Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 43
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
23
Sanngjarn sigur KR
KR-INGAR báru sigurorð af liði ÍBK 1—0 á Laugardalsvellinum i
gærkvöldi. Leikur liðanna var lengst af mjög fjörugur og liflegur og
allvel leikinn af hálfu beggja liða. Sigur KR var verðskuldaður. þeir
sóttu meira í leiknum og mun hættulegri broddur var i sóknum þeirra.
borsteinn Bjarnason lék nú að nýju i marki ÍBK og átti mjög góðan
leik og bjargaði tvívegis snilldarlega. hörkugóðum skotum KR-inga
sem undir flestum kringumstæðum hefðu gefið mörk.
KR -
ÍBK
1-0
Leikurinn var jafn fyrstu 15
mínúturnar en síðan tók KR-liðið
að sækja stíft og átti ágæt mark-
tækifæri. Það er þó ekki fyrr en á
18. mínútu að þeim tekst að skora.
Jón Oddsson tekur langt innkast
sem berst inn í vítateig IBK. Þar
nær Ágúst Jónsson boltanum,
gefur vel fyrir og Börkur Ing-
varsson skýtur þrumuskoti að
markinu. Þorsteinn hálfvarði bolt-
ann en hélt honum ekki og í netið
fór hann. Þegar upp var staðið
reyndist þetta vera sigurmark
leiksins.
Eitt besta tækifæri ÍBK í leikn-
um kom á 35. mínútu fyrri hálf-
leiksins Ólafur Júlíusson átti
þrumuskot af löngu færi sem
hrökk á fætur Börks Ingvarsson-
ar, breytti stefnu og hafnaði
boltinn í stönginni. Þarna skall
hurð nærri hælum, við mark KR.
Síðari hálfleikur var öllu jafn-
ari en sá fyrri, skiptust liðin á að
sækja og mikil barátta var í
leikmönnum beggja liða. Á 50.
mínútu leiksins veður Sæbjörn
upp völlinn, kemst inn í vítateigs-
horn ÍBK og nær þar mjög góðri
sendingu fyrir markið og Jón
Oddsson kastaði sér fram og náði
þrumuskalla á markið af stuttu
færi, en Þorsteinn varði af snilld.
Á 64. mínútu er Sæbjörn aftur á
ferðinni, kemst inn í vítateig
skýtur geysifallegu skoti efst í
markvinkilinn, en enn grípur
Þorsteinn vel inn í og nær að slá
boltann á hreint meistaralegan
hátt yfir markið. Var þetta sann-
kölluð glæsimarkvarsla. Það sem
eftir lifði hálfleiksins var hart
barist en ekki náðu liðin að skora.
Bestu menn í liði KR voru þeir
Sæbjörn Guðmundsson, sem er
stórefnilegur leikmaður með
mikla knattleikni og auga fyrir
leiknum og Ágúst Jónsson ungur
og efnilegur leikmaður. Þá áttu
Jón Oddsson, Otto Guðmundsson,
og Börkur Ingvarsson allir ágætan
leik. í heildina barðist KR-liðið
vel, og gaf aldrei eftir.
Lið ÍBK átti þokkalegan leik, en
gekk afar illa að skapa sér hættu-
leg marktækifæri. Vörn liðsins
var betri hlutinn í þessum leik,
með Guðjón og Óskar sem bestu
menn. Þá var Gísli traustur.
Ragnar átti góða spretti í framlín-
unni en þarf um of að stóla á
sjálfan sig.
í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild
Laugardalsvöllur KR — ÍBK 1—0
(1-0).
Mark KR:
Börkur Ingvarsson á 18. mínútu.
Gult spjald:
Börkur Ingvarsson KR.
Áhorfendur að leiknum voru 508.
Dómari var Vilhjálmur Vil-
hjálmsson og dæmdi ágætlega.
- ÞR.
Knattspyrna
borsteinn Bjarnason lék að nýju með liði ÍBK í gærkvöldi á móti KR. Átti Þorsteinn góðan leik, en varð þó
að sjá á eftir boltanum i netið i eitt skipti eins og sjá má á myndinni. Það var Börkur Ingvarsson sem
skoraði fyrir KR-inga. Ljósm. Kristján.
