Morgunblaðið - 06.08.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980
27
Spennan eykst hjá
Polu og Korchnoi
Einvígi þeirra Polugajev-
skys og Korchnois í Buenos
Aires hefur orðið mun meira
spennandi en búist var við,
því íyrir fram var Korchnoi
talinn nánast öruggur sigur-
vegari af flestum.
Poiugajevsky hefur aftur á
móti staðið duglega uppi í
hárinu á honum og hefur nú
tekist að jafna metin. en
Korchnoi náði forystu með
sigri í fjórðu skákinni. Eftir
að fimmtu skákinni lauk með
jafntefli tók Polugajevsky sér
veikindafrí. Hann gerði sér
síðan lítið fyrir í sjöttu skák-
inni og lagði Korchnoi að
velli í 50 leikjum. Þetta var
fimmtánda skák Korchnois i
áskorendakeppninni og jafn-
framt fyrsta tapskák hans, en
í fyrstu umferð keppninnar
lagði hann Tigran Petrosjan
fyrrum heimsmeistara að
velli.
Sjöundu skákinni í einvíginu
lauk síðan á sunnudaginn með
jafntefli í 60 leikjum.
Áttunda skákin var geysi-
spennandi. Polugajevsky, sem
hafði hvítt fórnaði peði í byrj-
uninni fyrir sókn, en Korchnoi,
sem er einn þrautseigasti
varnarskákmaður sem uppi
hefur verið var harður í horn
að taka og náði öflugum gagn-
færum. Polugajevsky lenti síð-
an í mjög erfiðu endatafli, þar
sem hann var peði undir og
þegar skákin fór í bið var
aðstaða hans erfið, en þó langt
frá því að vera vonlaus þar eð
fá peð voru eftir á borðinu.
Áttunda skákin tefldist
þannig:
Ilvítt: Lev Polugajevsky
Svart: Viktor Korchnoi
Drottningarindver.sk vörn
1. Rf3 — Rffi, 2. c4 - b6, 3. g3
- Bb7, 4. Bg2 - e6, 5. 0-0 -
Be7, 6. d4 - 0-0, 7. d5!?
(Polugajevsky hefur ekki sótt
gull í greipar Korchnois með
hinu hefðbundna framhaldi 7.
Rc3 — Re4, 8. Dc2 — Rxc3, 9.
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Dxc3. Hann leitar á ný mið og
reynir vel þekkta peðsfórn,
sem var fyrir löngu afskrifuð
sem vafasöm, en hefur skotið
aftur upp kollinum nú að
undanförnu.) 7._____exd5, 8.
Rd4 — Bc6, (Öruggasta fram-
haldið þótti hér 8. ... Rc6, 9.
cxd5 — Rxd4, 10. Dxd4 — c5,
en upp á síðkastið hefur það
ekki reynst svörtum vel. Korc-
hnoi velur því aðra leið, sem
fellur auk þess betur að
skákstíl hans. Hann hirðir
peðið og lætur andstæðinginn
hafa fyrir því að sýna fram á
réttmæti fórnarinnar.) 9. cxd5
- Bxd5, 10. Bxd5 - Rxd5,
11. e4 - Rb l, 12. Rc3 - Bf6
(Fyrir rúmum áratug þegar
austur-þýzki stórmeistarinn
Uhlmann hélt tryggð við þetta
afbrigði þótti þessi leikur
slæmur. Svipuð hugmynd kom
þó nýlega fyrir í skák þeirra
Ligterinks og Byrne í Wijk aan
Zee í ár. Þá lék Byrne 12. ...
R8c6, 13. Rf5 - Bf6, 14. a3 -
Ra6, 15. Rd5 og hvítur hafði
bætur fyrir peðið. Hér endur-
bætir Korchnoi þessa hug-
mynd, en eldri áætlunin var að
leika í næstu leikjum Rb8-c6-
e5-g6.) 13. RÍ5 - He8, 14. Í4?!
(Svartur gat að vísu svarað 14.
a3 með R4c6 og ef 15. Rd5 þá
stendur e-peðið í uppnámi
fyrir svarta hróknum, en hug-
mynd Polugajevskys einkenn-
ist af bjartsýni.) 14.... d6, 15.
Dgl — R8c6,16. e5
(Hugmyndin á bak við 14. leik
hvíts. Polugajevsky ætlar að fá
reit fyrir riddara á e4 og opna
f-línuna jafnvel þó að það
kosti peð.) 16.____dxe5, 17.
Re4 - exf4, 18. Rh6+ - Kf8,
19. Rxf6+ - Dxf6, 20. IIxf4
(Eftir 20. Bxf4 getur svartur
óhræddur leikið gxh6) IIel+ —
21. Kg2 — Re5, (Þessi milli-
leikur kemur hvítum í opna
skjöldu.) 22. Hxf6 — Rxg4, 23.
Hxf7+ (23. Rxg4 dugði skammt
vegna Rc2 og hrókurinn á el er
valdaður.) 23. ... Ke8, 24.
Hxg7 — Rxh6, 25. a3 (25.
Bxh6 — Hxal, 26. Hg8+ — Kf7,
27. Hxa8 — Hxa2 var von-
laust.) 25.... Hd8, 26. axb l —
IId7! (Nú er ljóst að ekkert
nema kraftaverk getur bjargað
hvítum vegna hinnar óþolandi
leppunar á biskupnum á cl.)
27. Hxd7 - Kxd7, 28. Kf2 -
Hhl, 29. Ke2 (Polugajevsky
reynir að losa menn sína með
hjálp kóngsins. 29. ... Hxh2+
væri nú ekki hyggilegt vegna
30. Kd3 - Hhl, 31. Kc2.) 29.
... RÍ5, 30. Kd3 - Kc6, 31. b3
- Kd5, 32. g4 - Re7, 33. Bb2
- IIxh2. 34. Bc3 - Rc6, 35.
