Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
24
Sigrar ísland í
Kalott-keppninni?
KALOTTKEPPNIN í frjálsiþróttum verður háð í Laugardal i
Reykjavík næstkomandi laugardag og sunnudag. Alls taka þátt i
keppninni á þriðja hundrað frjálsiþróttamenn frá íslandi, Norður-
Noregi, Norður-Finnlandi og Norður-Sviþjóð. Norska liðið kom til
landsins i gær og i dag koma sænsku og finnsku iþróttamennirnir.
Úrvalsiþróttafólk er að finna i hverju liði, og islenzka liðið hefur
sennilega aldrei verið sterkara.
Bretinn Sebastian Coe kemur fyrstur í mark í 1500 m hlaupinu á ól-leikunum í Moskvu. Til hægri er
A-Þjóðverjinn Jurgen Straub er varð annar, og til vinstri er Steve Ovett sem öllum að óvörum varð þriðji.
En 1500 m hafa verið hans sterkasta grein um langt skeið. Coe grét af gleði er hann hafði sigrað í hlaupinu
Og náð sér í Ólympiugull. Símamynd - AP.
36 ný heimsmet
Guðrún Ingólfsdóttir
keppir í áttunda sinn
i Kalottkeppninni
Guðrún Ingólfsdóttir hefur tek-
ið þátt í Kalottkeppninni í hvert
einasta skipti síðan íslendingar
hófu þátttöku 1972. Allan þann
tíma hefur Guðrún verið yfir-
burðamanneskja í sínum greinum,
kúluvarpi og kringlukasti hér á
landi.
Guðrún hefur sigrað þrisvar í
kúluvarpinu í Kalottkeppninni en
aldrei í sinni aðalgrein kringlu-
kastinu. Hún stefnir nú að sigri í
báðum greinunum og hefur aldrei
verið í betri æfingu en nú. Guðrún
hefur kastað kúlunni 13,41 m og
kringlunni yfir 49 metra sem
hvort tveggja hefði nægt til sigurs
í keppninni í fyrra.
Helga Unnarsdóttir, Austfirð-
ingur, keppir ásamt Guðrúnu í
kúluvarpinu og hefur hún kastað
lengst 11,87 m. Elín Gunnarsdótt-
ir frá Selfossi keppir í kringlu-
kastinu og hefur hún kastað
lengst 36,80 m. Báðar þessar
stúlkur eru í mikilli framför og
gætu komið verulega á óvart.
Dýrfinna Torfadóttir og íris
Grönfeldt hafa háð mörg einvtgi í
spjótkastinu í sumar og verður
fróðlegt að sjá hvor hefur betur og
hvort þeim tekst að ógna finnsku
spjótkösturunum. íris á íslands-
metið en Dýrfinna hefur kastað
lengra en íris í sumar. íris á best
44,94 m en Dýrfinna 44,52 m.
Stefán, Aðalsteinn og
Elías til alls líklegir
i grindahlaupunum
í Kalottkeppninni
Stefán Hallgrímsson hefur oft
staðið sig mjög vel í Kalottkeppn-
og m.a. sigrað þrisvar í 400 m
grindahlaupinu og einu sinni í 110
m grindahlaupinu. Stefán hefur
einnig hlaupið eftirminnilega
spretti í 4x400 m boðhlaupunum
og oft sýnt ótrúlegt keppnisskap.
Stefán keppir enn á ný í báðum
grindahlaupunum og 4x400 m boð-
hlaupinu og gefst nú landanum
kostur á að sjá Stefán í keppni hér
heima á ný.
Aðalsteinn Bernharðsson keppir
einnig í 400 m grindahlaupinu og
ætti hann að geta ógnað Stefáni,
en þeir unnu þessa grein tvöfalt í
fyrra. Aðalsteinn keppir einnig í
400 m hlaupinu en hann varð
annar í þeirri grein einnig í fyrra.
Aðalsteinn fær að nota start-
blokkirnar fjórum sinnum í
Kalottkeppninni því hann hleypur
í boðhlaupssveitum íslands í 4x100
m og 4x400 m.
