Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 Illa grundud afstaða I Fátt er aumlegra en tilbreyt- ingarlaust og vanabundið pólitískt vafstur. Hitt er þó sýnu verra, þegar stjórnmálamenn grípa til aðgerða í því skyni að brjótast út úr tilbreytingarleysinu og halda sig vera að vinna pólitískt þrek- virki sjálfum sér og flokki sinum til framdráttar en eru í raun að fremja hin verstu afglöp til skaða og skammar fyrir sig og sína. Ein slík uppákoma hefur nýlega gerst í borgarráði Reykjavíkjur og það fyrir allra augum. Vegna fréttar í Morgunblaðinu á sunnu- dag má ég til með að biðja ritstjórn blaðsins að birta þessa grein mína til skýringar, þar sem ég á hlut að málinu. Fréttin er vægast sagt mjög villandi og því nauðsynlegt að koma réttum efn- isatriðum á framfæri við almenn- ing. II Á fundi borgarráðs Reykjavíkur 12. sept. 1978 var ég skipaður til að vera fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís- lands, en borgin er rekstraraðili hljómsveitarinnar ásamt með rík- inu og Ríkisútvarpinu. Án nokk- urs, skriflegs samkomulags hefur Reykjavíkurborg greitt 21,4% af þeim tilkostnaði við hljómsveit- ina, sem ekki fæst uppi borinn af eigin tekjum hennar, og það allar götur síðan 1950. Helgast þessi fjárhagsstuðningur Reykjavíkur við Sinfóníuhljómsveitina einkum af því að hljómsveitin er hér staðsett, reglubundnir áskriftar- tónleikar hennar fara hér fram, sem auðveldar Reykvíkingum framar öðrum landsmönnum að sækja þá, og svo af hinu, að hljómsveitin er orðin ríkur þáttur í tónlistarlífi höfuðborgarinnar og suðlar mjög að því yfirbragði menningar og lista sem Reykja- víkurborg hefur. Þó held ég, að þessi fjárhagsstuðningur borgar- innar við hljómsveitina helgist mest af þeirri sögulegu staðreynd, að án atbeina forráðamanna Reykjavíkur á sínum tíma og myndarlegs framlags borgarinnar hefði Sinfóníuhljómsveit íslands ekki orðið til, alla vega væri hún ekki orðin eins gömul og hún er nú. Ég vona, að ég halli ekki á neinn, þótt ég feðri Sinfóníu- hljómsveitina á þennan hátt. Þátttaka Ríkisútvarpsins á kostnaði við Sinfóníuhljómsveit- ina er 28% og svarar það nokkurn veginn til þess, að útvarpið kaupi hljómlistarefni það til flutnings á markaðsverði, sem hljómsveitin framleiðir á tónleikum og á sér- stökum upptökum. Ríkið greiðir svo 50,6% kostnað- arins og verður að skoðast sem framlag þess til menningar og lista í landinu. 111 í vetur hafi Sinfóníuhljómsveit Islands starfað í 30 ár og gegnir furðu, að starfsemi hljómsveitar- innar á sér enn ekki lagagrund- völl, eins og hún er ríkur þáttur í menningarstarfsemi hérlendis og eins og kostnaðurinn við hana er stór, skiptir nú hundruðum millj- óna króna. Allar tilraunir til að koma fram á Alþingi lögum um hljómsveitina hafa farið út um þúfur til þessa. Sérstaklega er þetta bagalegt varðandi alla stjórnun og hlutverk hljómsveit- arinnar og tengsl hennar við tónlistarkennsiuna í landinu, en nauðsynlegt er að ráða þessu til lykta með lögum, ef vel á að vera. Afstaða manna til Sinfóníu- hljómsveitarinnar fer ekki eftir flokkspólitískum skoðunum. Ég man það fyrir um 30 árum, þegar ég og Katrín Thoroddsen stóðum í bæjarstjórninni með Gunnari Thoroddsen borgarstjóra að fjár- framlagi á fjárhagsáætlun á fyrstu árum hljómsveitarinnar, þegar Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði í