Morgunblaðið - 17.07.1980, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980
Saudi-Arabar
hjálparþurfi
London. 16. júní. AP.
PAKISTANAR munu bráftleKa
senda tvœr herdeildir til Saudi-
Arabíu, til verndar konuníjs-
fjólskyldunni þar ge«n fjölda-
hreyfintíu. sem söfíð er ó«na
þarlendum yfirvöldum. að þvi er
dagblað í I.ondon. sem skrifað er
á „urdu“. máli Pakistana. fullyrti
í dají.
f*
ti
Biðröð
í bjórinn
í Kína
IVkinK. lfi. júlí. AI’.
MIKIL bjórþurrð er í Kína
um þessar mundir. I Shanxhai
er ástandið til að mynda það
slæmt. að ýmsir tækiíæris-
sinnar hafa Kripið til þess
ráðs að braska með bjór. og
sumar verzlanir selja við-
skiptavinum ekki bjór nema
þeir kaupi aðra vöru fyrst. t.d.
DrekavindlinKana grænleitu.
Gripið hefur verið til bjór-
skömmtunar þar sem bruK(?hús
hafa ekki undan að framleiða
upp í eftirspurnina, sem alla
jafnan er meiri að sumri en
vetri. Víða í Peking gefur að
iíta tilkynningar í búðum að
þar sé engan bjór að hafa.
Þegar von er á bjórflutninga-
bifreið myndast langar biðrað-
ir við útsölustaði.
Eitt af blöðum Pekingborgar
hefur hvatt til þess að gripið
verði til sérstakra neyðarúr-
ræða til að auka bjórfram-
leiðsluna.
Blaðið sagði, að þingið í Pakist-
an hefði samþykkt að verða við
hjálparbeiðninni, en ekki væri
vitað hve mikið Saudi-Arabar
ætluðu að greiða fyrir aðstoðina.
Hreyfingin er sögð tengjast
trúarhópi Shiita, en 2—300 menn
úr trúflokknum tóku á sitt vald
moskuna í Mekka fyrir u.þ.b. ári
en voru hraktir þaðan út.
Skæruliðar
aðþrengdir
Kampútseu. 16. júli. AP.
SKÆRULIÐAR Pol Pots. Rauðu
khmerarnir, viðurkenndu í dag.
að þeir væru aðþrengdir. eftir
árásir víetnamskra hermanna á
fjallavígi þeirra nála'gt thai-
lensku landamærunum.
Kambódískur skæruliði sagði,
að Víetnamar hefðu náð á sitt vald
mikilvægri brú, á leiðijni til stöð-
va Rauðu khmeranna, en skæru-
liðarnir hefðu nú skipt sér upp í
litlar fylkingar, til þess að geta
gert skyndiárásir á víetnamskan
liðsöfnuð.
Frá öðrum stað i Kampútseu
bárust fréttir af miklum matvæla-
skorti, og sagði læknir, sem þar
var staddur, að mikil hætta væri á
hungurdauða á svæðinu.
Rauði krossinn hætti að senda
matvæli til héraða, sem enn eru á
valdi Rauðu khmeranna, vegna
þess að talið var að skæruliðarnir
rændu meirihluta birgðanna.
Enn hrakar
keisaranum
New York. 15. júli. AP.
HIÐ hálfopinbera blað í Kairó. Al
Ahram. sagði i dag. að heilsu
fyrrum íranskeisara hefði enn einu
sinni hrakað skyndilega i gær-
kvöldi. Líkamshiti keisara steig
skyndilega i rúmar 39 gráður á
Celcius og mætti taka það sem
vísbendingu um nýja kvilla.
Talsmaður keisara vísaði fregnun-
um á bug, en bandarískur ráðgjafi
keisara, sagði í viðtali við banda-
ríska sjónvarpsstöð, að hin nýju
veikindi gætu haft alvarleg áhrif á
sýkingu á fæti keisarans. Hins vegar
væri tæpast ástæða til að óttast, að
keisarinn ætti skammt ólifað.
Sovésku fyrirtæki
bægt frá flotastöð
SOVÉSKU fyrirtæki hefur verið bægt frá höfninni í Zeebriigge,
þar sem Belgar og NATO hafa hernaðarlega mikilvæga flotastöð,
að því er segir í tilkynningu frá belgisku stjórninni í dag. Fulltrúi
stjórnarinnar sagði. að gripið hefði verið til þessa vegna hættu á
njósnastarfsemi Rússa i höfninni.