Hfl (Hvítur gat ekki gert sér
miklar vonir um að halda
hróksendataflinu eftir 35. b5
- Hh3+, 36. Kc2 - Rd4+, 37.
Bxd4 - Kxd4, 38. Hxa7 -
Hh2+ og hvíti kóngurinn verð-
ur mjög óþægilega skorinn af.)
35. ... Iih3+. 36. Kc2 - a6.
37. IH5+ - Kd6. 38. IIÍ6+ -
Kd7. 39. IH7+ - Kc8, 40. IH8+
- Kb7, 41. IH5
Hér fór skákin í bið. Svartur
lék biðleik. Polugajevsky
stendur greinilega mjög höll-
um fæti. Hann hótar að vísu í
stöðunni að leika 42. b5 og
skipta upp á peðum, en líkleg-
ur biðleikur er 41.... Ra7, sem
bætir svörtu stöðuna töluvert.
Slæmt væri hins vegar 41. ...
Hh4, 42. b5! - axb5, 43. Hxb5
— Hxg4, 44. Hh5 og hvítur
heldur auðveldlega jafntefli.
Losun hafin
úr Hvalvík
LOSUN úr Hvalvikinni. sem leg-
ið hefur í 9 vikur í Nígeríu, er nú
loks hafin fyrir alvöru, að sögn
útgerðarfyrirtækis skipsins.
Aðeins höfðu verið losaðir 5000
ballar af skreið af þeim 30 þús-
undum sem losa á fyrir helgi. Á
laugardag var svo hafist handa við
losun og ef haldið verður áfram án
tafa ætti henni að vera lokið í
næstu viku.
Grænlenzki
drengurinn
er látinn
LITLI grænlenzki drengurinn,
sem komið var með frá Grænlandi
í síðustu viku, og hann lagður inn
á Landspítalann, með heilahimnu-
bólgu, lézt s.l. laugardag, án þess
að komast nokkru sinni til meðvit-
undar. Hann hét Lars Kristiansen
og var tveggja ára gamall.
Kíló urðu tonn!
MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því
á sunnudag, að kaffineyzla lands-
manna hefði aukizt um 30% milli
áranna 1978 og 1979 og jafnframt
að sykurneyzla landsmanna hefði
aukizt um 4.8%. Þegar skýrt var
frá því hver heildarneyzla lands-
manna í magni hefði verið slædd-
ist sú meinlega villa inn, að
landsmenn voru sagðir hafa neytt
2.5 milljónum tonna af kaffi, en
átti auðvitað að vera 2.5 milljónir
kílóa og einnig var sagt að lands-
menn hefðu neytt um 11.3 milljón-
um tonna af sykri, en þar átti
auðvitað að standa 11.3 milljónir
kilóa, enda hefði allur verzlunar-
floti Norðmanna, sem er einn sá
stærsti í heiminum, varla getað,
flutt allt þetta magn. Biðst blaðið
velvirðingar á þessum mistökum.
Al l.l.VSINí. \S1MI\N KR:
22480
JHorounl>l«t>it>
Engin breyting á
Glasgow-fluginu
VIÐRÆÐUR fóru fram i sl. viku í
London við fulitrúa breska utan-
ríkisráðuneytisins og brezkra
flugmálayfirvalda varðandi
framkvæmd loftferðasamnings-
ins milli fslands og Bretlands,
einkum að því er snertir Glas-
gow-flug Flugleiða. Af hálfu ís-
lands annaðist Pétur Thor-
steinsson, sendiherra, viðræðurn-
ar.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði í samtali við Mbl.,
að engin breyting hefði fengist í
þessum viðræðum á flugi félagsins
til Glasgow. — „Við höfum að
undanförnu verið með eina ferð í
viku til Glasgow, en það hefur
ekki reynzt eins hagkvæmt eins og
þetta flug var áður. Þá vorum við
með þrjár ferðir í viku og kom
mjög vel út, en þá var brezka
flugfélagið British Airways ekki
með flug milli Glasgow og Dan-
merkur, en SAS með fjóra daga í
viku á móti okkur. Myndin gjör-
breyttist okkur svo í óhag þegar
British Airways fóru að fljúga á
þessari leið,“ sagði Sigurður
Helgason ennfremur.
Gífurlegt tjón vegna
hringorms á hverju ári
KOSTNAÐURINN við að ná
hverjum hringormi úr fiski var
um 5.60 krónur miðað við verð-
lagið I vor. Ekki Iiggur fyrir hver
ormafjöldi er i vinnslufiski i
heild, en ef gert er ráð fyrir, að
einn og hálfur ormur sé i kiló-
grammi flaka, þá þýðir það
800—1100 milljón króna kostnað
á ári.
Þessar upplýsingar komu fram í
skýrslu Árna Benediktssonar,
stjórnarformanns Sambands fisk-
framleiðenda, um fiskiðnað á átt-
unda áratugnum, sem lögð var
fram á fundi félagsins í vor.
Árni segir þar, að í raun og veru
sé þessi kostnaður mun meiri, t.d.
verði tafir vegna ormatínzlu til
þess að hluti af fiskinum sem
berzt að, verði að vinna í dýrari
tíma, nýting verði verri vegna
afskurðar og sumt fólk í mark-
aðslöndum okkar neyti ekki fisks
vegna hættu á ormi. Af þessum
sökum er tjón af völdum hring-
ormsins ekki reiknanlegt, en aug-
Ijóslega er um miklar fjárhæðir að
ræða.
hófst í gær