Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 Fylkir hefur misst af vagninum FYLKISMENN þurfa ekkert að vera að hugsa til 1. deildarinnar að þessu sinni. enda kom í ljós Kegn I>rótti frá Neskaupstað í Kærkvöldi. að i 1. deild á Fylkir ekkert erindi. Leikur liðanna í 2. deildar keppninni á LauKardals- vellinum var mjöK stórkarla- leiíur þó öðru hvoru bryjíði fyrir þokkalegri knattspyrnu. Þróttar- ar áttu sÍKurinn skilinn þó ekki væri nema fyrir hve hroðaleK vörn Fylkis var I þessum leik. Ilvað eftir annað, einkum í síðari hálfleik, var stórhætta inni i vitateÍK Fylkis, lanKoftast eftir að varnarmenn liðsins höfðu Kert alls kyns rósir. T.d. voru bæði annað ok þriðja mark Þróttar hreinar Kjafir. Ok fyrsta markið var einnÍK keypt á útsölu. Þrótt- ur vann leik þennan 3—1, staðan í hálfleik var 0—0. Allt það markverðasta sem Kerðist í þessum leik, gerðist í síðari hálfleik. Þá voru mörkin skoruð. Ekki voru nema 3 mínútur liðnar af síðari hálfleik, þegar Björgúlfur Halldórsson fékk óáreittur að skalla í netið eftir hornspyrnu. Og sjö mínútum síðar skoraði Björgúlfur enn og er víst að önnur eins klaufamörk eru sjaldséð. Engin hætta var á ferð- um, er Kristján Steingrímsson hugðist senda til Ögmundar í markinu af stuttu færi. Kristján renndi knettinum hins vegar fram hjá Ögmundi fyrir fæturna á Þróttara sem kom knettinum um- svifalaust til Björgúlfs. Hann gat vart annað en skorað. Og þriðja markið var álíka skrautlegt, sjálfsmark, eftir að þyrping varn- armanna Fylkis hafði tíma og rúm til að bjarga öllu saman. Hilmar Sighvatsson, besti mað- ur Fylkis ásamt Antoni Jakobs- syni, skoraði glæsilega eina mark Fylkis á 60. mínútu. Minnkaði hann þá muninn í 1—2. En það dugði skammt. Bestu menn Þrótt- ar voru Valþór og Björgúlfur, en annars var liðið mjög jafnt. — gg. Frá Þórarni Ragnarssyni blm. Mbl. í Halmstad: Leikurinn gegn Svíum verður mun erfiðari — segir Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari Atli skoraði þr jú mörk REIKNAÐ er með 10 — 12.000 áhorfendum á Örjans-leikvanginum hér i llalmstad er íslendingar og Sviar leika landsleik i knattspyrnu i dag klukkan 5 að íslenskum tíma. íslenska liðið æfði á leikvanginum í Vk klukkustund í gærdag og leist leikmönnum og þjálfurum vel á völlinn. Sænski landsliðsþjálfarinn Lars Arneson stillir upp frekar unKU ok óreyndu landsliði. Hann bvggir lið sitt upp í kringum fimm leikmenn úr liði Öster. liði Teits Þórðarsonar, en Öster hefur gengið mjög vel í sænsku deildinni i sumar og sýnt hvern stórleikinn á fætur öðrum. hefja undirbúning ‘•'.in fyrir for- keppni HM á Spáni. Arneson segir það engu máli skipta hvort liðið sé að leika gegn Vestur-Þjóðverjum eða íslendingum, „leikmenn verða að sýna fulia alvöru og kraft í leik sínum“. „Við eigum að sigra í leiknum, en ísland hefur sýnt að liðið getur bitið frá sér og islenska landsliðið í knattspyrnu hefur ávallt staðið sig vel gegn Svíþjóð," sagði Arne- son í blaðaviðtölum. „Þessi leikur verður mun erfið- Þeir leikmenn Oster, sem í liðinu eru, eru