Flotastöðin í Zeebrúgge er smiðju, en fyrirtækið á nú þegar
hernaðarlega mjög mikilvæg og stóra verksmiðju í Antwerpen.
hergagnaflutningar til Atlants- Hafnaryfirvöld í Zeebrúgge
hafsbandalagsins fara að mestu lýstu yfir óánægju sinni með
leyti um höfnina þar. þessa ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar, en íbúar Zeebrúgge hafa
Fyrirtækið, sem framleiðir reynt að laða að sér sovésk
reipi og kaðla, hafði óskað eftir fyrirtæki, sem sýnt hafa borg-
10 hektara landsvæði við höfn- inni aukinn áhuga upp á síðkast-
ina til þess að byggja kaðlaverk- jð,_
Samaranch kosinn
forseti OL-nefndar
Moskva. lfi. júli. AP.
JUAN Antonio Samaranch frá
Spáni var I dag kjörinn forseti
Alþjóða ólympiunefndarinnar og
mun hann taka við embættinu af
Lord Killanin þegar Ólympíu-
leikunum lýkur i sumar.
Samaranch vann hreinan meiri-
hluta í fyrstu umferð kosninganna
og talið er að 75 af 85 meðlimum
nefndarinnar hafi verið viðstaddir
kjörið.
Samkvæmt venju var kosning
leynileg og engar tölur voru gefn-
ar upp í lokin.
Samaranch er tæplega sextugur
og hefur verið sendiherra Spánar í
Sovétríkjunum síðan 1977. Hann
var kosinn í Alþjóða ólympíu-
nefndina 1966 og tók strax virkan
þátt í stjórn ólympíuhreyfingar-
innar.
Landsþing repúblikana
Simamynd-AP.
GERALI) FORD fyrrum Bandaríkjaforseti (tv) og Ronald Reagan forsetaefni Repúblikanaflokks-
ins skrafa saman í Detroit þar sem landsþing repúblikana stendur yfir.
Ihaldssöm stefnu-
skrá samþykkt
Frá önnu Bjarnadóttur fróttaritara Mbl.
LANDSÞING Repúblikana-
flokksins samþykkti i gær nýja
stefnuskrá flokksins, sem er sú
lengsta i sögu nokkurs banda-
risks stjórnmálaflokks. Stefna
flokksins nú er ihaldssamari en
hún hefur verið lengi. Ronald
Rcagan, sem hlýtur útnefningu
flokksins i kvöld er ánægður
með hana en demókratar eiga
væntanlega eftir að gagnrýna
margt i henni á næstu mánuð-
um.
Repúblikanar lofa í stefnu-
skránni að vinna að endurreisn
efnahagslífs í Bandaríkjunum,
enduruppbyggingu varnarmála
þannig að Bandaríkin hafi aftur
yfirburði á sviði hernaðarmála í
heiminum og rannsóknum í
orkumálum. Eining ríkir í
flokknum um þennan hluta
stefnuskrárinnar, en nokkur
óánægja rtkir meðal frjálslynd-
ari flokksmanna með þá stefnu,
að aðeins þeir, sem eru á móti
fóstureyðingum, verði skipaðir
dómarar og andstöðu flokksins
við breytingartillögu við stjórn-
arskrána varðandi jafnrétti
kynjanna. Margir óttast að sú
stefna flokksins geti kostað
hann mikið fylgi en hugga sig
við að kosningarnar muni líklega
snúast um efnahagsmál fyrst og
fremst, og þar standa demókrat-
ar illa að vígi.
Carter gagnrýnd-
ur harðlega
Ræðumenn þingsins á þriðju-
dagskvöld, sem voru meðal ann-
arra John J. Rodes, leiðtogi
minnihlutans í fulltrúadeild
bandaríska þingsins, Barry M.
Goldwater, öldungadeildarþing-
maður frá Arizona, John B.
Connally, fv. ríkisstjóri Texas,
Jack Kemp, fulltrúadeilarþing-
maður frá New York og Henry
A. Kissinger, fv. utanríkisráð-
herra, gagnrýndu allir Jimmy
Carter forseta harðlega. Rhodes
sagði að Carter notaði sér gísl-
ana í Iran í pólitískum tilgangi
annars eru gíslarnir nefndir
furðu sjaldan á þinginu og nokk-
ur skyldmenni þeirra hafa gagn-
rýnt báða stjórnmálaflokkana
fyrir að hafa lagt baráttuna
fyrir lausn þeirra á hilluna.
