Morgunblaðið - 17.07.1980, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980
33
keppandi í unglingaflokki, var það
Ragnar Alfreðsson frá Snæfellingi.
Ótrúlega
góðir tímar
Það verður ekki annað sagt en að
mjög góður árangur hafi náðst út úr
kappreiðunum þrátt fyrir lélegar
aðstæður.
Áttahundruð metra brautin liggur
eins og hálfmáni um beinu brautina
sem notuð er í styttri vegalengdirn-
ar. Styttri brautin var töluvert betri,
enda náðust líka betri tímar á henni.
í undanrásum fyrir 800 m stökk
, virtust hestarnir mjög óöruggir og
vissu ekki hvert þeir áttu að hlaupa.
Ástæðan var sú að þeir þekktu
fæstir brautina, en henni var algjör-
lega lokað á kvöldin fyrir allri
umferð, áður en kappreiðar hófust,
þannig að hestarnir fengu ekki
tækifæri til að kynnast brautinni og
kom þetta mjög illa niður á nokkrum
hestanna, en þegar yfir lauk stóð
Gnýfari Jóns Hafdal uppi sem ör-
uggur sigurvegari, knapi á honum
var Sigurður Sigurðsson. Gnýfari
hljóp á 60.1 sek, annar varð Gutti
Sigursteins Sigursteinssonar, knapi
Hinrik Bragason á 61.3 sek. og þriðji
Móri, eigandi og knapi Harpa Karls-
dóttir, á 61.6 sek.
I 800 m. brokki var óvanalega
mikil spenna og óvænt úrslit. En þar
sigraði Svarri Maríu Eyþórsdóttur
og knapi Marteinn Baldimarsson á
1.40.6 mín. Annar Frúar-Jarpur
Unnar Einarsdóttur og knapi Krist-
inn Guðnason, á 1.41.1 mín. Þriðji
varð Reykur Njáls Þorgeirssonar,
knapi Ragnar Hinriksson. Hljóp
hann á 1.43.2 mín. Til gamans má
geta þess að Reykur er sonur Þotu
frá Innra-Leiti, sem var afkvæma-
sýnd, Reykur var einnig skráður
varahestur Snæfellings í gæðinga-
keppni aihliða hesta.
I 350 m. stökki var töluverð
spenna og úrslit ekki ráðin fyrr en á
marklínu í úrslitaspretti. Einnig
voru úrslitin þar frekar óvænt.
Maður hafði það á tilfinningunni að
Glóa myndi sigra en svo varð þó
ekki, því hún lenti í þriðja sæti á
sama tíma og Stormur, en sjónar-
mun á eftir eða 24.7 sek. Fyrstur
varð hinsvegar Óli frá Neðradal,
eigandi Guðni Kristinsson, Skarði og
knapi Steingrímur Viktorsson á 24.6
sek. Annar varð Stormur Hafþórs
Hafdal eins og áður er sagt, knapi
Sigurður Sigurðsson og eigandi Glóu
er Hörður G. Albertsson, knapi
Hörður Harðarson, en Glóa varð í
þriðja sæti.
í 250 m. unghrossahlaupi var
einnig töluverð spenna. Þar sigraði
Hrímnir Ásgeirs og Óla Herbert.s-
sona og knapi Ásgeir Herbertsson.
Hrímnir hljóp á 18.7 sek., önnur varð
Hnallþóra Svanborgar Magnúsdótt-
ur, knapi Leifur Helgason, á 18 sek.
og í þriðja sæti varð Lýsingur Fjólu
Runólfsdóttur og knapi Eiður Krist-
insson, á 18.9 sek.
I 250 m. skeiði náðust hvað bestir
tímar. Alls voru 5 hestar undir 24
sek. og einn undir 23 sek. Það voru
tveir stólpa gæðingar sem voru í
tveim efstu sætunum, en þeir eru
Þór Þorgeirs í Gufunesi með Sigurð
Sæmundsson innanborðs á 22.8 sek.
Til gamans má geta þess að Þór var
riðið í gæðingakeppni fyrr í sumar
með einkunn upp á 8.65 sem er mjög
gott afrek. Annar varð Frami Er-
lings Sigurðssonar, sem hann einnig
sat. Tími Frama var 23.1 sek. Það
má geta þess hér að Frami hefur
hlaupið í sumar á 22.3 sek. á
kappreiðum, og í þriðja sæti var svo
Funi Bjarna Ágústssonar, knapi
Gunnar Árnason, á 23.3 sek.
Segjast verður eins og er að
kappreiðarnar voru tvímælalaust
lakasti þáttur þessa móts þrátt fyrir
góða tíma. Er þar um að kenna fyrst
og fremst kappreiðadómnefnd og
ræsum mótsins. Mikillar óánægju
gætti meðal knapa og forráðamanna
kappreiðahesta með ræsa og ýmsar
ákvarðanir kappreiðadómnefndar.
Miklar tafir urðu oft við ræsingu og
virtist sem mönnum væri farið að
leiðast biðin og er þá vægt til orða
tekið.
