Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 3

Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1980_3 Niðurgreiðslur eru ekki baráttutæki gegn verðbólgu VEGNA yfirlýsinga Ragnars Arnalds íjármálaráðherra i Morgunblaðinu í gær sneri blað- ið sér til Geirs Hallgrímssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og spurði hvert álit hans væri á þeirri aukningu niðurgreiðslna. sem fjármálaráðherra nú boð- aði. „Ég tel niðurgreiðslur ekki þjóna þeim tilgangi að vera baráttutæki gegn verðbólgunni," sagði Geir Hallgrímsson. „I raun hafa niðurgreiðslur verið notaðar af Alþýðubandalaginu í vinstri stjórn til að koma aftan að launþegum og gera tilraun til að blekkja þá. Nú er gert ráð fyrir ,að niðurgreiðslur að upphæð 24 milljarðar króna lækki fram- færsluvísitöluna um 6 prósentu- stig miðað við heilt ár og væntan- lega verðbætur um líkt hlutfall. Það sjá allir að sex prósentustiga lækkun á launakostnaöi i landinu segir lítið, þegar launakostnaður og framfærsluvísitala hækka um 10—14% ársfjórðungslega og — segir Geir Hall- grímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins verðbólgan er 60—70% á ári. Sú aukning niðurgreiðslna, sem Ragnar Arnalds boðar og á að kosta um tvo milljarða króna að hans sögn, nægir ekki einu sinni til að greiða framfærsluvísitöl- una niður um eitt prósentustig. Til dæmis ef miðað er við kartöflu- verð, þá kostar hvert niður- greiðslustig 2.8 milljarða á ári. í fersku minni er, að vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar var mynduð í september 1978 með það markmið að greiða niður 10 stig í framfærsluvísitölu með niðurgreiðslum á landbúnaðaraf- urðum og átti það að eiga sér stað í tveim áföngum í september og aftur 1. desember. Það var ekki langt liðið á árið 1979 þegar ljóst var að fjárhagur ríkissjóðs þoldi ekki slík útgjöld, sem niður- greiðslunum voru samfara og þá var dregið úr þeim. í Ólafslögum var beinlínis gert ráð fyrir að niðurgreiðslur yrðu aldrei meiri en sá mismunur sem væri á því verði sem neytendur greiddu fyrir vöruna og því verði sem bændur fengju. Þegar haft er í huga, að Gunnar Thoroddsen lýsti því yfir í grein í Morgunblaðinu 28 . nóvember sl. að niðurgreiðslur væru þegar orðnar alltof háar og þær bæri að lækka, þá skýtur nú skökku við, ef bjargráðið felst í hækkun niðurgreiðslna. Sann- leikurinn er sá, að ef halda á sama hlutfalli niðurgreiðslna af útsöluverði landbúnaðarvara eins og tekið er fram í málefnasamn- ingi stjórnarinnar þá kostar það sífellt meira í niðurgreiðslum og því gerir sú aukning, sem Ragnar Arnalds boðar ekkert frekara gagn í baráttunni gegn verðbólg- Geir Hallgrimsson unni, en gerir vandamálið aftur á móti flóknara. Það er líka ljóst að hér eru menn að reisa sér aftur hurðarás um öxl. Skákað er í því skjóli að það kosti minna að hafa áhrif á framfærsluvísitöluna það sem eftir er ársins, en þegar miðað er við heilt ár. Þá er það væntanlega gert vegna þess að Ragnar Arn- alds er úrkula vonar að vera fjármálaráðherra nema til ára- móta og telur sig ekki þurfa að horfast í augu við þann vanda að afla fjár til svo mikilla niður- greiðslna, sem þarf til að halda sama niðurgreiðslustigi allt næsta ár og ráðgert er seinni hluta þessa árs. Eða þá að meiningin er að nýr vísitölu- grundvöllur í kjölfar neyzlu- könnunar undanfarin misseri yrði til þess að í framtíðinni yrðu landbúnaðarvörur minni þáttur í útgjöldum visitölufjölskyldunnar og þá yrði unnt að lækka niður- greiðslur án þess að framfærslu- vísitalan