Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 41

Morgunblaðið - 06.08.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 21 Landsliðið til Finnlands í dag LANDSLIÐIÐ í golfi var valið að loknu íslandsmótinu á sunnudag og heldur liðið til Finnlands i dag, en i Helsinki hefst á föstudag Norðurlanda- mót i golfi. Landsliðið skipa þeir Hannes Eyvindsson GR, Björgvin Þorsteisson GA, Sig- urður Pétursson GR, Sveinn Sigurbergsson GK, óskar Sæm- undsson GR og Geir Svansson GR. Einvaldur landsliðsins er Kjartan L. Pálsson og sagði hann í samtali við Morgunblað- ið, að við val liðsins hefði ekki eingöngu verið farið eftir stigum frá punktamótum, en þau höfð til hliðsjónar. — Þetta var vissu- lega erfitt val og góðir kylfingar verða eftir heima, menn eins og Þorbjörn Kjærbo og Ragnar ólafsson, sem reyndar hefði ekki komist í þessa ferð, sagði Kjart- an L. Pálsson. Að loknu Norðurlandamótinu halda þeir Hannes, Björgvin og Sveinn til Svíþjóðar til þátttöku í tveimur mótum, sem SAAB hefur boðið til. I haust fara síðan Hannes, Björgvin, Sólveig Þorsteinsdóttir og Jakobína Guðlaugsdóttir til Ítalíu, en FIAT býður til mikils móts þar. Var ákveðið fyrir íslandsmótið að tveir efstu í meistaraflokkun- um skyldu hljóta Ítalíuferðina eins og í fyrra. Kóngur og drottning HANNES Eyvindsson og Sólveig Þorsteinsdóttir, bæði úr GR, urðu íslandsmeistarar í golfi á laugardaginn. Sigur þeirra beggja var öruggur og fyllilega verðskuldaður. Mótið var haldið í Grafarholti og tókst í alla staði vel. Á miðopnu blaðsins er fjallað um Islandsmótið i golfi, þessari iþrótt, sem sifellt verður vinsælli. (Ljósm. Óskar Sæmundssun). Staðaní 1. deild STAÐAN i 1. deild að loknum leikjunum i gærkvöldi: FH — Vikingur 0:1 KR - ÍBK 1:0 Staðan: Valur 11 7 1 3 27:10 15 Vikingur 12 5 5 2 15:10 15 Fram 11 2 6 3 12:13 14 ÍA 12 5 4 3 19:15 14 UBK 11 6 0 5 19:14 12 KR 12 5 2 5 11:16 12 ÍBV 12 4 3 5 19:21 11 ÍBK 12 2 5 5 11:17 9 Þróttur 11 2 3 6 7:11 7 FH 12 2 3 7 16:29 7 í kvöld k. 20.00 leika á Kópavogsvelli UBK og Valur og Fram og Þróttur á Laugardalsvellinum. - þr. Ragnar Gislason Viking á fullri ferð með boltann. Ragnar átti allan heiðurinn af marki Vik- ings i gærkvöldi. • Pólverjinn Wladyslaw Kozaklewicz setur nýtt heimsmet i stangarstökki, fer vel yfir 5,78 metra á ólympiuleikunum i Moskvu. Met hans var eitt af 36 nýjum heimsmetum sem þar voru sett. Simamynd AP. Víkingar í toppbaráttu VÍKINGAR þokuðu sér upp að hlið Valsmanna á toppi fyrstu deildar í gærkvöldi er þeir sigruðu FH 1—0 í Kaplakrika. Þeir eru nú komnir i efsta sæti 1. deildarinnar i knattspyrnu ásamt Val, en hafa leikið einum leik meira. Leikur FH og Vík- ings var annars jafn og opinn baráttuleikur, sem farið gat á báða vegu. Liðin sóttu á báða bóga og tókst að skapa sér nokkuð mörg góð færi, sem tókst þó ekki að nýta nema einu sinni. Það var á 80. min. aö Hafnfirðingarnir gleymdu að gæta Ragnars Gislasonar inni i vitateignum og Heimir Karls- son sendi boltann beint á koll- inn á Ragnari sem skallaði i netið framhjá Friðrik i FH-markinu, með hjálp Ilinriks Þórhallssonar, sem ýtti b oltan- um siðustu sentimetrana yfir marklinuna. Ef frá er skilið gott færi Lárusar á fyrstu mínútum leiks- ins, sem honum tókst ekki að nýta, áttu Hafnfirðingarnir heldur meira í leiknum framan af, á 15. mín. skýtur Magnús Teitsson hárfínt framhjá eftir að Helgi Ragnarsson hafði skall- að laglega inn í vítateiginn til hans. Á 25. mín. varð stórhætta við Víkingsmarkið er Ásgeir Arinbjörnsson skýtur rétt fram- hjá stönginni og tánum á Pálma Jónssyni og Magnúsi Teitssyni eftir skemmtilegt