Einkunnagjöfln
LIÐ ÍA: Bjarni Sigurðsson 6 LIÐ FH: Friðrik Jónsson 6 LIÐ KR: Stefán Jóhannsson 7
Guðjón Þórðarson 7 Viðar Halldórsson 6 Guðjón Hilmarsson 6
Árni Sveinsson 6 Atli Alexandersson 6 Sigurður Indriðason 6
Sigurður Halldórsson 6 Valþór Sigþórsson 7 Otto Guömundsson 7
Jón Gunnlaugsson 5 Guðjón Guðmundsson 5 Börkur Ingvarsson 7
Jón Áskelsson 5 Magnús Teitsson 6 Jósteinn Einarsson 5
Sigurður Lárusson 6 Helgi Ragnarsson 7 Birgir Guðjónsson 6
Kristján Olgeirsson 8 Ásgeir Elíasson 5 Ágúst Már Jónsson 7
Július Pétur Ingólfsson 6 Valur Valsson 5 Jón Oddsson 7
Kristinn Björnsson 6 Pálmi Jónsson 6 Sæbjörn Guðmundsson 8
Sigþór ómarsson 5 Ásgeir Arinbjörnsson 5 Hálfdán örlygsson 6
LIÐ ÍBV: Páll Pálmason 7 Guðmundur Hilmarsson var of stutt inn á til einkunn. LIÐ VÍKINGS: Diðrik ólafsson Þórður Marelsson Magnús Þorvaldsson varam. að fá 7 5 6 LIÐ ÍBK: Þorsteinn Bjarnason óskar Færseth Guðjón Guðjónsson 8 7 7
Guðmundur Erlingsson 6 Helgi Helgason 5 Kári Gunnlaugsson 6
Viðar Elíasson 6 Gunnar Gunnarsson 7 Gísli Eyjólfsson 6
Snorri Rútsson 5 Jóhannes Bárðarson 6 Skúli Rósantsson 6
Sighvatur Bjarnason 7 Hinrik Þórhallsson 6 Hilmar Hjálmarsson 4
Jóhann Georgsson 6 ómar Torfason 6 Björn Ingólfsson 7
Ómar Jóhannsson 6 Lárus Guðmundsson 6 Ragnar Margeirsson 7
Sveinn Sveinsson 6 Ragnar Gíslason 5 Steinar Jóhannsson 5
Sigurlás Þorleifsson 7 Heimir Karlsson 6 ólafur Júliusson 6
Tómas Pálsson Óskar Valtýsson 7 6 Dómari Þorvarður Björnsson 6 Dómari, Vilhjálmur Vilhjálmsson 7
■tfS-;-. . ' ' < •:%.
.. <
• — HANNES er beztur, það er ekki spurning. heyrðist oftar en einu sinni í Grafarholtinu á
laugardaginn og sannarlega er „stíir yfir sveiflu kappans á þessari mynd. Þó er ekki laust við að
áhyggjusvipur sé á andliti Sigvalda Ingimundarsonar. burðarsveins, sem sést einnig á myndinni.
(Ljnsm. GuAjón).
Björgvin með
flesta titla
SÁ KYLFINGUR, sem oftast
hefur unnið tslandsmótið i golfi,
er Björgvin Þorsteinsson GA með
sex titla. Næstur honum er Magn-
ús Guðmundsson með 5 titla og
þrívegis hafa þeir orðið ís-
landsmeistarar Hannes Eyvinds-
son, Þorbjörn Kjærbo, Þorvaldur
Ásgeirsson og Gisli Olafsson..
Af konunum hefur Jakobina-
Guðlaugsdóttir af flestum titlum
að státa, en hún hefur 4 sinnum
orðið íslandsmeistari, en Jó-
hanna Ingólfsdóttir og Guðfinna
Sigurþórsdóttir þrivegis hvor.
Þeir gömlu standa sig
• Björgvin Þorsteinsson GA hef-
ur oftast allra orðið íslandsmeist-
ari i golfi, en tvö siðustu árin
hefur hann þó orðið að sætta sig
við silfurverðlaunin.
