Morgunblaðið - 17.07.1980, Page 30

Morgunblaðið - 17.07.1980, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 Jón Þ. Árnason: bdð cr ábyrgðarhluti að leggja hendur í skaut, þegar eða þó að svo virðist. að í óefni sé komið. — Lífríki og lífshættir LII Lánardrottinn (Chalid Saudi-Arabíukonunnur) í liðskönnun hjá skuidunautum (i Bonn). Úr hugmyndaþoku í heimskreppu hafi skóglendi Norður-Ameríku minnkað um 60% sökum athafna og athafnaleysis íbúanna, með þeim afleiðingum, að 8% landsins sé skrælnað, 35% hálfskrælnað og að aðeins um 50% þess fái næga úrkomu. Röskum 30 árum eftir að fyrr- nefnd skýrsla var lögð fyrir Bandarikjaþing og næstum 10 árum eftir að Kennedy flutti því boðskap sinn, neyddist þáverandi forseti, Richard M. Nixon, til að játa frammi fyrir sömu sam- kundu: „Með því að loka augunum fyrir viðfangsefnum á sviði umhverf- ismála höfum við á hiðruleysis- legan hátt veitt þeim, sem veldur spjöllum og mengun, efnahags- legar ívilnanir á kostnað keppi- nautar, er hlýðir ábyrgðartilfinn- ingu sinni. Við höfum samþykkt lög, sem banna að meiða fólk og töskur fullar af rangsnúnum „efnahagslögmálum". Þessu hvimleiða fyrirbæri hefir aldrei komið til hugar að stjórn- mál væru og ættu að vera annað en fyrirgreiðslur og peningaþjark, stjórnmálamenn annað en greiða- salar og sjálfsafgreiðslumenn við almannasjóði. Við öðru er og naumast að búast. Engum „stjórnmálamanni" dytti í hug, jafnvel þótt kunnugt væri, að stofna afkomumöguleikum sínum í voða með því að viðurkenna þau augljósu sannindi í áheyrn at- kvæða sinna, að ekki getur verið um stjórnmál að ræða nema því aðeins að horfzt verði í augu við framtíðina á grundvelli fenginnar reynslu í ljósi áþreifanlegra við- fangsefna. í því felst t.d. í megindráttum: 1. að líta skuli á einstaklinginn og hann á sjálfan sig sem ábyrgan eyða áhrifum hinna mörgu, er telja sig kallaða. Ég á hér alveg sérstaklega við „stjórnmála- menn“, og helzt af þeim sökum, að þó að rangt væri að segja að skarinn væri eintómt miðjumoð — eins og v. Hayek hallast að — þá eru þeir flestir svo illa haldnir af atvinnusjúkdómi sínum, að þeim væri um megn að sjá og scgja sannleikann af því að blekk- ingin hefir dugað þeim of vel og lengi. Þeir eru a.m.k. að því leyti frábrugðnir diplómötum, sem — að sögn Charles Roux — „hætta að ljúga, þegar þeir verða þess varir, að sannleikurinn nægir." Nær víst má telja, að flest hugsandi fólk eigi auðvelt með að fallast á þá skoðun, að ef fram- angreind grundvallarsjónvarmið hefðu ríkt, þótt ekki væri lengur en undanfarna 3—4 áratugi, myndi manneskjan hafa verið Náttúruránskapur heldur áfram Atvinnusjúkdómur „stjórnmálamanna“ $300.000.000.000 í sandinn Ár og aldir, kynslóð eftir kyn- slóð hefir mannkynið stritað við að gera sér jörð og jarðlíf undir- gefið að gamlatestamentisku boði. Samtímis hefir því lánazt að skapa aðdáunarverða menningar- heima, sem það síðan hefir ýmist lagt í rúsir á ný eða ógnar með eyðingu vegna taumlausrar, mis- skilinnar metnaðargirndar og sjálfshyggjudrambs. Á yfirstandandi svonefndri framfara- eða velferðaröld lítur helzt út fyrir, að ekki aðeins afmörkuð mannlífssvæði séu á mörkum tvísýnnar tilvistarnauð- ar heldur náttúruríkið allt. Jafn- vel því, sem lengstum var talið sjálfsagt og sjálfgefið af sköpun- arinnar hálfu, stendur slík ógn af afrekum „framfara“ og „velferð- ar“, að m.a.s. léttúðarfyllstu hag- vaxtartrúboðar eru teknir að lækka róminn og læðast með veggjum. Andi „velferðar“ að verki Andrúmsloftið, meginorkugjafi alls, sem lifir, er nú víða orðið heilsuspillandi og lífshættulegt — og aðvaranir færustu vísinda- manna um yfirvofandi gjöreyð- ingu þess gerast æ tíðari og örvæntingarfyllri. Matvælin, hið daglega brauð, eitt