málinu. Allir merkustu hljómlistarmenn þjóðarinnar hafa staðið að baki Sinfóníuhljómsveit- arinnar þessa 3 áratugi og séð i henni máttugan og ómissandi bak- hjarl tónlistarlífsins í landinu. Brautryðjendur hafa lagt mjög mikið og óeigingjarnt starf fram í þágu hljómsveitarinnar og bjarg- að því að menn misstu ekki móðinn. Óþarfi er að nefna nokkur nöfn. í hópi andstæðinga Sinfóníu- hljómsveitarinnar eru menn, sem telja æðri tónlist hreint gaul, sem megi missa sig, og er það skoðun útaf fyrir sig. Þeir sjá ekki hin lífrænu tengsl milli tónlistar og annarra listrænna tjáningar- forma og kunna ekki að meta gildi tónlistar fyrir andlega velferð mannsins. En verstir eru þeir í þessum hópi, sem í orði kveðnu telja gott að hafa Sinfóníuhljóm- sveit en sjá raunar eftir öllum peningum til hennar, og ef þeir eru í áhrifastöðu, reyna að þrengja kosti hennar sem mest þeir geta og bera við sparnaði og ráðdeild í meðferð opinbers fjár. Árum saman neitaði fjárveitinga- nefnd Alþingis að taka 9 starfs- gildi í hljómsveitinni á fjárlög en jafnoft var þessum hljóðfæraleik- urum greitt með aukafjárveiting- um, því annars hefði Sinfóníu- hijómsveitin lognast út af. Frægt er tilsvarið, þegar rætt var um iágmarksfjölda hljómlistarmanna í Sinfóníuhljómsveitinni: Af hverju geta þeir ekki verið færri og hver um sig spilað á fleiri hljóðfæri. Forveri minn í stjórn Sinfóníu- hljómsveitarinnar á vegum Reykjavíkurborgar var Ólafur B. Thors og studdi hann hljómsveit- ina með ráðum og dáð. Birgir ísl. Gunnarsson hefur ætíð verið mik- ill velunnari hljómsveitarinnar og reynst öflugur stuðningsmaður hennar. Þegar Birgir ísleifur nú bregður sér til Kína sest varamað- ur hans, Davíð Oddsson, í sæti hans í borgarráði. Varamaðurinn er jafnframt nýtekinn við öðru starfi af Birgi ísleifi en það er sjálft leiðtogastarf fyrir íhalds- mönnum í borgarstjórn. En Björgvin Guðmundsson brá sér líka til Kína og Sjöfn Sigurbjörns- dóttir kom inn í borgarráð sem varamaður hans. Og þá voru komin samtímis í borgarráð hin frægu pólitísku skötuhjú úr menn- ingarbyltingunni að Kjarvals- stöðum og hlaut nú að draga til einhverra tíðinda. Sjöfn missir jafnan fótanna þegar Davíð er annars vegar og gleymir umsvifa- laust öllum skuldbindingum sam- kvæmt gerðum samstarfssamn- ingi um stjórn borgarinnar. Nú kom kærkomið tækifæri aftur á sviði menningar og lista. Brugðið skyldi fæti fyrir Sinfóníuhljóm- sveitina og segir nú af því. V Svo vildi til fyrir nokkrum mánuðum, að hljómsveitinni bár- ust vináttuboð um tónlistarflutn- ing erlendis. Annað boðið er frá Austurríki. Tónlistarsamtök þar í landi bjóða hljómsveitinni að halda hljóm- leika þar ásamt öðrum hljómsveit- um af sérstöku tilefni. Okkur í stjórninni er það ljóst, að þetta boð er ekki síst ger í virðingar- skyni við Pál P. Pálsson, sem um árabil hefur verið fastur stjórn- andi hljómsveitarinnar, en hann er Austurríkismaður að þjóðerni. Sérstaklega var beðið um að Manuela Wiesler, léki einleik á flautu með hljómsveitinni, en hún er einnig austurrísk að þjóðerni og gift íslenskum hljómlistarmanni í hljómsveitinni. Austurríkismenn- irnir kosta ekki flugferðirnar heldur allt uppihald í Austurríki þá daga, sem hljómleikar eru haldnir, en þeir eru 5. Hitt boðið er frá Vestur Þýska- landi. í maímánuði 1981 ætla þeir í Hessenríki að halda listahátíð í