Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 29

Morgunblaðið - 25.07.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ1980 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13—14 FRÁ MÁNUDEGI stuðning við þeirra stefnu og framkomu á vettvangi heimsmála að undanförnu. Þessi móralski stuðningur er Sovétríkjunum sjálfsagt kærkominn, þegar ýmis- legt gengur þeim í öhag í bauki þeirra og brölti utan sinna landa- mæra. Og við ættum að gera okkur það alveg ljóst, að Sovétrík- in kunna að leggja annan skilning í þetta, en ætlast er til af þeim aðilum sem tóku um þetta ákvörð- un, en það skilst mér að hafi verið hæstvirtur utanríkisráðherra, Ólafur Jóhannesson. • Aukin vinátta við okkur ekki illa þegin Kremlverjar gætu hugsað sem svo, að vegna þessarar fram- komu okkar manna á ólympí- uleikunum, þá séu jafnvel eitthvað aukin samskipti og vinátta þeirra við okkur ekkert illa þegin. Og þá er verr farið en heima setið. Um þessar mundir er vel vopn- um búinn og fjölmennur sovéskur her að murka lífið úr þjóð, sem er miklu fámennari, og illa til þess búin að verja hendur sínar. Meðan sovéskir hermenn láta byssukúlur sínar dynja á skólastúlkum, sem vart eru af barnsaldri, á götum Kabúl í Afganistan, og Afgönum blæðir hægt og sígandi út með sama áframhaldi þá eru íslensk stjórnvöld að mínu mati að veita Sovétmönnum óbeinan stuðning með íslenskum fánaburði í Moskvu, þegar allar V-Evrópu þjóðir nema þrjár, auk íslendinga, láta sér nægja að hafa uppi Ólympíufánann við opnun leik- anna. Þessi fátæka fjalla- og hirð- ingjaþjóð, hefur það eitt til saka unnið að eiga landamæri sín að Sovétríkjunum. En fleiri þjóðir hafa brennt sig á því sama soði. Tékkneska dæmið ætti enn að vera flestum í fersku minni. • Ákvörðunin tekin í ógáti? Eg vil vart trúa öðru, en þessi ákvörðun utanríkisráðherra og starfsmanna hans í ráðuneytinu hafi verið tekin í einhverju ógáti eða hugsunarleysi, vegna þess að SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Brat- islava í Tékkóslóvakíu kom þessi staða uppp í skák Ungverjannna Hardicsay, sem hafði hvítt og átti leik, og Ference. 24. Rf5! (Tryggir hvítum vinn- ingsstöðu, því 24 ... exf5 er hægt að svara með 25. Bxd6 vegna þess að riddarinn á c4 er leppur) DÍ7, 25. Rxd6 — Rxd6, 26. Bxd6 — Hb5, 27. Dc2 og svartur gafst upp. Ólafur Jóhannesson utanríkisráð- herra hefur að ég best veit, ætíð staðið traustan vörð um vestræna samvinnu. Nægir þar að benda á, að hann var einn fjögurra fyrstu fulltrúa okkar hjá Sameinuðu þjóðunum, er Islendingum var formlega veitt aðild að Sameinuðu Þjóðunum árið 1946. En vonandi verður þetta mál til þess að íslensk stjórnvöld sýni meiri gætni, aðgát, varfærni og festu í samskiptum sínum við Sovétmenn næstu mánuði og misseri, og geta þá vonandi allir vel við unað. Sigurður G. Ilaraldsson. • Kærar þakkir til útvarpsins Alltaf hlær mér hugur í brjósti, þegar ég les hljóðvarps- gagnrýni Dagblaðsins. Upphafið hljóðar oftast á þessa leið: Ég hafði ekki tíma, ég hafði ekki áhuga, það komu gestir, og lesandi er engu nær. Þetta minnir á sum bréf lesenda í sama blaði. Alltaf kvartandi um sinfóníur í dag- skránni, þá sjaldan þeir fikta við vitlausan takka frá Keflavíkur- útvarpinu. Hvað