En þrátt fyrir ýmsa annmarka er
ekki annað hægt að segja en mótið
hafi heppnast vel þegar á heildina er
litið og ekki er laust að mann hlakki
til að fara á næsta stórmót að
Kaldármelum.
V.K.
Stykkishólmur:
Mikið um
ferðamenn
Stykkishólmi 13. 7.1980.
TÍÐARFAR það sem af er sumri
hefir verið ágætt hér um slóðir,
þurrt og gott veður og sól. mikið
minna um regn en oft áður og
kemur það auðvitað niður á
grasvexti, en hann er samt sem
áður góður. sláttur hafinn og
virðist allt leika við mann hvað
það áhrærir um þessar mundir.
Flestir bátar hafa nú um skeið
legið við bryggjur og bíða þess að
nú megi senn fara að veiða skelina
en það verður fyrstu daga ágúst-
má'naðar eða eftir
verslunarmannahelgina. Með tilliti
til þessa skrapa menn nú og mála
bátana og ganga sem best frá þeim
til veiðanna. Þó eru ekki allir bátar
sem hugsa til skeljanna, heldur eru
einnig stundaðar rækjuveiðar hér
og einnig togveiðar og hefir afli
verið misjafn eins og gengur og
gerist.
Talsvert hefir verið um ferða-
menn bæði innlenda og erlenda og
nú hefir hótelið með sínum kostum
og fyrirgreiðslu komið í góðar
þarfir, enda kunna menn að meta
það og koma aftur og aftur. Eins og
áður hefir verið sagt stendur hótel-
ið á einum fegursta stað í bænum
og þaðan er víðsýnt og fagurt
útsýni í allar áttir. En það sem
skiptir mestu máli er fyrirgreiðsl-
an og mun hún vera í góðu lagi.
Þá eru samgöngurnar góðar.
Rútan á hverjum degi, flugvélar 5
sinnum í viku, og svo Baldur sem
auðveldar ferðamönnum að komast
yfir fjörðinn með bíla sína og
styttir þeim sem fara á Vestfirði
leiðina að miklum mun, enda
óspart notaður til þess.
Baldur fer í júlí og ágúst ferðir
um Breiðafjörð með viðkomu í
Flatey sem hér se'gir, mánudaga
frá Stykkishólmi kl. 9 árdegis og
frá Brjánslæk kl. 14.30. Fimmtu-
daga kl. 10 frá Stykkishólmi og frá
Brjánslæk kl. 14.30. Föstudaga kl.
14 frá Stykkishólmi og kl. 18 frá
Brjánslæk og laugardaga kl. 10 frá
Stykkishólmi og er þá siglt um
suðureyjar, tilkomumikil ieið og
frá Brjánslæk er þá farið kl. 15.30.
A Baldri geta menn fengið veit-
ingar og um sumarið er veitinga-
hús opið í Flatey.
Þá má geta þess að hópar geta
fengið Baldur leigðan sérstaklega í
ferðir á sunnudögum og hefir það
verið notað.
Byggingarvinna er hér mikil í
sumar og eru báðar trésmiðjurnar
hér fullnýttar og meira en það.
Verkefni nóg og jafnvel til lengri
tima. Unglingavinna hefir verið
hér talsverð í bænum og því ekki
um atvinnuleysi að ræða. Hver
starfandi hönd hefir nóg verkefni.
Þá eru miklar framkvæmdir á
vegum hreppsfélagsins svo sem
gatnagerðar, skólabyggingar og
fleira.
Ekki verður enn ráðið hvort
berjaspretta verður mikil í ár, en
undanfarin ár hefir hún verið
sáralítil hér um slóðir.
Fréttaritari.
Öllum mínum kæru vinum nær og fjær, félaga-
samtökum og einstaklingum, færi ég mitt hjartans
þakklæti fyrir þann heiður og vinarhug er þiö
sýnduö mér á svo margvíslegan hátt, og gjörðu
áttræðisafmælisdaginn mér ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Vilhjálmur Bjarnason
Auglýsing
Evrópuráöið býður fram styrki til framhaldsnáms
starfandi og veröandi iðnskólakennara á árinu 1981.
Styrkirnir eru fólgnir í greiöslu fargjalda milli landa og
dvalarkostnaöar (húsnæði og fæöi) á styrktímanum,
sem getur oröið einn til sex mánuöir.
Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26—50
ára og hafa stundaö kennslu viö iðnskóla eöa
leiöbeiningarstörf hjá iðnfyrirtæki í a.m.k. þrjú ár.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráöu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Umsóknir
skulu hafa borist ráöuneytinu fyrir 15. september
1980.
Menntamálaráöuneytið,
15. júlí 1980.
V E R Z LU N I N
GEfsiRj
Nýkomnir
Dömu-, herra- og
barnatréklossar
THORITE
iiil
!i steinprýði
V/'Stórhöfða sími
Steypugalla-
viðgerðarefni
Framúrskarandi viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl.
Thorite ertilvgliðtil viðgerða
á rennum ofl. Það þornar á
20 mínútum.