Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.08.1980, Blaðsíða 26
1 30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 Guðmundur Þórisson: J ónsmessunætur mar- tröð á sölnuðum akri Jónsmessudagurinn 1980 mun að öllum líkindum verða bændum almennt minnisstæðari en flestir aðrir daicar ársins. I>á hunðist hæstvirtur landbúnaðarráðherra feta í fótspor Alexanders mikla ok höggva á þann Gordionshnút, sem verðlag og framleiðslumál landbúnaðarins virðast komin i. Vist er um það, að hátt var reitt og höKítvið mikið og mun ýmsum sviða drjúgum. Ekki er ég nú samt viss um að ráðherra verði talinn neinn arftaki Alexanders þrátt fyrir höKKÍð. Kemur frekar i huK mér sagan af öðru höggi frægu, cða þegar Áslákur Fitja- skalli hjó Noreg úr hendi Ólafs dÍKra. Var þá mælt, „höKK manna armastur“. Finnst mér þau orð vera vel við hæfi nú eins og þá. Annars finnst mér það lýsa einstöku skopskyni, að birta faKnaðarboðskapinn á Jóns- messudag, sem löngum hefur verið talinn sérstakur hátiðisdag- ur sveitafólks. Dagsetnintrin skiptir nú samt litlu máli móts við það. að öll framkvæmd máls þessa er með endemum og man ég ekki til þess i aðra tið, að ráðherra hafi beitt eða öllu frem- ur misbeitt valdi sinu jafn frek- lega. Verður það að segjast eins og er að mörg eru vandræði bænda. þótt þeir þurfi ekki að búa undir þeim ósköpum, að einstakir menn geti ráðskast jafn harkalega með málefni þeirra, eftir þvi, sem þeir telja sér bezt henta hverju sinni. Vissulega er ljóst að ýmsir hafa um þessi mál fjallað ásamt ráð- herranum, en hans er valdið og ábyrgðin. Hefðu vonandi fáir látið hafa sig til slíkrar valdníðslu. Athygli vöktu ýmsar hæpnar fullyrðingar ráðherrans er hann kynnti bjargráð sín fyrir landslýð. Meðal annars taldi hann ástæður ovenjugóðar fyrir slíkra aðgerðir nú, þar sem útlit væri fyrir afburða heyfeng um allt land. Þetta eru nokkuð einkennileg um- mæli, þegar vitað er að í ýmsum sveitum norðan- og vestanlands eru mjög slæmar horfur vegna stórfelldra kalskemmda. Meira að segja eru sumar þessar sveitir í kjördæmi ráðherrans sjálfs. Ef til vill eru þær svo langt frá, að sjóndeildarhringur hans nái ekki yfir þær. Auðvitað verður sagt að vanda þessara bænda og annara, sem líkt væri ástatt um, megi leysa með endurgreiðslu á einhverjum hluta skattsins eða aðstoð bjargráða- sjóðs. Gallinn er bara sá, að í okkar verðbólguþjóðfélagi, eru hvers konar endurgreiðslur, sem koma seint og síðar meir harla lítils virði. Hafa bændur ekkert sér- staka góða reynslu af slíku og ekki heldur af fyrirgreiðslu bjargráða- sjóðs, svo sem nýleg dæmi sanna. Raunar finnst mér nú það hart að bændum gengið, hvað varðar út- borgun á framleiðslu þeirra, að ekki sé á það bætandi. Er t.d. all algengt að mjólkurframleiðendur fái vart helming framleiðslutekna sinna fyrr en eftir árið og í mörgum tilfellum mun minna. Er það furðulegt hversu hljótt er um þetta einstaka óréttlæti, sem segja má að meira en flest annað geri hlut bænda verri samnanbor- ið við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Þótt alltaf hafi verið mjög aðkallandi að ráða bót á þessu hefur það aldrei verið bfynna en nú, þar sem í viðbót við öll önnur vandræði, sem af þessu stafa bætist það, að samkvæmt núgild- andi skattalögum eru mönnum áætlaðar tekjur vegna verðbólgu- gróða af skuldum. Þó hægt sé að færa sterk rök fyrir því, að verulegur hluti skuldanna sé til beinlínis vegna þess hve miklar eftirstöðvar eru útistandandi, þá er það ekki að einu metið til frádráttar. Þá er að nefna þann útreikning að innflutt blanda hækki um 120—140%, en sú innlenda um 70—80%. Þarna virðist reikn- ingslistin hafa brugðist illilega. Réttu tölurnar munu vera um 180% fyrir þá innfluttu, en 120— 130% fyrir hina. Þetta er ef til vill ekki stór munur fyrir þann, sem ákveður álögurnar, en töluvert alvarlegra fyrir þá, sem