Morgunblaðið - 06.08.1980, Side 18

Morgunblaðið - 06.08.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 Hrafnseyrarhátíð í tilefni af 100 ára ártíð Jóns Sigurðssonar Hrafnseyri í Arnar- firði. Fyrir miðri mynd er skólahúsið og kapellan, en í skóla- húsinu er einnig hýst safn Jóns Sigurðsson- ar, sem opnað var á Hrafnseyrarhátíðinni nú. Kapellan var einn- ig vígð, og kemur hún i stað gömlu kirkjunn- ar, sem er til hægri á myndinni. Ákveðið hefur verið að gera kirkjuna upp. Mynd- ina tók Kristján ljós- myndari Mbl. skömmu áður en Hrafnseyrar- hátíðin hófst, og sjá má að fólksfjöldinn er þegar farinn að streyma inn á hátíð- arsvæðið. Giskað var á að um 2.000 manns hafi verið á útisam- komunni. piPgpii * n ***" MMnHj ’ 1 r **f* r * 4 I 1 ” «r iaHBIM StHHÍ M , 7 *í*~ mh. „Vitsmunir hans voru djúpir, skapsmunir ríkir og heitir“ Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, flytur minni Jóns Sigurðs- sonar á fjórðu Hrafnseyrarhátið- Ínni. Liósm. Mbi. KristMn. Guðmundur Ingi Kristjánsson flytur Hrafnseyrarkvœði sitt. Gunnar Thoroddsen flytur ávarp á Hrafnseyrarhátíðinni. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, stigur frá borði við komuna til Reykjavíkur af Hrafnseyrarhátið. I fylgd forsetans er Birgir Möller forsetaritari. Skipherra og skipshöfn á varðskipinu Ægi mynda beiöursvörð. Ljósm. Arni Kristjánsson. Fjölmennt var á Hrafnseyrarhátíð, sem haldin var í blíðskaparveðri á Hrafnseyri við Arnarfjörð á sunnu- dag, í tilefni af 100 ára ártíð Jóns Sigurðssonar. Margt tiginna gesta var á hátíðinni, m.a. forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, forsætisráðherra, dr. Gunnar Thoroddsen ,og biskupinn yfir íslandi, Sigurbjörn Einarsson. Á hátíðinni var vígð kapella sem byggð hefur verið við Hrafnseyrarhúsið, og opnað var safn Jóns Sigurðssonar, þar sem lýst er í máli og myndum lífi og starfi Jóns Sigurðssonar. Formaður Hrafnseyrarnefndar, Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis- stjóri setti hátíðina. Því næst flutti forseti Islands, Vigdís Finn- bogadóttir, minni Jóns Sigurðs- sonar, og var það fysta embættis- verk forsetans, en ræða hans er birt í heild hér í blaðinu. Þá flutti Guðmundur Ingi Kristjánsson skáld á Kirkjubóli „Hrafnseyr- arkvæði", sem hann orti í tilefni af hátíðinni, og loks flutti forsæt- isráðherra, dr. Gunnar Thor- oddsen, ávarp. Á milli atriða sungu karlakórinn Ægir frá Bol- ungarvík og karlakór Þingeyrar. Hannibal Valdimarsson bóndi og fyrrverandi Alþingismaður stjórnaði hátíðinni. Auk Þórhalls Ásgeirssonar og Hannibals Valdi- marssonar eru í Hrafnseyrar- nefnd þeir Ágúst Böðvarsson, Halldór Kristjánsson og Sturla Jónsson. í setningarræðu sinni gat Þór- hallur Ásgeirsson þess, að það væri sérstakt ánægjuefni að ný- kjörinn forseti, Vigdís Finnboga- dóttir, skyldi hafa fallist á að láta það verða eitt fyrsta embættis- verk sitt að ávarpa hátíðarsam- komuna og alþjóð af hlaðinu á Hrafnseyri, þaðan sem Jón Sig- urðsson sleit sínum fyrstu sauð- skinnsskóm. Hann gat einnig fyrri Hrafnseyrarhátíða, sem eru þrjár, sú fyrsta á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911, síðan önnur 1944 við stofnun lýðveldis- ins og svo á 150 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1961. Þórhallur lýsti einnig störfum Hrafnseyrarnefndar varðandi uppbyggingu á Hrafnseyri, sem hann kvað einn merkasta sögustað landsins. Hann sagði þá m.a., að kynning á baráttu Jóns Sigurðs- sonar fyrir sjálfstæði, menningu og alhliða efnahagslegum umbót- um verði aldrei lokið. Það þurfi að endurlífga mynd forsetans í huga og hjarta þjóðarinnar og gera baráttu hans og hugsjónir meira lifandi fyrir öllum landsmönnum, sem fæstir muna þá tíma, er ísland var ekki orðið sjálfstætt. Þórhallur Ásgeirsson sagði ennfremur: „Á þessum stað og stundu er mér ljúft og skylt að færa öllum þeim sem stutt hafa uppbyggingu Hrafnseyrar bestu þakkir. Á þessií sviði hafði áður mikið starf verið unnið af fyrri Hrafnseyrar- nefnd undir forystu Ásgeirs Ás- geirssonar, þingmanns Vestur- Isfirðinga og síðar forseta. Fyrir honum var uppbygging Hrafns- eyrar í minningu Jóns Sigurðsson- ar einlægt hjartans mál, eins og sýndi sig, þegar hann stofnaði minningarsjóð um konu sína, Dóru Þórhallsdóttur, til að reisa hér kapellu, sem þá var af öllum kunnugum talin mikil þörf fyrir. Ég þori að fullyrða að án þessa minningarsjóðs, sem jókst enn við andlát Ásgeirs Ásgeirssonar, og þeirrar hvatningar og skyldu, sem af stofnun sjóðsins leiddi, gætum við ekki fagnað þeim áfanga, sem nú hefur náðst. Margir aðrir hafa sýnt Hrafns- eyri mikinn áhuga og veitt fjár- styrk til framkvæmdanna. Vil ég sérstaklega minnast frystihúsa- eigenda og útgerðarfélaga á Vest- fjörðum, Læknafélags íslands sem gefið hefur steindan glugga til minningar um Hrafn Sveinbjarn- arson, og afkomenda Jens Sig- urðssonar rektors, sem lagt hafa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.