Goldwater var fagnað ákaf-
lega. Hann tapaði forsetakosn-
ingunum 1964 fyrir Lyndon B.
Johnson með miklum mun at-
kvæða og var íhaldssömum skoð-
unum hans kennt þar um. í gær
var hann kallaður einn merkasti
.cpúblikani aldarinnar og þess
óskað, að hægt væri að hverfa
aftur til 1964 og heyja baráttuna
að nýju.
Connally, sem sóttist eftir
forsetaútnefningu flokksins í
byrjun forkosningabaráttunnar,
sagði að þjóðin þarfnaðist Reag-
ans sem forseta. Hann var í
bílnum með John F. Kennedy,
þegar Kennedy var myrtur í
Dallas, Texas. A þriðjudagskvöld
notaði hann setningar úr for-
kosningabaráttu Edwards Ken-
nedys gegn Carter og sagðist
vera sammála Kennedy um, að
nýr forseti verði að taka við
stjórn landsins.
Kissinger var tekið kurteis-
lega, en ekki með neinum ósköp-
um. Hægri vængur flokksins
kennir honum að miklu leyti um
afturför varnarmála Bandaríkj-
anna undanfarin ár, þeir gagn-
rýna detente-stefnu hans, afdrif
Víetnamstríðsins undir stjórn-
arsetu hans og svo mætti lengi
telja, en ræða hans á þriðjudag
var mjög harðorð í garð Carters,
og hann sagði, að kjör Reagans
myndi setja enda á rugling,
samdrátt og veikleika í utanrík-
ismálum þjóðarinnar.
Ford, Bush, Kemp
Kemp, sem er einn þeirra, sem
Reagan gæti kosið sem varafor-
setaefni sitt, ávarpaði þingið á
þriðjudag. Honum var tekið með
ærslum og látum, og ótrúlega
mörgum spjöldum með nöfnum
hans og Reagans var veifað, sem
sýndu mikinn stuðning við hann
sem varaforseta. Hann þykir
íhaldssamur, er annar höfunda
Kemp-Roth-tillögunnar í banda-
ríska þinginu um 30 prósent
lækkun tekjuskatta.
En í gær var Gerald Ford
aftur nefndur sem líklegasta
varaforsetaefni Reagans, þótt
Reagan og Ford neituðu því.
George Bush þykir enn einna
líklegastur til að verða fyrir
valinu, en hinir íhaldssamari í
flokknum eru ekki hrifnir af
honum og nefndu sjálfir Hesse
Helms, öldungadeildarþingmann
frá Norður-Karólínu, sem bezta
kostinn.
Guy Vaner Jagt, fulltrúadeild-
arþingmaður frá Michigan, sem
einnig hefur verið nefndur sem
hugsanlegt varaforsetaefni, átti
að flytja lykilræðu landsþings-
ins í gær. Henni var þó seinkað
um einn dag, því þegar aðrir
ræðumenn kvöldsins höfðu lokið
ræðum sínum, var klukkan orðin
margt og, eins og fundarstjóri
sagði, sjónvarpsáhorfendur
farnir að sofa og ekki þess virði
að flytja eina mikilvægustu
ræðu þingsins.
Samkvæmt síðustu frétta-
stofufregnum hófu ráðgjafar
Reagans í dag viðræður við
aðstoðarmenn Geralds Fords,
fyrrum forseta, með það að
markmiði að fá Ford til að ganga
til liðs við Reagan, en Ford hefur
lýst sig mótfallinn allri hlutdeild
í stjórnsýslunni. í gærkvöldi
áttu aðstoðarmenn Reagans og
Fords viðræður þar sem freista
átti þess að fá Ford til að gefa
kost á sér í embætti varaforseta.
Herma fregnir að flest hafi verið
lagt í sölurnar til að fá Ford til
að fallast á að verða varafor-
setaefni Reagans við forseta-
kosningarnar í nóvember næst-
komandi.
Nixon, fyrrum Bandaríkjafor-
seti, lýsti yfir stuðningi við
Reagan í dag, einkum hrósaði
Nixon afstöðu Reagans til ým-
issa málefna, sérstaklega á sviði
utanríkismála. Rómaði Nixon
framgöngu Reagans á erlendum
vettvangi.
Kissinger, fyrrum utanríkis-
ráðherra, lýsti í gær ánægju
sinni með utanríkisstefnu Reag-
ans, hún færi mjög að hans eigin
skoðunum. Kissinger þykir utan-
ríkisráðherraefni komist Reagan
í Hvíta húsið eftir kosningarnar
í haust.