Morgunblaðið - 25.07.1980, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
165. tbl. 67. árg.
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Liðsforingjar
líflátnir i Iran
London. 24. júlí. AP.
TUTTUGU liðsforinKjar og menn
úr iranska landhernum og fluK-
hernum voru teknir af lifi i dogun
i morKun þe«ar byltinKardómstóll
i Teheran hafði fundið þá seka um
þátttóku í samsæri um hyltinxar-
tilraun fyrr i þessum mánuði að
sögn Teherean-útvarpsins.
Átta aðrir menn hafa verið
líflátnir að sögn útvarpsins fyrir
ýmsar sakir, allt frá dreifingu
Flugrán
í Kuwait
Kuwait, 24. júlf. AP.
TVEIR vopnaðir menn lögðu
undir sig Boeing 727 þotu
flugféiags Kuwait á leið til
furstadæmisins i dag og skip-
uðu flugstjóranum að lenda á
Kuwait-flugvelli, en síðan hélt
flugvélin áfram til Bahrain. í
flugvélinni eru 72 menn.
Innanríkisráðherra Kuwait,
Nawaf Ahmed A1 Sabah prins,
reyndi að semja við flugvélar-
ræningjana, en ræningjarnir
báru ekki fram kröfur. Flugvél-
in var einn klukkutíma á flug-
vellinum. Einn ræningjanna
kvaðst vera Jórdaníumaður.
í kvöld var flugvélin á flug-
vellinum í Bahrein, furstaeyríki
á Persaflóa, og viðræður fóru
fram við ræningjana, sem gerðu
engar kröfur. Flugvélin tók
eldsneyti og fór aftur til Kuw-
ait.
eiturlyfja til vopnaðs ráns. Einn
þeirra var Mahmud Robati, sem
var sagður annar æðsti maður
leynilögreglunnar Savak.
Jafnframt þessu hefur kaþólsk-
um skóla í Teheran verið lokað og
stjórnvöld hafa sakað prestana,
sem ráku hann, um samstarf við
ísraelsmenn. Skjöl voru fjarlægð
og kennararnir sakaðir um að reka
njósnamiðstöð. Yfirvöld hafa til-
kynnt áform um að loka öllum
kaþólskum trúboðsskólum.
Teheran-útvarpið gefur jafn-
framt í skyn að eftirlitsmaður
lögreglunnar, Mostafa Mir-Salim,
komi helzt til greina sem næsti
forsætisráðherra Irans. Utvarpið
telur mikilvægt, að Mir-Salim átti
fund með Bani-Sadr forseta. Eftir
fundinn sagði Mir-Salim að „allt
væri mögulegt", þegar hann var
spurður hvort hann yrði næsti
forsætisráðherra.
„Washington Post“ sagði í dag að
fyrir nokkrum mánuðum hefðu
námsmennirnir í bandaríska sendi-
ráðinu í Teheran leitt nokkra
gíslana út og sett á svið aftöku til
að hræða þá. Richard Queen, sem
var sleppt, var í hópi þessara gísla
og hefur tilkynnt þetta bandaríska
utanríkisráðuneytinu. Óvíst er um
ástæðurnar til þessarar gerviaf-
töku.
Þeir sem voru líflátnir í dag voru
m.a. sakaðir um áform um að koma
fyrir sprengju á heimili Khomeini
trúarleiðtoga. í hópnum voru fjórir
höfuðsmenn og einn lautinant úr
flughernum. Alls hafa 25 verið
líflátnir fyrir þátttöku í meintri
byltingartilraun.
Verzlað i góða veðrinu.
I.jóxm. Mbl. ÓI.K.M.
Ef ling af ganska
hersins áf ormuð
IslamabHd. 24. júli. AP.
STJÓRNIN í Afghanistan til-
kynnti í dag að fyrirhugað væri
að efla her landsins þar sem
öryggi landsins væri aukin hætta
búin og skæruliðar héldu þvi
fram að þeir hefðu fellt um 1,000
Norskt varðskip
á Jan Mayen mið
Frá íréttaritara MorKunblaðsins
i Ólsó í *ær.
NORSKA strandga-zluskipið
„Stálás“ kemur í fyrramálið á
svæðið við Jan Maycn, þar sem
tæplega 80 sovézk skip stunda
veiðar. Þetta er í fyrsta sinn sem
varðskip cr sent út af örkinni til
að framfylgja norskum reglum í
hinni nýju fiskveiðilögsögu við
Jan Mayen.
Norsk Orion-flugvél sá til sov-
ézku skipanna i gær. Þau hafa
ekki tilkynnt norskum yfirvöldum
að þau ætli inn fyrir mörkin til
veiða eins og reglur kveða á um.
Til þessa hafa aðeins þrjú pólsk,
tvö austur-þýzk og eitt sovézkt
fiskiskip tilkynnt slíkt.
Rússarnir veiða sennilega kol-
munna, en veiðar á honum eru
ekki takmarkaðar í norsku fisk-
veiðilögsögunni. En samkvæmt
reglunum getur norska strand-
gæzlan haft eftirlit með veiðar-
færum og fylgzt með veiðunum.
Aflamagnið skal einnig tilkynnt
norskum yfirvöldum.
Talsmaður norska utanríkis-
ráðuneytisins, Geir Grung, segir
að Norðmenn hafi tilkynnt um
bráðabirgðareglur um veiðar út-
lendinga um miðjan júní. Ráðu-
neytinu hafa ekki borizt mótmæli
gegn reglunum frá þeim löndum,
sem venjulega stunda veiðar á
þessum slóðum.
