Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 10

Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980 Á ferö um Skagafjörð/ Texti Friðrik Friðriksson Kári Marísson bóndi, skólastjóri og körfuboltamaöur: Kannaði markaðinn fyrst og setti síðan upp búið Fyrir örfáum árum var Kári Marísson einn af landsliðsmönnum íslands í körfubolta, hann lék um árabil með K.F.R., þá Val og síðast U.M.F.N. auk landsliðsins. Vorið 1978 fluttist Kári alfarinn af Reykjanesi norður í land ok er nú bóndi á Sólheimum í Akrahreppi í Skagafirði. Eiginkona Kára er Katrín Axelsdóttir, en hún var einnig afreksmaður í íþróttum. Blaðamaður Morunblaðsins heimsótti þau á dögunum en þá var heyskapur í fullum gangi á Sólheimum. Rákust á Sólheima fyrir tilviljun Hvernig stóð á því Kári, að þið festuð kaup á Sólheimum? Þetta átti allt nokkuð langan aðdraganda, sökum þess að eftir að systir mín flutti í sveit, þegar ég var 12 ára, fékk ég bakteríuna og var fram til 25 ára aldurs í sveit á sumrin. Þegar þetta er haft í huga, þá skýrist ef til vill frekar, hvers vegna ég, borgarbarnið, flutti í sveit. Við Katrín vorum búin að leita að jörð í nokkurn tíma, aðallega í Borgarfirði, en sumarið 1977 fórum við í sumarfrí og ókum m.a. hér um. Þegar við keyrðum framhjá Sólheimum, minnti mig, að ég hefði séð einhvers staðar að jörðin væri til tölu. Það reyndist rétt vera við nánari athugun og viku síðar vorum við búin að kaupa jörðina. Katrín hafði verið í sveit í Húnavtnssýslu og var til í að prófa þetta, þannig að við slógum til. Var ekkert erfitt að rífa sig úr fjölmenninu hér fyrir sunnan? Nei, það vr ekki erfitt, ég var alveg ákveðinn í þessu, en það er þó alltaf viss eftirsjá í hinum góða félagsanda í körfuboltanum. Gekk vel að fjármagna jörðina? Það gekk ágætlega, við áttum blokkaríbúð í Njarðvík, sem gekk beint upp í jarðarverðið, en auk þess nýttum við okkur jarðar- kaupalánin, þannig að dæmið gekk þokkalega upp. Fjölskyldan á Sólheimum. F.v. Kári Marissun, Arnar Snær, Kristin Björk og Katrín Axelsdóttir. Ala kálfa til slátrunar og hafa 800 hænur Segðu mér Kári, hvernig er samsetning búsins? Þegar við hófum búskap fórum við af stað með öðru hugarfari en almennt gerist. Við könnuðum markaðinn fyrst og settum síðan upp búið. Ötkoman úr þessum markaðsat- hugunum var þannig, að við ákváð- um að setja upp hænsnabú, og stofninn er nú um 800 hænur. Þar fyrir utan höfum við farið út í að ala kálfa til slátrunar og virðist það gefa ágæta raun. Eftirspurnin er næg og ef leiðrétting verður gerð á fóðurbætisskattinum, sem kemur okkur illa, þá virðist þetta vera örugg búgrein. Hænsnaræktin er hins vegar bindandi, maður verður alltaf að vakna á sama tíma til að sinna þeim, en ég finn þó lítinn mun á þessu, eða að vakna alltaf á sama tíma til að fara til kennslu í Njarðvík. Annar bústofn er ekki teljandi, við höfum nokkrar kindur okkur til gamans og 11 hesta. Ég get þó ekki neitað því, að við höfum áhuga á kúabúskap, en eins og ástatt er í dag er það ekki fýsilegt. Það er þó hagkvæmt fyrir okkur að hafa 2—3 kýr, bæði fyrir heimilið og til þess að fóðra kálfana. Hvað með aðrar búgreinar, t.d. loðdýrarækt? Ég er ekkert spenntur fyrir öðrum greinum og ég ætla að bíða og sjá hvað setur í loðdýrarækt- inni. Refarækt er t.d. á margan hátt áhugaverð grein, en ég vil ekki ana út í þetta eins og margir gera, heldur frekar bíða átekta