Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 19

Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 19 fram fé til að gera þrjár minn- ingarglugga forsetans. En þessa glugga alla teiknaði Steinþór Sig- urðsson. Of langt mál væri að telja upp öll fyrirtæki og einstakl- inga sem veitt hafa þessu máli stuðning. Þá vil ég heldur ekki gleyma að þakka öllum þeim, sem unnið hafa að þessum framkvæmdum með hug og hönd. í því sambandi vil ég sérstaklega geta Steinþórs Sig- urðssonar listmálara, Harðar Bjarnasonar fyrrverandi húsa- meistara ríkisins, Einars Laxness magisters og Hallgríms Sveins- sonar bónda á Hrafnseyri. Rausnarleg gjöf í dag hefur Hrafnseyrarnefnd borist þréf frá Benedikt Þ. Bene- diktssyni vélstjóra í Bolungarvík, þar sem hann gefur Hrafnseyri jörðina Gljúfurá, sem er hér rétt fyrir innan í firðinum. Jón Sig- urðsson átti hlut í þessari jörð og sá eignahluti gerði honum kleift að bjóða sig fram til Alþingis árið 1844, þá aðeins 32 ára. Þessi rausnarlega gjöf er þegin með þökkum, því að allt sem tengt er minningu Jóns Sigurðssonar hefur sögulegt gildi. Forsætisráðherra, dr. Gunnar Thoroddsen, gat í ávarpi sínu um baráttu Jóns Sigurðssonar á sínu fyrsta þingi, árið 1845, fyrir frjálsri verzlun, og sagði m.a. að í anda Jóns Sigurðssonar og fyrir boðskap hans og baráttu, losnaði um viðjar og verzlunin færðist á íslenzkar hendur. „Hann hélt fast fram rétti landsmanna," sagði Gunnar og vitnaði til orðaskipta Jóns og konungsfulltrúa á Alþingi. „Rök- fimin og snerpan leyndu sér ekki þegar á þessu fyrsta þingi. Hér mælti hann líka fram með máli, sem st óð hjarta hans nær, því að svo tilfærð séu orð Jóns, „verzlun er undirrót til velmegunar lands og lýðs, þegar hún er frjáls". Sagði Gunnar, að á þeirri helgi, sem helguð væri verzlunarmönnum, væri minnst brautryðjendastarfs Jóns Sigurðssonar fyrir frjálsri verzlun. Hitt mætti þó ekki gleymast, að enn skortir á, að verzlun landsmanna búi við það frjálsræði, sem þjóðinni allri væri hollast. Hinn vitri og sterki leiðtogi Gunnar Thoroddsen sagði ennfremur: „Tveir eru þeir menn, tengdir Hrafnseyri, sem nafn- kunnastir hafa orðið með þjóðinni. Annar var Hrafn Sveinbjarnar- son, gæfumenni og líklega mestur læknir á Norðurlöndum á þeirri tíð. Við mörgum mönnum vanheil- um og félausum tók hann og hafði með sér á sínum kostnað, þangað til er þeir voru heilir. Hinn var Jón Sigurðsson, hinn vitri og sterki leiðtogi. Vitsmunir hans voru djúpir, skapsmunir rík- ir og heitir. Áuk annarra mann- kosta hafði hann það fram yfir marga aðra menn, að aldrei lét hann skapsmuni sína bera vits- muni ofurliði. Til þess þarf oft að taka á. Sjálfur sagði Jón eitt sinn: „Það er mannraun að tala svo milt, þegar sýður niðri í manni.,, Annar þessara öndvegismanna læknaði mein manna. Hinn bætti mein þjóðarinnar". Færði Gunnar Thoroddsen að lokum Hrafnseyrarnefnd þakkir ríkisstjórnarinnar fyrir það starf sem leyst hefur verið af hendi á Hrafnseyri til minningar um Hrafn