Wiesbaden og bjóða okkur að vera 'með. Þar verður listafólk frá öllum hinum Norðurlöndunum. Listahátíðin í Wiesbaden býðst til, Ingi R. Helgason. að greiða helming alls kostnaðar við þátttöku okkar, þ.m.t. flug- ferðir. VI Sinfóníuhljómsveit íslands er býsna góð hljómsveit og ber tón- listaráhuga og tónlistarlífi þjóðar- innar fagurt vitni. Þetta er ekki bara skoðun mín heldur fjöl- margra erlendra hljómlistar- manna, sem ég hef átt kost á að ræða við. Ég hef heyrt marktækan erlendan hljómsveitarstjóra segja, að þegar hljómsveitin sé vel upp lögð og leggi sig fram, þá sé hún stórkostlegt. Forvígismenn tón- listarmála í löndunum í kringum okkur þekkja vel til þessarar litlu Sinfóníuhljómsveitar í Reykjavík. Það er engum vafa undirorpið, að það er orðsporið, sem er þess valdandi, að hljómsveitinni er boðið á listahátíðir í þessum mússíklöndum og að í boðunum er fólgin viðurkenning á öllu okkar striti í 30 ár og því gæðastigi, sem við höfum náð. Einu sinni hefur hljómsveitin farið utan áður til hljómleika- halds en það var undir öðrum formerkjum. Farið var til Færeyja í september 1977 og leikið við ógleymanlegar undirtektir, en þá var það hljómlistarfólkið sjálft og Félag íslenskra hljóðfæraleikara, sem borgaði ferðakostnaðinn og Færeyingar allt uppihald í Fær- eyjum. Þegar við í stjórninni sáum, að þessi ferðalög til Austurríkis og Þýskalands væri hægt að sameina í eitt og stórlækka kostnaðinn fórum við að hugsa alvarlega um málið og starfsfólk hljómsveitar- innar sýndi þessu mikinn áhuga. Hljómleikahald hljómsveitar- innar erlendis er ekki samkeppni en það er þó kynning á því, hvers við erum megnugir. Allir áhugamenn um hljómsveitina, sem ég talaði við, töldu hana myndu verða íslandi til sóma og hafa ómetanleg áhrif til styrktar og eflingar sjálfstrausts þeirra, sem í henni starfa. Ég var því sjálfur ekki í vafa um hvað gera ætti. En hlutverk hljómsveitarinnar er hins vegar ekki að leika erlendis og ég taldi mig því ekki hafa umboð til að skrifa upp á þessa ferðareikninga eins og t.d. ferðalög til ísafjarðar og Akureyrar. Okkur stjórnar- mönnum er því Ijóst, að rekstrar- aðilar hljómsveitarinnar yrðu að samþykkja þetta sérstaklega. VII í kringum 30 ára afmæli hljómsveitarinnar í vetur talaði ég um þessi mál við menntamálaráð- herra, Ingvar Gíslason, og forseta borgarstjórnar, Sigurjón Péturs- son. Ég taldi, að skoða mætti það sem verðuga afmælisgjöf til hljómsveitarinnar að stuðla að því, að hún gæti tekist þessa hljómleikaför á hendur. Báðir tóku þeir mjög vel í málið. Það er rétt að geta þess, að menntamála- ráðherra hefur nú fyrir sitt leyti samþykkkt það. Það var fastmælum bundið milli okkar Sigurjóns, að þegar endan- leg kostnaðaráætlun lægi fyrir, kæmi ég á fund borgarráðs og kynnti málið þar. Þetta gerði ég hinn 1. júlí s.l. Sigurjón var þá erlendis, svo að ég hringdi til borgarstjóra, Egils Skúla Ingibergssonar, um morg- uninn þann dag og tjáði honum stuttlega málavexti; sagði honum, að nauðsynlegt væri að afgreiða málið hið fyrsta vegna undirbún- ings ytra, og óskaði eftir að fá að koma á borgarráðsfund með mál- ið. Borgarstjóri var þá á fundi til undirbúnings borgarráðsfundi þennan sama dag, bað mig að bíða augnablik, en kom svo í símann aftur og boðaði mig á fundinn milli kr. 13 og 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.