Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980
25
Hagsmunaaðilar á Höfn:
Yara við sigling-
um með f erska síld
á erlendan markað
IIAGSMUNAAÐILAR við veiðar
<>K vinnslu síldar á Ilöln í Ilorna-
firði. þ.e. fulltrúar útjferðar-
manna. sildarverkenda. sjómanna
oíí verkafólks. komu saman til
fundar 12. júlí sl. ok samþykktu
eftirfarandi ályktun. sem hefur
verið send SteinKrimi Hermanns-
syni sjávarútveífsráðherra:
Vegna þeirrar umræðu, sem nú
fer fram um skipulag síldveiða á
komandi haustvertíð vilja hags-
munaaðilar við veiðar og vinnslu
síldar á Hornafirði koma eftirfar-
andi á framfæri:
1. Frá því síldveiðar hófust á ný
árið 1974, eftir veiðibannið 1972 og
1973, hafa veiðar og vinnsla síldar
3. í umræðum, sem fram hafa
farið að undanförnu hefur talsvert
verið rætt um siglingar með ferska
síld á erlendan markað. Við teljum
að slík stefna sé varhugaverð og
gæti haft neikvæð áhrif m.a. með
eftirgreindum hætti:
a) Mjög líklegt er að slíkar sölur
á ferskri síld muni hafa neikvæð
áhrif á markaðssetningu þeirrar
síldar, sem unnin er hér á landi,
hvort heldur um er að ræða frysta
síld, ediksöltuð flök eða saltsíld.
b) Sú mikla fjárfesting, sem lagt
hefur verið í við vinnslu síldarinn-
ar í landi hefur miðast við að
áfram yrði haldið á sömu braut og
hingað til, þ.e. löndun aflans hér
heima og vinnslu hans fyrir erlend-
ALLS leituðu nærri 3 þúsund
manns til sjúkrastofnana. með-
ferðarstofnana og dvalarheimila
fyrir drykkjusjúka segir í frétt
frá Afengisvarnarráði. en tekið er
fram að tölurnar gefi ekki rétt til
kynna um fjölda einstaklinga sem
leita til stofnananna. allmikið sé
þar um sömu einstaklingana að
ræða.
Til meðferðarstofnana ríkisins
leituðu 1.108, þ.e. 736 á deild 10 á
Kleppsspítala, 229 til Vistheimilis-
ins á Vífilsstöðum og 143 á Gæslu-
vistarhælið í Gunnarsholti. Viðtöl
við lækna á göngudeild Landspítal-
ans voru 3.826. Tólf hundruð komu
á Silungapoll og 330 á Sogn,
stöðvar SÁÁ, 69 voru á vegum Bláa
bandsins í Víðinesi og 221 á vegum
Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti.
Vistheimilið að Vífilsstöðum og
endurhæfingarheimilið að Sogni
eru stofnanir, sem með margþættri
eftirmeðferð hjálpa þeim, sem háð-
ir hafa verið vímuefnum, til að
vinna bug á vandanum. Þar dvöld-
ust alls 559. Gunnarsholt og Víði-
nes eru stofnanir til lengri dvalar
og byggir meðferð þar fyrst og
fremst á vinnu og vernd í áfengis-
lausu umhverfi og veitt er fræðsla.
Stefnt er að því að búa Víðines
aðallega sem samastaö fyrir aldr-
aða, er átt hafa við vímuefna-
vandamál að stríða. Þar voru 212 á
síðasta ári. Til fræðslu- og leið-
beiningarstöðvar SÁÁ að Lágmúla
9 leituðu um 3.100 manns og
kringum 900 notfærðu sér síma-
x.
Mót íslenskra
hesta á Fjóni
DANSK Islandshesteforening
gengst dagana 1, —3. ágúst fyrir
landsmóti islenskra hesta í
óðinsvéum. Skipulagningu móts-
ins annast Skeifan. hestamanna-
félagið á Fjóni.
Skráð til mótsins eru 112 hross
og verður m.a. keppt í fjórgangi og
fimmgangi, tölti og hlýðni. Dansk
Islandshesteforening er þriðja
stærsta hestamannafélagið í Dan-
mörku.
kvöldþjónustu SAÁ, sem veitt er
kl. 17—23. Þá hafði SÁÁ samband
við nær 800 aðstandendur þeirra er
dvalið höfðu á sjúkrastofnunum,
kynningarfundi sóttu alls 567 og
230 tóku þátt í námskeiðum. Tii
áfengisvarnardeildar Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur leituðu 135
einstaklingar.