Elías Sveinsson hefur tekið þátt
í öllum Kalottkeppnum frá því
íslendingar hófu þátttöku utan
einni. Hann keppir nú í 110 m
grindahlaupi. Elías sigraði á
Meistaramótinu í 110 m grinda-
hlaupinu og bætti þá sinn árangur
verulega og hljóp á 14,93 sek og er
því til alls líklegur í keppninni við
Stefán og hina skandinavisku
frændur sína.
Möguleikar íslendinga til sigurs
í grindahlaupunum eru mjög
miklir og gæti heimavöllurinn
skipt þar miklu máli ef áhorfend-
ur fjölmenna og hvetja sína menn.
Friðrik Þór hefur
mesta reynsluna
af stökkvurunum
Friðrik Þór Óskarsson hefur
verið keppandi allt frá árinu 1972
í Kalottkeppninni að undanskildu
árinu 1976. Friðrik sigraði bæði í
þrístökki og langstökki í keppn-
inni 1975 og sigraði síðan í lang-
stökkinu árið 1977 og hefur oft
hafnað í fremstu sætum í sínum
greinum.
Jón Oddsson keppir í langstökki
með Friðrik, Jón er öllu kunnari
sem knattspyrnumaður en flestir
hallast að því að hann sé efnilegri
langstökkvari.
Kári Jónsson frá Selfossi keppir
í þrístökki og hefur stokkið lengst
í sumar 13,96 m og er í mikilli
framför.
Tveir Austfirðingar keppa í
hástökkinu fyrir ísland. Þeir hafa
báðir stokkið yfir tvo metra.
Unnar Vilhjálmsson 2,01 m og
Stefán Friðleifsson 2,00 m. Unnar
hefur bætt sig geysilega í sumar
og er til alls líklegur. Stefán er
einnig efnilegur og verður fróðlegt
að sjá hvor hefur betur þegar í
alvörunnar er komið í Kalott-
keppninni.
Keppendur íslands í stangar-
stökkinu eru þeir Kristján
Gissurarson og Karl West. Krist-
ján hefur stokkið hæst íslendinga
í sumar 4,27 m, en Karl kemur
næstur honum með 4,16 m. Krist-
ján hefur átt við meiðsli að stríða
í sumar en er nú óðum að ná sé og
kemur hann sennilega til með að
geta ógnað erlendu keppendunum
þó líklega komist hann ekki meðal
fremstu manna.
Um möguleika íslendinga í
stökkgreinunum er það að segja
að þeir eru frekar litlir en það
hefur oft sýnt sig sérstaklega i
stökkgreinunum að óvænt úrslit
koma upp.
ólympiuleikunum i Moskvu
var slitið á sunnudag Glæsilegur
árangur náðist á leikunum og svo
góður i mörgum greinum að
flestum sérfræðingum ofbýður
hversu mikið virðist vera hægt að
bæta árangur i mörgum grein-
um, og spyrja sjálfa sig hvar
endar þetta. Alls voru sett 36 ný
heimsmet á leikunum, 73 ólymp-
iumet og 39 Evrópumet i hinum
ýmsu greinum. Sovétrikin hlutu
flest gullverðlaun á leikunum eða
80 talsins, Austur-Þjóðverjar
hlutu 47. Leikarnir þóttu i heild-
ina hafa tekist vel og allt skipu-
lag var til fyrirmyndar. Nú
LILJA Guðmundsdóttir ÍR hljóp
3000 metra hlaup á frjálsiþrótta-
móti i Norrköping í Sviþjóð um
helgina á 9:51 minútu, sem er
nokkuð frá meti hennar, en
ágætur árangur þegar haft er i
huga, að meiðsl og sjúkdómar
hafa sett veruleg strik í reikning-
inn hjá Lilju i sumar og hún litið
getað æft. Lilja verður meðal
keppenda i Kaíottkeppninni um
helgina. og þar sem hún er óðum
að ná sér, ætti að verða fróðlegt
að fylgjast með henni i þeirri
keppni.
þegar er farið að skipuleggja
næstu ólympiuleika af fullum
krafti en þeir fara fram ef að
likum lætur i Los Angeles árið
1984. Þegar hefur verið valið
merki fyrir leikana og er það örn
sem skýrður hefur verið „Sam“,
jafnframt verður rauð, hvít, og
blá stjarna merki leikanna.