upphlaup. Á 40. átti Helgi Ragnars gott skot í utanvert hliðarnet Víkings- marksins. Víkingar voru svo sterki aðil- inn í seinni hálfleik og sóttu meira og komst Lárus Guð- mundsson oft í góð færi, en tókst Víkingur 0 1 ekki að nýta þau og á 13. mín. skallar Heimir Karlsson í slá FH-marksins og yfir. Þegar 10. mínútur eru svo til leiksloka skora Víkingar svo laglegt mark, sem þó verður að skrifast á reikning FH varnarinnar, þegar hún gleymir að gæta Ragnars bakvarðar og hann skorar með hjálp Hinriks eftir að hafa fengið góða sendingu frá Heimi. Eftir markið sóttu Hafnfirð- ingar í sig veðrið og sóttu ákaft, en sóknarlotur þeirra brotnuðu oftast á Diðrik, sem var mjög traustur í markinu. Bæði liðin leika nú mun betri knattspyrnu en í upphafi móts- ins og ef þau halda áfram á þeirri braut ætti FH ekki að þurfa að óttast fall í haust og Víkingur verður örugglega með í baráttunni um toppinn. Mun meiri barátta og leikgleði er nú hjá FH-liðinu, auk þess sem það leikur nokkuð góða knattspyrnu. Það verður að segjast að þeir voru óheppnir að tapa leiknum, jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit, en með smá heppni hefðu þeir getað unnið og styrkt stöðu sína í botnbaráttunni verulega. Bczti maóur Víkinns í þcssum lcik var Diórik markvöróur «k hjá FH bar Valþór SÍMurósson af. I stuttu máli: íslandsmótió 1. dcild. Kapiakrikavöllur. FII - Vfkinxur. 0-1 (0-0) Mark Vikintcs: llinrik Þórhallsson á 80. mfnútu. Gult spjald: Pálmi Jónsson FII. Áhorfcndur 347. Di'imari: l>urvaróur Björnsson «k dæmdi hann þokkalctea vcl. HG. 17 högg á eina braut GUNNAR Þórðarson frá Akureyri lék einn daginn á 72 höggum á íslandsmótinu í golfi og er það frábær árangur. Gunnar lék þó ekki alltaf jafn vel og einn dag- inn fékk hann 17 högg á 15. holunni eða 12 yfir pari. Gunnar hafði á orði að ekki væri hægt að gráta slika spilamennsku, hún væri hlægileg. Ef Gunnar hefði farið þessa holu á parinu hefði hann hlotið 6. sæti i íslandsmótinu. Watsson er tekjuhæstur ATVINNUMENN i golfi hafa mikla tekjur út úr iþrótt sinni, hér á eftir er listi yfir 10 tekjuhæstu golf- leikara i Bandarikjunum það sem af er árinu. Watson er í efsta sæti með 387,725 dollara eða nálægt 200 millj- ónum islenskra króna. dollara 1. Tom Watson 387,725 2. Lee Trevino 295,915 3. Andy Bean 207,556 4. Craig Stadler 183,297 5. Curtis Strange 176,525 6. George Burns 174,264 7. Larry Welson 163,460 8. Jerry Pate 161,902 9. Ben Crenshaw 152,868 10. Doug Tewell 152,392 Stórt mót í Róm .f KYÖLD fer fram mikið frjálsiþróttamót i Rómaborg á ftaliu. Þar mæta til leiks allir bestu frjálsiþrótta- menn heimsins. Flestir nýb- ökuðu ólympfumeistararnir ásamt þeim frjálsiþrótta- mönnum sem ekki tóku þátt í leikunum í Moskvu. Nú biða margir spenntir að sjá viðureign þeirra. Meðal keppenda verða 100 iþrótta- menn frá Bandaríkjunum. Knútur sigraði öldungakeppnin i golfi fór fram um helgina á golf- vellinum Strönd á Rangár- völlum. Það var forseti Golf- sambands fslands, Konráð Bjarnason sem stjórnaði mótinu, sem fór mjög vel fram og gekk vel fyrir sig. Sigurvegari í keppninni án forgjafar varð Knútur Björnsson GK, lék á 74 höggum. Annar varð Hólm- geir Guðmundsson GS, lék á 74 höggum en tapaði i bráða- bana fyrir Knúti. f þriðja sæti varð svo Guðmundur ófeig sson GR á 75 höggum. f keppni með forgjöf sigraði Árni Guðmundsson GOS lék á 58 höggum. Annar varð Baldvin Haraldsson GR á 60 höggum og þriðji Gunnar Stefánsson NK á 62 höggum. í keppni þessari sem nefnd er öldungakeppni leika þeir sem eru 50 ára og eldri. - þr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.