IANDSSTÆVNE&DM80
FOR ISI.ANDSKE HESTE
I' 2’ 'í'AUil VI l'KI) !)\HSK1 | HAItSIN (*»NSK
sífellt orðið mikilvægari þáttur í
atvinnustarfsemi á Höfn. Útgerð
allra báta frá Höfn er nú miðuð við
síldveiðar á haustin og lagt hefur
verið í verulega fjárfestingu í
vinnslustöðvum í landi til þess að
anna vinnslu aflans.
2. Á undanförnum 3—4 árum
hefur hlutdeild hringnótabáta í
heildarveiðinni sífellt vaxið og
finnst okkur nú eðlilegt að sú
aukning, sem ákveðin verður á
heildarveiðikvóta, komi til helm-
inga í hlut reknetabáta og hring-
nótarbáta.
an markað. Sölur á ferskri síld
erlendis gætu haft neikvæð áhrif á
afkomu vinnslustöðvanna og leitt
til alvarlegra rekstrarerfiðleika
þeirra og stofnað atvinnuöryggi
starfsmanna í hættu.
c) Siglingar munu leiða til af-
gerandi misræmis í afkomumögu-
leikum útgerðar og sjómanna á
bátaflotanum og því hæpið að veita
einni gerð veiðiskipa heimild til
siglinga með afla, sem valdið getur
beint og óbeint lækkun á þeim
verðum, sem unnt er að greiða fyrir
hráefnið hér heima.
Náttúrulækningafélag íslands:
Heilsuhælið í Hvera-
gerði 25 ára
Náttúrulækningafélag íslands
efndi til blaóamannafundar í
tilefni þess að 24. júli næstkom-
andi eru 25 ár liðin síðan Heilsu-
hælið í Hveragcrði var opnað.
Ilafist var handa um byggingu
hælisins árið 1953 en fyrsti
áfanginn tekinn i notkun þann
24. júlí 1955. Fyrsti læknir hadis-
ins og aðalhvatamaður að hygg-
ingu þess. var Jónas Kristjáns-
son. Hælið rúmar nú um 150
vistmenn og eru þar aðallcga
gigtarsjúklingar. t tengslum við
stofnunina er rckin garðyrkju-
stöð sem sér því að mestu leyti
fyrir nýju grænmeti. Fram-
kvæmdastjóri hælisins er Frið-
geir Ingimundarson og yfirlækn-
ir er ísak Ilallgrímsson.
í tilefni af afmælinu hefur
félagið ráðið til sín sænskan
matreiðslumann og mataræðissér-
fræðing, Juno Borensjö. Hann
mun m.a. halda matreiðslunám-
skeið fyrir almenning dagana
21,—24. júlí og 28.—30. júlí. Nám-
skeiðið verður á kvöldin milli kl.
20 og 23.
Tímaritið Heilsuvernd hefur
komið út á vegum N.L.F.Í. óslitið
síðan árið 1946. í tilefni af afmæl-
inu kemur tímaritið nú út í nýjum
búningi og er efni þess fjölbreytt-
ara en áður. Jóhannes Gíslason,
forseti Náttúrulækningafélags ís-
lands, hefur annast allt efni þessa
rits. I formála fyrir ritinu segir
m.a.: „I Heilsuvernd verður fram-
vegis fjallað að jöfnu um útivist-
armál, ræktunarmál, matreiðslu
og fæðu, náttúruvernd og annað
sem okkur þykir við hæfi hverju
sinni og við teljum að varpi ljósi á
umræður um heilbrigðismál."
Dagskrá Náttúrulækningafélags
íslands frá 17.7. til 31.7:
17.7. Erindi á Heilsuhælinu í
Hveragerði kl. 20.45: „Mataræði og
heilsa".
18.7. Vörukynning í matvörubúð
SS Austurveri, m.a. kynntir réttir
úr íslensku grænmeti.
20.7. Hlaðborð og erindi á mat-
stofu N.L.F.Í. kl. 16—18.