höfuðskilyrða þess, að okkur auðnist fótavist og hreysti, er orðið grunsamlegt, þarfnast gaumgæfilegra rann- sókna og eftirlits og lagareglna til þess að hindra að það valdi heilsutjóni eða bráðum bana. Ár hvert glatast lífríkinu að fullu fjöldi dýrategunda, æðri sem lægri, er verða óseðjandi eyðslu- máttarkröfum fjöldans að bráð, alveg eins og ekkert lögmál sé í alheimi algildara en að verkalýðs- hreyfingin fái gætt sér á því á morgun, sem hún torgaði í gær; eða að kenningar markaðsmanna um verðlagsboðleiðir framboðs og eftirspurnar breyti ördeyðu í gróðamið. Náttúruránskapur er raunar engin nýjung. Hann hefir tíðkazt frá upphafi mannlífs og var reyndar lífsskilyrði um langan aldur. Um óratíma olli hann hins vegar sjaldnast óbætanlegu eða varanlegu tjóni þar eð viðnáms- og endurnýjunarþróttur náttúru- ríkisins reyndist nýtingarþörfum oftast ofjarl. Þá fyrst, þegar einstakir af- burðamenn höfðu í krafti and- legra og sálrænna yfirburða lagt lýðnum afrakstur uppgötvana- og uppfinningasnilli sinnar upp í hendurnar og kennt honum að vinna — og atkvæðakaupmenn að heimta — raskaðist valdmáttar- samræmi á milli manns og nátt- úru, sem hann er hluti af og ávallt háður, ekki síður en brjóstmylk- ingar mildri móður. En því gleymdi hann skyndilega. Manneskjan ofmetnaðist, hafn- aði gömlum dyggðum, neitaði að hlýða fyrirmælum fornra laga og lét anda sinn svífa lausbeizlaðan í tómarúmi tíðarandans. Hún tók trúna á, að Paradís væri ætlaður staður á jörðu — og hóf að grafa, höggva og brenna. Hamstolaherhlaupið hófst fyrir alvöru með Iðnbyltingunni. Á því hefir ekkert lát orðið síðan. Þvert á móti. Það hefir færzt í aukana. Og gerir í sífellu. Þegar skógar eyð- ast, skrælna lönd í nefndaráliti til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings árið 1939 segir m.a. á þessa leið: „Á hinni stuttu þjóðarævi okkar höfum við að miklu leyti eyðilagt 282.000.000 dagsláttur gróður- og beitilands. Af völdum uppblásturs fara dag- lega forgörðum jafngildi 200 40-dagslátta bújarða." Á aðeins um 150 ára búsetu í Bandaríkjun- um höfðu því 720.000 km2 eða 7,7% af núverandi flatarmáli landsins eða nálægt samanlögðu flatarmáli Vestur-Þýzkalands og Spánar (752.821 km') breytzt úr akri í eyðimörk. Það þýðir m.ö.o. rösklega 20,5 km2 á sólarhring eða 7.482 km2 á ári eða flatarmál íslands á tæpum 14 árum. Það var þess vegna ekki að ástæðulausu, að þáverandi forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, fann sig knúinn til þess í byrjun ársins 1961 að birta þjóðþinginu sérstakan aðvörunarboðskap, þar sem hann komst m.a. þannig að orði: „Eins og nú standa sakir er höggvið niður meira af hinum dýrmæta nytjaviði okkar en upp vex; hinni gjafmildu gróðurmold okkar ógnar uppblástur, náma- auðæfi okkar ganga óeðlilega hraðfara til þurrðar, og hin ósnortnu, fögru landssvæði eru háð forkaupsréttarákvæðum eða ofurseld geðþóttaafnotum af ýmsu tagi.“ Lífverndarfrömuðurinn Giint- her Schwab kemst að þeirri niður- stöðu (sbr. bók hans, „Der Tanz mit dem Teufel“, Hannover 1958), að á fyrri helmingi líðandi aldar valda eignaspjöllum, en höfum á sama tíma látið viðgangast, að tjón sé framið að vild á umhverfi okkar allra. Vegna frumbyggja- sjónarmiða okkar gerðum við okkur afar seint grein fyrir, hversu dýrmæt og viðkvæm gæði jörð, vatn og loft í raun og véru eru.“ Miðjumoð gerir enga stoð Hugsunarleysis af svipuðum toga spunnið og Nixon gerði að umtalsefni hefir í ríkum mæli gætt og gætir enn af fullum þunga víðar en í Bandarikjunum, og það án þess að afsakað verði með harðýðgislegri lífsbaráttu frumbyggjans. Orsökin er miklu fremur ofáts- og munaðarlífs- fýsnir hins sérhlífna og sérgóða mammonsdýrkanda með allar þegn náttúruríkisins alls; sam- þegn jurta og dýra í því, ábyrgan fyrir tilverurétti og framtíð tegundanna, og ítrustu varðveizlu óendurnýjanlegra náttúruauðæfa. 