Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 5

Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 5 Ri'ykjanesumdæmi. Tekjuskattur hækk- ar um 68,3%, eign- arskattur 7,3 ÁLAGÐUR tekjuskattur í Reykjanesumdæmi hækkar um 68,32% frá álagningunni í fyrra, eignarskattur hækkar um 67,59% og útsvör um 64,7%. 18.537 íbúum Reykjanesumdæm- is er gert að greiða 15,2 milljarða í tekjuskatt, 7.510 greiða 883 milljónir í eignarskatt og 28.020 greiða 12,4 milljarða króna í útsvör. Samkvæmt upplýsingum Sveins Þórðarsonar skattstjóra nema álögð gjöld einstaklinga í Reykjanesumdæmi nú 32 millj- örðum króna, sem er 64,92% hækkun frá í fyrra, en þá námu þau samtals 19,4 milljörðum króna. Fjöldi á skrá er 33.796. 7,3 Persónuafsláttar til greiðslu útsvars, samtals 734,6 milljónir króna, njóta 8.749, per- sónuafsláttar til greiðslu sjúkr- atryggingagjalds, samtals 197,6 milljónir króna, njóta 9.639 og barnabóta, samtals 3,5 milljarð- ar króna, njóta 16.269. Slysatryggingar vegna heimil- isstarfa hækka um 37,86%, kirkjugjald hækkar um 64,8%, um 67,6%. kirkjugarðsgjald hækkar um 64,5%, slysatryggingagjald hækkar um 39,28%, lífeyristr- yggingagjald hækkar um 55,68%, atvinnuleysistrygg- ingagjald lækkar um 18,03%, launaskattur hækkar um 27,34%, sjúkratryggingagjald hækkar um 57,05%, aðstöðugj- ald hækkar um 63,17%, iðnlána- og iðnaðarmálagjald hækkar um 53,21% og skattur af skrifstofu- og verzlunarhúsnæði hækkar um 51,45%. Mestu samanlögðu gjöldin bera Kópavogsbúar, en á 9.362 þeirra eru lagðir 8,5 milljarðar króna og næstir koma 8.259 Hafnfirðingar með 7,2 milljarða króna. Garðbæingar bera hins vegar hæsta meðaltalsgjald, eða 1.168.424 krónur, en á 3.152 Garðbæinga eru lagðir 3,7 millj- arðar króna. Næsthæsta meðal- talsgjald er í Grindavík, 1.090.778 krónur, meðaltalsgjald Seltirninga er 1.072.190 krónur, Kópavogsbúa 902.447 krónur og Hafnfirðinga 874.701 króna. Norðurland eystra: Eignarskattur hækkar um 60,8% — tekjuskattur um 44% ÁLAGÐUR tekjuskattur á ein- staklinga í Norðurlandsumdæmi eystra nemur um 6 milljörðum króna, sem er 43,9% hækkun frá álagningunni í fyrra. en þá greiddu íbúar á Norðurlandi eystra 4,2 milljarða króna í tekju- skatt. Guðmundur Gunnarsson fulltrúi á skattstofunni á Akureyri gaf Mbl. í gær upp heildartölur samkvæmt álagningu tekjuskatts, útsvars og eignarskatts. Útsvarsálagningin nú nemur 5 milljörðum 687 milljónum króna, en í fyrra námu útsvörin 3 milljörðum 645 milljónum króna og er hækkunin milli ára 56,02%. Eignarskattsálagningin nú er sam- tals 193 milljónir króna, sem er 60,83% hækkun frá í fyrra, en þá var álagningin samtals 120 milljón- ir króna. Tölur um fjölda einstaklinga, sem gjöldin eru lögð á, eða frekari skattatölur var ekki hægt að fá í gær. Götunarskekkjur í álagningunni á Yestfirðinga „ÞAÐ eru svo slæmar götunar- skekkjur í þessu. að ég get ekki verið að gefa upp neinar tölur núna.