hækkaði samsvarandi. Hér er allt á sömu bókina lært eins og venja er hjá alþýðubanda- lagsmönnum þegar þeir eru í stjórn, að umhyggjan og smjaðrið fyrir hagsmunum launþega er að vísu haft í fyrirrúmi í orði en blekkingarnar og svikin á borði." Frystur karfi til Nígeríu? NÍGERlUMAÐURINN chief N.C.O Ibru, sem dvaldi siðasta sólarhring á íslandi. átti meðal annars viðræður við Sölumiöstöð hraðfrystihúsanna um hugsanleg kaup á frystum karfa til Nigeriu. Ibru lýsti áhuga sinum á kaupum á frystum karfa. auk þess að rætt var um skreiðarsölu og sölu á lýsi til Nígeríu. Chief N.C.O. Ibru kom hingað á vegum Lýsis hf., en það fyrirtæki kannar nú markaðsmöguleika á lýsi til Nígeríu. Fyrirtækið flutti lýsi til Nígeríu fyrir borgarastyrjöldina þar en sú sala féll alveg niður í stríðinu og hefur legið niðri síðan. Chief N.C.O. Ibru átti viðræður við embættismenn í viðskiptaráðuneyt- inu, Landsbanka íslands, Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna auk for- ráðamanna Lýsis hf. Að sögn Jóns Ármanns Héðinssonar hjá Lýsi hf., er chief N.C.O. Ibru, umsvifamikill kaupsýslumaður í Nígeríu, og vill hann freista þess að ná beinum og milliliðalausum viðskiptum við ís- lendinga. Ibru er brautryðjandi í kaupum á frystum fiski til Nígeríu. Hann á mörg kaupskip, 2 stórar einkahafnir í Nígeríu, 4 fljótaskip, kæligeymslur, bæði við hafnar- bakka og eins inni í landi, auk ýmissa verzlunarfyrirtækja. Ibru er aðaleigandi og stjórnandi Ibru Organizations í Nígeríu. Á næstu vikum ætti að skýrast árangur af för hans hingað, en að sögn Jóns Ármanns er ekki hægt á þessu stigi málsins að segja til um árangur af komu Ibru hingað til lands. Viöskiptaráðherra: „Fyrirtækin sóttu um 9% og ég samþykkti það44 ÞESSI fyrirtæki sóttu um að fá að hækka að 9% markinu og ég samþykkti það, sagði Tómas Árnason viðskiptaráðherra i gær, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hafa steypustöðvarnar, kvikmynda- Gekkst undir þriðju höfuðaðgerðina LÍÐAN mannsins. sem slasaðist i umferðarslysi á Vesturlandsvegi á mánudaginn var óbreytt þegar Mbl. hafði siðast fréttir í gær. Hann er enn mjög þungt haldinn og gékkst i gærmorgun undir þriðju höfuðaðgerðina á Borgar- spitalanum. Parinu, sem slasaðist mikið í árekstri við Miklatorg sama dag leið eftir atvikum vel í gær. Stúlkan hefur nú verið flutt af gjörgæzlu- deild Borgarspítalans en pilturinn liggur þar enn. húsin og Ora hækkað framleiðslu sína og þjónustu um 9%. Umrædd fyrirtæki höfðu fengið samþykktar 10—12% hækkanir í Verðlagsráði en ríkisstjórnin synjaði um svo miklar hækkanir 9g vildi ekki heimila meira en 9%. í saniræmi við það hækkuðu Flugleiðir fargjöld sem því nam og fyrrnefnd fyrirtæki fylgdu í kjöl- farið. Við það var miðað að heimila ekki meiri hækkanir en 7% 1. ágúst en það mark hefur verið hækkað upp í 9%, sagði Tómas Árnason. 1NNLEN1T „DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og: * „Hermetisk" frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst. * -Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun. * Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið. * Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum. * Sérstakt djúpfrystihólf er í „DERBY“, þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni. Þetta hraðar.djúpfrystingunni og sparar rafmagn. * Einangrunin er hið viðurkennda „Pelyuretan" frauðplast. * í „DERBY" frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka. FÁLKINN SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.