2. að varðveita skuli athafna- svigrúm og athafnafrelsi sjálf- bjarga einstaklinga til að sjá sér og sínum farborða með heiðarlegum hætti á eigin ábyrgð og áhættu af skyldu- rækni við samborgara sína og hollustu við réttarríkið, og 3. að hindra skuli að misyndislýð- ur og fúllífisfólk fái svalað vinstrihneigð sinni. Auðvitað segir sig sjálft, að sigurvonir jafn róttækra hug- mynda og hér eru reifaðar geta ekki orðið veruleiki nema að gagnger hugarfarsbreyting hafi valdið endurmati á lífsviðhorfum þeirra, sem til forystu eru útvald- ir og að þá bresti ekki kjark til að nægjusamari og því kunnað sér hóf í heimtufrekju. Hinn óve- fengjanlegi hæfileiki hennar til aðhæfingar að breyttum aðstæð- um myndi hafa nýtzt á skynsam- legri hátt. Af því hefði leitt, að ýmiss konar vinstrimennska, sem nú hrjáir heiminn, myndi hafa verið afgreidd með meðaumkun- arbrosi eða kæfð í fæðingu í stað þess að líða henni að valda úrkynjun og niðurlægingu, tær- ingu laga- og réttarvalds, hryðju- verkum og blóðsúthellingum. Fyrir því verður seint ofítrekað, að enn sem ávallt verður hollast að mæta framtíðinni og móta framtíðarviðhorf í leiöarlj ósi þess náttúrulógmáls, sem alltof lengi hefir verið forsmáð, að gróska og hnignun, þróun og vanþróun mannlegra lífshátta á sér and- legar/sálrænar frumorsakir: Engin mengun án hugar- larsmengunar. Engar mannbæt- ur án mannvals. Ef þetta gleymist að fullu, verður fávíslegt að blöskrast yfir „heimi á heljarþröm". I upphafi heimskreppu Undanfarin ár hafa leiðtogar 7 mestu iðnaðarríkja heims komið saman á ráðstefnur nokkuð reglu- lega til þess að bera saman bækur sínar og meta ástand og horfur í alþjóðamálum, en einkum þó, hvernig bregðast skuli við ákvörð- unum olíusöluríkja um fram- leiðslu og verðlagningu hins dýra dropa. Ein slík, hin 6. í röðinni, var haldin í Venedig dagana 22.-23. f.m. — hingað til hin þýðingarmesta þótt ekki komi annað til en að nú duldist engum ráðstefnumanna það, sem reyndar var auðveit að sjá fyrir mörgum árum og nú orðinn veruleiki: Vesturlönd standa á þröskuldi geigvænlegrar, langvarandi efna- hagskreppu, e.t.v. ævarandi í þeim skilningi, að „velferðarríkið" sé úr sögunni. Eins og vænta mátti, fór ráð- stefnan fram í sátt og samlyndi. Leiðtogarnir urðu ásáttir um, „að stefnt skal að“ samdrætti í olíu- notkun, horfið skyldi aftur á kolaöld og kjarnorkuframleiðsla aukin. Óleyst vandamál, eins og óhemjuleg loft- og umhverfiseitr- un af völdum margfaldaðrar kola- vinnslu- og notkun, svo og öldung- is óútreiknanlegar hörmungar í kjölfar kjarnorkuframleiðslu og geymslu atómefnaúrgangs, ollu ekki hinum minnstu áhyggjum. Öllu skyldi snúið til betri vegar. Á 5. sams konar ráðstefnu, sem haldin var í Tokio dagana 27.-29. júní f.á., höfðu leiðtogarnir líka skuldbundið sig til að draga úr hráolíuinnflutningi sínum. Efnd- irnar urðu þær, að á árinu 1979 brældu Vesturlönd upp meiri olíu en nokkru sinni fyrr: 500.000.000 t, sem EBE-ríkin áformuðu að hagnýta, urðu 560.000.000 t. Áhrif slíkrar ráðsmennsku koma fljótt fram. Þau má m.a. merkja af greiðslujöfnuði Vest- ur-Þýzkalands. Árið 1978 var hann Vestur-Þjóðverjum hag- stæður í viðskiptum þeirra við OPEC-ríkin um DM 5.100.000.000, en óhagstæður um DM 7.800.000.000 á árinu 1979, og um DM 4.200.000.000 á 1. ársfjórðungi þ.á. Nú herma nýlegar fréttir, að til ársins 1985 hyggist Saudi-Árabar verja allt að $300.000.000.000 til að iðnvæða eyðimörkina. Þeim mun hafa reynzt fremur auðvelt að reikna út, að áætluð 22.300.000.000 t hráolíuauðæfi lands síns séu ekki óþrjótandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.