Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1980
t S.. i. ..A—
Kntvfe!! .
/
hiiiísh.
✓ \---------; '/ ÚáltÚS&T
......„/^5"7 <---
/="• •<
:■• ■ : ••-.
'’ví- ' • í#'
MOSFELL
í Mosfellssveit
Dr. Jónas Kristjánsson:
Tilmæli
til
lesenda
Þegar komið er upp á hæðina
fyrir norðan Brúarland í Mos-
fellssveit, blasir Mosfellið við
framundan til hægri. Ætlunin er
að ganga á fellið í þessari ferð, og
kynnast því örlítið, sem þaðan er
að sjá. Við ökum yfir brúna á
Köldukvísl og beygjum til hægri
út af steypta veginum nokkru
fyrir norðan afleggjarann heim
að Leirvogstungu. Afleggjarinn
liggur upp í sandnámur miklar,
og við ökum eftir honum eins
langt, og við komumst. Fyrir
mynni Mosfellsdals og fyrir
framan Mosfellið eru miklir og
háir melar. Þessir melar eru
gamlir sjávarkambar, sem
mynduðust fyrr á tímum þegar
sjávarstaðan var hærri hér við
Faxaflóa, en hún er nú.
Hér skiljum við bílinn eftir og
hefjum gönguna upp á fellið.
Best er að stefna þá upp fellið
sunnanvert og ganga brúnir þess
rangsælis, eins og sýnt er á
kortinu.
Talið er að Mosfellið sé 400 —
450 þúsund ára gamalt. Manni
finnst það ærinn tími, en í sögu
jarðar er sá tími stuttur, ekki
síst ef hann er borinn saman við
aldur Esjunnar, sem er hátt í
þrjár milljónir ára, að talið er.
Samt hefur Mosfellið fengið að
kenna á ýmsu. Það hefur legið
undir fargi isaldarjökla, verið
skafið og núið, enda ber það þess
merki og líklega er það algjör-
lega óþekkjanlegt frá sinni
fyrstu lögun.
Þegar komið er upp á brúnirn-
ar sjáum við inn yfir Mosfells-
dalinn. Þar liggja bæirnir í röð
meðfram fellsrótunum. Hrísbrú
er vestast, þá kirkjustaðurinn að
Mosfelli, næst Minna-Mosfell og
austast er Laxnes, sem nýtur
þeirrar frægðar, að Halldór
Laxness ólst þar upp. Mosfell er
ekki síður þekkt í sögunni, því
þar dvaldi Egill Skallagrímsson
síðustu æviár sín og í nánd við
Mosfell faldi hann silfrið sitt,
sem frægt er. Var hald manna,
að hann hefði grafið silfrið í
Kýrgili, fyrir austan Minna-
Mosfell. Þrjú fell liggja að daln-
um að sunnan, eru það Helgafell,
Æsustaðafjall og Grimmanns-
fell, talið að vestan. Mikill jarð-
hiti er í dalnum sunnanverðum,
en það sést ekki nú, því búið er að
virkja þennan jarðhita og leiða
hann í pípum til höfuðstaðarins.
Grunar því fáa, sem nú eiga leið
um dalinn hvað hér var einu
sinni að sjá.
Við röltum austur brúnirnar.
Freistandi væri að skreppa í
Kýrgil og huga að silfri Egils, en
við skulum láta það bíða um
sinn. í staðinn sveigjum við
norður yfir og brátt opnast
annar dalur fyrir sjónum okkar.
Um hann rennur Leirvogsá. Hún
kemur úr Leirvogsvatni, en það
vatn er vestan til á Mosfellsheiði
og liggur Þingvallavegurinn
skammt frá bökkum þess. Leir-
vogsá deilir merkjum milli Mos-
fells- og Kjalarneshreppa og hér
sjáum við aðra röð býla en að
þessu sinni undir suðurhlíðum
Esjunnar. Mógilsá er vestast, en
Þverárkot austast. Nokkrar þess-
ara jarða eru í eyði, og liggja að
sjálfsögðu til þess ýmsar ástæð-
ur.
í fjarska sjáum við upp í
Svínaskarð, en það liggur á milli
Móskarðshnúka og Skálafells.
Um Svínaskarð lá aðalvegurinn
milli Kjósar og Mosfellssveitar
áður fyrr og um það skarð fóru
flestir, sem ætluðu úr Reykjavík
vestur á land. Þá lá alfaraleið
meðfram Leirvogsá hér fyrir
neðan Mosfellið og þá var Þver-
árkot í þjóðbraut. Þessi leið
lagðist svo niður að mestu, þegar
bílaöldin hófst og akvegurinn var
byggður um Kjalarnesið. Það
skeði fyrir liðlega 50 árum.
