Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 29

Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 33 Margrét Otta- dóttir — Minning Fædd 3. september 1901. Dáin 28. júlí 1980. Magga fæddist hér í bæ þriðju- daginn 3. sept. 1901. Foreldrar hennar voru hjónin Otti Guð- mundsson skipasmiður frá engey og kona hans Helga Jónsdóttir. Hún bar nafn formæðra sinna í beinan kvenlegg þeirra: Margrétar Bjarnadóttur, ömmu sinnar, konu Jóns gullsmiðs Bernharðssonar í Laxnesi, Mosfellssveit, Margrétar Björnsdóttur, langömmu sinnar, konu Jóns bónda að Unnarholti í Hreppum Þorlákssonar og Mar- grétar Aradóttur langalangalang- ömmu sinnar, konu Jóns bónda í Eskiholti, Borgarhreppi, Mýra- sýslu. Hún ólst upp í föðurhúsum, gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og strax að námi loknu hóf hún störf á Ljósmyndastofu Sigríðar Zoega og vann þar samfleytt þar til skömmu eftir að hún giftist, mánudaginn 11. ágúst 1932, Sigurði Jóni Jónssyni stýrimanni, síðar skipstjóra hjá Eimskipafélagi ís- lands. Sigurður Jón var fæddur 12. febrúar 1899 á Bakka á Seltjarn- arnesi, sonur hjónanna Jóns Sig- urðssonar sjómanns og Oddrúnar Elísabetar Jónsdóttur saumakonu. Þau voru bæði ættuð af Álftanesi, en Oddrún í móðurlegg úr Reyk- holtsdal og úr Dölum vestur, þar má finna forfeður einsog Jakob sýslumann Benediktsson hinn danska frá Jótlandi. Siggi og Magga hófu búskap á Öldugötu 40, en fáum árum síðar byggði Siggi í félagi við Jón bróður sinn húsið Bárugötu 31 og bjuggu þau þar upp úr því. Hjónaband þeirra var einkar farsælt og þau mjög samhent. Þau eignuðust tvo syni: Jón Otta f. 26.11, 1934, raftækni, kvæntan Sigríði Kr. Kristjánsdóttur rönt- gentækni, f. 7.1, 1939, dóttur Kristjáns Á. Þorsteinssonar sjó- manns og Vilborgar Þjóðbjargar- dóttur frá Akranesi. Eiga þau einn son, Sigurð Jón fæddan 6.10, 1961. Yngri sonurinn er Helgi f. 22.5, 1937, stórkaupmaður, kvænt- ur Erlu Þórisdóttur f. 22.4, 1941, dóttur Þóris kaupmanns Skarp- héðinssonar frá Hróarstungu í Axarfirði og Unnar Þórarinsdótt- ur frá Reyðarfirði. Eiga þau fjög- ur börn: Þóri Helga f. 18.12 1963, tvíbura, Sigurð Grétar og Héðin Þór f. 5.5, 1968 og Unni f. 24.2, 1977. Strax á unga aldri öðlaðist Magga sína barnstrú og varð vel kunnug Biblíunni. Þetta hefur örugglega veitt henni styrk þegar eiginmaður hennar var í sigling- um öll stríðsárin ýmist sem stýri- maður eða skipstjóri á gamla Selfossi og varð þá oft að fara einskipa á hættulegum siglinga- leiðum. En grunur minn er sá að að þessar siglingar hafi verið of spennukenndar og átt sinn þátt í því að Siggi féll frá aðeins 64 ára þann 17. maí 1963. Magga var einnig mikil blómaræktarkona og hafði ræktað fallegan garð við heimili sitt sjálfri sér og öðrum til yndisauka. Eins og títt er um sjómannskonur þá verða þær oft að sinna uppeldishlutverki feðr- anna einnig, en þetta átti Magga mjög auðvelt með því hún var mjög stjórnsöm og hafði ákveðnar sjálfstæðar skoðanir á málum, hún var hreinskilin, en stundum nokkuð dómhörð. Það var ætíð ánægjulegt að heimsækja Möggu töntu eins og hún var vanalega nefnd, hún átti alltaf eitthvað gott í búrinu og veitti af rausn. Bróðir minn var mikill heimagangur á heimili hennar og færir hann beztu þakkir fyrir mikla vináttu og gott atlæti. Systir mín kom upp nafninu hennar og gladdist hún mjög yfir því. Þá var Magga mjög félagslynd og tók virkan þátt í félagsstörfum stýrimanna og skipstjórakvenna og gladdist í vinahópi meðan heilsa entist, en hún átti við fádæma heilsuleysi að búa hin síðari ár, spítalalegur urðu nærri 30 og 18 sinnum gekk hún undir skurðarhnífinn. Það eru orðin nokkuð mörg ár síðan Magga sagði við mig, að hún væri tilbúin að fara, vinur sinn væri farinn og væntanlega verða endurfundirnir að óskum hennar. Blessuð sé minning hennar. Sveinn Hallgrimsson Þegar við kveðjum tengdamóður okkar, Margréti Ottadóttur, koma fram hugljúfar minningar liðinna