~ sagði Hreinn Sveinsson skattstjóri Vestfjarðaumdæmis. er Mbl. spurði hann i gær um álagn- ingu á einstaklinga á Vestfjörðum. Hreinn sagði að búið væri að senda út flesta skattseðla og þeir síðustu færu til viðtakenda á morg- un. „Við erum núna að vinna við leiðréttingar á þessum götunar- skekkjum og ég á von á því að okkur takist að ljúka við þær í vikunni,“ sagði Hreinn. Hjá skattstofu Norðurlandsum- dæmis vestra ísSiglufirði var Mbl. tjáð, að væntanlega lægju tölur fyrir síðar í vikunni, Hálfdán Guð- mundsson skattstjóri Suðurlands- umdæmis kvaðst reikna með niður- stöðum eftir næstu helgi og álagn- ingu er einnig ólokið í Austurlands- umdæmi. V esturlandsumdæmi: Eignarskattunnn hækkar um 103,5% — tekjuskattur um 68/7% og útsvör um 65,7% Á Vesturlandi greiða 5026 cin- staklingar 3,4 milljarða króna í tekjuskatt. en í fyrra voru röskir 2 milljarðar lagðir á 4294 gjaldend- ur. Heildarhækkunin milli ára er því 68,7%. Jón Eiriksson skatt- stjóri í Vesturlandsumdæmi sagði í samtali við Mbl. i gær. að nú næmi eignarskattsálagningin á 1292 ein- staklinga 141,8 milljónum króna, en í fyrra voru 69,7 miiljónir lagðar á 711 manns. þannig að eignarskattur hækkar um 103,47%. Útsvarið hækkar um 65.7%, en nú eiga 8385 manns að greiða 3,2 milijarða króna. en í fyrra báru 6340 samtais tæpa tvo miiljarða króna i útsvör. Á öllum þéttbýlisstöðum i umdaminu var lagt á 12.1% útsvar. Jón sagði, að slysatrygging vegna heimilisstarfa gerði nú 931 þúsund krónur á 196 einstaklingum, álögð sóknargjöld á 6957 manns nema 51.252.500 krónum, álögð kirkju- garðsgjöld á 6011 einstaklinga nema 47.382.780 krónum, slysa- tr.vggingar, sem 1562 einstaklingar bera, nema samtals 33.210.159 krón- um, lífeyristryggingar, sem 528 einstaklingar bera nema 51.831.700 krónum, atvinnuleysistryggingar, sem 268 einstaklingar bera, nema 9.979.805 krónum, launaskattur hjá 315 einstaklingum nemur samtals 42.005..345 krónum, sjúkratrygg- ingagjöld 8291 manns nema samtals 482.611.500 krónum og aðstöðugjöld, sem 1354 einstaklingar bera, nema samtals 137.181.000 krónum. ■ Þessi mynd er tekin. þegar farþegar voru ferjaðir út i Fagranesið frá Látrum í Aðalvík s.l. föstudag. Fagranesið er til hægri á myndinni. Örn Í.S. 18 til vinstri. Ljósm. Mbi. Friða Proppé. Sportbátar drógu Fagra- nesið af strandstað — Lítt skemmt DJÚPBÁTURINN FAGRANES strandaði fyrir utan Sæból í Aðal- vík, Hornströndum í fyrradag. Fjórir 22 feta sportbátar úr Báta- klúbbnum Sæfara á ísafirði drógu Fagranesið á flot, en áður hafði árangurslaust verið reynt að ná því út á eigin vélarafli. Fagranesið mun þó eigi vera mikið skemmt og hélt í áætlunarferð á ný í morgun. Strandið átti sér stað á þriðja tímanum siðdegis, er verið var að £ heldur áætlun flytja farþega úr landi um borð. Mun það hafa rekið um 20-30 metra á meðan og lent á rifi þar sem það sat siðan fast í rúmleg eina klukkustund. Reynt var að ná því á flot með eigin vélarafli, en það tókst ekki. Bátaklúbburinn Sæfari hélt fjölskylduhátíð í Aðal- vík um verzlunarmannahelgina og voru þar samankomnir á annan tug báta. Eigendur fjögurra 22 feta kraftmikilla báta buðu fram aðstoð og tókst með sameiginlegu átaki þeirra og Fagranessins að ná því á flot. Að sögn Kristjáns Jónassonar framkvæmdastjóra Djúpbátsins h/f er Fagranesið ekki mikið skemmt en kafari kannaði skemmdirnar í gærdag. Ekki verða neinar tafir á ferðum þess og hélt það í áætlunarferð á ný í morgun. Stýrimaður Fagranessins var skipstjóri í þessari ferð. SMABATAEIGENDUR — TRILLUBAT AEIGENDUR /S ROYAL Höfum nú aftur fyrirliggján^i takmarkaöar birgöir af hinum þekktu og vinsælu dýptarmælum og fiskileitar- tækjum ROYAL RF—1000 á sérlega hagstæöu veröi, kr. 299.865. DYPTARMÆLAR og Viögeröar- og varahlutaþjónusta. Söluumboð / Sínus h/f, Grandagarði 7. Sími 28200. T0Y0TAVARAHLUTAUMB0ÐID, Ármúla 23. — Sími 81733.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.