varnarmenn, geysi- lega sterkir og fastir fyrir, enda hefur Öster ekki fengið á sig nema 3 mörk í 14 leikjum. Þá má sjá í sænskum blöðum, að Teitur Þórð- arson hefur staðið sig mjög vel i sumar og var hann um siðustu helgi valinn í lið vikunnar í Svíþjóð í fjórða skipti í sumar. Þjálfari sænska landsliðsins segir að leikurinn gegn Islandi sé mjög mikilvægur þar sem Svíar eru að er sænska liðið sterkara sem heild, auk þess sem Svíar eiga sterkari einstaklinga. Ég geri tvær breytingar á liðinu, Ásgeir og Janus koma inn fyrir Magnús Bergs og Árna Sveins. Að öðru leyti teflum við fram óbreyttu liði," sagði Guðni Kjartansson í stuttu viðtali, „ég ætla að leggja fyrir dálítið breytta leikaðferð frá Noregsleiknum. Svíar eru með tvo feiknalega góða framherja, Ralf Edström og Gautaborgar-leik- manninn Nilson. Við verðum að gæta þeirra sérstaklega,“ bætti Guðni við. Sigurður Halldórsson hefur fengið það hlutverk að gæta Edström. Marteinn mun leika sem sópari og Janus verður í stöðu varnartengiliðs. „Annars verð ég ánægður ef liðið leikur góða knattspyrnu og nær upp góðri ari en leikurinn gegn Noregi. Bæði baráttu," sagði Guðni að lokum. ATLI Eðvaldsson hefur sannar- leKa komið ár sinni vel fyrir borð hjá hinu nýja félagi sinu. vestur- þýska stórliðinu Borussia Dort- mund. Atli fór út fyrir nokkru ok hefur æft um skeið með hinum nýju félögum sínum. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Dortmund eigi alls fyrir löngu. Skýrt er nokkuð ítarlega frá fyrsta leiknum í þýsku knatt- spyrnuritinu fræga „Kicker”. Þar segir að Atli hafi komið inn á sem varamaður í leik Borussia Dort- mund og áhugamannaliðsins Bad Bramstadt. Dortmund hafði nokkra yfirburði í leiknum og þjálfarinn Udo Lattek var iðinn við að gera tilraunir. Ein tilraunin var að leyfa íslendingnum að spreyta sig í síðari hálfleik og verður ekki annað sagt en að Atli hafi gripið tækifærið heljargreip- um. Hann skoraði þrívegis á skömmum tíma og lék á als oddi. Segir „Kicker" Atla vera óðum að komast í góða æfingu og ljóst sé að Dortmund hafi gert kostakaup er félagið tryggði sér íslendinginn hávaxna. Atli hefur vakið nokkra athygli, Atli Eðvaldsson enda er hann fyrsti erlendi leik- maðurinn sem leikur með Bor- ussia Dortmund. Og Atli kynnti sig fyrir Þjóðverjum með því að skora tvívegis gegn þýskum liðum á síðasta keppnistímabili. Hann skoraði eina mark íslands í 1—3 tapi gegn þýska landsliðinu og eina mark Vals í 1—2 tapi gegn Hamburger í Evrópukeppninni. Blöðin þýsku hafa hrósað Atla í hástert og farið fögrum orðum um leikni hans og styrkleika. í spjalli við þýskt blað, segir þjálfarinn Udo Lattek, að Atli minni sig helst á miðherjann sterka Hort Hrubesch, kappann sem skoraði bæði mörk Vestur-Þjóðverja í úrslitaleik Evrópukeppninnar gegn Belgum. Reyndar er Átli ekki miðherji, en Lattek sagði þetta samt. Blöðin átu það eftir honum. Er óhætt að segja að spennandi verður að fylgjast með frama Atla í þýsku knattspyrnunni, sem er sú besta í heimi, en víst er að hann hefur sannarlega byrjað vel. gæta Enn um