Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 35 Minning: Ragnar Ólafur Jóhann- esson skattstjóri hún skildi jafn vel að áfram þyrfti að ryðja brautina til öruggari og betri framtíðar fyrir alla alþýðu. Margrét tilheyrði aldamóta- kynslóðinni sem hafði tileinkað sér bjartsýni og kjark og vann það afrek að lyfta Islandi úr alda- langri fátækt og umkomuleysi til ágætra bjargálna og nútíma at- vinnuhátta. Allir lögðu þar skerf af mörkum, þótt með mismunandi hætti væri. Þessum afrekum á að halda á lofti og kynna þau þeirri ungu kynslóð, sem er að taka við forráðum í þjóðfélaginu og á að bera ábyrgð á frelsi landsins. I allri umgengni og viðræðu var Margrét ákaflega hreinskiptin. Hún átti það stundum til að láta fjúka orð eða setningar sem hittu skemmtilega í mark og settu viðmælandann í nokkurn vanda. Þetta kom eins og sjálfkrafa og fyrirhafnarlaust. Allt slíkt var þó græskulaust og að gamni haft í framhaldi viðræðnanna. Síðustu árin átti Margrét við mikla vanheilsu að stríða enda var aldurinn orðinn hár og líkaminn slitinn. Hún varð oft að fara á sjúkrahús en komst þó jafnan heim aftur, nema úr síðustu leg- unni. I veikindum hennar kom glöggt fram það þrek og æðruleysi sem ávallt hafði einkennt líf hennar. Hún fylgdist með öllu til hins síðasta. Og sem dæmi um kjark hennar og óbilandi áhuga er sú staðreynd, að ekki var við annað komandi í forsetakosning- unum 29. júní sl. en hún yrði keyrð á kjörstað til að neyta kosninga- réttar síns. Kom þessi ótrúlegi kraftur öllum á óvart sem vissu hvernig heilsu hennar var þá komið. Og það vakti henni óblandna gleði er ljóst varð að Vigdís frænka hennar hafði náð kjöri sem forseti íslands. Þessum kveðjuorðum verður ekki lokið án þess að getið sé þeirrar óvenjulegu fórnfýsi og ástúðar sem dóttir Margrétar, Sigurbjörg, hefur sýnt móður sinni og raunar báðum foreldrum sínum í þeirra erfiða sjúkdóms- stríði á elliárunum. Ætla ég að sú umhyggja, sem Sigurbjörg hefur sýnt foreldrum sínum báðum, sé næsta einstök og órækur vottur um mikla mannkosti. Nú þegar leiðir skilja vil ég í nafni okkar Mörtu og fjölskyld- unnar allrar færa fram einlægar þakkir til hinnar látnu vinkonu og frænku fyrir langa og trausta samfylgd og dýrmæta vináttu sem við munum öll geyma í þakklátu minni. Börnum Margrétar, fjöl- skyldum þeirra og ástvinum öllum vottum við innilega samúð og látum í ljósi von um að minningin um svo mikilhæfa og merka konu, sem Margrét var, verði þeim öllum harmabót í söknuði þeirra um- skipta sem nú hafa orðið. Guðmundur Vigfússon. Fæddur 2. júni 1911. Dáinn 28. júli 1980. Þegar mér var tilkynnt að Ragnar Jóhannesson skattstjóri hafði látist á heimili sínu hinn 28. júlí sl. kom mér það mjög á óvart. Við höfðum þá fyrir þrem vikum verið á skattstjórafundi og virtist hann þá vera við góða heilsu, hress og kátur eins og hans var vandi við slík tækifæri. Mun engan, sem þar var hafa órað fyrir því, að ævi hans væri senn lokið. Það er ekki ætlun mín með þessum línum að rekja ættir og uppruna Ragnars né starfsferil hans. Til þess er ég honum ekki nægilega kunnugur, en ég á von á því að það muni aðrir gera. Þó veit ég að Ragnar hefur á sinni starfsævi haft margvísleg trúnað- arstörf á hendi auk síns aðalstarfs í skattakerfinu, en þar starfaði hann samfleytt síðastliðin 26 ár, var skattstjóri Siglufjarðarkaup- staðar árin 1954—1962 og síðan skattstjóri Norðurlandsumdæmis vestra frá stofunun þess embætt- is. Hefur hann verið farsæll í þessu starfi og ætíð getað leyst það vel og samviskusamlega af hendi þrátt fyrir ýmsa erfiðleika sem við hefur verið að etja á stundum. Allir starfsbræður Ragnars munu hafa átt við hann gott samstarf og ánægjuleg sam- skipti. Starfsáhugi hans var ætíð mikill. og það var gott til hans að leita, enda var hann að eðlisfari prúðmenni, vingjarnlegur og við- mótsþýður. Munum við starfs- bræður hans eflaust sakna þess að hafa hann ekki meðal okkar næst þegar við komum saman til fund- ar. Ég vil því að leiðarlokum, fyrir mína hönd kveðja Ragnar starfs- bróður með innilegum þökkum fyrir samstarfið og samverustund- irnar á liðnum árum. Blessuð sé minning hans. Konu Ragnars, frú Guðrúnu Rögnvaldsdóttur