og sjá. Katrín, hvernig líkar þér að vera húsfreyja í sveit? Það er óneitanlega mikill munur á því og að vera í bæjum. Vinnu- tíminn er lengri, en þó finnst mér mesti munurinn að vera hér yfir veturinn. Þá er minna um manna- Kári Marísson á fullu í kappleik 1977. Á ferft um Skagafjörð / Texti: Friðrik Friöriksson Séra Gunnar Gíslason i kirkjugarðinum í Glaumhæ. Séra Gunnar Gíslason prófastur og fyrrv. alþingismaöur: Brúin fyrir kýrnar prestsins í GLAUMBÆ í Skagafirði hefur verið kirkjusetur allt frá kristnitöku og þjónandi prestur í Glaumbæ er séra Gunnar Gíslason, fyrrverandi alþinsismaður og núver- andi prófastur í Skagafjarðarprófastsdæmi. Blaðamað- ur ræddi við séra Gunnar um störf hans og áhugamál. „Ég er bóndi og allt mitt á undir sól og regni“ Fæstu ennþá við búskap? Það er varla teljandi, ég hef að mestu leyti dregið mig útúr þessu, en sonur minn, Arnór, tekið við. Því er þó ekki að leyna, að ég tel mig vera bónda fyrst og fremst, mér líður vel hér og ég fyigist vel með búskapnum. Orð Stephans G. eiga ágætlega við og túlka raunar vel hug minn til búskaparins þegar hann segir: „Ég er bóndi og allt mitt á undir sól og regni." má segja, að ég messi að jafnaði einu sinni í mánuði. Fyrir utan þetta starf er ég prófastur í Skagafjarðarprófasts- dæmi, en í því starfi felst, að maður er umboðsmaður biskups, ég vísitera kirkjur og safna skýrslum frá prestum, sem fara eiga til biskups. Hefurðu tekið afstöðu til nýja messuformsins, sem kom til um- ræðu á nýafstaðinni prestastefnu? Mér líst vel á þessa hugmynd um breytt messuform, söfnuður- inn tekur þá virkari þátt í mess- unni og ég sé því ekkert þessu til fyrirstöðu. Er prestsstarfið annasamt? Það er ofsagt að tala um, að það sé mjög annasamt, en ég er sóknarprestur hér í Glaumbæ, en þjóna auk J>ess á Reynistað og á Víðimýri. Ég boða til messu eftir hentugleika hverju sinni og það Fór í framboð f yrir orðastað Jóns á Reynistað Hvenær hófust afskipti þín af stjórnmálum? Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum, en segja má að fyrstu afskipti mín hæfust þegar ég varð formaður Vöku, Félags lýðræðissinnaðra stúdenta, en ég ritstýrði jafnframt Vökublaðinu á háskólaárum mínum, í kringum 1940. Ég hafði þó ekki teljandi af- skipti af stjórnmálum fyrr en ég var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæð- isflokkinn 1959 og sat ég samfleytt á þingi til ársins 1974. Það var nú eiginlega fyrir orða- stað Jóns á Reynistað, fyrrv. alþingismanns, að ég gaf kost á mér til þingmennsku, en á þeim tíma fengust engir menn í þetta. Þóttir þú athafnasamur þing- maður? Menn hafa sagt það hér í gríni, að það eina sem klerkur gerði sem þingmaður, væri að byggja brú yfir Húseyjarkvísl, til að koma kúnum sínum í haga. Þetta hefur þó aldrei verið sagt í illkvittnis- tón, enda sannleikurinn sá, að þessi umrædda brú tengir tvo bæi við vegakerfið, en auk þess hafa 10 bæir hér í Seyluhreppi not af henni. Um önnur stórvirki í minni þingmannstíð ætla ég ekki að tala um. Hvernig líst þér á stöðu Sjálf- stæðisflokksins í dag? Ég vil lítið um hana segja en það ríkir óneitanlega sérstætt ástand innan Sjálfstæðisflokksins, sem ég held að tíminn einn geti lagað. Ég álít, að málefnalega standi Sjálfstæðisflokkurinn vel, ég sannfærðist um gildi leiftursókn- arinnar þegar hún var lögð fram

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.