hljómsveitin, undir stjórn Ion Voico, aflýsti fjórum tónleikum sem áætlaðir höfðu verið á Ítalíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.