og fjölskyldu þeirra flyt ég ennfremur hugheil- ar samúðarkveðjur. Sveinn Þórðarson Ragnar ólafur Jóhannesson, skattstjóri á Siglufirði, andaðist 28. júlí sl. og verður jarðsettur á Siglufirði í dag. Hann varð rúm- lega 69 ára gamall, fæddur 2. júní 1911 að Glæsibæ í Skagafirði. Kona hans er Guðrún Rögnvalds- dóttir og varð þeim hjónunum tveggja dætra auðið. Kynni okkar Ragnars hófust á árinu 1962 þegar hann var skipað- ur skattstjóri Norðurlandsum- dæmis vestra, með aðsetri á Siglu- firði. Sá kunningsskapur leiddi til vináttu sem aldrei bar skugga á. Ragnar var alla tíð einlægur og traustur vinur sem vann starf sitt af alúð og samviskusemi, af fullri einurð, réttsýni og sanngirni. Ragnar var ljúfur maður, vel- viljaður og vildi hvers manns vanda leysa og lagði mikið í sölurnar fyrir aðra þótt hann flíkaði því lítt. Slíkir menn eru ekki of margir meðal okkar, en að leiðarlokum er þeirra sárt saknað. I huga mínum lifir minningin um góðan starfsfélaga, hlýjan og traustan mann, sem var vamm- laus, búinn góðum kostum og með einstakan gerðarþokka. Með þessum línum vil ég kveðja góðan og einlægan starfsfélaga og flytja Guðrúnu og dætrum þeirra Ragnars mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Sigurbjörn Þorbjörnsson. ATHYGLI skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili. Gítartónleikar í Norræna Húsinu Wim Hoogewerf gítarleikari. WIM Hoogewerf, gítar- leikari, heldur tónleika í Norræna húsinu kl. 20.30 í kvöld. Hann mun leika verk eftir Villa- Lobos, Ponce, Martin og Jónas Tómasson. Wim Hoogewerf fædd- ist árið 1956 í Ymuiden í Hollandi. Hann hóf nám í klassiskum gítarleik hjá Theo Krumeick 1971 og stundaði framhalds- nám við Sweelink Kon- servatorium í Amster- dam hjá Dick Visser, þar til hann lauk einleiks- prófi 1980. Wim er ein- kum þekktur fyrir flutn- ing sinn á nútímatónlist. Hann hefur haldið fjölda tónleika, bæði í heima- landi sínu og í Frakk- landi, og auk þess komið fram í útvarpi og sjón- varpi. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐNY J. GÍSLADÓTTIR, Barónsstíg 39, veröur jarösungin trá Fríkirkjunni í dag, miövikudaginn 6. ágúst kl. 15.00. Haraldur Siguröason, Guðrún Samúelsdóttir, Árni og Siguröur Guðni. t Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, HJALTI GUDNASON, Hallveigarstíg 8, andaöist 26. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 8. ágúst kl. 14.00. Hulda Guðmundsdóttir, Margrét Hjaltadóttir Medek, Peter Medek, Vigdís Hjaltadóttir, Steingrímur Gunnarsson, Björk Hjaltadóttir, Guðmundur Brynjólfsson og barnabörn. t Bróöir okkar, HÖDUR JÓNSSON, bifreiðaeftirlitsmaöur, Álfheimum 58, ( veröur jarösunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 8. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Hertha W. Jónsdóttir, Gunnar Á. Jónsson, Ólafur H. Jónsson. t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GISLI SIGURDSSON, Óöinsgötu 18, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 7. ágúst kl. 3 e.h. Einar Gíslason, Helga Jónsdóttir, Halldóra Gísladóttir, Ástþór Markússon, Guölaug Gísladóttir, Sigurður M. Jónsson, Haraldur Gíslason, Gerða Friðriksdóttir, Haukur Gíslason, Helga Karlsdóttir, Gunnar Gíslason, Lára Loftsdóttir. t Eiginmaður minn, faöir og sonur, GEORG KRISTINN A’RNÓRSSON, bókavörður, Byggðarenda 8, veröur jarösunglnn frá Bústaöarkirkju fimmtudaginn 7. ágúst kl. 3 e.h. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Ásgerður Runólfsdóttir, Guðfinna Olbrys, Sigrún Ólafsdóttir. t Innilegar þakkir og kveöjur til allra þeirra, er sýndu okkur samúö og hlýhug vegna andláts og jaröarfarar sonar okkar, unnusta og bróöur, MAGNUSARJÓHANNESSONAR, Melavegi 7, Hvammstanga. Sveinbjörg Ágúatsdóttir, Jóhannes Magnússon, Emilía Stefánsdóttir og systkini. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför fööur míns, tengdafööur og afa. EYJÓLFS ÞORSTEINSSONAR, húsasmíöameistara, Laugateig 34. Sigrún Eyjólfsdóttir, Ulfar Hermannsson, Eyjólfur, Sigríður Stefanía, Eyþór Árni. Lokað veröur eftir hádegi í dag, miðvikudag 6. ágúst, vegna jarðarfarar Margrétar Ottadóttur. Heildverslunin Engey hf., Barónsstíg 5.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.