Morgunblaðið - 17.07.1980, Page 43

Morgunblaðið - 17.07.1980, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 43 Ólympíulið íslands: • Á meðfylgjandi mynd má sjá ólvmpíulið íslands, sem lagði í hann til Moskvu i morgun. í aftari röð frá vinstri eru Hreinn Halldórsson. Oskar Jakohsson. Bjarni Friðriksson. Viðar Guðjohnsen ok Guðmundur Þórarinsson. Fyrir framan frá vinstri eru Sveinn Björnsson, Bra«i Kristjánsson, Sigurður Björnsson. Halldór Guðbjörnsson, Oddur Sijfurðsson. Guðmundur Ileljíason, borsteinn Leifsson ojf Birjfir Borjfþórsson. Ljósm. Kristinn. Austri þokast nær 3. deildinni MÖGULEIKAR Austra á því að bjarga sér frá falli i 3. deild eru ekki miklir. eftir að hafa tapað stigi til Armenninjfa er liðin leiddu saman hesta sina i 2. deiidinni á Eskifirði i gærkveldi. Lokatölur leiksins urðu 2—2, jafntefli, eftir að Austri hafði verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. Það er skemmst frá að segja, að fyrri hálfleikur var alger ein- stefna að marki Ármanns og hvað eftir annað björguðu þeir á elleftu stundu þegar voðinn virtist vís. Þeir réðu þó ekki neitt við neitt á 20. mínútu leiksins, er Steinar Tómasson skoraði fyrra mark Austra með þrumuskoti af 25 metra færi. Hafnaði knötturinn alveg úti við stöng og var skotið með öllu óverjandi. Austramenn tvíefldust við velgengnina og á 37. mínútu bætti Bjarni Kristjánsson öðru marki við af stuttu færi, eftir að þvaga hafði myndast við mark Ármenninga. Fyrstu 15 mínútur seinni hálf- leiks voru enn fremur einkaeign Austramanna. Þá sóttu þeir lát- laust og lætur nærri að þeir hafi komist fimm sinnum á auðan sjó við mark Ármanns, án þess þó að koma tuðrunni á leiðarenda. Síðan gerðist það, að Ármenningar skor- uðu gersamlega gegn gangi leiks- ins, var þar á ferðinni Viggó Sigurðsson. Hann fylgdi vel eftir er markvörður Austra hálfvarði skot, náði knettinum og skoraði í autt markið. Urðu nú hlutverka- skipti með liðunum, Ármenningar tóku að sækja stíft, en Austra- menn að verjast. Það voru aðeins tíu mínútur til leiksloka, er Ár- manni tókst að jafna og þrátt fyrir mikla sókn síðustu mínút- urnar, tókst Austra ekki að snúa dæminu við. Ævar Toyota-mótió í golfi: Bíllinn skal ganga út! • Sigurvegararnir á meistaramóti GK sem fram fór um siðustu helgi. I miðjunni cr sigurvegarinn Sveinn Sigurbergsson. Vinstra megin er Sigurður Thor sem varð annar og Magnús Hjörleifsson til hægri varð i þriðja sæti. OPNA Toyota-mótið í golfi fer fram á Hvaleyrarvellinum um helgina. Rétt einu sinni er bifreið í verðlaun. en nú skal hún ganga út. í stað þess að afhenda hilinn fyrir að leika holu í höggi á einhverri tiltekinni braut (sem enginn gerir þegar á þarf að halda), fær sá bifreiðina sem fer næst holu á 5. eða 17. braut. Bifreiðin, sem afhent verður, er glæný fjögurra dyra Toyota Cor- olla, skattfrjáls, að verðmæti 6,5 milljónir króna. Á laugardaginn hefst keppni klukkan 8.00. Verður 3. flokkur karla þá ræstur út. Klukkan 13.30 hefst síðan keppni í 2. flokki karla. Einnig fer fram keppni í unglinga- og kvennaflokki á laugardaginn. 1. flokkur karla verður ræstur út klukkan 8.00 á sunnudagsmorg- un, síðan öldungaflokkurinn. Síð- astur, eða um klukkan 13.30, byrjar meistaraflokkurinn keppni. Auk bifreiðarinnar eru mörg veg- leg verðlaun í boði, en Toyota- umboðið gefur allt saman. Hjólreiðakeppni á Akranesi skrá sig á lögreglustöðinni á Akranesi og víðar. KSí 2. aldursflokkur KS gerði góða ferð til Reykjavikur um siðustu helgi. Lék liðið tvo leiki í sinum riðli i íslandsmótinu, gegn ÍK i Kópavogi og gegn Gróttu. Sigr- aði KS IK 3—0 og Gróttu II—0. Góð bæjarferð að tarna ... lA OG Bæjarblaðið á Akranesi gangast fyrir hjólreiðakeppni á Akranesi um helgina. Hefst keppnin við iþróttavöllinn klukk- an 13.30 á laugardaginn. Enn er óákveðið hve langt hver flokkur hjólar. en keppendum verður skipt niður i aldursflokka, auk þess sem keppendur á mjög fullkomnum tækjum verða settir í sér flokk. Hér er algerlega um hraða- keppni að ræða, sá vinnur sem fyrstur kemur i mark. Hægt er að búöir Bonanza, Laugavegi 20. Lindin, Selfossi. Eplið, Isafirði. Karnauær. Laugavegi 66. Hornabser, Hðfn Hornafirði. Þórshamar, Stykkishólmí. Karnabær, Glæsibæ. Austurbær, Reyöarfirði. isbjörninn, Borgarnesi. Karnabær, Austurstræti. Ram, Húsavík. Óðinn, Akranesi. Bakhúsið, Hafnarfirði. Cesar, Akureyri. Verzl. Skógar, Egilsstöðum. Fataval, Keflavík. Alfhóll, Siglufirði. Kaupfél. Rangæinga, Hvolsvelli. Eyjabær, Vestmannaeyjum. Sparta. Sauðárkróki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.