mig sjálfa snert- ir, kærar þakkir til ykkar allra sem standið að útvarpsdagskránni frá sjö á morgnanna. Ég vinsa engan úr, en held til haga einu sýnishorni þ.e.a.s. sunnudeginum 20.07. sl. Með kærri þökk, Guðrún Jaccbsen. • Smávegis um umferðina Ég hef verið að velta því fyrir mér, vegna skrifa hjólreiðamanna HÖGNI HREKKVÍSI ðlt&MMT>e •ikJlaC Vixíi HAH6 BK-tffex étEMhT.. ** StGGA V/GGá í WQtt ÖTA\ vlrN/V/ VL&Ö XMRMÆ) W/M0RMR \ MNA/A'dTVI^ ‘btW m ^ÓNAtt A9 ÍANA. VlÓN \<0VÍ i\l VÍENN/ TRÓ 0M fif) vfÖIVVvffAl WÓN m A0< % töm'b Á0/1N,—fóY/VA m VTNiA 5/6AV 5NÓ9- ' T)\<ÝR5/.0MA 9 <]A-0Af LM-9A? Eg Witold Gombrowicz í Velvakanda að undanförnu, hvers vegna ekki sé tekið tillit tií þeirra. Ér ekki best að byrja á byrjuninni, þ.e.a.s. yngstu hjól- reiðamönnunum, og síðar verð- andi bifreiðastjórum. Það liður ekki sá dagur að maður mæti ekki hjólreiðamönnum á röngum veg- arhelmingi. Þar ber mest á þeirn ungu. Ef maður er akandi hvarflar það oft að manni, hvort maður sé kominn í vinstri umferðina aftur. Það er vitað mál, að þetta getur haft truflandi áhrif á ökumenn. Þetta er í rauninni mál sem ekki má láta fram hjá líða. Það verður að hefjast handa strax. Foreldrum ber skylda til að kenna og leið- beina börnum sínum í umferðinni, hafandi það í huga að þetta eru verðandi ökumenn á bílum, sem þá koma til með að stýra farar- tæki sem hættulegt er lífi og limum. Það er hægri umferð og það gildir fyrir hjólreiðamenn og bifreiðastjóra. Þrátt fyrir að mér finnist ábyrgð foreldranna mest, - ættu lögregla og kennarar að leggja enn meiri áherzlu en gert er, til að allir hjólreiðamenn fari eftir umferðarlögunum. Allir hjólreiðamenn verða að hlita þess- um umferðarlögum, svo hægt sé að taka tillit til þeirra, og að sjálfsögðu ber ökumönnum að gera slíkt hið sama. Gæti ekki hugsast að þeir ökumenn, sem síst taka tillit til hjólreiðamanna í dag séu menn, sem sett hafa sínar eigin hjólreiðareglur og hlýddu ekki umferðarlögunum? Það er ekki hægt að leiða hugann frá hinum ógnvekjandi slysum undan- farið. Hver er orsökin? Aðgæslu- leysi? Virðingarleysi fyrir lífinu, eða tillitsleysi? Hver sem orsökin kann að vera, þá má með sanni segja: „Það ungur nemur, gamall temur". Ökumaður. PÓLVERJINN Witold Gombro- wicz (1904—1969) er talinn einn af brautryðjendum absúrd leikritun- ar og einnig merkur skáldsagna- höfundur. Meðal kunnari verka hans eru leikritin Yvonne Búrg- úndarprinsessa og Óperetta (1966) og skáldsagan Ferdydurke (1937). Gombrowicz var landflótta í Arg- entínu 1939—1963, en átti eftir það heima í Frakklandi, nánar tiltekið í Vence rétt hjá Nice. Dagbækur Gombrowicz hafa komið út í þrem stórum bindum og verið þýddar á mörg mál. Nýlega kom út í Danmörku Dagbog 1953—1954, útg. Arena, Forfatt- ernes Forlag, en í bókinni er um það bil helmingur fyrsta bindis dagbókanna. I þessari dagbók kynnumst við manni sem óbundinn af öðru en eigin þankagangi segir hug sinn um samtið sína, ekki sist horfir hann úr fjarska gagnrýnum aug- um á Pólland. Dagbókin hefst reyndar skemmtilega og segir nokkuð um einstaklingshyggju Gombrowicz: Mánudaxur. ÉG. PriðjudaKur. ÉK MiðvikudaKur. Ék- FimmtudaKur. Ék- En þegar komið er að föstudegi berast Gombrowicz í hendur