Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
17
Bæði mönnum og hundum þótti gott að bregða sér til sunds i hitanum
á Þingvöllum. Ljósm. Mbl. Emilla.
Hluti bátafiota Sæfaramanna að Sæbóli. Mikla athygíi vakti fíug litillar flugvélar yfir svæðið að kvöldi
sunnudags. Ljósm. Mbl. Frióa Proppé.
„Iíakpoka tek ég, úr bænum ég
held“. Margir völdu sér útivist og
fjallgöngur um helgina. Þessi
mynd er tekin á Hornströndum.
Ljósm. Mbl. Fríða Proppé.
fremur róleg í ár og færra fólk
þar, en búizt hafði verið við. Tveir
árekstrar urðu og einn bíll lenti
útaf, en engin teljandi slys urðu á
fólki. Um 1000 manns voru í
Atlavík og talsvert var af tjöldum
á tjaldstæðinu á Egilsstöðum.
Mikil ölvun var á laugardeginum
og voru þrír teknir vegna gruns
um ölvun við akstur. Þá var
taisvert af víni gert upptækt hjá
unglingum, en að sögn lögreglunn-
ar er fremur erfitt að sporna við
drykkju unglinganna, því venju-
lega er einhver með þeim, sem
orðinn er tvítugur og segist eiga
vínið.
Rólejí helgi
í Húnaveri
Að sögn lögreglunnar á Blöndu-
ósi var mjög rólegt um verzlun-
armannahelgina í Húnaveri, tals-
vert var þar um ölvun, en fólk
drakk sitt vín og skemmti sér án
vandræða eða óláta. Um 500
manns voru þar þegar flest var, en
annars var mikil umferð þar í
kring og erfitt að gera sér grein
fyrir fjöldanum. Þrátt fyrir mikla
umferð urðu aðeins þrjú minni
háttar umferðaróhöpp og engin
slys á fólki. Tveir ökumenn voru
teknir vegna meintrar ölvunar við
akstur.
Áfallalaus verzlunar manna-
helgi í Rangárvallasýslu
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli var verslunarmannahelgin
með rólegra móti þar í sýslunni.
Fólkið safnaðist saman á tveimur
stöðum, Þórsmörk og Galtalæk. Á
bindindismótinu í Galtalæk voru
um 3000 manns og þar fór að
sjálfsögðu allt vel fram. í Þórs-
mörk voru um 900 manns og þar
var mikil ölvun, en ekki um nein
slys eða óhöpp að ræða. Talsvert
var um að menn festu bíla sína í
Krossá, en lögreglan og Björgun-
arsveit Hvolsvallar voru með vakt
á staðnum og tókst þeim að koma
í veg fyrir öll meiri háttar óhöpp. I
Þórsmörk voru tveir teknir grun-
aðir um ölvun við akstur. Það var
blíðskaparveður alla helgina og
taldi lögreglan að það hefði átt
mikinn þátt í því hve menn voru
rólegir, þrátt fyrir ölvunina.
Fjölskylduhátíð
við nyrztu höf
Fjölmenni var um helgina að
Sæbóli í Aðalvík á Hornströndum.
Bátaklúbburinn Sæfari á ísafirði
efndi til fjölskyldumóts og voru
þar samankomnir á annan tug
báta og á annað hundrað manns,
að meðtöldu fólki í sumarbú-
stöðum.
Dansleikur var haldinn aðfar-
arnótt sunnudags í gömlu skóla-
byggingunni að Sæbóli og dansað
fram eftir nóttu við harmoniku-
undirspil. Á sunnudagskvöldið var
kveiktur varðeldur og farið í leiki
við góðar undirtektir yngstu fjöl-
skyldumeðlimanna.
Fleiri áttu leið til Hornstranda
um helgina en Sæfaramenn.
Fjöldi fólks dvaldi í sumarbú-
stöðum, s.s. að Látrum í Aðalvík, í
Fljótavík, Hornvík og víðar. Einn-
ig notuðu margir helgina til
gönguferða um Hornstrandir og
höfðust við í tjöldum. Veður var
mjög gott framan af helginni um
þessar slóðir, en dró upp með
rigningu á mánudeginum.
Hluti tjaldsvæðanna á Þingvöllum. Ljósm. Mbi. Emiita.
Það er hægur vandi að láta fara vel um sig i bliðskaparveðrinu i Þórsmörk.
I.jAsm. Mbl. Kristinn ólafsson.
a manudaa
til w
ISAFJARÐAR - SIGLUFJARÐAR - AKUREYRAR
Vörumóttaka í A-skála til kl. 1500 á föstudag
Hafóu samband
EIMSKIP
SIMI 27100