GÖMLU mennirnir i golfinu láta
engan bilbug á sér finna. Þannig
er Þorbjörn Kjærbo, sem orðinn
er 52 ára, meðal 5 efstu og átti
lengi vel góða möguleika á 2.
sætinu. Þá má nefna óttar
Yngvason, sem litið hefur æft og
komst ekki einn æfingahring
fyrir keppnina, en varð eigi að
síður í 10. —14. sæti á mótinu.
Jóhann Benediktsson, sem kom-
inn er á sextugsaldurinn, lék
mjög vel i sveitakeppninni, en
treysti sér ekki i sjálft mótið
vegna veikinda i baki. Hann
gerði sér hins vegar litið fyrir á
dögunum og sigraði i Toyota-
keppninni i Ilafnarfirði, en þátt i
þvi móti tóku flestir sterkustu
kylfingar landsins.
GR-fólk í miklum ham með Hannes
og Sólveigu í broddi fylkingar
ENGINN fékk hnekkt veldi Hannesar Eyvindssonar á íslandsmótinu i
golfi, sem lauk i Grafarholti á laugardaginn. Ilannes notaði 7 höggum
minna en Björgvin Þorsteinsson, sem varð i öðru sæti, en um
silfurverðiaunin var gifurlega hörð og skemmtileg keppni siðasta
daginn. Hannes varð nú íslandsmeistari i golfi þriðja árið i röð og er
það mál manna að hann sé nú áberandi sterkastur islenzkra kylfinga.
Sólveig Þorsteinsdóttir sigraði örugglega i meistaraflokki kvenna og
verður nafn hennar nú i fyrsta skipti skráð i kvennabikarinn, en þessi
18 ára gamla stúlka á örugglega eftir að verða i fremstu röð næstu
árin ef svo heldur sem horfir.
Það var ekki nóg með að
Golfklúbbur Reykjavíkur ætti
bæði kóng og drottningu þessa
íslandsmóts. Af þeim níu gull-
verðlaunum, sem keppt var um á
mótinu, komu 8 í hlut kylfinga úr
GR. Það var aðeins Sigurður Hólm
GK, sem stöðvaði gullflóðið til
GR-fólks með sigri sínum í 2.
flokki. Alls var keppt um 27
verðlaunapeninga og komu 18
þeirra í hlut Grafarhyltinga. 28.
verðlaunapeningnum hefði átt að
úthluta í mótslok, þ.e. fyrir fram-
kvæmd mótsins og allt skipulag.
Hann hefði að sjálfsögðu farið til
Gunnars Torfasonar mótsstjóra
og hans manna í GR, sem héldu
mótið. Þeir stóðu sig með mikilli
prýði og ekki lágu veðurguðirnir á
liði sínu, en í þá 6 daga sem mótið
stóð léku þeir við hvern sinn
fingur og keppendurna, sem voru
um 250 talsins.
Meistaraflokkur
karla
Er keppnin hófst síðasta móts-
daginn hafði Hannes Eyvindsson
tveggja högga forskot á Björgvin
Þorsteinsson, þeir höfðu leikið á
230 og 232 höggum. Síðan komu
Sigurður Pétursson (233), Ragnar
ólafsson (235), Sveinn Sigur-
bergsson (236), Geir Svansson
(238) og Þorbjörn Kjærbo (238).
Eftir að þrjár holur höfðu verið
leiknar höfðu Sigurður og Björg-
vin tekið eitt högg af Hannesi, en
að sex holum loknum hafði bilið
breikkað á ný. Hannes hafði notað
samtals fjórum höggum minna en
Sigurður og Björgvin, sem nú voru
orðnir jafnir. Björgvin hafði ekki
haft heppnina með sér til þessa og
til að kóróna óheppni hans má
nefna að pútt hans á sjöttu braut
rataði beint á miðja holuna, en
vegna ófullkomins holubúnaðar
skrúfaðist boltinn upp úr holunni.
Hann fór holuna því á 4 höggum í
stað þriggja og eflaust hefur þetta
atvik haft sálræn áhrif á kappann.
Eftir þetta jókst munurinn,
Hannes seig frá keppinautum sín-
um og ljóst var orðið þegar 9 holur
voru eftir að veldi hans yrði ekki
ógnað. Nú fóru að berast fréttir af
frammistöðu annarra kylfinga og
Ijóst var að keppnin um 2. sætið
yrði mjög hörð og stæði á milli
fjögurra kylfinga, þeirra Björg-
vins (271), Sigurðar (270), Ragnars
(272) og Þorbjörns Kjærbo (272),
sem lék fyrri 9 holurnar á 34
höggum.