þurfa að borga brúsann. Að það kom einnig fram hjá ráðherra að hann virtist ekki gera greinarmun á því hvort skatturinn yrði reiknaður á f.o.b. verði vörunnar er ef til vill ekki umtalsvert og þó. Þá taldi ráðherrann ástæðu- laust fyrir mjólkurframleiðendur að kvarta yfir þessu verði, ekki væri langt síðan að kg. af kjarn- fóðri kostaði ámóta mikið og mjólkurlítri, hefði engum þótt það mikið. Nú fengju bændur 306 kr. fyrir lítra og væri það svipað og kjarnfóðurverðið myndi fara í. Þetta er nú ekki alveg svona einfalt. Á þeim árum, sem um ræðir, kom kjarnfóðurverðið allt ínn í verðlagið, en var ekki að meirihluta beinn skattur, er bændur þurfa að greiða af nettó- tekjum sínum, sem ekki hafa verið of ríflegar undanfarið. Annað er það, að í reynd fer kjarnfóðurverð langt upp fyrir grundvallarverð mjólkur í dag. Verð sem þar að auki næst örugglega ekki, i fyrsta lagi vegna þess að yfir sumarmánuðina skal samkvæmt ákvörðun framleiðslu- ráðs greiða a.m.k. 10% undir grundvallarverði fyrir mjólkina, eða í mesta lagi um 275 kr. fyrir lítra, á móti um 365 kr. fyrir kjarnfóðurkílóið. Þar að auki eru horfur þannig, að nánast engar líkur eru fyrir því að fullt verð náist almennt á þessu ári og hefur ekki heyrst um aðrar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja að svo fari heldur en að láta bændur sjálfa greiða sér það, sem á vantar með skattlagningu. Verður slík aðferð að teljast hrein ósvífni og í beinu ósamræmi við ákvæði gildandi laga um það að bændur skuli hafa hliðstæðar tekjur og aðrar stéttir. Einnig mun tekið fram í núgild- andi stjórnarsáttmála, að einskis skuli látið ófreistað til að slíkt takist. Munu bráðabirgðalögin vera skref í þá átt. Hræddur er ég um að opinber- um starfsmönnum litist ekki á þá lausn mála sinna, að allhár skatt- ur, t.d. 30—40% af launum þeirra, yrði tekinn og notaður til þess að greiða þeim launauppbót. Ætli að nokkrir nema bændur létu bjóða sér slík vinnubrögð. En hver er þá ástæðan fyrir því að farið er út í þetta heljarstökk nú? Forsvarsmenn aðgerðanna telja megintilgang þeirra að milda áhrif kvótakerfisins. Heldur finn- ast mér það haldlítil rök, eða hver trúir því í alvöru að léttara sé fyrir menn að draga verulega úr framleiðslunni ef þeir þurfa jafn- framt að greiða fleiri milljónir í kjarnfóðurskatt. Ég hef talið að grundvallarskilyrði fyrir því, að bændur gætu stóráfallalaust tekið á sig þá framleiðsluskerðingu sem nauðsynleg er, væru í fyrsta lagi þau, að þeir gætu fengið allar rekstrarvörur á sem hagstæðustu verði, í öðru lagi að skilyrðislaust sé tryggt að þeir fái fullt verð fyrir heimilað afurðamagn og í þriðja lagi, að útvegað sé fjár- magn til þess að unnt sé að standa sem næst fullum skilum á afurða- verðinu við innlegg. Bráðabirgðalögin gera ekkert af þessu auðveldara í framkvæmd. Þvert á móti, þau gera þessi takmörk fjarlægari en nokkru sinni fyrr. Þá hefur því verið haldið mjög á lofti að nota ætti verulegan hluta þess fjármagns, sem næðist með skattheimtunni, til þess að greiða fullt verð fyrir fyrstu ærgildisafurðirnar. Hafa verið höfð mörg stor og falleg orð um það, hvílíkt réttlætismál þarna sé á ferðinni. Nú gerðist það að Agnar Guðnason kom fram í útvarpinu og sagði þetta með öllu óraunhæft, mikið mundi vanta upp á að nægilegt fjármagn inn- heimtist til slíkra aðgerða. Ef til vill sýnir sá ágreiningur, sem þarna kemur fram um áhrif lag- anna, betur en margt annað, hve illa undirbúið og vanhugsað þetta einstaka asnaspark er. En lítum aðeins á hve mikið bjargráð þetta yrði fyrir bænd- urna á minni búunum, ef gengið er út frá því, að áætlun ráðherra standist. Bóndi með 300 ærgilda bú og eingöngu mjólkurfram- leiðslu, framleiðir fyrir um það bil 15 milljónir króna miðað við að fullt grundvallarverð náist. Sú 8% skerðing, sem honum er reiknað eftir kvótakerfinu nemur þá 1,2 milljónum. Sé