Hins vegar hafa Rússar sagt, að
tekið geti þrjá mánuði að þýða
reglurnar og senda þær sovézka
fiskiskipaflotanum. Því fóru norsk
yfirvöld fram á, að skipstjórunum
yrðu kynnt aðalatriðin í reglun-
um.
Ef erlend fiskiskip verða tekin
með afla við Jan Mayen án þess að
hafa tilkynnt um veiðarnar fyrir-
fram, mun strandgæzlan fyrst í
stað veita áminningu. Ef um
endurtekin brot verður að ræða
eiga bátarnir það á hættu að þeim
verði vísað út af svæðinu, sagði
Grung. —Lauré.
sovézka og afghanska hermenn i
bardögum að undanförnu.
Stjórnin greindi ekki í einstök-
um atriðum frá áætluninni, en
fækkað hefur í afghanska hernum
úr 80,000 mönnum fyrir tveimur
árum í 25,000 menn nú, þar sem
margir hermenn hafa hlaupizt
undan merkjum og gengið í lið
með skæruliðum.
Skæruliðar sögðu í yfirlýsingu í
Peshawar í Pakistan að í Guldara
í Kunar-héraði hefði fjöldi sov-
ézkra skriðdreka og flugvél gert
kröftugar árásir á stöðvar skæru-
liða, en árásunum hefði verið
hrundið. Skæruliðar sögðust hafa
fellt um 700 sovézka og afghanska
hermenn, þar á meðal háttsettan
Rússa, „sennilega hershöfðingja".
Eitt hundrað Afghanir féllu, þar
af 20 skæruliðar, en hitt konur og
börn, samkvæmt tilkynningunni.
í Ganjgal í sama héraði réðust
skriðdrekar og þyrlur Rússa á aðra
stöð skæruliða með stuðningi af-
Fólksflutningar
frá Afganistan?
New York, 24. júll. AP.
HASSAN Durrani, sem gerir
kröfu til afgönsku krúnunnar,
sagði í dag að Rússar hefðu
hafið brottflutning múham-
eðstrúarmanna frá svæðum
skæruliða i Norður-Afganistan
til lýðvelda múhameðstrúar-
manna i Sovétríkjunum og
flyttu í staðinn dygga sovézka
kommúnista til Afganistan.
Hann sagði að sovézka innan-
ríkisráðuneytið hefði eftirlit með
þessum nauðungarflutningum og
landnámi sovézkra múham-
eðstrúarmanna í Afganistan. Til-
ganginn kvað hann þann að gera
alla andspyrnuhópa áhrifalausa
eða útrýma þeim. Durrani er
sonur Amanullah, sem lagði
niður völd 1928, og tók sér titilinn
Hassan konungur I fyrir þremur
árum þegar eldri bróðir hans
neitaði að taka sér titilinn.
Durrani kvaðst hafa fréttina
eftir „tryggum vinum i Was-
hington". Hann kvað það veita
Rússum aukið svigrúm til að
bæla niður andspyrnu að innan-
ríkisráðuneyti þeirra sæi um her-
nám Afganistans í stað land-
varnaráðuneytisins.
Starfsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins kvað hugsan-
legt að Rússar hefðu gert eitt-
hvað í líkingu við það sem
Durrani héldi fram, en ósenni-
legt.
Hann spurði hvers vegna Rúss-
ar skyidu flytja hættuleg öfl inn í
land sitt og taldi sennilegra að
þeir settu þau í fangelsi. Hann
kvað kjánalega þá fullyrðingu að
innanríkisráðuneytið hefði fengið
yfirumsjón með hernámi Afgan-
istans og ekki rétta, þar sem
afstaða Rússa væri sú að Afgan-
istan væri sjálfstætt ríki.
ghanskra hermanna samkvæmt
tilkynningunni. Skæruliðar kváð-
ust hafa fellt 185 sovézka og 30
afghanska hermenn. Sextán Af-
ghanir féllu og 15 særðust. Rússar
brenndu moskuna í Ganjgal og
fimm hús. Einni sovézkri þyrlu
var grandað.
Enn fremur segja skæruliðar að
Rússar hafi gert nýja árás í
Ghazni og Paktia með um 300
skriðdrekum, átta þyrlum og sex
þotum. Sagt er að mikið mannfall
hafi orðið í liði sovézkra fallhlífa-
hermanna, 70 hafi verið teknir til
fanga, fjórum þyrlum hafi verið
grandað og þrír skriðdrekar hafi
verið eyðilagðir.
Kabul-útvarpið segir að bylt-
ingardómstóll hafi dæmt 12
„glæpamenn og hryðjuverka-
menn“, þar af tvo til dauða.
Skólum verður lokað 23. júlí til 11.
ágúst vegna hins helga mánaðar
múhameðstrúarmanna og „auk-
inna sumarhita". En loka varð
skólunum formlega vegna verk-
falla nemenda að sögn diplómata.
I Washington er sagt að Rússar
séu farnir að búa hermenn sína í
Afghanistan brynvörðum vestum
til að verja þá gegn leyniskyttum
skæruliða.
Frú Giscard
borin sökum
Paris, 24. júlí. AP.
EIGINKONA Valery Giscard
d'Estaing forseta hagnaðist ekki á
viðskiptum banka með trygginga-
bréf hennar. samkvæmt opinberum
heimildum i dag.
Vikublaðið „Canard“ segir að hún
hafi falið Banque Lazard að kaupa
hlutabréf í iðnfyrirtækinu Rhone-
Poulence skömmu áður en bréfin
snarhækkuðu í verði vegna sölu
fyrirtækisins á hluta verksmiðja
sinna til ríkisins og BP. Blaðið segir
frú Giscard hafi notað vitneskju
sína úr forsetahöllinni til þessa og
grætt offjár.