Til að gera langa sögu stutta, þá
lék Hannes eins og herforingi eins
og áður og lék 72 holurnar samtals
á 303 höggum. Björgvin Þorsteins-
son varð annar á 310 höggum, en
Sigurður Pétursson þriðji á 311
höggum. Þorbjörn Kjærbo missti
aðeins taktinn á síðustu holunum
og hafnaði í 4.-5. sæti á 313
höggum. Ragnar ólafsson gerði
sína möguleika að engu á 14 braut
er hann sló tvo bolta út fyrir
völlinn og fór holuna á 8 höggum.
Það var meira en hann þoldi og
varð hann í 4.-5. sæti ásamt
Kjærbo.
Úrslit í
meistaraflokki:
1. Hannes Eyvindsson GR
303 (76-78-76-73)
2. Björgvin Þorsteinsson GA
310 (75-83-74-78)
3. Sigurður Pétursson GR
311 (75-81-77-78)
4. -5. Þorbjörn Kjærbo GS
313 (77-81-80-75)
4.-5. Ragnar ólafsson GR
313 (79-75-81-78)
6. Sveinn Sigurbergsson GK
317 (80-78-78-81)
7. Sigurður Hafsteinsson GR
319 (80-85-78-76)
8. óskar Sæmundsson GR
321 (78-81-80-82)
9. Einar L. Þórisson GR
326 (84-88-73-81)
10. —14. Gunnar Þórðars. GA 328
10.—14. Geir Svansson GR 328
10.—14. Stefán Unnarsson GR 328
10.—14. Júlíus Júlíusson GK 328
10.—14. Óttar Yngvason GR 328
32 keppendur voru í meistara-
flokki karla og var Geir Svansson
beztur eftir fyrsta daginn með 74
högg, en bezta skorinu í flokknum
náði Gunnar Þórðarson GA, 72
högg. Miklar sveiflur voru í ár-
angri ýmissa keppenda á milli
daga og má í því sambandi nefna
Júlíus R. Júlíusson, sem lék á 96
höggum fyrsta daginn, en síðan
lagaðist skorið mjög, var næst 86
högg, þá 75 högg og loks 73 högg
og endaði kappinn að lokum í
10.—14. sæti. Sömu sögu er að
segja um Atla Arason, sem mætti
næsta æfingalítill til mótsins,
hann bætti sig með hverjum
deginum, en það dugði þó skammt.
Er íslandsmótið var haldið í
Grafarholti fyrir þremur árum
var Atli hins vegar í úrslitahópn-
um.
Meistaraflokkur
kvenna
Með mjög góðri spilamennsku
annan keppnisdaginn lagði Sól-
veig Þorsteinsdóttir grunninn að
öruggum sigri sínum í meistara-
flokki kvenna. Þá lék hún á 80
höggum, sem var bezti árangur er
náðist í flokknum. Keppnin stóð
síðan einkum um annað sætið
eftir þrjá fyrstu keppnisdagana.
Sólveig hélt sínu striki að ís-
landsmeistaratitlinum, en Jakob-
ína Guðlaugsdóttir og Ásgerður
Sverrisdóttir börðust um 2. sætið.
Svo fór, að Jakobína hreppti
annað sætið, tveimur höggum á
undan Ásgerði. í fjórða sæti varð
Steinunn Sæmundsdóttir, sem af
mörgum var talin sigurstrangleg í
meistaraflokknum, en 15 konur
kepptu í þessum flokki.