Sveinbjarnarson og Jón Sigurðsson. Oft klappað af minna tilefni Hannibal Valdimarsson bóndi á Selárdal og fyrrum Alþingismað- ur stjórnaði hátíðinni á Hrafns- eyri af röggsemi. Að loknum ræðuhöldum lýsti hann gjafar- bréfi fyrir jörðina Gljúfurá, sem Benedikt Benediktsson vélstjóri á Bolungarvík færði Hrafnseyri að gjöf. Hannibal afhenti Benedikt sett af minnispeningi Jóns Sig- urðssonar sem þakklætisvott Hrafnseyrarnefndar fyrir hina höfðinglegu gjöf „gerningargjöf", eins og Hannibal lýsti henni. Kröftugt lófatak kvað við er Bene- dikt tók við minnispeningunum, og er því linnti sagði Hannibal að oft hefði verið klappað af minna tilefni á íslandi. Beðið fyrir lífi heillar þjóðar Þegar útisamkomunni á Hrafnseyrarhátíðinni lauk var haldið til kapellunnar sem biskup- inn, herra Sigurbjörn Einarsson vígði, en honum til aðstoðar var séra Lárus Guðmundsson prófast- ur á Holti i Önundarfirði. Kirkju- kór Þingeyrar söng við athöfnina. Við athöfnina ræddi biskup um fjölskyldu Jóns Sigurðssonar og forfeður, æskuár hans á Hrafns- eyri og störf í þágu þjóðarinnar. Komst biskup þá m.a. svo að orði, að þegar séra Sigurður og kona hans Þórdís báðu fyrir lífi barns- ins Jóns, hefðu þau verið að biðja fyrir lífi heillar þjóðar og framtíð- ar hennar. Að lokinni vígslu kapellunnar, var opnað safn Jóns Sigurðssonar, sem er á tveimur hæðum í Hrafns- eyrarhúsinu, en veg og vanda af safninu eiga þeir Einar Laxnes cand. mag. og Steinþór Sigurðsson listmálari. í safninu getur að líta málverk, teikningar og ljósmyndir tengdar æviferli Jóns Sigurðsson- ar. Einnig er þar að finna likan af torfbænum á Hrafnseyri, eins og hann leit út á dögum Jóns. Loks er þar skrifpúlt hans. Það mátti ráða af einkennis- stöfum bifreiða gesta á Hrafns- eyri, að þeir komu víða að af landinu, af Vesturlandi, Norður- landi, Austfjörðum, Suðurlandi, úr Reykjavík, en fjölmennastir voru að sjálfsögðu Vestfirðingar. Ymsir komu flugleiðis og voru um tíma nokkrar flugvélar á flugvell- inum, sem er hálfpartinn í fjöru- borðinu, og þótt stuttur sé, þá var hann nógu stór fyrir Ottervél Arnarflugs, sem kom þangað með farþega og sótti síðar um daginn. — ágás. Frá vigslu kapellunnar. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson framkvæmdi vigsluna með aðstoð séra Lárusar Guðmundssonar prófasts i Holti. Þórhallur Ásgeirsson formaður Hrafnseyrarnefndar flytur setn- ingarræðu sína. Benedikt Benediktsson vélstjóri á Bolungarvik tekur við minnispen- ingi Jóns Sigurðssonar úr hendi Hannibals Valdimarssonar stjórn- anda útisamkomunnar á Hrafnseyrarhátiðinni. Benedikt gaf Hrafns- eyri á sunnudag jörðina Gljúfurá, en það var fyrir eignaraðiid í þeirri jörð að Jón Sigurðsson komst á þing. Hluti mannhafsins á Hrafnseyrarhátiðinni. I baksýn má m.a. sjá varðskipið Ægi lóna úti á Arnarfirði. Varðskipið flutti forsptn f«lanHa forsætisráðherra og biskup o.fl. til hátiðarinnar. Þjósm. Mbl. Kristján. MnátlshX

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.