Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 12

Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 Á ferö um N-Þingeyjarsýslu Texti: Hildur Helga Siguröardóttir Myndir: Emilía Björg Björnsdóttir Bóndinn á Auðbjarg- arstöðum heimsóttur betfar ekið hefur vcrið fyrir Tjörnes í norðurveg oj{ öxar- fjorðurinn blasir við sjónum vegfarenda. lixxur leiðin niður Auðbjarifarstaðabrekku. sem er afar brött og kjarri vaxin. Frá brekkubrúninni er útsýni mikið o|{ fagurt yfir nærlÍKxj- andi sveitir. en við rætur brekk- unnar er allstórt ión. Auðbjarjf- arstaðalón. ok bœrinn Auð- bjarxarstaðir. bar býr bóndinn Bjarni Gunnarsson ox hann sóttu blm. og Ijósm. Morgun- blaðsins heim fyrstan manna á ferð sinni um N-bingeyjarsýslu á dögunum. Bæjarstæði Auðbjargarstða er ákaflega fallegt, undir skógi vaxinni brekkunni með lónið og utar hafið á aðra hönd, en umhverfis bæinn er allt áber- andi snyrtilegt, eins og raunar allsstaðar þar sem farið er um á þessum slóðum. Bjarni var úti á túni í heyskap ásamt vinnumanni sínum, þegar r Auðbjargarstaðir. Gamli bærinn stendur enn að hluta. en lengst t.v. er reykkofinn þar sem silungurinn, sem veiðist í lóninu. er reyktur. „Bezta vor sem ég hef lifað“ Bjarni hellir upp á könnuna i nýja eldhúsinu. Bjarni og Rögnvaldur vinnumaður við reynitréð, sem faðir Bjarna gróðursetti við bæjarvegginn fyrir hartnær 50 árum. okkur bar að garði, enda þurrkur þann daginn og sláttur kominn nokkuð vel á veg á þessum slóðum, en tók þó málaleitan um smáspjall vel og var gengið til bæjar. Bæjarhúsið er eiginlega bæði gamalt og nýtt, því gamli bærinn, sem reistur var 1917, stendur enn að hluta til, en nýja húsið, sem Bjarni byggði, gengur upp í risið á því gamla. Við bæinn er líka gamalt reykhús, en þar reykir Bjarni silung sem hann veiðir í lóninu. Sunnan- megin við íbúðarhusið standa myndarleg reynitré í skjóli fyrir hafgolunni og er annað þeirra a.m.k. sjö metrar á hæð, enda orðið fimmtíu ára gamalt. Sagði Bjarni föður sinn hafa tekið það úr hlíðinni og gróðursett undir bæjarveggnum á sínum tíma, þá smáhríslu. Er heim i bæinn var komið bauð Bjarni upp á kleinur en sagðist hann nú annars ekki hafa mikinn tíma til að baka, svona um hásumarið, hann gerði meira af þvj' á veturna. Einhvern tíma hefur hann þó gefið sér tíma til þess, því innan skamms sá varla í borðið fyrir alls kyns kræsingum. Bjarni kvað friðsælt og gott að búa að Auðbjargarstöðum og ekki þarf hann að kvarta undan skorti á mannaferðum, þótt ein- búi sé, því segja má að hann sé í þjóðbraut. Tjörnesvegurinn var lagður um 1958 en áður var farið um Reykjaheiði. Nú fer þennan veg fjöldi ferðamanna á leið inn á hálendið og tjalda stórir hópar langferðamanna oft svo að segja í túnfætinum hjá Bjarna, áður en lengra er haldið. Sagðist Bjarni hafa átt töluverð sam- skipti við starfsfólk langferð- anna í gegnum árin og væri það þægilegt og gott fólk. Á vetrum er Auðbjargarstaðabrekka oft illfær, festast bílarnir í brekk- unni og leitar fólkið þá niður að Auðbjargarstöðum. Seinna í ferðinni var okkur sagt, að margir hefðu leitað hraktir til Bjarna um dagana og öllum verið vel tekið. Úr eldhúsglugganum sér i brekkuna, sem mun vera geysi- gott berjaland, enda gróðrarlegt þar um að litast. En þar er líka vatnsból með sjálfrennandi vatni og eru nú að hefjast framkvæmdir sem miðast við það að leggja vatnsleiðslur úr Auðbjargarstaðabrekku að 24 bæjum. Er þarna um töluverðar framkvæmdir að ræða, því aðal- kaflinn verður um 15 km. langur, auk vegalengdanna heim að hverjum bæ fyrir sig. Allmörg ár eru síðan Auðbjargarstaða- bændur leiddu vatn úr upp- sprettunni i brekkunni heim i sín bæjarhús. Að sögn Bjarna handgrófu þeir hann og faðir hans allar vatnsleiðslur á sínum tíma; 417 metra að fjárhúsunum. I Auðbjargarstaðalóni gætir flóðs og fjöru og rekur að hafi, en þar er eins og áður sagði silungur og er nú verið að gera tilraunir með eldi. Bjarni kvaðst hafa veitt vel í sumar og aðspurður um tiðina yfirleitt sagði hann að vorið í vor hefði verið eitthvert það besta sem hann hefði lifað, einmuna tíð og gaman að eiga við sauð- burðinn. Nú bættist vinnumað- urinn í hópinn, en hann heitir Rögnvaldur Jónatansson, og verður 14 ára í haust. Rögnvald- ur er Akureyringur en þetta er annað sumarið i röð sem hann er að Auðbjargarstöðum og sagðist hann kunna því mjög vel og fara sjaldan í kaupstað, hefði t.d. bara farið einu sinni til Húsa- víkur í allt fyrrasumar. Áður en haldið var frá Auð- bjargarstöðum, eftir góðan við- urgjörning var Bjarni spurður um félagslifið í sveitinni og hvort hann færi oft í höfuðborg- ina. Félagslífið kvað Bjarni vera ágætt, sérstaklega væru þorra- blótin vel sótt. Til Reykjavíkur sagðist hann stundum bregða sér á haustin, þegar búið væri að slátra og féð gengi sjálfala, og hafa gaman af, þótt ekki vildi hann búa þar. „Það er verst hvað erfitt er að ná í nokkurn mann þarna fyrir sunnan, nema á kvöldin."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.