Stjörnur frjálsra íþrótta á leik-
unum í Moskvu voru Yifter frá
Eþíópíu sem sigraði í 5 og 10 km
hlaupunum, Coe og Ovett frá
Bretlandi, Wessig sem setti
heimsmet í hástökki og Pólverjinn
Kozakiwicz sem setti heimsmet í
stangarstökki.
Á sama móti hljóp Einar P.
Guðmundsson FH 400 metra á
50,22 sekúndum, sem er hans
bezta um nokkurt skeið. Stefán
Hallgrimsson UÍA hljóp 400
metra grindahlaup á 52,9 sekúnd-
um. Rut Ólafsdóttir FH hljóp 800
m hlaup á 2:12,5 minútum og
Brynjólfur Hilmarsson UÍA hljóp
800 metra á réttum rúmum 1:54
minútum. A.m.k. Stefán og Rut
verða meðal keppenda i Kalott-
keppninni. _
Kúbumaðurinn Teofilo Stev-
ensson sigraði á þriðju Ól-leikun-
um í röð í þungavigt í hnefaleik-
um, og sigraði í 11 keppnum í röð
án þess að bíða lægri hlut.
Alls voru þrjátíu og sex heims-
met sett í hinum ýmsu greinum
íþrótta á Ólympíuleikunum í
Moskvu. Einu meti minna en sett
var á leikunum í Montreal árið
1976. 68 Ól-met voru sett í Mon-
treal en 62 í Moskvu. Það hefur
líka vissulega sett strik í reikning-
inn að 60 þjóðir voru fjarverandi í
Moskvu. Eftirfarandi heimsmet
voru sett í frjálsum íþróttum á
leikunum í Moskvu. Wessiq
A-Þýskalandi stökk 2,36 metra í
hástökki. Gamla metið var 2,35 m.
Pólverjinn Kozakiewicz stökk 5,78
metra. Gamla metið var 5,77 m.
Sedykh setti met í sleggjukasti
kastaði 81,80 metra. Rússneska
stúlkan Olizarenko hljóp 800 m á
1:53,5 mín. Stúlknasveit Rússlands
setti met í 4x100 m boðhlaupi,
hljóp á 41,85 sek. Þá var sett nýtt
heimsmet í fimmtarþraut kvenna,
Nadezhda Rússlandi fékk 5,083
stig.
Lokastaöan
LOKASTAÐAN i verðlauna-
skiptingunni á Ól-leikunum
í Moskvu. Fjörutíu og fimm
þjóðir hlutu ekki stig, og var island á meðal þeirra. G. S B
Sovétríkin 80 69 46
A-Þýzkaland 47 37 42
Búlgaría 8 16 17
Kúba 8 7 5
Ítalía 8 3 4
Ungverjaland 7 10 15
Rúmenía 6 6 13
Frakkland 6 5 3
Bretland 5 7 9
Pólland 3 14 15
Svíþjóð 3 3 6
Finnland 3 1 4
Tékkóslóvakía 2 3 9
Júgóslavía 2 3 4
Ástralía 2 2 5
Danmörk 2 1 2
Brasilía 2-2
Eþíópía 2-2
Sviss 2
Spánn 1 3 2
Austurríki 1 2 1
Grikkland 1 - 2
Beigía 1
Indland 1
Zimbabwe 1
Norður-Kórea - 3 2
Mongólía - 2 2
Tanzanía - 2 2
Tanzanía - 2 -
Mexíkó - 1 3
Ilolland - 1 2
írland - 1 1
Venesúela - 1 -
Uganda - 1 -
Jamaíka 3
Líbanon 1
Guyana 1
• Sigríður Kjartansdóttir sem þarna sigrar i 100 m hlaupi verður
meðal landsliðsmanna íslands i Kalottkeppnlnni sem hefst næstkom-
andi laugardag.
Fáni Los Angeles borgar verður dreginn að húni er ólympiuleikunum
i Moskvu er slitið. En þar munu næstu leikar fara fram að fjórum
árum liðnum. Bandaríkin mótmæltu þvi að þjóðfáni þeirra væri
dregnn að húni eins og venja er um það land sem næst heldur leikana
og þvi var brugðið á það ráð að nota fána Los Angeles.
Lilja kemur í
Kalottkeppnina