reiknað með mjög góðri útkomu á búinu, þýðir þetta lækkun á nettótekjum um 5— 600.000 kr. Upphæð sú er hann þarf að greiða í kjarnfóðurskatt yrði hins- vegar um 2.400.000 kr. og er þá gengið út frá hóflegri notkun kjarnfóðurs. Lágmarkstap, sem viðkomandi bóndi yrði fyrir vegna þessara aðgerða næmi þá 1.800— 1.900.000. kr. Þetta held ég að flestir myndu kalla bjarnargreiða. Útkoman yrði að sjálfsögðu mjög ólík ef um sauðfjárrækt væri að ræða. Þar kemur fram einn af göllum kjarnfóðurskattsins. Það er hve ákaflega misþungt hann leggst á bændur. Fyrst og fremst eftir því hvaða búgrein þeir stunda, en einnig því, hvar þeir eiga heima. í reynd er mönnum með skattinum refsað fyrir það að búa í harðbýlli löndum og skýtur það nokkuð skökku við gagnvart þeirri byggðastefnu, en helstu forsvarsmenn telja sig fylgja. Nei, orsakirnar fyrir þessari framkvæmd er að verulegu leyti hægt að rekja til þeirrar stað- reyndar að stór hópur svokallaðra framámanna okkar, hefur aldrei getað sætt sig við neina aðra lausn á vandamálum bænda heldur en kjarnfóðurskatt. Skipti þá ekki öllu máli hvaða leiðir eru farnar til þess að koma honum á eða hverjar afleiðingarnar verða. Enda er það gömul kenning að tilgangurinn helgi meðalið. Hafa ýmsir ofstækishópar haft hana að leiðarljósi með miður gæfulegum afleiðingum. Þessir menn hafa löngum talið það eitt helsta nauð- synjamál stéttarinnar, að ná til þeirra manna, sem komist hafa upp með það að fá óeðlilega miklar afurðir eftir gripi sína, svo tekin sé orðrétt einkar athyglisverð setning, er var að finna í álitsgerð einnar þeirrar óteljandi nefnda, sem skipaðar hafa verið til þess að leysa vandamál landbúnaðarins. Fróðlegt væri að fá upplýst hvað séu óeðlilega miklar afurðir. Er það athyglisvert að meðal grannþjóða okkar er það talin undirstaða fyrir góðri afkomu bænda, að búpeningurinn skili miklum afurðum. Hér virðist slíkt aftur á móti talið mjög ámælis- vert og jafnvel jaðra við landráð. í því sambandi er mikið talað um óhóflegan innflutning kjarn- fóðurs, en hverjar eru staðreynd- irnar þar um. Á árinu 1978 voru samkvæmt upplýsingum hagstof- unnar fluttar inn fóðurvörur fyrir 2,4 milljarða. Ef teknir eru til samanburðar þeir vöruflokkar, þar sem um beina samkeppni við innfl. framleiðslu er að ræða, þá er það ár flutt inn húsgögn fyrir 2,8 milljarð, tilbúinn fatnaður fyrir 2,0 milljarða. Þarna væri aldeilis verkefni fyrir skattkóng- ana að skattleggja þennan inn- flutning um ein 200% eða svo til styrktar einhverju góðu málefni. Slík hugmynd yrði trúlega ekki ýkja vinsæl vegna þess að þann skatt þyrfti þjóðin öll að borga, en ekki takmarkaður hluti bænda- stéttarinnar. Að lokum þetta, vandi bænda verður ekki leystur með neinum móðursýkislegum leiftursóknar- aðferðum eins og nú virðast efst á baugi. Það verður annað að koma til. Horfast verður í augu við þá staðreynd að umtalsverð offram- leiðsla á sér stað í hinum hefð- bundnu búgreinum. Þar verður að koma á nauðsynlegum samdrætti skipulega og undanbragðalaust. Sú eina leið, sem þolanlega er fær til þess að framkvæma slíkt er kvótakerfið. Einfaldlega vegna þess að það eitt býður upp á ákveðna möguleika til þess að mæta samdrættinum, með auk- inni hagræðingu og eins vegna þess að þá vita menn nokkuð hvar þeir eru staddir og geta hagað aðgerðum sínum eftir því. Jafnframt verður að vinna að því að auka möguleika bænda á fjölbreyttari framleiðslu. Verður í því sambandi að telja mjög ámæl- isverða veitingu landbúnaðarráðu- neytisins á leyfum til loðdýra- ræktunar. Þar voru ekki að einu leyti viðurkenndur forgangsréttur bænda til slíks rekstrar og því síður að neitt kæmi fram um rétt þeirra, sem sérstaklega yrðu hart úti við samdráttinn. En vonandi að hér sér ekki um stefnumark- andi aðgerðir að ræða. Guðmundur Þórisson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.