Leiðin inn með ánni er greiðfær
og slétt og hafa eflaust margir
sprett þar úr spori og reynt
gæðinga sína á siéttum melum á
leið úr kaupstað áður fyrr. Við
höldum röltinu áfram og göngum
upp á efsta hnúk Mosfellsins.
Hann er 276 m. yfir sjávarmáli.
Þaðan er fagurt útsýni yfir
Kollafjörðinn og eyjarnar og
ekki skaðar það, að vera þar
staddur um sólsetursbil á heið-
skíru síðsumarkveldi, þegar sólin
er að ganga undir fyrir handan
Flóann.
Frá þessum útsýnisstað göng-
um við niður fellið að vestan og
að bílnum. Hressandi gönguferð
er lokið.
Árið 1858 kom hinn merki þýski
fræðimaður og íslandsvinur
Konrad Maurer hingað til lands
og dvaldist hér sumarlangt. Ferð-
aðist hann víða um land og ræddi
við marga menn, skoðaði sögu-
staði og safnaði margvíslegum
fróðleik. Eftir heimkomuna til
Þýskalands samdi hann mikla
ferðabók, „Reise nach Island
1858“. Rit þetta hefur ekki enn
verið prentað, og var mönnum
lengi ókunnugt um tilvist þess. En
fyrir fáum árum fannst eigin-
handarrit Maurers, og er nú verið
að búa það til prentunar í Miinch-
en. Maurer lagði sérstaka stund á
að lýsa sögustöðum sem getið er í
íslenskum fornritum, og er ferða-
bók hans merkileg heimild um
ástamd og útlit ýmissa staða árið
1858.
Prófessor Kurt Schier í Múnch-
en annast útgáfu ferðabókarinnar.
Hann verður á ferð hér á landi
•núna í júlí og ágúst, og leikur
honum mikill hugur á að vita
hvort einhverjar minningar kunni
að lifa um Konrad Maurer, á þeim
stöðum sem hann vitjaði eða með
niðjum þeirra manna sem hann
átti skipti við. Ef einhverjir kynnu
að búa yfir slíkum fróðleik, eru
þeir vinsamlegast beðnir að hafa
samband við Jónas Kristjánsson,
stofnun Árna Magnússonar í
Reykjavík, sími 25540. Mundi
prófessor Schier þá sjálfur leita
viðræðna við fróðleiksmenn — og
skal það fram tekið að hann er
mæltur á íslenska tungu.
Hér á eftir fylgir skrá yfir
nokkra staði sem Maurer skoðaði
og menn sem hann hafði náin
skipti við, en að sjálfsögðu kynnt-
ist hann mörgum öðrum á ferðum
sínum um landið:
Kurt Schier prófessor.
ólafur Ólafsson, fylgdarmaður
hans, frá ónefndum stað á Norður-
landi.
Pétur Sigurðsson, Norðlendingur
og frændi ólafs, einnig fylgdarmað-
ur Maurers.
Þingvellir: séra Símon Beck
Austurhlíð (Biskupstungum):
Magnús Jónsson.
Haukadalur: Sigúrður Pálsson
hreppstjóri.
Arnarbæli í Ölfusi: séra Guðmund-
ur Johnsen.
Móeiðarhvoll (Hvolhreppi): Skúli
Thorarensen læknir.
Skógar (undir Eyjafjöllum): séra
Kjartan Jónsson.
Eyvindarholt (Fljótshlið): Sighvat-
ur Árnason.
Tveir
lágu í
valnum
Pamplona. Spáni. 14. júlí. AP.
ÁRLEGU nautahlaupi í Pampl-
ona á Spáni Iauk í dag og i
valnum lágu tveir menn sem
nautin stungu til bana.
Sex menn liggja alvarlega
slasaðir, þar af einn sem er milli
heims og helju.
Sex hundruð kílóa þungt naut
stakk hornum sínum á kaf í
brjóstkassa mannsins og stakk
auk þess hornum sínum tvívegis í
mjaðmir honum.
Tólf hlutu minni meiðsl —
beinbrot og þaðan af minna.
Nautið „Antioquia“ stingur
hornum sínum í hlauparann
Vicente Ladio Risco á nauta-
hlaupshátíðinni i Pamplona á
Spáni.
i
f