Úrslit:L
1. Sólveig Þorsteinsdóttir GR
337 (90-80-81-86)
2. Jakobína Guðlaugsdóttir GV
343 (85-86-87-85)
3. Ásgerður Sverrisdóttir NK
345 (88-88-85-84)
4. Steinunn Sæmundsdóttir GR
349 (89-84-90-86)
5. Kristín Þorvaldsdóttir NK
357 (93-88-87-89)
6. Þórdís Geirsdóttir GK
364 (91-99-82-92)
1. flokkur karla
Þeir Hans Isebarn og Kristinn
Ólafsson börðust hatrammlega
um efsta sætið í 1. flokki og léku
báðir mjög vel. Svo fór að lokum
að Hans sigraði með 1 höggi og
þurfti hann að setja 2ja metra
pútt niður á síðustu holunni til að
tryggja sér sigurinn. Það tókst
honum, en jafnari gat keppnin
ekki orðið á milli þeirra. Knútur
• íslandsmeistarinn Hannes Eyvindsson athugar púttlinuna vel og fer sér í engu óðslega. Ljósm. Guðjón.
Björnsson varð í þriðja sæti, en
skor margra keppenda í 1. flokki,
og reyndar einnig í 2. flokki, var
lakara en menn í þessum flokkum
eiga að sýna
1. Hans Isebarn GR
319 (82-76-81-80)
2. Kristinn Ólafsson GR
320 (77-76-86-81)
3. Knútur Björnsson GK
326 (87-81-81-77)
4. Tryggvi Traustason GK 334
5. Gunnlaugur Jóhannss. NK 336
6. Jón Alfreðsson GL 337
Flestir þátttakendur voru í
þessum flokki, en 67 kylfingar
hófu keppni.
1. flokkur kvenna
Guðríður Eiríksdóttir sigraði
örugglega í þessum flokki, hún
hafði verið „golfekkja" í fjölda ára
áður en hún byrjaði sjálf að
keppa. 10 konur kepptu í þessum
flokki og urðu úrslit þessi:
1. Guðríður Eiríksdóttir GR
393 (95-103-99-96)
2. Elísabet Á. Möller GR
405 (101-104-100-100)
3. Lilja Óskarsdóttir GR
411 (101-102-108-100)
4. Guðríður Guðmundsdóttir GR
412
5. Kristine Eide NK 413
2. flokkur karla
Sigurður Hólm úr golfklúbbnum
Keili rauf sigurgöngu kylfinga úr
_GR með öruggum sigri sínum í
þessum flokki. öldungameistarinn
Guðmundur Ófeigsson hélt uppi
merki GR í flokknum, en frammi-
staða hans dugði þó aðeins í þriðja
sæti. Akureyringurinn Halldór
Svanbergsson smeygði sér í 2.
sætið. 49 keppendur voru skráðir
til leiks í 2. flokki og úrslit urðu
þessi: .
1. Sigurður Hólm GK
349 (84-92-88-85)
2. Halldór Svanbergsson GA
357 (91-88-85-93)
3. Guðmundur ófeigsson GR
358 (88-93-87-90)
4. Jóhann Sveinsson GR 362
5. Annel Þorkelsson GS 363
3. flokkur karla
Mjög jöfn keppni var í þriðja
flokki allan tímann, en síðasta
keppnisdaginn hristi Hans Krist-
insson helztu keppinauta sína af
sér og sigraði örugglega. Um 2.
sætið þurfti bráðabana og hafði
Jón G. Tómasson borgarlögmaður
þá vinninginn, en hann sigraði
Magnús Guðmundsson flugstjóra
á 1. braut.
1. Hans Kristinsson GR
351 (87-86-92-86)
2. Jón G. Tómasson GR
356 (89-89-92-86)
3. Magnús Guðmundsson NK
356 (85-90-96-91)
4. Baldvin Haraldsson GR 357
5. Steinar Þórisson GR 362
39 keppendur vori í 3. flokki og
var leikið af kvennateigum. Það
rýrir þó ekki árangur Þórodds
Stefánssonar NK, sem lék á 82
höggum síðasta keppnisdaginn.
Aðrir flokkar
Greint hefur verið frá úrslitum
í öldungaflokki og flokkakeppn-
inni. GR sigraði í sveitakeppninni
á 306 höggum, GA varð nr. 2 á 316
höggum og GK í 3. sæti á 321
höggi. í öldungaflokki sigraði
Guðmundur Ófeigsson á 77 högg-
um, Tómas Árnason og Sigurður
Matthíasson léku á sama högga-
fjölda. Með forgjöf sigraði Guð-
mundur einnig, en Kári Elíasson
og Sigurður Matthíasson komu
næstir honum.
- áij