21.7. —26.7. Matreiðslunámskeið.
Þau fara fram kl. 20— 23 í mat-
stofu N.L.F.Í., Laugavegi 20 b.
27.7. Hlaðborð og erindi á mat-
stofu N.L.F.l.
28.7. —30.7. Matreiðslunámskeið.
31.7. Erindi á Heilsuhælinu í
Hveragerði.
Juno Borensjö, matreiðslumaður og Jóhannes Gislason. forseti
N.L.F.Í. Myndin er tekin á matstofunni, Laugavegi 20b.
Áfengissjúklingar:
Milli 2 og 3 þúsund inn-
lagnir á stofnanir 1979
Úr sumarferð Varðar í fyrra. þar sem ekið var um Borgarf jörð og Mýrar.
Sumarferð Yarðar
A SUNNUDAGINN kemur
verður farin hin árlega sumar-
ferð Landsmálafélagsins Varð-
ar. Að þessu sinni verður ekið
um Suðurland og haldið að
Hrauneyjafossvirkjun. sem er
þungamiðja ferðarinnar. Aðal-
fararstjóri verður hinn kunni
ferðagarpur Einar Guðjohnsen
og hefur hann gert leiðarlýs-
ingu vegna þessarar ferðar.
jafnframt þvi sem hann mun á
leiðinni fræða ferðalanga um
umhverfið, bæði sögulega og
landfræðilega. Morgunblaðið
hafði samband við Einar og bað
hann að gera i stuttu máli grein
fyrir tilhögun ferðarinnar.
Lagt verður af stað frá
Valhöll kl. 8 á sunnudagsmorgun
og ekið sem leið liggur yfir
Hellisheiði til Stokkseyrar, þar
sem morgunkaffi verður drukkið
við sjóvarnargarðana. Síðan
verður ekið austur að Þjórsá og
upp með henni, upp Skeiðin og
inn Þjórsárdal að Sögualdar-
bænum, sem reistur var til
minningar um 1100 ára byggð á
íslandi. Þar gefst tími til að
skoða húsakost og verður hádeg-
isverður snæddur þar. Að lokn-
um hádegisverði verður ekið sem
leið liggur framhjá Búrfells-
virkjun inn á hálendið og að
Framkvæmdir
við Hrauneyja-
fossvirkjun
skoðaðar
Hrauneyjafossvirkjun. Þar taka
staðarmenn á móti ferðalöngun-
um og lýsa þeim framkvæmdum,
sem í gangi eru við þetta nýja
orkuver. Síðan verður ekið að
Sigölduvirkjun, sem er um tíu
mínútna akstur í burtu, en
framkvæmdir við þá virkjun
voru skoðaðar í sumarferð Varð-
Einar Guðjohnsen. aðalfar-
arstjóri sumarferðarinnar.
ar 1976 og fá menn því nú aö líta
þetta mikla mannvirki fullgert.
Við að skoða bæði Sigölduvirkj-
un og framkvæmdirnar við
Hrauneyjafoss gefst gott tækif-
æri til að gera sér grein fyrir
hvernig slík orkuver verða til. í
Þóristungu er ráðgert að dvelja
um stund, svo að menn geti rétt
úr sér og fengið sér kaffisopa, en
síðan verður haldið áfram og
ekið í Galtalækjarskóg, þar sem
síðasta áning dagsins er og
kvöldverður verður fram borinn
í fögru umhverfi í næsta nágr-
enni
Heklu. Að kvöldverði loknum
verður haldið til Reykjavíkur og
áætlað að koma þangað um kl.
20. Einar lagði að lokum áherzlu
á, að fólk kæmi vel skóað og
klæddi sig í samræmi við veður-
útlit.
Forsala farmiða er þegar haf-
in í Valhöll við Háaleitisbraut og
verður fimmtudag og föstudag
frá kl. 9—9 og á laugardaginn
frá kl. 1—5. Ennfremur er tekið
á móti pöntunum í síma 82900.
Innifalið í verði farmiða er
hádegis- og kvöldverður, en gert
er ráð fyrir að fólk hafi með sér
kaffi og morgunverð. Þetta er 27.
sumarferð Varðar, en formaður
ferðanefndar er Óskar Friðriks-
son.