Jóhann Inga EINS ok kom fram I Mbl. I gær og fyrradag. hefur landsíiðs- þjálfarl íslands I handknatt- leik, Jóhann Ingi Gunnarsson, sagt starfi sínu sem slíkur lausu frá og með 1. september. Þegar hefur verið sagt frá ástæðunum. en þær eru í stuttu máli, að Jóhann Ingi og hin nýkjörna stjórn náðu ekki sam- komulagi um kaup, kjör og stefnu i landsliðsmálum. Jóhann Ingi hafði þó nokkru fyrir ársþing HSÍ náð munnlegu samkomulagi við fráfarandi stjórn um umrædd atriði. En þegar fjárhagsáætlun var sam- þykkt á þinginu, var gert ráð tyrir am oorum og lægri tölum heldur en rætt hafði verið um. Eins og Jóhann Ingi orðaði það sjálfur, voru breytt viðhorf til sín hjá hinni nýju stjórn. Bauð nýja stjórnin Inga rúmar 500.000 krónur í laun og einungis um- sjón með A-landsliðinu í stað rúmlega 700.000 króna sem sam- ist hafði munnlega um við frá- farandi stjórn. Þessar launa- krötiir Jphanns Inga voru í raun þær sömu og haiiíl bjó við fyrir hjá HSÍ miðað við vísitölu. Eins og skýrt var frá í Mbl. í gær, leit Jóhann Ingi á tilboð þetta sem kurteialega uppsögn og sleit samvistum við sambandið. í frétt Mbl. í gær var meinleg orðabrenglurr. Þar var haft eftir Jóhanni Inga að hann réði sig ekki til landsliðs á lakari kjörum heldur en þjálfarar lélegustu liða gerðu. Jóhann Ingi sagði í raun og veru ekkert um léleg lið, heldur venjuleg 1. deildar lið og kom orðiö „lélegustu" fyrst til skjalanna á síðu Mbl. Sagði Ingi sig vera gjaldgengan á íslenska þjálfaramarkaðinum. í Mbl. var einnig haft eftir Jóhanni Inga eitthvað á þá leið, að ef hann hefði alltaf hlustað á og gert það sem formaðurinn Júlíus Haf- stein segði, væri staða iandsliðs- ins ekki hin sama óg hún er í dag. Framsetning blm. var nokk- uð villandi og orð Inga að nokkru tekin úr samhengi. Ingi átti þarna við að oft yrði að beita hörku í þessu starfi og fram- kvæma hluti samkvæmt eigin sannfæringu, jafnvel í trássi við vilja stjórnarmanna. Fyrir þá sem það kjósa, er lítill vandi að misskilja orðin og líta á þau sem árás á Júlíus. Hið rétta er, að Jóhann Ingi lagði sérstaka áherslu á að hann væri alls ekki að hætta í „fússi“ og hann þakkaöi áíjórn HSÍ kærlega fyrir samvinnuna síðustu árin. Bar hann stjórn HSÍ að mörgu leyti vel orðið þó að auðvitað hefði margt mátt betur fara. Fyrir utan það sem hér hefur komið fram, er ýmislegt furðu- legt við þetta mál eins og það kemur fram. Til þessa hefur stjórn HSÍ ekkert látið hafa eftir sér um málið, enda er formaðurinn erlendis. í fljótu bragði sýnist furðulegt að kalla yfir þjálfaraskipti nú, þegar undirbúningurinn fyrir B- keppnina í Frakklandi er að hefjast. Jóhann Ingi hefur gert marga góða hluti með landsliðin og hefur sýnt að hann er hæfur þjálfari og rúmlega það. Hefði ekki verið eðlilevt að hann fengi að ljúka verkefninu, að stýra Iiðinu í eitt af efstu sætunum i B-keppninni? Annaðhvort hefur HSÍ gert klaufalega og ljóta skyssu eða að það er með tromp uppi í erminni. Sambandsins vegna er vonandi að það siðara verði raunin. Engu að síðui er óhætt að víta HSI fjjrir