ára. Margrét var fædd 3. septem- ber 1901, giftist Sigurði Jóni Jónssyni 11. ágúst 1932, en hann lézt 17. mái 1963. Nær allan sinn búskap bjuggu þau að Bárugötu 31. Margrét hafði sérstakan per- sónuleika, hún var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, jafn- framt því var hún hrein og bein í sinni framkomu og vildi að þannig væri komið fram við sig. Blómarækt var hennar yndi og áhugamál og ófáir eru þeir, sem hafa fengið góð ráð hjá henni. Garðurinn á Bárugötunni hefur oft verið hreint augnayndi. Með fjölskyldu sinni fylgdist hún alltaf mjög náið, enda var sérlega sterkt og gott samband þar á milli. Þau tuttugu ár, sem við höfum þekkt Margréti, hefur hún alla tíð reynzt okkur hið bezta. Hún vakti yfir velferð heimila okkar og hlýjan til okkar var einlæg. Eftir að þarna- börnin komu til sögunnar lifði hún og hrærðist fyrir þau og sýndu þau henni gagnkvæma hlýju. Á sunnudögum var amma Magga sótt á annað hvort heimilið og var þá veskið hennar ömmu vinsælt, enda geymdi það alltaf eitthvað gott í litla munna. Fram- vegis verða sunnudagarnir ekki þeir sömu. Síðustu árin hefur hún oft verið mikið veik og þrek hennar farið smátt og smátt dvínandi, en alltaf hélt hún sínu létta skapi, bjart- sýnin og dugnaðurinn í þessum veikindum öllum var einstakur. Hún gat dvalið á heimili sínu til hins síðasta og er það ekki sízt að þakka sambýlisfólki hennar, og viljum við færa Áróru okkar beztu þakkir fyrir hennar einstöku um- hyggju og hugulsemi við hana. Þótt söknuður okkar sé sár getum við huggað okkur við það, að hún fékk einlæga ósk sína uppfylta, að fá að kveðja þennan heim heima hjá sér og fá að sofna út af í rúmi sínu. Við vitum að vel verður tekið á móti henni af hennar góða eigin- manni, sem hún saknaði svo mjög, svo og öðrum ástvinum og biðjum algóðan guð að haida sinni vernd- arhendi yfir þeim um ókomna tíð. Erla og Siddý Það er ekki ætlunin með þessum línum að skrifa venjulega minn- ingargrein, heldur fáein kveðjuorð að leiðarlokum. Ég þakka hjartan- lega allar samverustundirnar okkar, ástúð ömmu minnar og umhyggju í minn garð alla tíð. Það var alltaf jafngott að koma til hennar, innileikinn og hlýjan í móttökunum var alltaf söm, og ástfóstrið, sem hún tók við lang- ömmudrenginn litla gleymist ekki. Það var eins og jafnan birti yfir henni, þegar fundum þeirra bar saman, þótt hún væri þá oft sárþjáð. Og þegar ég nú rifja upp kynni okkar, finn ég best hve bjart er yfir þeim í minningunni, og ég kveð Margréti ömmu mína með innilegri þökk fyrir samveru- stundirnar. Unnur. Birting afmœlis- og minningar- greina. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Verktakar ■ Framleiðendur ■ Bændur Meö stuttum fyrirvara getum við útvegaö frá RUBB-BUILDING, Englandi, minni og stærri skemmur á hagstæöu veröi. Breiddir frá 3 metrum til 32 metra, lengdir eftir þörfum. RUBB-skemmurnar eru geröar úr galvaniseraðri stálgrind meö ástrengdum nylon-húöuöum PVC. 20x51 metra skemmur notaðar sem lager-húsnæði fyrir olíuiðnað- inn í Stavangri. 2 menn reisa þessa skemmu á 2 tímum. Stærö 5x6 m, 270 kg. Flytjanleg meö krana. Brúarsmíöi í Brevik, Noregi. Unnið er inni í skemmunni við Flugskýli í Norður-Noregi. járnlagnir og steypu allan veturinn. Meira en 1000 RUBB-skemmur eru í notkun vtösvegar um heim. í háfjöllum Noregs, viö sjóinn, í miklum hitum í suöurlöndum. Endingartími dúksins 15—20 ár. Allan þann tíma er hann viöhaldsfrír (án óhappa). Skemmurnar þola vindhraöa 46 m/sek. og hægt er aö fá þær fyrir 54 m/sek. Styrkleiki vegna snjóþunga 75 kg/ferm. RUBB-skemmurnar eru notaðar sem flugskýli, lagerhús- næöi, framleiðsluhúsnæði, bílasölur, skipasmiöjur, geymslur og ótal margt annaö. Látiö RUBB-skemmurnar leysa vandann — Leitiö verötilboöa EF Einkaumboð ffyrir EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10A. Sími 21565 — 27370. RUBÍ BUILDINGS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.