Morgunblaðið - 17.07.1980, Síða 29

Morgunblaðið - 17.07.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 29 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF umsjón: Sighvatur Blöndahl „Húsgagnaverk- ef nið66 gengur vel „ÞAÐ ER óhætt að segja, að verkefnið sé vel á veg komið, “ sagði Ingjaidur Ilannibalsson, deildarstjóri tæknideildar Félags islenzkra iðnrekenda, er Mbl. innti hann eftir þvi hvernig gengi með hið svokallaða „Hús- gagnaverkefni“, sem verið hefur i gangi á undanförnum mánuð- um. „Það er þegar búið að gera úttekt á 12 fyrirtækjum í iðn- greininni og fyrirtækin eru um þessar mundir að fá tillögur að breytingum á framleiðsluaðstöðu sinni og flest þeirra hafa þegar tjáð sig viljug að fara út í þessar breytingar, sem munu auka fram- leiðni þeirra töluvert," sagði Ingj- aldur ennfremur. Þá sagði Ingjaldur, að búið væri að halda fyrri hluta námskeiðs fyrir framleiðslustjóra og verk- stjóra, en síðari hluti námskeiðs: ins fer fram í næsta mánuði. í byrjun september er svo í bígerð að halda námskeið í markaðssetn- ingu, en það mun taka allan mánuðinn. í kjölfar þess verður svo væntanlega haldið námskeið í vöruþróun, en jafnhliða því er hugmyndin að hefja markvisst vöruþróunarstarf úti í fyrirtækj- unum sjálfum. Fréttir frá Sví- þjóð og Noregi INNFLUTNINGUR Norðmanna fyrstu fimm mánuði ársins var að verðmæti um 34 milljarðar norskra króna, eða sem næst 3400 milljörðum íslenzkra króna. Á sama tima í fyrra fluttu Norðmenn inn vörur fyrir tæp- lega 25 milljarða norskra króna, eða sem næst 2500 milljörðum islenzkra króna. Verðmæti útflutnings fyrstu fimm mánuðina nam hins vegar um 35,5 milljörðum norskra króna, eða sem næst 3550 millj- örðum íslenzkra króna. Á sama tíma árið áður var talan um 24 milljarðar norskra króna, eða sem næst 2400 milljörðum íslenzkra króna. Verðmæti Norðursjávarolíunn- ar fyrstu fimm mánuðina í út- flutningi var um 12 milljarðar norskra króna, eða sem næst 1200 milljörðum íslenzkra króna, en var á sama tíma í fyrra 4,6 milljarðar norskra króna, eða sem næst 460 milljörðum íslenzkra króna. Iðnaðar- framleiðsla Svía IÐNAÐARFRAMLEIÐSLA í Sví- þjóð óx um 6% fyrstu þrjá mánuði ársins, sé miðað við sama tímabil í fyrra. Langmest varð aukningin í pappírsiðnaðinum eða sem næst 29%. Þar hefur framleiðslan ekki aukist svo mikið til fjölda ára. Stálframleiðsla, sem hefur farið heldur halloka undanfarin mis- seri, rétti eilítið úr kútnum, en var aukningin um 2% miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti með kreditkort haf in Haraldur Ilaraldsson, stjórnarformaður Kreditkorta, verzlar hér fyrstur manna með kreditkorti i verzluninni Tékk-kristall. NÝR ÞÁTTUR í viðskiptalífi hér á landi hófst fyrir skömmu, en það var þegar viðskipti með íslenzka Eurocard kreditkortið hófust. Það var stjórnarformaður fyrir- tækisins Kredithort h.f., Haraldur Haraldsson, sem fyrstur verzlaði með íslenzka kreditkortinu í verzl- uninni Tékk-kristall. Kreditkort h.f. hefur gefið út handbók fyrir þá, sem fá Eurocard kreditkort, og eru þar skráð þau fyrirtæki sem eru í Eurocard þjónustunni, en það eru um 150 fyrirtæki í dag. TOYOTA Lokað vegna sumarleyfa frá 21.7-11.8. Olíuskipti og nauösynleg þjónusta viö nýjar bifreiðar verður þó veitt á verkstæöi umboðs- ins. TOYOTA umboðið NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI44144 Betrl gæðl — og fljótarl þjónusta -| það er elnkenni TOYOTA Auglýsing Nám í uppeldis- og kennslufrædum fyrir framhaldsskólakennara, sem annast verkgreinakennslu eöa starfa við sérskóla og fullnægja skilyröum laga nr. 51/1978 um embættisgengi kennara og skólastjóra að því er varöar menntun í kennslugreinum en skortir tilskilin próf í uppeldis- og kennslufræðum, verður í Kennaraháskóla íslands. í samræmi við 13. gr. laga nr. 51/1978 um embættisgengi kennara verður námið 30 námseiningar i og dreifist á tímabilið frá hausti 1980 til júlímánaðar 1982. Gert er ráð fyrir að námiö greinist á tímabiliö frá hausti 1980 til júlímánaðar 1982. Gert er ráð fyrir að námið greinist í tvennt og er annar hluti þess, sem merktur er með bókstafnum A, ætlaöur kennurum sem geta sótt nám reglulega að vetrinum, en hinn hlutinn, merktur bókstafnum B, er ætlaöur kennurum sem hafa búsetu svo fjarri Reykjavík að ekki verður við komið að sækja vikulega kennslu á starfstíma skólanna. Skipulag námsins er miöaö við það að kennarar sem sækja það geti stundað kennslu meðan á námi stendur. A-námskeiðið er ráögert aö hefjist 25. september 1980 með þriggja daga samfelldri kennslu, þ.e. kennt veröi fimmtudag, föstudag og laugardag. Síöan verði kenndar 8 stundir á viku í tvo vetur. Á mánudögum 3 stundir (kl. 15—18) og miövikudögum 5 stundir (kl. 13—18). Náminu lýkur meö 6 vikna kennslu vorið 1982. B-námskeiöiö er ráðgert aö hefjist meö 5 daga kennslu í janúar 1981 og því lýkur á sama tíma og A-námskeiöinu 1982. í grófum dráttum er kennslutíma og vinnu þátttakenda skipt sem hér segir: A-námskeið: 1. Haustnámskeið 25.-28. sept. 1980 2. Kennsla veturinn 1980—81 8 vst. í 25 vikur 3. Kennsla veturinn 1981—82 vst. í 25 vikur 4. Sumarnámskeiö 1982 6 vikurx30 vst. 5. Æfingakennsla 3x30 vst. 6. Heimaverkefni og ritgeröir. B-námskeið: 1. Námskeið íjanúar 1981 1 vika 2. Sumarnámskeið 1981 6 vikur 3. Námskeið haustið 1981 1 vika 4. Janúar 1982 1 vika 5. Sumarnámskeiö 1982 6 vikur 6. Heimaverkefni og ritgerðir 7. Æfingakennsla Umsóknir skal senda til verk- og tæknimenntunardeildar menntamálaráöuneytisins fyrir 15. ágúst næstkomandi á sérstökum umsóknareyöublöðum sem fást í ráöuneytinu og í Kennaraháskóla íslands. Kennaraháskóli íslands 15. júlí 1980 Rektor Lokaútsala allt á að seljast Fatnaður og vefnaðarvara á stórlækkuðu verði Dömu og herrabuxur frá kr. 8.900.- Barnabuxur frá kr. 4.900,- Sumarjakkar á dömur, herra og börn frá kr. 6.900.- Efni: Flauel, denim, poplín, flannel, fóöur o.fl., o.fl. Komið snemma og náið því besta. Verksmiðjusala Skipholti 7.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.