að teyma Jóhann á asnaeyrum í næstum hálft ár. Nú er of seint að ráða sig í 1. deildina íslenzku. Jóhann átti meira að segja möguleika á að þjálfa topplið i Danmörku. En líkur eru nú á að kraftar þessa snjalla þjálfara verði óvirkjaðir ; vetur, þökk sé HSÍ. - gg • Marteinn Geirsson Marteinn Geirsson, fyrirliði is- lenska landsliðsins lék sinn 50. landsleik á Ullevall-leikvangin- um i Osló i fyrrakvöld. Og hann gleymir leiknum ekki fyrst um sinn. þar sem hann lenti i handa- logmálum við þrjá fulla Norð- menn inni á leikvanginum og er það i fyrsta skipti á landsleikja- ferli Marteins, að hann hefur þurft að berjast með hnúum og hnefum inni á vellinum. Norð- mennirnir voru allir handteknir og dæmdir i háar fjársektir fyrir tiltækið. Stórar myndir birtust af atvikinu i norskum dagblöðum og þar má sjá Martein i hnefa- leikastellingum. Marteinn leikur sinn 51. landsleik i kvöld og i tilefni af þvi ræddi Mbl. við kappann. „Verðum að sér- staklega framlínu- manna Svía“ „Leikurinn gegn Svíum leggst ágætlega í mig, Svíar eru reyndar örugglega með sterkara lið heldur en Norðmenn, en íslendingar munu berjast af fullum krafti. Við verðum að gæta framlínumanna Svíanna mjög vel,“ sagði Mar- teinn, „Edström, Nilson og Backe eru allir mjög sterkir leikmenn, en varnarleikur íslenska liðsins hefur verið að lagast. Við verðum einnig að stefna að því að stöðva lang- skotin sem reyndust Norðmönnum svo vel gegn okkur,“ bætti Mar- teinn við. „Mér finnst sjálfsagt að kalla heim atvinnumennina í landsleiki. Hins vegar eru leikmenn öftustu varnarinnar allt heimamenn og ættum við því að geta samæft varnarmennina betur en gert hef- ur verið. Atvinnumennirnir eru hins vegar flestir miðjnmenn og framherjar og mætti því vel skjóta þeim inn í heildlna. T.d. skiptir það okkur geysilega miklu að fá Ásgeir til liðs við landsliðið á ný. Á pappírnum eru möguleikar okkar þó ekki ýkja miklir. Jafn- tefli er þó ekki óskaplega fjarlæg- ur draumur ef vel tekst til og ef allir ná sínu besta er ógerningur að spá hver úrslitin verða.“ Marteinn var að lokum spurður um minnisstæðustu landsleikina. Hann svaraði: „Það eru sigurleik- irnir á Laugardalsvellinum gegn Austur-Þjóðverjum og Norður- írum.“ En mestu vonbrigðin? „Tapleikurinn gegn Wales." þr. Islenska liðið leyst út með gjöfum íslenska liðinu hefur verið tekið ákaflega vel í Svíþjóð. Býr liðið á góðu gistihúsi í Halmstad og er aðbúnaður allur hinn ákjósan- legasti. Svíar hafa kappkostað að gleðja íslendinga. Hafa þeir mokað í þá gjöfum. Má þar nefna, að hver einasti maður í íslenska hópnum fékk rakvéi ásamí raksápu. Þá komu aðilar með fulla kassa af ostum og ofanáleggi. Stórar kaffi- krúsir hafa einnig verið á boðstól- um, íslendingum að kostnaðar- lausu. Svíar hafa gefið öllum skópoka og í gær labbaði einn inn á gistihús landsliðsins með fullan kassa af diskum, glösum og hnífa- pörum. Allt saman úr plasti að vísu, en góð gjöf engu að síður. Fyrir vikið er góður andi í ís- lenska hópnum. þr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.