pólsk blöð og þau les hann eins og frásögn um náinn vin sem fyrir- varalaust hefur brugðið sér í ferðalag, til dæmis til Ástralíu og verður þar fyrir óvenjulegri reynslu. í blöðunum er lífið hinum megin við gler, langt í burtu, það Bókmenntir eftir JÓHANN HJÁLMARSSON er líkast því sem það sé ekki lengur okkar líf, eins og maður horfi á það út um lestarglugga. Jafnframt því sem Gombrowicz efast um sannleiksgildi pólsku blaðanna, en virðist þó hafa nokk- urn skilning á vanda þeirra, skop- ast hann að útlagablöðunum sem leggja áherslu á dyggðina: „Andi okkar er án efa orðinn siðprúður í útlegðinni". Tíðrætt verður Gombrowicz um bókmenntaefni pólskra blaða og tímarita. Hann kveðst ekki vilja vera fulltrúi neins annars en sjálfs sín. Þrátt fyrir það er þess krafist af honum að vera fulltrúi einhvers. „Það er ekki mér að kenna“, skrifar Gombrowicz, „að Argentínumenn líta á mig sem fulltrúa pólskra nútímabók- mennta". Við greinum sársauka Gombrowicz í þeim orðum sem hann lætur falla um sérkenni pólskra bókmennta, nauðsyn hans að brjótast undan hefðinni til að geta orðið hann sjálfur. Það varð hann í verkum eins og til dæmis Óperettu þar sem hann hæðist miskunnarlaust að öllum stofnun- um og valdsmönnum heimsins, keisurum og verkalýðsleiðtogum og sýnir vesaldóm alþýðunnar. Hið absúrda yfirbragð verka Gombrowicz segir ekki allt um þau, heimsádeilan er kveikja Witold Gombrowicz þeirra, trúleysið á allt, guð og menn, en kannski vonarglæta sem feist í því að nýir menn fæðist á rústum gamla heimsins. „Góðar pólskar bókmenntir", skrifar Gombrowicz, „nýjar og gamlar, hafa ekki komið mér að miklu gagni og hafa ekki kennt mér mikið. Það er vegna þess að þær hafa aldrei þorað að beina sjónum sínum að hinum ein- staka." Pólskum bókmenntum finnur hann það til foráttu að boðunin hefur verið í fyrirrúmi, viljinn að villa um fyrir einstakl- ingnum, gera hann háðan fjöldan- um, vekja þjóðerniskennd hans, hvetja hann til trúar, þjónustu. Aftur á móti talar Gombrowicz með samúð um vondar pólskar bókmenntir, í þeim afhjúpast raunveruleikinn, það sem ekki tekst listrænt séð hjá höfundun- um leiðir í ljós brestina í tilver- unni. Auðvitað þurfa bókmennta- sögur að vera til. „En af hverju aðeins saga góðra bókmennta?" spyr Gomþrowicz. I samræmi við þetta eru skoðan- ir Gombrowicz á listum. Hann lætur ekki heillast af viðurkenndri list, stolti safnanna, en vill fá að leggja eigið mat á hlutina. Hann segist ekki unna listinni heldur bíða uns hún komi til hans, ryðjist inn á hann. I dagbókum sínum er Gombro- wicz fyrst og fremst gagnrýninn. Stundum hvarflar það að lesand- anum að fjarlægð hans frá upp- runanum geri hann beiskan og jafnvel fjandsamlegan hvers kyns menningarviðleitni. En enginn skyldi halda að hægt sé að af- greiða slikan höfund sem venju- legan nöidursegg. Það virðist hafa eflt skáldskap hans að eyða ævinni í útlegð og oft einmanaleik sem þó er án örvæntingar. Yvonne Búrgúndarprinsessa hefur verið leikin hér. Gaman væri að fá að sjá Óperettu á íslensku leiksviði, en það er vel að merkja vandasamt verkefni að gera henni verðug skil. AUGLÝSING A STOF A MYNDAMÓTA Aðidstræti 6 simi 25810

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.